Ísafold


Ísafold - 09.12.1899, Qupperneq 1

Ísafold - 09.12.1899, Qupperneq 1
Ketnur ut ýruist einu sinni eða tvisv. i viku. Verð árg. (80 ark. ininnst) 4 kr., erlendis 5 kr. eða l*/s doll.; borgist fyrir miðjan júli (erlendis fyrir fram). ÍSAFOLD. Uppsögn (skrifleg) bundin við áramót, ógild nema komin sé til útgefanda fyrir 1. október. Afgreiðslustofa b'laðsins er Austurstrœti 8. XXVI. árg. Reykjavík, laugarda^inn 9. (lesbr. 1899. 76. blað. Tvisvar í viku I keinur Isafold út ti! jóla, miðvikudaara o£r lausrar- daga. Landsbankinn opinn bvern virkan dag kl ll —2. Bankastjórn við kl. 12 — 1. Landsbókasafn opið hvern virkan dag kl 12—2 og einni stundu lengur (til kl. 3) md., mvd. og ld. til útlána. Ókeypis lækning á spítalanum á þriðjud. og föstud. kl. 11—1. Ókeypis augnlækning á spítalanum fyrsta og þriðja þriðjud. hvers mánaðar kl. 11-1. Ókeypis tannlækning i Hafnarstræti 16 1. og 3 mánud. hvers mán. kl. 11—1: X+X. xtx. xfx. xfx, .xfx. xfx, xfx ,xtx.. Afx..xtx..xfx..xtx. xtx. Áhrif manndrapanna dýrfirzku »Berlingske Tidende«, blaði dönsku stjórnarinnar, farast þannig orð út af manndrápamálinu frá Dýrafirði: »Jafn-sorglegt og það er, að enskir botnvörpuskipstjórar skúli geta farið svo freklega og þrælmenskulega að rúði sínu, sem nú hefir raun á orðið, er sú góð hlið á málinu, að hér er að ræða um óvenjulega svaðafenginn yfir- gang, sem öllum verður ljós og hver- vetna mun vekja hina mestu athygli, einkum þar sem dæmin eru svo mörg um óbilgirni botnverpinganna ensku, og þau einmitt spánný. Hver maður á Englandi, sem kynni að vilja and- æfa atferli danskra yfirvalda gegn botnverpingum og verja þá, hlýtur nú að hafa hljótt um sig um stund. Enn kann að vera örðugt að gera sér fulla grein fyrir, hve víðtækur glæpur sá er, sem drýgður hefir verið á »Royalist«. Fréttirnar eru enn ekki nógu nákvæmar til þess. En að minsta kosti er það auðsætt, að auk þess, sem skipverjar hafa brotið gegn landhelgislögunum, hafa þeir gert sig seka í ofbeldi og mótþróa gegn yfirvaldi, og o ðið með því þrern mönnum að bana. Sá eða þeir, sem hafa ábyrgð á þessu, verða að sæta þyngstu refsingu, sem lög leyfa. Botnvörpuveiðamálið verður ár eftir ár að tilefni til ummæla í enskum blöðum, sem oft eru alt annað en vingjarnleg í garð Dana. þó verðum vér við það að kannast, að helztu ensku blöðin, með stórblaðinu »Times« í broddi fylkingar, hafa litið á málið skynsamlega og stillilega og talið oss hafa á réttu að standa í aðalatriðun- um; en engu að síður hefir útgerðar- mönnum tekist að koma æsingum miklum á stað. Stórfé hefir verið lagt í þau 1400 botnvörpuskip, sem Eng- lendingar eiga, og hagur margra manna er við þau bundinn. Enska stjórnin hefir hingað til tekið í ágreiningsatrið- in með mestu sanngirni, svo að danska stjórnin og hin enska eru sammála í öllum verulegum efnum. Fylsta á- stæða er til að vænta þess, að það góða traust, sem fulltrúar stjórnanna hafa hvorir á öðrum, haggist ek<i, og eins hins, að þessi síðasti raunavið- burður við ísland muni stuðla að því, að þúsundum manna á Englandi verði það ljóst, hvorir málsaðila standi á grundvelli laganna og þjóðaréttarins í öllum þessum mikla atvinnuágrein- ingi og hvorir ekki. I þessu sambandi er oss vlst óhætt að hrósa happi yfir því, að Salisbury lávarður sjálfur, Mr. Brodrick og, maðurinn sem ekki er minst um vert, enski flotadeildarforiúginn Atkinson, hafa óbeiulínis fallist á kærur vorar ogkvartanir og látið sér skiljast það, að það hefir ekki verið ófyrir- synju, er á botnvörpulögunum hefir verið hert svo mjög sem unt var á íslandi og í Færeyjum*. Landshöf ðingj atúnið °g liafnargerð. Eftir tilmælum bæjarstjórnarinnar hefir herra Sjgurður Pétursson mann- virkjafræðingur samið ítarlegt álits- skjal um það, hve landshöfðingjatúnið só mikilsvert’fyrir Reykjavíkurbæ, eink- um norðurhluti þess, næst sjónum, þar sem sé hið líklegasta hafnarstæði hér, og var sú umsögn hans látin fylgja áskorun bæjarstjórnarinnar til stjórnarinnar út af sölu Batteríis-lóð- arinnar. Hann minnist fyrst á áætlun þá, er Paulli ingeniör gerði um áríð um skipakví, lokaða fyrir aðfalli og út- falli, og garða fyrir utan kvína, til varnar gegn öldugangi. Kostnaður- inn við þau mannvirki öll taldi Paulli að mundu nema 4,600,000 kr. Sem stendur getum vér ekki hugs- að til að leggja út í slíkan kostnað. En þrátt fyrir það telur mannvirkja- fræðingurinn oss ekki ofvaxið að gera ýmislegt til að greiða fyrir vöruflutn- ingum milli skipa hér á höfninni og lands. Fyrir þeim mannvirkjum, er verk- fræðingurinn hugsar sér að unt muni að gera, áður en langt líður, gerir hann svo grein, sem hér segir: Á korti því, er hér fylgir með, sést að allar línurnar, sem sýna dýpið á höfninni næst landi, draga sig saman rétt við Batteríishornið og fylgjast að nálægt hver annari austur með land- inu nokkuð inn fyrir Klöpp. Strax hér fyrir utan byrjar 7—8 faðma dýpi. Frá Batteríishorninu og austur með landi iiggur klettabelti, sem eftir sjókortinu að dæma hefir faðmsdýpi rétt við snasirnar. þetta klettabelti virðist ekki raska sér neitt, þótt brim og stórsjór gangi; eftir því sem kunn- ugir menn segja mér, mun vera óhætt að telja 8 feta dýpi við klettasnasirn- ar um stærstu stórstraumsfjöru. Nú hygg eg, að það gæti komið oss, til þess að byrja með, að stóru liði, að byggja á þessum klettasnösum garð, er skip geti legið við. Garður- inn ætti að ná frá Batteríishorninu austur eftir svo langt sem þörf gerð ist. Efnið í þennan garð lægi beint við að taka úr Landshöfðingjatúninu, sérstaklega Arnarhólnum. Allur flutn- ingur á efni er hér niður á við, og því mjög auðsóttur. Hærri hlutar túnsins g^ngju þá tilþessað fylla upp lægðirnar við sjóinn. Vér gætum þá auðveldlega svo um búið, að alt Lands- höfðingjatúnið breyttist í slétta, nær því eða alveg lárétta flöt, er næði alla leið fram á brún á garði þeim, er byggður væri á klettasnösunum. það væri varla unt að hugsa sór heppi- legra verzlunarsvæði fyrir Reykjavík- urbæ; það lægi svo ofur-vel við allri fráræslu og enn fremur mjög nærri aðaldýpi hafnarinnar. það er auðvitað, að áður en meira er gert en þetta, sem hér er um get- ið, mundu þeir dagar koma fyrir, að skip gætu ekki legið við þennan garð vegna öldugangs; en til þess að byrja með mætti hafa úti í dýpinu fyrir utan röð af vel botnföstum baujum, er skipin gætu dregið sig út að, þegar ilt kæmi í sjó. Flest fiskiskip vor rista ekki dýpra en það, að þau gætu legið við garð þennan allmarga daga af árinu, sórstaklega um sumartím- ann, hvort sem heldur væri hásjávað eðu lágsjávað. Svo ætti við að gjöra sem fyrst annan garð frá Batteríishorninn með lítilli bugðu frá norðri til austurs, og gengi svo jafnhliða hinum garðinum í nokkur hundruð feta fjarlægð frá landgarðinum, eins og sýnt er með rauðu á uppdrættinum. þriðji garð- urinn kæmi svo út frá landgarðinum litlu austar og hefði stefnu frá suðri til norðurs. Tnnsiglingin á þessa höfn kæmi frá austri, máske austri-land- norðri, ef það lægi betur við dýpinu. þegar svo kröfur vorar vaxa í fram- tíðinni, mætti framlengja báða aðal- garðana austur eftir og byggja nýjan garð með stefnu frá suðri til norðurs, lengra austur með landi. þetta er sýnt með rauðum deplum á uppdrætt- inum. þannig mætti halda áfram, eftir því sem oss yxi fiskur um hrygg, án þess þó í byrjun að leggja í nokk- urn óþarfa-kostnað, þó byrjað sé á litlu. Hér myndast þá smákvíar, hver við hliðina á annari, með einni aðal- innsiglingu í þá kví, sem austast liggur. Enn fremur er mjög líklegt, að með tímanum mundi verða bygður brimgarður (Bölgebryder) á svæðinu frá Engeyjarrifi til rifsins undan Laugarnesi, til þess að verja Rauðar- árvíkina fyrir öldugangi frá landnorðri og austri (úr sundunum). Ingeniör Paulli hefir gengið út frá því sem vísu, að hafnarkvíin yrði að liggja rótt fyrir framan hið núverandi verzlunarsvæði, eða í sjálfri Grófinni, en það er álit mitt, að þetta þurfi alls ekki að vera gjört að aðalatriði; kostn- aðurinn við hafnarvirkin á hinum nýja stað yrði þá að eins að innifela líka í sér útgjöld við að leggja braut frá batteríissvæðinu til sambands við Hafnarstræti og Aðalstræti, með greypt- um vagnsporum. þessi braut mundi * þá koma yfir kálgarðinn hjá Zimsen kaupmanni. Við að byggja höfnina á þessu nýa svæði, mundi ýmisl. stórkostnaður trá áætlun Paullis hverfa, t. d. krafan um lokaða skipakví (Dok) og gröftur á sjávarbotni. Allur flutningur á efni yrði hér niður á við. Alt þetta þarf frekari íhugunar og áætlunar; eg ætla að eins aðbenda á, að þennan veg mundi mega fara til þess að komast hjá hinum ógurlega byrjunarkostnaði, sem ingeniör Paulli gerir ráð fyrir. Hafnarnefnd vor ætti að láta athuga þetta frekar. Af hinu framansagða geta menn nú séð, hverja þýðingu eg álít að Lands- höfðingjatúnið geti haft fyrir bæinn. það er tillaga mín, að bærinn reyni að ná sem fyrst kaupum á öllu tún- inu, sérstaklega norðurhliðinni með- fram sjónum. Svo væri áríðandi, að þetta svæði væri ekki bygt út, nema eftir sérstaklega íhugaðri ákvörðun, til þess að skapa bænum ekki óþarfa- óþægindi í framtíðinni; sérstaklega væri heppilegt að halda svæðinu næst klöppunum óbygðu fyrst um sinn, þatigað til búið er að skera fullkom- lega úr því, hvort höfn vor eigi ekki einmitt að myndast á þessu svæði. Sigurður Pétursson, Cand. polyt. Ingeniör. Stjórnarskrá heimskunnar. Einhver snjallasta bindindishug- vekja, er birst hefir hér á landi, er nýprentaður fyrirlestur eftir hinn þjóð- kunna mælskumann, síra Ólaf Ólafs- son í Arnarbæli. Hann heitir Meira Ijós! og var fluttur á Eyrarbakka og Stokkseyri í vetur sem leið. Hann er örk í stóru 8 bl. broti með smáu letri, og er þar mörg smellin klausa og áhrifamikil. þetta er einn kaflinn: »Samkvæmt þessari stjórnarskrá höfum við Islendingar þingbnndna konungsstjórn. Sýnist ykkur það ekki nógu mannalegt? Er stjórnarfarið máske ekki eftir »kúnstarinnar regl- um»? Eins og Bretar höfum við drotn- ingu í konungs stað; það er óneitan- lega til manna að jafna. En drotningin okkar heitir Eeimska. þessi íslenzka drotning hefir ráða- neyti sér við hönd. Hinir helztu úr flokki ráðgjafanna eru þessir: Forsætisráðherrann heitir Vondur vani. Fjármálaráðherrann Ráðleysa. Kirkju- og kenslumálaráðherrann Andlegur svefn. Atvinnuvegaráðherrann Alt á tré- fótum. Dómsmálaráðherrann Hleypidómari. Samgöngumálaráðherrann Sundrung eða Sitt lízt hverjum. Ráðherrar heiœskunnar eru náttúr- lega miklu fleiri en þetta; en eg verð að láta þessa upptalning nægja í þetta skifti. Stjórnarskrá heimskunnar er í mörgum bálkum, köflum og kapítulum. Hún er endurskoðuð árlega og nýjum köflum bætt inn í eftir þörfum og kröfum tímans; því heimskan er kona, sem fylgist með tímanum. þessi stjórnarskrá er ekki prentuð í heild út af fyrir sig, og má merkilegt heita, að enginn af »forleggjurum« landsins skuli hafa ráðist í það. En — samt ern bálkar og kaflar úr henni til á hverju heimili á landinu. Eg ætla ekki stundina þá arna að taka til umræðu alla stjórnarskrá heimskunnar, því það væri óvinnandi verk á eiuu kveldi. Eg ætla einung- is að lesa upp einn kafla úr henni, kafla, sem sérstaklega við kemur efni því, sem eg geri að umræðuefni

x

Ísafold

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.