Ísafold - 18.04.1900, Blaðsíða 2

Ísafold - 18.04.1900, Blaðsíða 2
þyngsli, sárindi innau í hálsinum og oft þe8su samfara Uppköst. Áður dagur er liðinn, eða á næsta degi, fer að bera á rauðurn smádílum á hálsin- um, andlitinu og bringunni, og óðar en líður færist skarlatsroði yfir alt hörundið, fyrst á þeim stöðum, er nefndir voru, og síðan hvað af hverju um allan líkamacn. Oftast nær roðna þó ekki varirnar eða hakan, þó að kinnarnar séu eldrauðar. þetta rauða útþot stendur í fullum blóma 3 eða 4 daga; úr því fer það að blikna og sjúklingnum að létta. Nú hreistrar alt hörucdið líkt og eftir mislinga, en sá er þó munur, að skarlatssóttar- hreistrið er miklu stórgerðara en misl- ingahreistrið; af höndum og fótum losnar yfirhúðin oft í stórum flygsum. Hér er sjúkdómnum lýst í því líki, sem tíðast er, til þess að menn geti nú fremur áttað sig á honum og vitjað læknis tafarlaust, ef nokkur minsti grunur er á því, að um skarlatssótt sé a ð r æ ð a. Alt er undir því komið, að kæfa sóttina í fæðingunni, og sá vinnur þjóðinni afarþarft verk, sem að því styður. Sjúkdómurinn getur verið á ýmsan hátt frábrugðinn því, sem fyrr segir, en hér á ekki við að fara frek- ar út í það mál. Meðan hættanvofir yfir er réttast og nauðsynlegt, að hver maður vitji læknis tafarlaust, ef hann fær ilt í h á 18 i n n (»kverkaskít«, »hálsbólgu«). Skarlatssóttin getur haft ýms eftir- köst, ígerð í eyrum og þar með heyrn- arleysi, nýrnabólgu o. fl. Skarlatssóttin er ajar-nœm. Menn geta tekið sóttina af því einu, að koma nærri sjúklingunum, þó að þeir komi ekki við neitt, sem inni er. Heilbrigðir menn geta borið sóttkveikj- una af einu heimili á annað, án þess að fá sjálfir sóttina. Hún getur bor- ist í fatnaði, búsgögnum, bréfum og hverjum þeim hlut að heita má, er komið hefir nærri sjúklingunum. Menn þekkja að vísu ekki þessa sóttkveikju; en víst er um það, að hún er mjög lífseig. það vita menn, að hún felst í hreistrinu á hörundinu og getur verið í hrákum sjúklingsins og jafnvel í hægðunum. Sá fær mjög sjaldan skarlatssótt, sem einu sinni hefir haft hana. Yfir- leitt er hún ekki eins margtæk eins og mislingar. Mönnum er fullkunn- Ugt hér á landi, að örfáir komast undan mislingunum, þeir sem ekki hafa fengið þá áður. Svo slæm er ekki skarlatssóttin. Hún legst eink- um á börn, sem eru 2—10 vetra; með aldrinum þverrar sóttarhættan smátt og smátt, en þó ber það oft við, að fullorðið fólk tekur sóttina. Allir geta fengið hana. Ungbörn á 1. ári fá hana ekki að jafnaði. þá er sóttin gengur yfir, þar sem hún hefir ekki komið áður, má gera ráð fyrir, að hún sýki svo marga af hundraði (Í°), sem hér segir: yngri en 5 ára um 60°/° 5_15 __ _ 30/, 15—25 — — 3°/° 25—35 — — 1°/° og þaðan af minna, eftir því sem árin færast yfir. þessar tölur eru engan- vegin algildar, því að mikil tímaskifti eru að því, hversu margtæk sóttin gerist. Að jafnaði líða 4—7 nætur frá því er menn fá í sig sóttkveikjuna og þar til er sóttin hefst. þessi undir- búningstími sóttarinnar getur þó ver- ið enn styttri (1 eða 2 nætur, sbr. Lónakotsbörnin); siundum aftur lengri en hér var greint (alt að 14 nóttum). Sóttvörn og sótthreinsun gegn skarlatssótt er svo vandasöm, að ekki er unt í stuttu máli að gera grein fyrir öllu því, sem athuga þarf. Lækn- ar verða að hafa gætur á slíku. Að öllum jafnaði verður að einangra sjúklingana 4—6 vikur, frá því er þeir taka sóttina, og aldrei getur komið til mála að sleppa þeim, fyr en hreistrið er fullfarið af þeim. Auð- vitað verður að taka af allar sam- göngur við sóttarheimilin, enginn þar inn að koma annar en læknirinn, færa þeim vistir og önnur föng án þess að eiga nokkur mök við heima- menn, og sótthreinsa sem vandlegast, þá er sjúkdómnum er lokið, eftir því sem læknir segir fyrir. Til eru »Lög um varnir gegn því, að bólusótt og hin austurlenzka kólerUsótt og aðrar næmar sóttir (þar á meðal skarlatssótt, sbr. 1. gr.) flytj- ist til íslands (17. desbr. 1875)«. En til er naumast svo blindur maður, að hann sjái ekki, að þessi lög eru allseiidi8 einkis-nýt, að land- ið er opið og varnarlaust gegn alls konar útlendum drepsóttum alla þá stund, er alþýðumanna líðst að hafa dagleg mök við útlend botnvörpu- skip, sem aldrei hafa leitað hafna og fært sönnur á gott heilsufar. f>að er því engin furða, þó að sú skoðun yrði ríkjandi á síðasta þingi, að leggja með lögum bann fyrir mök hérlendra manna við útlenda botn- verpinga utan löggiltra hafna. þeir munu varla hafa hátt um sig í sumar, sem á móti þessu mæltu, ef skarlatssóttin úr botnvörpuskipunum berst út um alt land. því miður eru þessi lög enn óstaðfest. þingið hefir gert sitt til, en stjórnin — hefir ekk- ert gert. »Um vegi og brýr« o. s. frv. Hinn heiðraði »kollega« minn, Sig- urður Pétursson, hefir fundið köllun hjá sér til þess að fara að segja álit sitt »um vegi og brýr á aðalleiðinni frá Reykjavík austur í Holt«. — Hann birtir þetta álit sitt í þrem dálkum af 18. tölubl. ísafoldar þ. á. Hann segist hafa þá ástæðu til að birta þessar athuganir, að »vér erum of fá- tækir til þess að láta nokkurt tæki- færi ónotað til fræðslu um það, er reynslan sýnir að betur má fara«; og þessa reynslu þykist hann svo hafa höndum tekið nieð því að fara eftir veginum ríðandi snöggva ferð austur í Holt um hávetur. þar sem aðrir menskir menn þurfa, jafnvel á sumr- um, langan tíma til þess að mæla upp vegi og sjá iit, hvar þá eigi að leggja, sér hann með einu augnabragði af hestbaki, hvernig þeir eiga að vera, þarna sé óþarfur krókur, þarna sé ó- þarflega mikill halli á veginum og þar fram eftir götunum. þegar svo tekið er tillit til þess, að þessi maður er nýskroppinn frá examensborðinu, hefir ekki fengist neitt við vegagerðir verk- lega, og að eins — það eg frekast veit — séð vegi á sléttlendí, svo sem í Danmörku, en ekki í fjallalöndum, og hefir svo höfuðið fult af lærdómi þeim, sem hann nýlega hefir Iesið f danskri vegagerða-kenslubók, og sem að mörgu leyti alls ekki á við hór á íslandi, þá er það hálfbroslegt, að hann skuli koma hingað og fara að fræða mann um vegamál, sem hann hefir ekki kynt sér betur en með þessu ferðalagi sínu um vetrartíma. það er því heldur ekki að búast við, að það sé neitt verulegt að græða á þessum 3 dálkum; það er að eins ferðapistill, sem hver greindur og eft- irtektarsamur maður hefði getað skrif- að eins vel; þessi pistill er fullur af sleggjudómum og órökstuddura stað- hæfingum; til dæmis má taka: »á þess- um kafla (frá Helliaheiðinni að Gljúf- urá) er brúm miður hyggilega fyrir komið og óþarfir krókar á stefnum*, — búið — engin rök; það er enginn meiri vandi að slá þessu fram heldur en að segja: »á þessum kafla er brúm mjög hyggilega fyrir komið og engir óþarfa-krókar á stefnunni*. Hvort- tveggja eru staðhæfingar, sem geta eins vel staðið, á meðan rök vantar. Flest annað í greinni er þessu líkt. Og þegar maður svo les einn af hin- um síðustu sleggjudómunum: »Um Holtaveginn er það að segja, að veg- arstefnan er vel valin, liggur beinustu leið milli þjórsárbrúar og Rauðalækj- arbrúar* o. s. frv. — svo kemur löng lofrolla um Holtaveginn — þá dett ur manni ósjálfrátt í hug: nú það er mágur hans, sem hann er að reyna að hjálpa; eitthvað er það að minsta kosti undarlegt, að hann skuli ekkert hafa nema aðfinningar að veginum austur að þjórsá, en þegar kemur austur á Holtaveginn, sem mágur hans hefir lagt, þá er þar alt með himnalagi; en verði ekki hjá því kom- ist að geta1 einhvers, sem miður hefir farið, þá eru afsakauir strax við hend- ina (snr. »á eystri kaflanum varð ein- göngu að nota sand til ofaníburðar og hann hefir fokið burt á Iöngum köflum«); og þetta er því undarlegra, sem mörgum öðrum sýnist sá vegur ekki hafa haldið sér vel þennan ör- stutta tíma, sem hann hefir staðið, og virðist það fremur verið hafa hefndar gjöf fyrir Holtamenn, að láta þá hafa svo illa gerðan veg. það er auðvitað alt af fallegt að vilja hjálpa bágstöddum mági sínum, en þó því að eins, að maður halli ekki réttu máli og geri ekki öðrum rangt til. Yfir höfuð virðist þessi alda vera runnin meir frá máginum — sem var fylgðarmaður S. P. austur og sem líklega þykist eiga mér grátt að gjalda — heldur en frá greinar- höfundinum sjálfum, því að annars hefði legið nær fyrir S. P. — fyrst hann endilega vildi fræðaoss um eitt- hvað — að segja oss dálítið um á- sigkomulag húsabygginganna þar aust- ur frá — til þess var ferðin farin — eða var ef til vill ekkert þar að að finna, eða var það ef til vill ekki eins bráðnauðsynlegt og þetta um vegina? Eg skal svo ekki lengja þetta mál — eg skal svara honum seinna, ef hann kemur með einhverjar rökstudd- ar aðfinningar — en bæði af því að þetta snerti mig að nokkru leyti, þar sem eg hefi mælt upp nokkuð af þessari leið, og svo af því að það var einhverskonar »autoritets«-stimpill eða »myndugleika«-bragð að þessari grein, og eg gat ímyndað mér, að margir menn kynnu að halda, að það væri sérlega mikið að marka, hvað þessi maður segði, þá vildi eg sýna mönn- um fram á, hvað mikið er varið í þessa »autoritet«, þegar hún kemur svona fram eins og hér í þessu máli. Yfirleitt held eg, að landið myndi ekki stórtapa við það, þó að hinn heiðraði greinarhöfundur sýndi af sér þá þolin- mæði og þá sjálfsafneitun, að láta ekki sitt ljós skína í vegamálum fyr en hann hefir fengið einhverja verklega æfingu og reynslu í þeim efnum. — því að af sleggjudómum höfum við íslendingar meira en nóg, svo mikið, að varla er á það bætandi. Reykjavík 9. apr. 1900. Sig. Thoroddsen ingeniör. Aflabrögð hafa verið og munu vera enn mik- ið góð í Höfnum, af þorski að mikl- um mun. Sömuleiðis í Grind^vfk góð- ur afli. Ennfremur vel vart í Garð- sjó og jafnvel inn í Leiru. Hrognkelsaveiði byrjuð hér á inn- nesjum allgóð og lítur vel út með hana.. Kolaforðabúr. Sendimaður frá stóreignafélagi ensku, •Elder, Dempster & Co.«, O. E. Birch- man kapteinn, er hér í bænum um þessar mundir, kom með »Skálholti« um daginn frá Kaupmannahöfn. Félag þetta á í förum mjög mikinn fjölda af gufuskipum, framundir 100,. er ganga milli hafna í Norðurálfu, Suðurálfu og Vesturheimi, er sam- steypa af einum fimm gufuskipafélög- um, og er »Beaverlínan«, sem kunner hér á landi, eitt af þeim félögum, er þar hafa runnið saman. Auk þess á félagið kolanámur miklar í ýmsum löndum. Meðfram er erindi kapt. Birchmans hingað að reyna að tryggja félagi þessu flutning á íslenzkum vesturförum í sutnar. En aðalerindið mun þó hitt vera, að forvitnast um, hvort ekki sé tiltækilegt fyrir félagið að hafa hér stöðugan kolaforða fyrir bæinn og gufuskip, sem hingað koma. Er í ráði, svo framarlega sem nokkuð verð- ur úr fyrirtækinu, að ná tangarhaldi, annaðhvort til eignar eða leigu, á landspildu nokkurri fram með sjónurn,. hér við bæinn, til allmikillar húsagerð- ar til vöru-geymslu, skrifstofu o. s. frv. Erindreki félagsins, kapt. Birchman, er fæddur í Svíþjóð, en fluttist þaðan til Euglands barn að aldri og á heima í Liverpool. Hans er að góðu getið f nýkomnum Liverpool-blöðum. Eftir að hann var lagður á stað í ferð þessa hingað, hafði borgarstjórinn í Liver- pool fengið umboð frá stjórn Banda- ríkjanna til þess að afhenda honum gullúr með gullfesti í viðurkenningar- og þakklætisskyni fyrir björgun á am- erísku skipi úr háska miklum í febrú- armán. i vetur. í tilefni af fessari virðing, er kapt. Birehman hlotnaðist, getur Liverpool-blað eitt um mörg sams konar afreksverk, er sami maður hafi áður unnið, og talar um hann sem einn af þeim mönnum, er brezka sjómannastéttin hafi mestan sóma af. Nýr Búa-signr. þið er síðast að segja af viðureign Búa og Breta, að liðssveit ein brezk, í bænum Reddersburg í Óran- íu, skamt suður frá Bloemfontein, varð að gefast upp fyrir Búum 4. þ. m., eftir nær sólahrings vörn. það voru framt að 600 manna og nokkrar fall- byssur. Fallið höfðu áður 8 af Bret- um, en 33 óvígir af sárum. þetta óhapp sveið Bretum því sár- ara, sem þeir höfðu þá fyrir fám dög- um orðiðfyrir viðlíka áfalli, ergetiðvar f síðasta blaði, launsátinni fyrir Broad- vood ofursta. f>að hefir vitnast síðan, að Bretar mistu þar meira en fyrst var uppi látið, sem sé 450 manna. Bretar sitja með óvígan her á næstru grösum, í Bloemfontein, og þvkir þetta hvorttveggja meira en meðalsneypa fyrir þá. Búar eru eins og þeytispjald fram og aftur um landið alt umhverf- is þá, og ráða þar að, er sízt varir. það bætti Bretum ofurlítið í munni, að í sama mund handsömuðu þeir of- urlitla Búasveit á leiðinni norður að Mafeking, sem Búar halda enn í her- kví. |>að voru 55 Búar og fyrir þeim franskur hershöfðingi, sem féll á þeim fundi. Að Búar hafi náð aftur eða unnið Bloemfontein er tóm vitleysa. Sigling. Tvö kaupför komu hér á páskadag- inn, þrísilgd skonnorta »Merida« (295 smál., skipsbj. H. S. Pedersen) með saltfarm frá Englandi (Liverpool) til

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.