Ísafold - 26.04.1899, Page 1

Ísafold - 26.04.1899, Page 1
Kemnr út ýmist einu sinni eða tvisv. i viku. Yerð árg. (80 ark. minnst) 4 kr., erlendis 5 kr. eða 14/a doll.; horgist fyrir miðjan júlí (erlendis fyrir fram). ÍSAFOLD. Uppsögn (skrifleg) bunain við áramót, ógild nema komin sje til útgefanda fyrir 1. október Afgreiðslustofa blaðsins er Austurstrœti 8. XXYI. árg. Reykjavík, niiðvikudaginn 26. apríl 1899. 26. blað. I. 0. 0. F. 814288V»- Forngripasafnopiðmvd.og ld. kl.ll—12. Landsbankinn opinn hvern virkan dag kl. 11—2. Bankastjóri við 12—2, annar gæzlustjóri 12—1. Landsbókasafn opið hvern virkan dag kl. 12—2, og einni stundu lengur (til k).3) md., mvd. og ld. til útlána. rrTTmfTTTT? YT7 YTTXXLJ Ttf: Þingmaniiaskifti. Fyrri þingmaður Eangvellinga, Sig- hvatur Árnason, hefir sagt af sérþing- mensku, 14. þ. mán., og á því að fara fram aukakosning í því kjördæmi í hans sæti á alþingi fyrir þing í sum- ar, í miðjum júnímánuði; svo hefir landshöfðingi skipað fyrir og sent gagn- gjört austur til sýslamanns með þau skeyti daginn eftir að póstur kom síð- ast (22. þ. m.) með uppsögn Sighvats. Sighvatur var bæði elztur maður á þingi hér, rúmlega hálfáttræður orðinn nú, og elztur þingmaður. Ilann hefir setið á 16 þingum alls: 2 ráðgjafar- þingum (1865 og 1867) og 14 löggjaf- arþingum (1875—1897). Fyrri lög- gjafarþingin 10 átti hann sæti í efri deild (1875—1891), en síðustu 4 í neðri. — það var Grímur Thomsen, sem komst upp á milli hans og kjós- enda hans 1868 og hafði hans sæti þingin 1869, 1871 og 1873 ; ella mundi þingmenska hans að líkindum aldrei hafa slitnað ; svo tryggir voru þeir við hann fvr og síðar. Hannvar maður trúlyndur og stefnu- fastur í þingmensku sinni, alúðar- maður mikill og gætinn, viðmótsþýður og óáleitinn. Hann varði vel sínu pundi, sinni góðu, farsælu náttúrugreind, við það starf sem önnur, er hann hefir með höndum haft í almennings þarfir um langan aldur. — Skjátlast gerði honum að vorum dómi og mikilsþings- flokks hin síðari árin í alkunnu stór- máli, mest fyrir oftraust á misvitrum leiðtoga og órjúfanlegri trygð við hann; en manna sízt ætlum vér hann hafa verið þá né endranær grunaðan um að brjóta bág við sannfæringu sína eða láta stjórnast af öðrum en góðum hvötum, af öðru en fölskvalausri þjóð- arást. Hann mun hafa borið fyrir sig elli- lasburði, er hann hætti nú við aðríða til þings, síðasta þingsins á kjörtíma- bilinu, og ræðnr mjög að líkindum, að svo sé. Fn hitt höfum vér fyrir satt eigi að síður, að annað hafi miklu um valdið jafnframt: það, að hann vissi allan þorra kjósenda sinna orðinn annars hugar í áminstu stórmáli, stjórnarskrármálinu, — orðinn einhuga á því. að sæta því færi til skjótra og mjög vel viðunanlegra lykta á hinni hveimleiðu stjórnarbótardeilu, sem kost- ur var á á síðasta þingi og enn von- um vér að sé. Væri drengskapur hans að meiri og fallega skilist við kjósendur, eftir langa sambúð og góða, ef honum gengi það til meðfram, að veita þeim kost á að koma sínum vilja fram nú þegar á þingi því, er í hönd fer; enda meira en vel hugsanlegt, að honum sé sjálfum nú orðið sú stefnan eigi svo óskapfeld sem á síðasta þingi, eftir allar þær mjög svo mikilsverðu skýr- ingar, er málið hefir hlotið síðan og margur vitur og mætur maður hefir látið sannfærast af. Ekki mun fullráðið enn, hverjir gefi kost á sér í sæti Sighvats. En haft er fyrir satt, að ekki hugsi Rang- æingar til annars en að koma sér sam- an um einhvern innanhéraðsmann. Fullyrt er, að síra Eggert Pálsson á Breiðabólsstað muni hugsa til þing- mensku, en litlar líkur til að hann hafi yfirleitt annarra fylgi en sinna sóknarbarna, með því og að hann kvað vera alveg »benedizkur«. Nefndur hefir og verið Eyólfur í Hvammi Guðmundsson, sýslunefndar- maður og oddviti, valinkunnur sæmd- armaður, áhugamaður mikill um al- menningshag og mætavel greindur. En nú eru bornar brigður á, að hann fáist til að gefa kost á sór. En hvað sem þessu líður, þá ersvo mönnum varið nú í því hóraði, að engin skotaskuld á að þurfa að verða úr að fá hið auða sæti sæmilega skip- að. Er mest um vert, að sem flestir málsmetandi menn í kjördæminu hafi góð samtök sín á milli um að láta eigi atkvæði tvístrast út í loftið, held- ur sameinast um einn og hinn sama mann, þann, er kjördæminu sami vel og sé öruggur flutningsmaður þess, er þorri kjósendanna vill vera láta í helztu þingmálum. Landsbókasafnið. Eftir Jón Olafsson. 1. Eins og kunnugt er, á Island fmvm bókasöfn í Reykjavík: Landsbókasafn- ið, Alþingisbókasafmð, Lærða-skóla- bókasafnið, Prestaskóla-bókasafnið og Læknaskóla-bókasafnið. Af þessum bókasöfnum á almenn- ingur ekki aðgang nema að Lands- bókasafninu. Hin eru ætluð þeim sér- stökum stofnunum, sem þau eru kend við. Gifurleg óhagsýni. I örlitlu þorpi eins og Reykjavík, sem hefir að eins um 4000 íbúa og er ekki víðlendari en svo, að á 10—15 mínútum má ganga bæinn á enda, virðist það auðsætt, að engin þörf er á fyrir víðáttunnar sakir að hafa fleiri en eitt alment bókasafn. En hins vegar er það hin mestaóhagsýni, hrein fjáreyðsla til einkis, að hafa þessi 5 söfn, þar sem fjárveiting til þeirra er af mjög skornum skamti. Afleiðingin af þessari fimmskiftingu kraftanna (eða fjártillags landssjóðs) hlýtur að verða sú, að annaðhvort verður alls- herjar-bókasafnið (Landsbókasafnið) að fara á mis við að eiga ýmsar bækur, sem því væri ómissandi að eiga, eða þá að eitt eintak af sama ritinu verð- ur í Landsbókasafninu og annað ein- tak af sama riti í einhverju hinna safnanna. Tökum t. d. merkilegtnátt- úrufræðilegt rit, sem Lærða skóla-bóka- safnið kaupir; eða merkilegt stjórn- fræðilegt rit, sem Alþingisbókasafnið kaupir; eða merkilegt kirkjusögurit eða heimspekirit, sem Prestaskóla-bóka- safnið kaupir; eða merkilega bók um lífseðlisfræði, um efnafræði o. s. frv., sem Læknaskóla-safnið kaupir. Hvert þessara rita getur verið svo mikilsvert fyrir almenna lesendur, að það ætti endilega að vera til á Lands- bókasafninu, hinu einaafsöfnum þess- um, sem ætlað er almenningi mentaðra og fróðleiksfúsra manna; og svona get- ur staðið á um urmul bóka, um bækur í hverri fræðigrein svo að kalla. Annað- hvort verður þá Landsbókasafnið að sneiða hjá þessum ómissandi bókum, af því að þær eru til á einhverju hinu safninu, eða þá að peningum, sem landið veitir til bókakaupa, verður að verja til að kaupa fleiri en eitt eintak af sama ritinu — ef til vill 3 eintök eða 4; því að það er auðvelt að nefna rit, sem ekkert af þessum sérstöku söfnum mætti án vera, ef hvert um sig ætti að fullnægja sínum sérstaka tilgangi. Hvernig stendur á þessu? J>að stendur svo á því, að áður en land vort fekk sjálfstjórn í fjármálum sínura, þá var aldrei eyrir veittur landsbókasafninu af almannafé; það var stofnað af gjöfum og lifði af náð og miskunn einstaklinga. Hins vegar hafði stjórnin tekið að sér að kosta skólana, og því varð togað út úr henni lítilræði á ári til bókakaupa, og skól- unum var því fremur þörf á þessu, sem landsbókasafnið gat enga bók keypt í neinni fræðigrein fyrir fóleysi. Alþingi fekk þegar meðan það var ráð- gjafarþing að ávísa kostnaði til sjálfs sín, og notaði Jón heitinn Sigurðsson þetta vald til að afla landinu nokkurra nyt- samra og góðra bóka, sem enginn annar vegur var að fá keyptar til landsins fyrir almannafé. Allar tekjur af landinu runnu þá í ríkissjóð Dana- veldis og út úr honum varð að sverfa öll gjöld til almannaþarfa. Eini veg- urinn til að fá nokkurum eyri úr ríkis- sjóði varið til bókakaupa hér á landi, var því sá, að fá það veitt þessum sórstöku stofnunum. Fyrir þetta mynduðust þessi mörgu sérstöku bóka- söfn, öll af vanefnum, en þó betri en alls ekkert. En óhætt er að segja það, að væri ekkert bókasafn til nvi hér í Reykja- vík, sem landssjóður legði fé til, og ætti nú að fara að stofna safn, þá mundi engum heilvita manni detta f hug að fara að stofna öll þessi smá- söfu og veita fé til þeirra. Menn mundu veita féð einu allsherjar-safni — landsbókasafni. Eitt landsbókasafn. þ^ð sýnist nú liggja beint við, að hætta þegar í stað þessari óhagsýni- legu tvístringu kraftanna, sameina öll þessi söfn í eitt, leggja þau til lands- bókasafnsins, og sameina fjárveiting- ar þær, sem veittar hafa verið sér- söfnunum, allar í eitt, veita þær í einu lagi Landsbókasafninu. Eg þykist mega fúllyrða, að forstöðu- menn og kennarar skólauna, flestir ef ekki allir, sé samdóma mér um þetta. Alþingi notar vitanlega alment ekkert af sínu bókasafni, nema fáein bindi, helzt þingtíðindi, lagasöfn og stjórnar- tíðíndi, sem haft er við höndina á skrif- stofunni um þingtímann. En þetta mætti gera eftir sem áður. Eins gætu kennendur skólanna fengið að hafa forgangsrétt að bókum í sínum fræði- greinum. Kellsalls-gjöfin. Eg hefi heyrt þeirri mótbáru hreyft, að með því að Lærða-skóla-bókasafnið er varðveitt í sérstöku steinhúsi, sem er reist fyrir peninga, sem enskur maður, Kellsall að nafni, gaf til þess, að reist yrði hús fyrir safnið, þá gæti hugsast að erfingjar Kellsalls gætu heimtað aftur féð, ef bókasafn skólans yrði lagt niður. £n hér ræðir ekki um að »leggjaniður« bókasafnið á þann hátt, að farga því úr höndum eigand- ans, heldur að eins að flytja það í annað hús og varðveita það þar ásamt öðrum bókum sama eiganda. Lærði skólinn er nefnilega stofnun og eign landssjóðs, og það er Landsbókasafnið nú líka. Kellsall gaf gjöf sína til þess að bæta úr húsnæðisleysi safnsins á sinni tíð, af því að það átti þá ekkert húsnæði. En hvergi hefir hann ákveð- ið, að féð skyldi endurborgast, ef safn- ið fengi hentara eða betra húsnæði annað. Hann gaf féð með því skil- yrði, að landstjórnin verði því til að afla safninu húsnæðis. En eins og það var á hennar valdi, hvernig hún gerði húsið, svo hlýtur það að sjálf- sögðu að vera á hennar valdi, að skifta á þe3su húsnæði og öðru, — ef hún að eins sér safninu fyrir húsnæði, sem er tryggilegt og gjöfinni samboðið, og það gerir hún fult eins vel með því að hýsa safnið f stærra húsi ásamt öðr- um bókasöfnum sínum, eins og með því að geyma það í húsi því, sem það er nú f. fessi mótbára getur því varla komið til alvarlegrar íhugunar. Enda væri það undarleg hausavíxl á tilgangi og tilgangs-sbuðningi, að halda uppi bóka- safni sakir bókasafns-hússius. Landsbókasafnið — Tilgangur þess. f>að kann að virðast einfaldlegt að setja fram þá spurning: til hvers eru bókasöfn ætluð? Hver er til- gangur þeirra? Og svo má virðast sem því sé sjálfsvarað. En það er þó ekki alveg svo, því að bókasöfn geta verið stofnuð sitt í hverjum til- gangi. Sum eru stofnuð aðallega r,il að veita almenningi ódýran aðgang að því, að lesa sér til skemtun- ar og fróðleiks; til að veita almenn- ingi mentandi, eða að minsta kosti saklausa, dægrastytting. Onnur geta verið stofnuð aðallega til að veita fræðimönnum og öðrum, er fræðast vilja, aðgang að beztu bókum, eldri og yngri, í hverri fræðigrein sem er, en ekki til skemtilesturs; slíkra safna tilgangur er þá og jafnframt að safna öllum fágætum bókum og varðveita þær. Fyrri tegund safna getur veitt lesend- um aðgang að bókunum annaðhvort á lestrarsölum eða með útlánum heim til lesanda, en aðallega með útlánum, Síðari söfnin geta og haft báðar þess- ar aðferðir; en fyrri aðferðin (les;rar- salir) verður eðlilega aðalaðferðin þar, og þá aðferð eingöngu nota nú mörg slík söfn; útlánin verða þar ávalt fremur undantekning, ef þau ann- ars eiga sér stað. Mörg söfn sameina hvorutveggi þenna tilgang, og lána þá einkum út

x

Ísafold

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.