Ísafold - 20.05.1899, Blaðsíða 3

Ísafold - 20.05.1899, Blaðsíða 3
130 Aftur á móti vita allir, a55 vitsmumr verða ekki af honum heimtaðir, hvorki skilningur né ritsnild, né neitt annað í þá áttiua. Það gerir ekki heldur neinn sanngjarn maður. Vendetta. Eftir Archibaltl Clavering Gnnter. XV. »Manninn þarna! Ljóta manninn þarna!« Og unga stúlkan bendir á þá mannsmyndina, sem á að vera af hr. Barnes. Við þessi orð fer hr. Barnes að fá eins og krampakendan óstyrk í hjart- að. ,f>egar hann er farinn að ná sér dálítið aftur, hugsar hann um það með gremju, að Marína hefði sann- arlega getað lofað sér að vera ofurlít- ið laglegri á myndinni; þá hefði enska stúlkan getað þekt hann af henni, og ef svo hefði farið, þá-----! En hann fer brátt að líta nokkuð annan veg á málið. Hann heyrir frú Vavassour segja, þegar hún er komin vel nærri myndinni: »Hvað er þetta? Hann er nauðalíkurv Faust-myndinni hræðilegu, sem við s'áum þarna í hinu herberginu !« »Alls ekki! Uppáhaldið mitt — er miklu fallegri maður. |>að verðið þér að kannast við, frú Vavassour, ann- ars verð eg vond«. »Nei, það er fjarri því að hann sé laglegrú. »Ju, það er hann. Hann hefir svo gullfallegt yfirskegg, og það hefir Faust ekki«. Barnes bölvar í hjarta sínu rakar- anum, sem hefir svift hann yfirskegg- inu. Eftir litla þögn segir frú Vavassour eins og hagsýnri konu sómdi: »En sá þvættingur, Enid! f>ér haf- ið nóg af dýrkendum, sem gæddir eru holdi og blóði«. Barnes hrekkur við, þegar hann heyrir svarið: »|>essi maður er líka gæddur holdi og blóði; þessi mynd er ekki gerð út í bláinn, heldur af lifandi manni!« »Hvers vegna haldið þér það?« »f>ér munið víst, að eg sagði yður, hvað það væri, sem fyrst hefði vakið athygli mína á þessari mynd — bréfið frá Egiptalandi. f>að minti mig á alla söguna, en einkum á auðnupen- inginn, eins og þér sjáið hann þarna á myndinni. Eg fórþá hingað hvað eftir annað og horfði á þessa mynd og gerði mér grein fyrir, hve ömurleg hún er, og svo fóru mér að þykja andlitin svo hugðnæm, einkum andlitið á hon- um — en ekki varð eg alveg utan við mig út af honum fyr en eg fór að verða hrædd um hann«. »Hvað eruð þér að segja?« f »Mór fór ekki að verða grunlaust um, að eg mundi eiga keppisystur!« •Keppisystur!« étur brezka hús- freyjan upp eftir henni. »f>að er þó ekki alvara yðar að vera hrædd um að hann reynist yður ótryggur, þessi maður, sem ekki er annað en léreft og litir ?« »Nei, en eg er hrædd um, að annari konu muni líka hafa þótt vænt um hann. Ung stúlka, spánversk eða ítölsk, var vön að standa spölkorn frá mér og horfa hlýlega á þennan hluta myndarinnar« — og hún benti á Bar- nes, sem unglingurinn hallaðist upp að í andarslitrunum. »Oftast var fransk- ur maður með henni. Svo var það einu sinni — eg held hún hafi tekið eftir því, hvað mikið eg horfði á mynd- ina — að hún kom til mín og spurði mig blátt áfram, hvers vegna eg horfði svo vandlega á þessa myud. Eg kærði mig ekkert um að segja henni egipzku söguna, og sagði þess vegna, að mér litist svo vel á andlitið á þessum unga manni. Hún svaraði þá með rauna- legu brosi: Já, það lýsir sér á því mikil viðkvæmni; en gætið þér að yð- ur; þér megið ekki fara að lata yður þykja of vænt um hann — hann er lifandi!« f>á svaraði eg: f>að kynni að vera bezt fyrir yður sjálfa að gæta vel að yður — þér lítið líka hlýlega til hans«. »Nú — — ?« »Hún sagði þá : »Eg er að horfa á manninn, sem er að deyja — hann er bróðir minn !« Svo fór hún og hjá varðstjóranum fekk eg að vita, að hún hafði sjálf búið til myndina af vígi bróður síns. f>að ber vitni um ein- hverjar óheilbrigðar skapferlisöfgar — finst yður ekki?« »f>að er ekki lifandi vitund öfgakend- ara, en að þér skulið fara að unna dauðri mynd hugástum«, segir frú Vavassour. »Finst yður það? Mér finst einmitt, að eg fari svo skynsamlega að ráði míuu í því efni. Eg get fundið hann, hvenær sem eg vil; hann er aldrei með nein fleðulæti, kemur aldrei með neitt velgjumas mér til leiðinda og gremju; ekki meiðir hann mig heldur í fingrun- um með því að taka í höndina á mér, né tekur sér neitt fyrir hendur, sem neyði mig til að verða hátíðleg og af- undin. En af því að við finnumst nú í síðasta sinn, þá hefi eg fengið yður með mér, frú Vavassour, til þess að kveðjan skuli ekki verða of innileg«, segir unga stúlkan hlæjandi. »f>ér eruð vonandi ekki sá skyn- skiftingur, Enid, að gera yður í hug arlund að þér munið hitta manninn, sem myndin er af«. »Og sussu nei; eg er hrædd um að sú hamingja falli mér aldrei í skaut«, segir hún með skriugilegum sorgarsvip. »En ef svo skyldi nú fara samtsem áður?« »Væri hann í raun og veru ásýnd- um eins og hann er þarna — þá mundi eg ekki sjá sólina fyrirhonum. Svip- urinn á binum« — hún bendir á mynd- ina — »er hróðugur, heiftúðugur eða æðisgenginn — en meðaumkun sér maður þar enga. Eftirlætið mitt þarna«. — og hún hlær að draumór- um sínum — »hann finnur til með- aumkvunar; eg er sannfærð um, að hann gæti samt barist eins vasklega og hver hinna, og elskað miklu inn- legar !« Og hún lítur svo hlýlega og hjartanlega á Barnes á myndinni, að Barnes sjálfur ætlar alveg að missa vitið. Ekki hefir hann heyrt alt, sem kon- urnar hafa sagt; en svo mikið hefir hann heyrt, að hann fer að gerast ringlaður og honum kemur sú vitleysa til hugar að gefa sig fram og segja til þess, að hún sé af sér, þessi mynd, sem hún unni hugástum. Svo miklar leifar eru þó eftir af hans fyrri skyn- semí, að hann skirrist við að gera sig sekan í þeirri ógætni. Fröken Anstruther snýr sér nú að myndinni og segir : »Vertu sæll, góði minn ! Væri eg auðug, skyldi eg kaupa þig og þá mundum við aldrei skilja; en fátæktin stíar svo mörgum sundur hér í heimi«. Barnes leggur hlustirnar við þessum síðustu orðum með áfergju og flýtir sér út til þess að rf!!*í listverkasalann. Hann ætlar að kaupa myndina og koma Enid sinni á óvart með því að gefa henni myndina í brúðargjöf. Hann er þegar farinn að kalla hana »Enid sína« í huganum; því að jafn- vel þótt hann hafi naumast verið með fullu ráði nokkurt augnablik, meðan hann var að hlusta á þessa einkenni- legu samræðu, hefir hann komist að þeirri niðurstöðu, að fyrst stúlkan geti elskað þann Barnes, sem ekki er ann- að en léreft og olíulitir, þá ætti að vera unt að fá hat'a til að elska Bar- nes með holdi og blóði og giftast hon- um — og það bráðlega. Hann fer þegar að láta sig dreyma um Cómóvatnið og sæludaga nýgiftra hjóna, hugsa um að hafa hana við hlið sér í skínandi fallegum morgun- kjól eða öðrum hversdagsfötum, sem nýkvæntum mönnum þykja svo ynd- isleg. Hann fer að gizka á með sjálf- um sér, hvort hún muni leyfa sér að fara í klúbbinn eitfc kvöld um vikuna og hvort hún muni banna vindlareyk- ingar og tóbak yfirleitt og venja hann af öðrum smáyfirsjónum hans. ----- M 1 —------ Mapgföld botnleysa. MeS frámunalegt bull og vitleysu hef- ir »Þjóðólfi« líklegast aldrei tekist bet- ur upp en í gær,_ og er þá ærið langt til jafna,S. Þar er dembt hverju axar- skaftinu ofan á annað, hverri sjóðbull- andi vitleysunni hnytt aftan í aðra, eins og málgagnið væri að heröa sig í líf og blóð að vinna til hæstu verðlauna fyrir axarskaftasmíðar. 1. Það fer aö minnast á sóma þann, er*«meSritsjóra blaðs þessa, E. H., var syndur af löndum vorum vestra, í Winnipeg, er hann fluttist þaðan alfar- inn hingað fyrir nokkrumárum: að hon- um var haldinn fjölmenn skilnaðarveizla og gefnar heiðursgjafir. Þetta á, eftir vitsmunum »Þjóðólfs«, að hafa verið gert í því skyni — að losna við hann! Fáeinir skólabræður og venzlamenn »Þjóðólfs«-mannsins héldu houum ein- hverja afmælissamkomu-mynd í haust (50-ára-afmæli blaðsiits). Það gat ekki, eftir þessutn bókurn, hafa verið gert í öðru skyni en því, að losna við hann úr blaðamenskunni. En misvitrir hafa þeir samt verið, að tryggja sór það eltki fyrtr fram. Hann hefir leikið þá tniður drengilega í því efni og lætur þá sitja enn stórsneypta af vonbrigðum. 2. Annað bullið er um pukur með bæklinginn »Ráðgj. á þingi«. Tómur heimskuþvættingur og uppspuni. Eða hvað þurfti svo sem að pukra með? Ekki talað atikatekið orð til nokkurs manns í kverinu, og ekki farið þar með neitt, sem ekki var fullkunnugt áður; ekkert annað en yfirlit yfir undangengn- ar umræður unt stjórnarskrármálið, al- menningi til léttis og hægri verka. Hon- um var útbytt um land alt, hverjum sem hafa vildi og nokkuð hafði með hann að gera, jafnskjótt sem hann var fullprentaður. Að »Þjóð.« barst hann ekki í hendur fyr en mörgum vikum eftir, s/nir ekki annað en^ óskiljaidega slysni hanseða roluhátt. Og til að bæta gráu ofan á svart, hefir svo einhver gárunginn loks fært honum eintak af bæklingnum, og flekað hann til að hlaupa á stað með gort út af því, að hann (»Þjóðólfur«) hefði fyrir yfirburðalög- regluþefvísi sfna komist yfir bæklinginn, svo leynt sem hafi átt með hann að fara. Þeir voru líka í meira lagi hreyknir, Molbúárnir, þegar þeim hugkvæmdist að róa með álinn fram á fiskimið og sleppa honum þar út fyrir borðstokkinn. 3. Þá hefir málgagnið ekki haft vit á að vera Isafold þakklátt fyrir, að hún bjargaði honum úr klóm hins óhlut- vanda náunga, sem lét hann hlaupa með staðlausa hviksögu um afskifti bæj- arfógetans af innheimtu sektar hjá Nilson botnverping. Saroa bullið tugg- ið upp eins og áður, nema hvað árétt- að er með þeirri einstaklega viturlegu röksemdaleiðslu, að allir menn geti séð, að bæjarfógetinn sé ekki mætur maður né mikilsvirtur á því, að einhver heim- skingi austur í Fljótsdalshéraði — er látinn skamma Isafold í einhverjum Þjóðólfspistli! Það er óhætt um það, að hafi nokk- urn tíma verið af manni haft með rang- indum, þá væri það, ef farið væri 'að svifta áminst málgagn, »Þjóðólf«, hæstu verðlaunum fyrir axarskaftasmíðar. W- Christensens verziun hefir til sölu í aumar sex þúsund skippund af Newcastle- og Dysart kolum. Kommóður og ferðakoffort er til söluhjá nndirskrifuðum; sami hefir verkfæri handa yfirset.ukonum, sem seljast ódýrt, svo sem blóðkoppa og fleira. Bjarni Jakobsson trésmiður. Reykjavik. Saltftsk og sundmaga kaupir fyrir peninga W. Christensens verzlun. Alþinjíisiriaöur Ó8kar að fá 2 herbergi leigð með hús- búnaði um þingtímann í sumar, á góðum stað í bænum. Semja má við Knstján þorgrímsson. Beztu Newcastle Kol fást við W. Christensens verzlun. Til kaups óskast stór, einlitur, þýður, vel taminn og fótviss brokkhestur, eigi eldri en 7—8 vetra. — Ritstj. vísar á. Gufubáturinn „Reykjavík“ fer aukaferð til Eyrarbakka 25. þ. m. um leið og hún fer til Grindavíkur, ef veður leyfir. Reykjavik 19.'''maí 1899. Björn Guðmundsson. W. Christensens verzlun selur Sodavatn, Rosenborg, . . 10 a. Citron----- ----. . 12 a. Limonade------. . 15 a. Ágætar danskar kartöfiup við verzlun W. Christensens. Orlando er kominn með timbur- farm frá Mandal. þeir, sem vildu kaupa, eru beðnir að gefa sig fram sem fyrst, annars fer eg næsta þriðju- fiag- O. Th. Simonsen. / af spikuðu geldneyti fæst í dag hjá Jóni Magnús- syni á Laugaveg. Nýja yerzluu hefir SiGGElR JoRFASON opnað á Laugavegi nr. 10 í steinhúsi J. Schaus steinhöggvara og er þar til sölu : Bankabygg Baunir Hveitimjöl Grjón 2 teg. Haframjöl Kartöflumjöl Sago Kaffibrauð Kaffi Kandis Melis Púðursykur Exportkaffi Rúsínur Svezkjur Gráfíkjur Grænsápa Stangasápa Handsápa Sóda Chocolade Sennep Alls konar kryddvörur. Stívelsi Blanksverta Ofnsverta Taublákka Eldspýtur Brjóstsykur Ost- ur Margarine Vindlar Cigarettur Reyk- tóbak fl. teg. Rulla og Rjól Sodavand Lemonade o. m. fl. Alt góðar vörur, og gott verð. Sumarkensla fyrir börn byrjar vænt- anl. 1. júní. Nákv. upplýsingar hjá Sig- urði Jónssyni, barnask. Uppboð/auglýsing. Eftir beiðni erfingja fyrv. s/slum. Árna Gíslasonar í Krísuvík verður þriðjudaginn 13. n. m. (júní) opinbert uppboð haldið í Krísuvík og þar selt ýmislegt tilheyrandi téðu dánarbúi, svo sem. 5 kýr, 1 naut, 8 hross, mikið af innan- og utanstokksmunum, svo sem rúmföt, borð, stólar, mjólkurbyttur, kaffikvarnir, pottar, katlar, reiðingar, reipi, beizli, meisar og annað fleira. Uppboðið byrjar kl. 9 f. hád. Sölu- skilmálar verða birtir á uppboðsstaðn- um. Skrifst. Kjósar- og Gullbringusýslu 20. maí 1899. Franz Siemsen.

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.