Ísafold - 27.05.1899, Blaðsíða 3
135
/
I»ingvaliaskýlis-ráðsmaður
verður hr. þorsteinn Davíðsson Hjálp-
ræðishermaður. Hann er mesti mynd-
armaður, enskumælandi vel og mjög
eindreginn bindindismaður. Og ráða-
kona hjá honum í Jpingvallaskálanum
verður húsfrú Solveig Guðlaugsdóttir í
Reykjavík (frá Oxney), alkunn að
góðum frammistöðuhæfileikum, reglu-
semi og stjórnsemi. Má með sanni
segja, að mjög vel hafi ráðist úr því
máli, eigi betur en á horfðist, þegar
stjórnarnefnd »Skálafélagsins« svo
nefnda fann upp á því að vilja endi-
lega hafa þar áfengisveitingar; það
var, eins og kunnugt er, sýslunefnd
Arnesinga, sem afstýrði þeirri ósvinnu,
með því að neita um leyfið í einu
hljóði, og forðaði þar með landinu frá
þeirri minkun, að hinn fornhelgi þing-
staður vor yrði auvirðilegt brenni-
vínsbæli. Hefir þessi »Skálafélags-
stjórn« gert góða bragarbót með því
að ráða hr. f>. D., — hafi hún þá átt
á öðrum völ nýtilegum. jöetta er og
snoppungur á heimskingja þá, er ekki
þykir takandi í mál að hafa almenna
greiðasölu og gestahýsingu öðru vísi
en með áfengisveitingum.
Heilsu/'ar manna hér má kallast gott.
Það fer einnig bezt á þvi, því að langt er
að leita læknis hér, og væri Olafur læknir
Guðmundsson á Stórólfshvoli ekki annað
eins lipurmenni og hann er, þegar hans er
vitjað, bæði fljótur til og ranngóður,
mundi hér sjaldan eða aldrei vera leitað
læknis.
fTTzzxrr mimiiifiiTrm:
2 herhergi til leigu á góðum stað
í bænum, hentug fyrir alþingismenn.
Ritstj. vísar á.
Almennur safnaðarfundur
fyrir Reykjavíkursókn til að kjósa í
sóknarnefnd og héraðsnefnd m. m. verð-
ur haldinn í Iðnaðarmannahúsinu mið-
vikudaginn 31. þ. m. kl. 5 e. m.
Reykjavík 26. maí 1899.
Jóhann porkelsson.
Um leið og eg þakka mínum hátt-
virtu viðskiftamönnum fyrir þá alúð
og greið viðskifti i þessi 2 undanfarin
ár, vil eg mæla með eftirmanni mín-
um herra Jóni Guðlaugssyni,sem hefir
unnið hjá raér vel 1 ár, og eg get með
góðri samvizku ábyrgst yður hann sem
vandaðan og góðan smið, og vil eg
því biðja yður að skifta við hann eftir-
leiðis.
Austur-Eyjafjöllum, 12. maí.
í>að er sjaldgæft að sjá fréttir í blöðum
undan Eyjafjöllum eystri. Flestum eða
mörgum munu þó Fjöllin kunn vera, þótt
ekki sé nema af mdlaferlum þeim, sem
þar liggja stöðugt í landi, því að þótt
friður ríki hvarvetna umhverfis, þá má þó
oftast heyra einhvern óróaþyt þjóta hér
meðfram fjöllunum og lætur sá þytur
stundum hærra en brimsogið, sem stöðugt
heyrist hér við ströndina. Eru margir hér
orðnir þreyttir, og það fyrir löngu siðan,
á málastappinu hér, því að flestir munu
þeir vera, sem sjá litinn ávöxt af því.
Það mun einnig reynast hér sem víðar, að
tíð málaferli eru til niðurdreps, og um
framfarir er ekki að tala þar, sem hver
höndin er uppi á móti annari.
Búendur hér er óhætt að telja i röð
hinna fátækari, og stafar það rnest af þétt-
býlinu, því að landgæði eru hér ekki minni
en annarsstaðar. Menn lifa hér mest á
garðrækt, en þegar hún lánast ekki, þá
verður hér hart í ári, þvi að sauðfénaður
hér er lélegur og fár að tölu hjá flest-
Útræði er bér, en sá atvinnuvegur er oft
arðlítill, því að brim er hér oftast. Lend-
ing afarill og hættuleg, eins og viðast við
suðurströnd landins. Hæstur vert.iðarhlut-
ur hér í vetnr var um 120.
Nú er veturinh um garð genginn; var
hann fremur gjaffeldur, en snjólítið var og
frost lítil. Skepnuhöld eru hér fremur
góð. Gróður er kominn talsverður hér og
eru ýmsir nýbyrjaði að beita út kúm.
Hvað verzlun áhrærir, þá þykir munur-
inn mikill, síðan verzlunin í Vikinni (Mýr-
dal komst á. Þangað sækja einnig flestir
héðan. Hér var áðnr oft örðugt, einkum
á vetrum, að ná í matbjörg úr kaupstað,
og kusu margir heldur að vera svangir en
að takast ferð á hendur »út á Bakka«, því
að það ferðalag var bæði örðugt og tók
langan tima. I vetur hefir Vikurverzlun
mörgum hjálpað, bæði hér og viðar, því
að nægilega nauðsynjavöru hefir verið þar
að fá. Finst oss mörgum hér að hnútnr
þær, sem Yikurverzlun hefir feúgið í blöð-
um, séu algjörlega ósanngjarnar, því að
helzt mætti af þeim ráða, að það væri
mestmegnis brennivín, sem sú verzlun hefði
að bjóða: en óhætt mun vera að fullyrða
það, að fleiri en vér Fjallabúarhefðu feng-
ið að finna til magans i vetur, ef Víkur-
verzlun hefði ekki hjálpað eins vel og hún
hjálpaði. Menn eru ekki almflnt svo efn-
aðir, að þeir geti keýpt nauðsynjavörur tii
árs og verða menn þvi að hverfa til kaup-
staðaroftásama árinutil þess að fá sér björg.
Ekki höfum vér hér heldur reynslu fyrir
þvi, að verð á vörnm i Vík sé lakara en
annarstaðar. Verð á vörnm, sem lánaðar
eru, er svipað og á Eyrarbakka, en sé
horgað í peningum, má komast þaraðgóð-
um kjörum, engu verri en í öðrum kaup-
stö'ðum, svo sem t. d. í Eeykjavík.
Með virðingu.
Reykjavík 19. maí 1899.
J. G. Johnsen.
Undirskrifaður selur alls konar skó-
fatnað, alt mjög vantað að verki og
efni, mjög fallega sumarskó brúna,
gula og græna. Allar aðgjörðir fljótt
og vel af hendi leystar.
Vesturgötu 40.
Jón Guðlaugsson.
Jpingmálaíundur
fyrir Borgarfjarðarsýslu verður
haldinn að Grund í Skorradal mánu-
daginn 19. júní, kl. 4 síðdegis.
Þórh. Bjarnarson.
Sundkensla.
Bæjarstjórnin útvegar ókeypissund-
kenslu í 3 vikur fyrir 20 hrausta og
nokkuð stálpaða drengi, sem gengíð
hafa í barnaskólann ívetur. f>eir, sem
þetta boð vilja nota, finni skólastjóra
M. Hansen, í barnaskólahúsinu, sem
fljótast, og mun hann koma þeim á
framfæri. Kensluna verður að nota
stöðugt og dyggilega, meðan hún stend-
ur yfir. Hún getur byrjað á fimtu-
dag 1. júní. Sundpróf fer fram á
eftir. Reykjavík 27. maí 1899.
Skólanefndin.
Uppboðsauglýsing'.
Bftir beiðni erfingja fyrv. sýslum.
Árna Gíslasonar í Krísuvík verður
þriðjudaginn 12. n. m. (júní) opinbert
uppboð haldið í Krísuvík og þar selt
ýmislegt tilheyrandi téðu dánarbúi, svo
sem ð kýr, 1 naut, 8 hross, mikið af
innan- og utanstokksmunum, svo sem
rúmföt, borð, stólar, mjólkurbyttur,
kaffikvarnir, pottar, katlar, reiðingar,
reipi, beizli, meisar og annað fieira.
Uppboðið byrjar kl. 9 f. héd. Sölu-
skilmálar verða birtir á uppboðsstaðn-
um.
Skrifst. Kjórar- og Gullbringusýslu
20. maí 1899.
Franz Siemsen.
Til heimalitunar viljum vérsér-
staklega ráða mönnum til að nota
vora pakkaliti, er hlotið hafa verð-
laun, enda taka þeir öllum öðrum lit-
um fram, bæði aö gæðum og litarfeg-
urð. Sórhver sem, notar vora liti,
má öruggur treysta því, að vel muni
gefast. — I stað hellulits viljum vér
ráða mönnum til að nota heldur vort
svo nefnda »Castorsvart«, því þessilit-
ur er miklu fegurri og haldbetri en
nokkur annar svartur litur. Leiðarvís-
ir á íslenzku fylgir hverjum pakka.—
Litirnir fást hjá kaupmönnum alstað-
ar á íslandi.
Buchs Farvefabrik
Studiestr. 32, Kbliavn K.
Ingileifur Loftsson
söðlasmiður er í Yesturgötu 55. f>ér
sem þurfið að kaupa reiðtygi, töskur,
púða, ólar, beizli, gjarðir, reynið hvort
ekki borgar sig að koma þar.
Fundist hefir úrfesti á götum bæjarins
Ritstj, visar á finnanda.
Proclama.
I tilefni af framkominni beiðni er
dánar- og þrotabú hreppstjóra Eiríks
Ketilssonar frá Járngerðarstöðum og
eftirlátinnar ekkju hans, Jóhönnu
Einarsdóttur, tekið til skiftameðferðar
sem gjaldþrota. Fyrir því er hér með
samkvæmt fyrirraælum laga 12. apríl
1878 sbr. op. br. 4. jan. 1861 skorað
á alla þá, sem til skulda telja í búi
þessu, að tilkynna kröfur sínar og
sanna þær fyrir skiftaráðandanum í
Kjósar- og Gullbringusýslu innan 6
mánaða frá siðstu birtingu auglýsingar
þessarar.
Skrifst. Kjósar- og Gullbr.s. 22. maí 1899
Franz Siemsen.
Handa alþingismannier til leigu
frá 1. júlí ein stofa á Laugaveg 7.
á 80 aura pundið
getur fengist vikulega, ef pantað er
fyrirfram hjá
Siggeir Torfasyni
Laugaveg 10.
UppboðsauglýsÍHg.
Fiskigeymsluhús á Arnarhólslóð hér
í bænum með tilheyrandi lóð (stakk-
stæði) og steinbryggju, eign þrotabús
Eyþórs kaupmanns Felixsonar, verður
boðið upp og selt hæstbjóðanda á 3
uppboðum, sem haldin verða mánu-
dagana 15. og 29. þ. m. og 12. n. m.
kl. 12 á hád., 2 hin fyrstu á skrifst.
bæjarfógeta og bið 3. á bæjarþings-
stofunni.
Skilmálar verða til sýnis hjer á skrif-
stofunni degi fyrir hið fyrsta uppboð.
Bæjarfógetinn í Reykjavík
5. maí 1899.
Halldór Daníelsson.
Ágœtt
piano lítið brúk-
aðer til sölu við
‘ W Christensens-
verzlun.
Frá í dag sel eg undirritaður Tré og
Planka af öllum sortum með 10—15f
afslætti, sé keypt fyrir minst 10 krón-
ur. Skilvísir menn geta fengið líðun
til 31. oktbr. næstk., en þá er verðið
sama og áður.
Reykjavík 23. maí 1899.
Jón Þórðarson
kaupmaður.
Uppboðsauglýsing
Laugardaginn 3. júní n. k. verður eft-
ir beiðni Guðjóns bónda Erlendssonar
á Bessastöðum haldið opinbert upp-
boð og þar seldir til hæstbjóðanda
ýmsir lausafjármunir, svo sem ýmisleg
húsgögn og innanhúsmunir. Ennfrem-
ur verða seld nokkur hross, ef viðun-
anlegt boð fæst. Uppboðið byrjar kl.
12 áhádegi og verða þá söluskilmálar
birtir.
Bessastaðahr. 20. maí 1899.
' Jón Þóröarson.
Uppboðsauglýsing.
þriðjudaginn hinn 20. n. m., að af-
loknu manntalsþingi fyrir Rosmhvala-
nes í Gerðum, verður samastaðar op-
inbert uppboð haldið á íbúðarhúsi til-
heyrandi þrotabúi Sighvats Gunnlaugs-
sonar, með áfastri sölubúð, sem virt
hefir verið á 600 krónur. því næst
verður seld húseign samastaðar til-
heyrandi dánarbúi Nikulásar Eiríks-
sonar, sem virt hefir verið á 400 kr.
Söluskilmálar verða birtir á uppboðs-
staðnum.
Sýslumaðurinn í Kjósar- og Gullbr.s.
hinn 22. maí 1899.
Franz Siemsen.
Uppboðsauglýsing.
Mánudaginn hinn 19. n. m. verður
að afloknu manntalsþingi fyrir Vatns-
leysustrandarhrepp opinbert uppboð
haldið á Brekku í Vogum og þar selt
íbúðarhús úr steini með járnþaki,
hjallur, svo og 1 hndr. 29 ál. í jörð-
inni Stóru-Vogum, tilheyrandi dánar-
búi Guðmundar Jónssonar.
Söluskilmálar verða birtir á uppboðs-
staðnum á undan uppboðinu. -
Sýslumaðurinn í Kjósar- og Gullbr.s.
22. maí 1899.
Franz Siemsen.
Proclama.
Samkvæmt lögum 12. apríl 1878
sbr. op.br. 4. janúar 1861 er hér með
skorað á þá, sem til skulda telja í
dánarbúi Halldórs trésmiðs Gíslason-
ar, sem andaðist í Hafnarfirði 11. f.
m., að tilkynna skuldir sínar ogsanna
þær innan 6 mánaða frá síðustu birt-
ingu auglýsingar þessarar fyrir skifta-
ráðandanum hór í sýslu.
Sýslumaðurinn í Kjósar- og Gullbr.s.
24. maí 1899.
Franz Siemsen.
Proclama.
þar sem Guðmundur Jónsson frá
Görðum í Garði í Rosmhvalanesshreppi
hefir framselt bú sitt til opinberrar
skiftameðferðar, er hér með samkvæmt
lögum 12. apríl 1878 sbr. op. br. 4.
jan. 1861 skorað á alla þá, sem til
skulda telja í téðu búi, að tilkynna
skuldír sínar og sanna þær fyrir skifta-
ráðandanum hér í sýslu innan 6 mán-
aða frá síðustu birtingu auglýsingar
þessarar.
Skrifst. K jósar- og Gullbr.s. 22. maí 1899.
Franz Siemsen.