Ísafold - 30.06.1900, Síða 4
íes
tir læknisfrabði við Khafnarháskóla.
Mun hugsa til að ílendast hér.
Mannalát.
Hér andaðistí fyrra dag, 28. þ. m.,
eftir langa legu og þunga Markús F.
Bjarnason, kapteinn og forstöðumað-
ur stýrimannaskólans, rúmlega fimt-
ugur að aldri, f. 23. uóv. 1849. Hann
var til muna lasinn hvað eftir annað
í vetur og stundum rúmfastur, fekk
því næst inflúenzu, meðan stýrimanna-
prófið síðara stóð yfir, í miðjum f.
mán., en fekst ekki til að hiffa sór
hót, heldur en hann átti vanda til,
heldur vann nærri nótt sem dag.
Lagðist fyrir það sóttin miklu þyngra
á hann en ella mundi, en heilsubil-
aður undir, og dró hann loks til bana.
Merkismanns þessa var minst nokk-
urn veginn rækilega í Sunnanfara í
vor og vísum vér til þess, en látum
þess að eins getið, að svo vandfylt er
skarð hans, að búast má við að land-
stjórnin komist þar í mestu kröggur.
Svo framúrskarandi hæfileika hafði
hann bæði til kenslu og stjórnar; elj-
au og alúðin fágæt, við hvað sem hann
fekst.
Jarðarför ráðin föstudag 6. júlí.
Dáin 29. f. m. úr inflúenza, háöldr-
uð sæmdarkona Ingibjörg Oddsdóttir á
Hóli í Garðahverfi, föðursystir síra
Magnúsar á Prestbakka á Síðu, en
ekkja meíkisbóndans Vigfúsar Hjörts-
sonar. I Hliðsnesi bjuggu þau hjón
full 30 ár blómlegu rausnarbúi.
Dáin 5. þ. m. öldruð ekkja Guðrún
Jónsdóttir, móðir veggjörðastjóra Sig-
urgeirs Gíslasonar; góð kona og grand-
vör.
Uppboð
var haldið fyrra laugardag á Sirius,
frönsku fiskiskútunni, er strandaði hjá
Stafnesi fyrir skemstu. Hæstbjóðandi
varð Geir kaupm. Zoega fyrir 1710 kr.;
keypti auk þess segl og annan útbún-
að fyrir 700 kr. Lánaðist honum síð-
an að fleyta skipinu inn eftir, og er
gizkað á að gera megi við það fyrir
600—800 kr. f>á verður það eitt með
eigulegustu fiskiþilskipunum hér, eir-
seimt og eírvarið, 83 smál. að stærð
og ekki nema 14 ára gamalt.
Herskipið Diana
frá Khöfn kom hingað í gærmorgun
frá Færeyum; hafði verið þar um 3
vikur, en lengra miklu síðan það lagði
á stað frá Khöfn. Er hér f mæling-
arerindum, eins og áður.
TJm sóttina í Færeyum fréttist það
með þessu skipi, sem til var getið í
síðasta blaði: að þar gengur að eins
innflúenza og taugaveiki.
Skiftafundur
í þrotabúi kaupmanns Thor Jensens
verður haldinn f þinghúsinu á Skipa-
skaga þriðjudag 10. júlí næstk. kl. 6
síðdegis. Meðal annars verður borið
undir samþykki fundarins boð það,
sem gert var í fasteignir búsins á upp-
boði 25. þ. m.
Sýslumaðurinn í Mýra- og Borgar-
fjarðarsýslu pt. Skipaskaga 27. júní 1900
Sigurður Þórðarson.
Dugleg og þrifin vinnukona
getur fengið vist nú þegar. Hátt kaup.
G. T. stúkan »Verðandi« nr. 9
heldur 15. afmælisdag sinn í Good-
templarahúsinu næstkomandi þriðju-
dag kl. 8 síðdegis. Allir templarar
velkomnir.
Tveir hestar móalóttir, ungir
og fallegir, hentugir til hægrar vagn-
brúkunar, verða til sölu hér í bæn-
um á þriðjudaginn 3. júlí. Ritstj.
vísar á seljanda.
í Fífuhvammi er i óskilum b r ú n n
h e s t u r marklaus. Kauður, mark: Sneitt
aít. h. standfj. fr. Vorn með hönduna.
Eígandi hirði sem fyrst og horgi þessa
auglý8Íngu, hirðingar- 0g hagatoll.
H.St
,88
MARGARINE
Vandaö
danskt smjörlíki
í stað smjörs
í Suðurgötu nr. 8 (suðurendan-
Merkt um) er regnkápa. sem einhver hefir
skilið þar eftir. Vitja hennar þangað.
6
frá verksmiðjunni
í smáum öskjum, sem ekkert kosta,
með 10 og* 20 pundum 1 hverri, hæfi-
leg*um fyrir heimili. Betra og* ódýrra
en annað smjörlíki. Fæst innan
skamms alstaðar.
H. Steensens Margarinefabrik, Vejle.
THE
NORTH BRITISH ROPEWORK
C o m p a n y
Kirkcaldy á Skotlandi
Contractors to H. M. Government
búa til
rússneskar og ítalskar
fiskilínur og færi,
Manilla-og rússneska kaöla, alt sérlega
vandað og ódýrt eftir gæðum.
Einkaumboðsmaður fyrir Danmörk, Is-
land og Færeyar:
Jabob Gunnlögsson.
Kobenhavn K.
Leiðarvísir til lifsbyrgðar
fæst ókeypis hjá ritstjórunum og hjá dr.
med. J. Jónassen, sem einnig gefur þeim,
sem vilja tryggja lif sitt, allar upplýsingar.
Sumlmaga
kaupir hæstu verði fyrir p e n i n g a
Ásgeir Sigurðsson.
Fundur
verður haldinn í Iðnaðarmannafélag-
inu laugardagskvöldið 30. þ. m. kl. 8.
Á r í ð a n d i að félagsmenn fjöl-
menni.
Undirskrifuð hreinsar alls kon-
ar fatnað o. fl., hvort heldur úr ull
eða silki.
4 KIRKJUSTRÆTI 4
Jónína Magnússon.
Saltfískur
vel verkaður, stór og smár, og ýsa,
verður keyptur 1 sumar fyrir peninga
við verzl. .EDINBORG. í Keflavík,
Stokkseyri og Reykjavík.
Sundmaga
fyrir peninga kaupir hæsta verði
W. Christensens-verzlun
Sundmagar
vel verkaðir verða keyptir fyris pen
inga við verzl. »EDINBORG« í
Keflavík, Stokkseyri og Reykjavík
Asgeir Sigurðsson.
Mig langar til að skýra frá því op-
inberlega, að eftir að eg hafði tekið
inn úr nokkurum glösum af Kína-lífs-
elíxír frá Valdemar Petersen Frið-
rikshöfn fór mér til muna að batna
brjóstþyngsli og svefnleysi, er eg hafði
þjáðst mjög af undanfarið.
Holmdrup pr. Svendborg
P. Basmussen.
sjálfseignarbóndi.
Kína-lífs-elixírínn fæst hjá flest-
um kaupmönnum á Islandi.
Til þess að vera viss um, að fá
hinn ekta Kína-lífs-elixír, eru kaupend-
ur beðnir að líta vel eftir því, að —
standi á flöskunni í grænu lakki, og
eins eftir hinu skrásetta vörumerki á
flöskumiðanum: Kínverji með glas í
hendi, og firmanafnið Waldemar Pet-
ersen, Frederikshavn, Danmark
Smátt te
1 kr. 60 a. pundið
Smátt te, sem br. Bernhard Phil-
ipsen hefir verzlað með meiia en 20
ár, er síaðúr fínustu tetegundum
og fæst nú með sömu íyrirtaksgæðum
hjá Brödr Berg
Amagertorv 14
Köbenhavn.
Samkvæmt ályktun sýslunefndar Ár-
nessýslu verða
fjármarkaðir
haldnir á næsta hausti á þessum stöð-
um og dögum.
Fyrri umferð.
1. í Ölvesréttum föstud. í 23. viku
sumars.
2. Við Ölvesárbrú mánud. í sömu viku.
3. í Dælarétt þriðjudaginn í s. v.
4. I Almannannagjá miðvikud. í s. v.
5. í Klausturhólarétt föstud. í 24. viku.
6. í Vatnsleysurétt laugard. í s. v.
7. 1 Ytrihreppsréttum mánud. í s v.
8. í Skaftholtsréttum og Reykjarétt-
um þriðjudaginn í sömu viku.
Síðari umferð.
1. í Ölvesréttum mánud. í 25. viku
sumars.
2. Við Ölvesárbrú þriðjud. í sömu viku.
3. í Dælarétt miðvikud. í s. v.
4. í Almannagjá fimtud. í 26. viku.
5. í Klausturhólarétt föstud. í s. v.
6. í Vatnsleysurétt laugard. í s. v.
7. í Ytrihrepp mánud. í s. v.
8. í Skaftholtsréttum og Reykjarétt-
um þriðjudag í sömu viku.
Séu fleiri markaðir álitnir nauðsyn-
legir, boðar hver sveit til þeirra.
Hreppsnefndin í hreppi þeim, sem
ma/kaðirnir eru haldnir í, sér um
fyrirkomulag og stjórn á ruarköðunum.
Grímsneshreppi 23. júní 1900.
St. Stephensen.
Proclama,
Samkvæmt lögum 12. april 1878,
sbr. opið bréf 4. jan. 1861, erhérmeð
skorað á alla þá, sem til skulda telja
í dánarbúi Kristjáns Kristjánssonar frá
Gunnarsstöðum (fyrrum í Straumfirði)
að lýsa kröfum sínum og sanna þær
fyrir skiftaráðanda Dalasýslu áður en
6 mánuðir eru liðnir frá 3. birtingu
auglýsingar þessarar.
Skiftafundur verður haldinn í úán
arbúi þessu að Blönduhlíð í Hörðu
dalshreppi miðvikudaginn 29. ágúst
næstk. um hádegisbil.
Skrifstofu Dalasýslu 22. júní 1900.
Björn Bjarnarson
u
Ritstjórar: Björn Jónsson(útg.og ábm.)og
Einar Hjörleifsson.
ísafoldarprentsmiðja.
»NORDEN«
þilskipaeigendur, sem í haust þurfa
botnfarfa á skip sín, eru vinsamleg-
ast beðnir að gjöra undirrituðum við-
vart um það áður en Botuía fer 12.
júlí.
Botnfarfi frá verksmiðjunni
NORDEN er nú brúkaður á
flest skip hér við Faxaflóa.
Einkaútsölu hefir
Th. Thorsteinsson.
á overheadmjöli og hveitimjöli verður
haldið næstkomandi föstudag, 6. júlí,
í verzlun W. FISCHERS-
Til leigu írá 1. okt. 3—4 herbergi,
eldhús og geymslupl. í húsi Stgr. Guð-
mundss. snikkara, Laugav. 23.
Hér með auglýsist að hross verða
ekki tekin til pössunar í Laugarnesi.
Þórður Þórðarson.
Bezta tegunfi Bezta tegunfi
Farfavara
frá verksmiðjunni »De forenede Mal-
ermesteres Farve Mölhr« stofnuð 1845
af máiunarmeisturum í Danmörku, í
þeim tilgangi að menn í Khöfn og
út um landið ættu kost á að fá
góöa og ósvikna farfavöru.
Pundið af farfa frá nefndri verk-
smiðju þekur yfir miklu
stærra svæði en saina þyngd af
farfa, sem fcest hér, frá öðrum verk-
smiðjum, sökum þess að það má
þynna hann miklu meir;
er auk þess haldbetri —
hinir hvítu litir gulna ekki,
halda sér skínandi hvítir
í langan tíma. Þar eð vinnan
við málningu kostar miklu meira en farj-
inn, borgar það sig bezt að
kaupa góðan og ósvikinn
farfa. Það sparar vinnutímann og
verkið verður varanlegra.
Einkaútsölu hefir undirritaður; eru
menn, sem í sumar þurfa að brúka
farva að mun, beðnir að gjöraviðvart
um það dður en Botníafer 12. júlí.
28. júní 1900.
Th. Thorsteinsson.
Við undirritaöir málarar, sem hér á landi
höfum reynt farfavöru frá »De forenede
MalermestereKS Farve-Möller í Khöfn,
og auk þess þekkjum hana frá Danmörku,
en þar er hún álitin betri vara en nokkur
önnur verksmiðja þar býr til, vottum hér
með, að húu eftir olrkar áliti er sú hezta
farfavara, sem við hingað til höfum notað
við vinnu vora á Islandi.
Reykjavik 24. april 1900.
N. S. Berthelsen. J. Lange. L. C. Jörgensen.
Gut'ub. ÁREVKJAVIK*
Eins og áður er auglýst, fer gufu-
báturinn »Reykjavík« aukaferð til
Borgarness sunnudaginn 1.
júlí, og kemur við á Akra-
nesi báðar leiðir. Ferðin er vel til
fallin fyrir skemtiferð fyrir bæjarbúa.
Reykjavík, 28. júní 1900.
B. Cruðmundsson.
Skiftafundur
verður haldinn í dánarbúi ekkjufrúar
Ingibjargar Magnússen frá Skarði í
Skarðsstöð þriðjudaginn 7. ágúst næstk.
um hádegisbil og eru erfingjar búsins og
umboðsmenn þeirra beðnir að mæta á
honum.
Skrifstofu Dalasýslu 21. júní 1900.
Björn Bjarnarson.