Ísafold - 14.06.1899, Side 2
154
Templar, Fræðslukvera um áfengi,
Handbókar fyrir Good-Templara, Fyr-
irlesturs G. Björnssonar (að sérprenta
hann í 5000 eintökum), barnablaðsins
*Æ8kunnar« (100 kr. styrkur), j'missa
bindindisflogrita, m. m. f>á voru full-
trúum greiddar i ferðakostnað á stór-
stúkuþingið í hitt eð fyrra alls 377 kr.
Nál. 500 kr. varið til launa handa 3
starfsmönnum í framkvæmdarefndinni:
stórtemplar, stórritara og stórgæzlu-
manni ungtemplara ; 240 kr. í skatt
til hástúkunnar, 170 kr. í burðargjald,
um 600 fyrir bækur, ritföng, bókband
og prentun ýmis konar.—Tekjuhallinn
greiddur af því, sem reglan átti í sjóði
i byrjun fjárhagstímabilsins.
Af fulltrúunum voru 29 úr Reykja-
vík, en 49 utanbæjar, meiri hlutinn
(31) úr vesturhluta suðuramtsins,
vestan Markarfljóts, að Vestmanna-
eyjum meðtöldum, en 18 lengra að,
úr 8 sýslum: Mýra, Snæfellsness,
ísafjarðar, Húnavatns, Skagafjarðar,
Eyjafjarðar, N-.Múla, Suður-Múla.
f>ó eru stúkur í fleiri sýslum, en þær
sendu eigi fulltrúa.
f>essi eru nöfn fulltrúanna í staf-
rófsröð, og eru þeir úr Reykjavík, er
eigi er annars við getið um:
1. Anna Cruðmundsdóttir húsfr.
2. Agúst Jónsson (Njarðv.)
3. Arndis Þorsteinsdóttir húsfrú
4. Árni Björnsson prestur (Sauðárkrók)
5. Arni Eiríksson verzlunarmaður
6. Astráður Hannesson afgrm.
7. Bergsteinn Ólafsson (Hvolhrepp)
8. Bjarni Jónsson kennari (Útskálum)
9. Bjarni Pétursson kennari (Mýrum)
10. Bjarni S. Lyngholt (Eskif.)
11. Bjarni Þorsteinsson (Skeiðum)
12. Björn Björnsson húfr. (Mosfellssveit)
13. Björn .Tónsson ritstj.
14. Borgþór Jósefsson verzlunarm.
15. Einar Einnsson vegfr.
16. Einar Hjörleifsson ritstj.
17. Eriðbjörn Steinsson hóksali (Akureyri)
18. Friðrik Hallgrimsson prestur.
19. Gisli Gíslason bóndi (Eyrarbakka)
20. Gisli Gislason bakari (Hafnarf.)
21. Gísli Pálsson bóndi (Stokkseyri)
22. Guðjón S. Sigurðsson bóndi (Mýrum)
23. Guðm. Guðmundsson oddv. (Landakoti)
24. Guðm. Guðmundsson verzlm. (Akran.)
25. Guðm. Guðmundsson bóndi (l)eild)
26. Guðm. Sæmundsson kennari (Stokkseyri)
27. Guðrún Erlendsdóttir ekkja
28. Guðrún Pétursdóttir ungfrú (Engey)
29. Helgi Arnason prestur (Ólafsvík)
30. Helgi Eyólfsson (Njarðvik)
31. Hjálmar Sigurðsson amtskrifari
32. Hjörleifur Einarsson próf. R. (Húnav.)
33. Ingibjörg Grímsdóttir húsfrú
34. Jens B. Waage cand.
35. Jóhann Sigurjónsson stud. art.
36. Jón Arnason prentari
37. Jón B. Eyólfsson (ísaf.)
38. Jón Chr. Stefánsson timburm. (Akure.)
39. Jón Guðmundsson b. (Akranesi).
40. Jón J. Breiðfjörð hreppstj. (Brunnast.)
41. Jón A. Matthiesen (* Helgi Helgason),
verzlunarm. (Hafnarf.)
42. Jón Konráðsson (Hofsós)
43. Jón Ófeigsson stud. art.
44. Jón Rózenkranz stud. art.
45. Jón Sigurðsson kennari (Seyðisf.)
46. Jónas Einarsson stud. art.
47. Június Pálsson oddv. (Stokkseyri)
48. Kristján Guðmundsson (Vopnaf.)
49. Kristján Jóhannesson verzlm. (Eyrarb.)
50. Kristján H. .Tónsson (Isaf.)
51. Kristján Þorgrímsson, kaupm.
52. Kristmann Tómasson (Akran.)
53. Magnús Guðmundsson (Vestm.)
54. Ólafia Jóbannsdóttir ungfrú
55. Olafur Jónsson búfr. (Akranesi)
56. Olafur N. Möller verzl.m. (Húnav.)
57. Ólafur Ólafsson prestur (Arnarb.)
58. Óiafur Rósenkranz biskupsskrifari
59. Páll Jónsson verzlunarm. (Akureyri)
60. Sigurður Einarsson b. (Seyðisf.)
61. Sigurður Eiríksson organisti (Eyrarb.
62. Sigurður P. Sivertsen prestur (Útskál.)
63. Sigurður Þórólfsson búfr.
64. Sigurður Sigurfinnsson skipstj. (Vestm.)
65. Sigurþór Olafsson b. (Fljótshlíð)
66. Stefania Guðmundsd. húsfrú
67. Sturla Jónsson skipstj. (Bolungarvik) /
68. Tryggvi Pálsson (ísaf.)
69. Vigdis Þorgilsdóttir húsfrú (Hafnarf.)
70. Þorbjörn Þórðarson stúdent
71. Þorkell Bjarnason pr. (Reyniv.)
72. Þorkell Hreinsson trésmiður (Eyrarb )
73. Þorsteinn Gislason b. (Leiru)
74. Þorvarður Þorvarðarson prentari
75. Þóra Sigurðardóttir húsfrú
76. Þórður j. Thoroddsen héraðsl. (Keflav.)
77. Þórdís Simonard. yfirsetuk. (Eyrarb.)
78. Þuriður Sigurðardóttir ungfrú
|>ing þetta endurskoðaði sérlög (auka-
lög) stórstúkunnar frá upphafi til euda.
f>á gerði það og ýmsar ályktanir
um bæði innanfólagsmál reglunnar og
utanfélags eða afskifti hennar út á við,
auk úrskurða í áfrýjunarmálum.
Af fyrri flokknum skulu hér að eins
fáein tilnefnd, reglubræðrum til fróð-
leiks.
Framkvæmdanefnd falið að spyrj-
ast fyrir um lí/sábyrgðarjélög, er veittu
bindindismönnum betri kjör (lægri ið-
gjöld) en öðrum og hlutast til um, að
Good-Templarar hér á landi ættu kost
á að vátryggja sig þar.
Lýst var í einu hlj. óánægju stór-
ðtúkunnar yfir ólöghlýðni þeirri m. m.,
er brytt hefði á í vetur í sumum
Reykjavíkurstúkunum, og skorað á
framkvæmdanefndina að beita strang-
lega viðeigandi hegningarfyrirmælum,
hvar sem á slíku bólar.
Út af ágreiningi um réttan skilning
á lagafyrirmælum um inntöku í regl-
unga, þegar innsækjanda er hrundið
með atkvæðagreiðslu, úrskurðaði stór-
stúkan, að það mál mætti ekki taka
upp nema einu ainni aftur, annaðhvort
á sama fundi eða hinum næsta. Sömu-
leiðis skar stórtemplar svo úr þar að
lútandi fyrirspurn, að engin stúka
mætti greiða atkvæði oftar en einu
sinni um það, hvort sakborningur er
saklaus eða sekur, en só hann sekur
dæmdur, á hún ekki að hætta fyr, ef
auðið er, en einhver refsing er sam-
þykt með $ atkvæða.
Samþykt var, að þegar stúka hefði
staðið eitt ár, skyldi þeir einir kjör-
gengir á stórstúkuþing, er verið hefðu
þá í reglunni 6 mánuði samfleytt.
Stórstúkan lýsti og ólöglegt, að stúka
gengist fyrir dansleik eða hefði aðrar
tekjur af honum en húsaleigu.
Framkvæmdanefndinni var falið að
votta stúkunni Dagsbrún á ísafirði
hjartanlegar þakkir fyrir framúrskar-
andi höfðingsskap við regluna, og skyldi
birta það þakklæti í »Good-Templar«.
(Stúka þessi hafði gefið reglunni fund-
arhús, sem er 3000 kr. virði). Svo var
og nefndinni falið að tjá þakkir regl-
unnar stúku þeirri, er gefið hefði mest
í útbreiðalusjóð að tiltölu. Loks var
stórtemplar falið að kaupa heiðursmerki
handa Borgþór Jósefssyni fyrir fram-
úrskarandi dugnað hans sem stór-
ritara. -------
Um afskifti reglunnar utanfélags var
meðal annars samþykt, að reyna að
komaá meíri samvinnu milli reglunnar
og annara bindindisfélaga en verið hefir
og senda stúkunum áskorun þess efnis;
að reyna að koma á einum allsherjar-
bindindisfundi í landsfjórðungi hverj-
um og skyldu umdæmisstúkur gangast
fyrir slíkum fundum þar sem þær
væru til; að stúkur reyni að taka hönd-
um saman við bindindisfélög á þjóð-
minningardögum, koma þar fram sem
ein heild og afstýra eftir megni ólög-
legri vínsöslu.
Ufc af á8korun frá einni undirstúku
(»Gefn«) um að reyna að hefta áfeng-
issölu á strandferðaskipum var fram-
kvæmdanefndinni falið að láta það
mál verða samferða vínsölubannslög-
unum, ef þau kæmust á, og sömul. var
nefndinni falið að skrásetja hið fyrir-
hugaða vínsölubannsfrumvarp til flutn-
ings á alþiugi í sumar.
Vegna þess að komið höfðu fram
skiftar skoðanir um það í sumum
stúkum hér, hvort G.-T.-reglan stæði
á kristilegum grundvelli eQa ekki, og
með því að tillaga hafði komið fram
á síðasta há-stúkuþingi um að nema
burtu úr siðbókum reglunnar alt það,
er einkennir þær sérstaklega sem kristi-
legar, þá lýsti stórstúkan yfir því í
einu hlj., að hún vildi eftirleiðis sem
að undanförnu starfa á kristilegum
grundvelli og telur mjög varhugavert,
ef hástúkan gerir þær breytingar á
siðbókum reglunnar að allur kristileg-
ur blær hverfi úr þeim.— |>es8a ályktun
skyldi birta í »International Good-
Templar«.
Út af árás frá blaðamanni einum í
reglunni á blaðið »Verði ljós« fyrir
framkomu þess í bindindismálinu lýsti
stórstúkan yfir því, að hún teldi það
blað hlynt bindindismálinu, en eigi
andvígt. —
þessir 7 voru kosnir í stjóm félags-
ins til næsta stóratúkuþings, er halda
á vorið 1901:
stórtemplar Indbiði Einaksson revis.
stórkanzlari Bjöbn Jónsson ritstj.
stórvaratempl. Ólavía Jóhannsd. agent.
stórritari BokgIób Jósefsson verzlm.
stórgjaldkeri Sigubðue Jónsson fangav.
fyrv. stórtemplar Ólafub Rósenkkanz
biskupsskrifari
stórgm.ungtempl. Jón Abnason prentari.
Þingmálafundip.
Hafnakfjöeðub og nágbenni.
Fyrirhugaðan þingmálafund þar 8.
þ.m. sóttu rúmir 20 kjósendur, og
var varla við fleirum að búast,
þar sem margt manna er um
þessarmundir frá heimilum; enda var
mönnum út um kjördæmið kunnugt,
að þingmennirnir ætla að halda fleiri
fundi, bæði í uppsýslunni og auðursýsl-
unni.
Eins og venja er til, kom -
1. Stjórnarskrármálið fyrst til um-
ræðu. B. B. frá Reykjakoti, síra |>or-
kell á Reynivöllum og Bened. alþm.
Sveinsson áttu mestan þátt í þessum
umræðum. Alls stóðu þær 3 klukku-
stundir. Loks var beðið um að um-
ræðum væri hætt, og var svo látandi
fundarályktun frá síra |>orkeli samþykt
með 15 atkv. gegn 5 :
Fundurinn skorar á þingmennina að
stuðLa að því, að þingið i sumar af-
greiði stjórnarskrármálið á þann hátt,
að þegið verði, ef í hoði er frá stjórn-
inni, tilboð um sérstakan ráðherra, er
skilji og tali íslenzka tungu, mæti á
alþingi og berf ábyrgð á allri stjórnar-
mthöfninni.
Um alþýðumcntunarmálið var sam-
þykt svo látandi fundarályktun með
11 samhljóða atkvæðum:
•Fundurinn skorar á þingmennina,
að að styðja að því, að þingið geri
það sem það álítur sér fært til þess,
að efla staðgóða barnakenslu í landinu,
sérstaklega að nægilega sé vandað til
undirbúningsmentunar barnakennara,
og að þeim barnakennurum, sem tek-
ið hafa kennarapróf, séu veitt sérstök
réttindi til barnakenslu umfram aðra,
sem engrar sérstakrar kennara-undir-
búningsmentunar hafa aflað sér«.
Samgöngumál komu til tals, ög var
sérstaklega rætt um hinn fyrirhugaða
ritsíma. Tillaga var borin upp um
það, að veita að svo komnu ekkert fé
til ritsíma hingað til lands, en hún
var feld.
Fjármál og tollmál vanst ekki tími
til að ræða.
Um vínsölubann var samþ. með 6
atkv. gegn 1 svolátandi tillaga:
Fundurinn tjáir sig meðmæltan vín-
sölubanni.
Að síðustu var skorað á þingmenn-
ina, að styðja að því á næsta þingi,
að lögleitt verði að kaupmenn og aðr-
ir vinnuveitendur greiði verkamönnum
vinnulaun í peningum.
Seinasta tillagan var sú, að slíta
fundi, og var hún samþykt með öllum
atkvæðum.
Veðrátta
Stórrigningar, en hlýindi heldur lftiL
þ>ó sprettur sæmilega.
Laust brauð.
Goðdalabrauð aftur laust, 12. þ. m.
Síra Hafsteinn Pétursson í Winnipeg,
er kosinn var með öllum atkvæðum,
hættur við að koma, eins og áður
hefir verið um getið. En hinn sækj-
andinn, síra • Brynjólfur Jónsson á
Ólafsvöllum, sem ekkert atkvæði fekk,
dregur sig nú í hlé.
Brauðið er metið 770 kr. 77 a. —
Umsóknarfrestur til 28. júlí.
Hersklpið enska.
sem von var á, Blonde, er nú komið,.
í morgun. f>að er brynskip, eins og,
hitt, en nokkuð minna.
Sigling.
Til Brydes-verzlunar kom 6. þ. mán.
gufuskip »Moss« (163, Eriksen) með við
frá Mandal; 7. til W. Christensens segl-
skip »Ragnheiður« (73, Bonnelykke) með
kol frá Dysart; 8. til Thomsen seglskip
»August« (78, N. H. Dreiö) með salt
frá Liverpool; 10. gufuskip »Pervie«
(238, Edv. Rasmussen), aukaskip gufu-
skipafólagsins samein., m3ð þær vörur,
er Laura varð skilja eftir í Khöfn; kom
við í Færeyjum, en ekki Skotlandi, fór
aftur í fyrri nótt, til Hafnarfj. og Kefla-
víkur. — »Moss« fór í gær til Englands.
FFTfyriTinnmrWTWrt:rtTrgE
Ny
skraddara-vinnustofa!
Heiðruðum almenningi gefst til vit.
undar að eg undirskrifaður hefi opn-
að saumastofu rnína í
Austurstræti nr. 16
og tek eg þar að mér að búa til alls
konar fatnað, og mun eg gjöra mér
alt far um að leysa verkið vel Og
fljótt af hendi.
Alt eftir nýjustu gerð !
Einnig geta menn fengið hjá mér
mjög ódýr tilbúin föt eftir málí.
Virðingarfylst
Ouðm. Sigurðsson
(skraddari)
ISkiptafuudur
í þrotabúi Eyþórs kaupmanns Felix-
sonar verður haldinn á bæjarþingsstof-
unni mánudaginn 19. þ. m. kl. 12 á
hád. til að álykta um uppboðssölu, er
fram fór í gær á fiskigeymsluhúsi bús-
ins á Arnarhólslóð með tilheyrandi lóð
°g bryggiu-
Bæjarfógetinn í Reykjavík 13. júní’99.
Halldór Daníelsson.
SAMEININGIN«, mánaðarrit til stuðnings
kirkju og kristindómi Islcndinga, gefið út.
af hinu ev. lút. kirkjufjelagi í Vesturheimi
og prentað í Winnipeg. Ritstjóri JónBjarna-
son. Verð í Vesturheimi 1 áoll. árg,, á Is-
landi nærri því helmingi l»gra: 2 kr. Mjög
vandað að prentnn og allri útgerð. Þrett-
ándi árg. byrjaði í marz 1898. Fæst í bóka-
verzl. Sigurðar Kristjánssonar i Reykjavik
og hjá ýmsnm bóksölum viðsvegar um land
Útgef. ogábyrgðarm. Björn Jónsson.
Meðritstjóri: Einar H.jörleifsson.
Isafoldarprentsmiðja.