Ísafold - 18.01.1902, Page 1

Ísafold - 18.01.1902, Page 1
Keruur ut ýmist einu sinm eða tvisv. i viku Verð árg. (80 ark. minnst) 4 kr., eriendis 5 kr. eða 1'/* doll.; borgist fyrir miðjan júli (erlendis fyrir fram.) ISAFOLD. Uppsögn (sK.ifleg) bundin við áramót, ógild nema komin sé til útgefanda fyrir 1. október. Afgreiðslnstofa blaðsins er Austurst.rœti 8. XXIX. ár£. Jleykjavík laugarda^inn 18. jan. 1902. 3. hlnö. I. 0 0. F. 831248' ,. Forngripasnfn opið mvd. og Id 11—12 Lanasbókasafit opið hrern virkan dag ki.L2—2 og einni stundu lengur (til kl. 3) nid., mvd. og )d. t.ii ntlána. Okeypis lækning á spitalfnum á þriðjud. ,og fiistud. kl. II -L. Ókeypis augnlækning á spítalanum ,fyrsta og þnðja þriðjud. bvers mánaðar s.. LL — 1. Ókeypis tannlækning i húsi Jóns Sveins- -sonar hjá kirkjnnni l. og 3. mánud. bvers ninii. kl. 11 1 ■ Landsbnnkinn opinn hvern virkan dag k 11—2. Bankastjórn við kl. 12—1. Skarlatssóttar-yariiirnar. Svo fór, sem við mátti búast, að bæjarstjórnin treystist ekki til að verða við ósk héraðslæknisins um að taka að sér kostnað af skarlatssótt- Vörnum hér, eftir að lands3tjóruin hef- ir kipt svo sviplega að sér hendinni, sem hún hefir gert, og í miðjurn klíð- um. Kostnaðaratriðið var sök sér, þótt nokkuð yxi það í augum, oe látin væri að sögn í ljóai grunur um, að lands höfðíngi mundi tæplega samþykkja lántöku af bæjarins hendí í því skyni, fyrir ósamkvænini sakir við þeirra ráðs- ályktun, hans og landlæknis. Hitt er lakara, hve hæpið er því að treysta, að almenningur sýni und- antekningarlaust eða því sem næst sömu hlýðni við óiögboðnar ráðstafan- ir, eins og þar sem lagavaldið stendur á bak við með vöndinn á lofti. Fjöldi manna, allur fjöldinn jafnvel, mundi gera það, eftir þá skólagöngu í sótc- varnarháttum, er þeir hafa notið fyr- ir jafnlipra sem einbeitta tilsögn og afskifti hius ötula og einkarskyldu- rækna héraðslæknis höfuðstaðarins. En það er ekki nóg. Haldist hinum uppi að þrjózkast, þá er alt hálfónýtt. þá er og í annan stað sá agnúinn ef til vill enn erfiðari viðfangs, að þótt lánast kynni að halda sóttinni í skefjum í höfuðstaðnum, þá getur hun ásótt hann látlaust úr öðrum héruð- um, úr því að enginn hemill verður á henni hafður þar úr þessu. En getandi er þess í því sambandi, til maklegs lofs hreppsnefndinni í næsta hreppi við Reykjavík, Seltjarn- arneshr., að hún bauðst til að taka að sínu leyti, eftir fólksfjölda, tiltölu- legan hlut í kostuaði af varnarráðstöf- unum þeim, er bæjarstjórnin kynni að vilja færast í fang. — Svo getum vér auðvitað verið lán- samir, að sóttin sé nú hér um bil á förum, svo að lítið sem ekkert verði að sök, þótt slept sé af henni taumn- um af landstjórnarvaldinu. En hún getur líka stórmagnast aft- ur, þegar hún er svona laus látin, og gert voðaspell. Og mundu þá fáir kjósa að vera í þeirra sporum, er því hafa ráðið, hvort heldur er beinlínis eða óbeinlfnis, að hætt er við að hafa nokkurn lagahemil á sóttinni, svo greinilega sem reynslan hafði sýnt, að hann hafði tilætlaðan árangur, eftir atvikum. Hitt er sjálfsagt, og stórum áríðandi, að ekki sé þar fyrir lagðar gersam lega árar í bát andspænis sóttinni, heldur kostað kapps um eftir mætti að haga sér eftir hyggilegum varúðar- reglum og bendingum lækna um við- ráðanlegar varnir og alia varúð við henni. Ný stjórnbótartillaga. Páll amtmaður Briem hreyfir nýrri stjórnbótartillögu í »Norðurl.« 31. f. mán., — nýrrí að því leyti til, að henni mun ekki hafa verið hreyft á prenti fyr, nema lítillega í einu blaði nú nýlega (þjóðv.), þótt komið hafi til mála fyrir nokkurum árum, en eigi þótt tiltækilegri eða líklegri til framkvæmdar en hinar, er lengst hafa verið á prjónum hafðar. Tillagan er, að hafa ráðgjafana tvo, er íslenzk mál hafi meó höndum, sinn á hvorum stað búsettan, hér og í Khöfn, en með þeim stórvægilega mun frá tíu-manna-frumvarpinu sæla, að Hafnarráðgjafinn á að vera jafn- skyldur hinum til að mæta á alþingi og jafnskyldur hinum til að kunna ís- lenzku í ræðu og riti ,o. s. frv. þar með telur hann bæði þjóðræðinu borgið og búsetuna fengna. En óleyst er þar úr þeim vanda, hvernig komist verður hjá tvískifting stjórnarábyrgðarinnar og hættulegum tvískinnung í stjórnarathöfninni, með fleiri íhugunaratriðum. Hitt leynir sér ekki, að tillaga þessi er sprottin af verulegum, ómeng- uðum 8tjórnbótaráhuga, og á ekk- ert skylt við yfirdrepsskap skrif- stofuvaldsliða og dulræði þeirra til að lögfesta Hafnarstjórn þá, er nú höf- um vér, eða jafnvel annað þaðan af verra. Mikill eldsbruni á Akureyri. 100,000 króna tjön. Viku fyrir jól, fimtudagsmorgun 19. f. mán., brunnu 7 íbúðarhús á Akur- eyri til kaldra kola, og önnur nokkur skemdust til muna. Mestan skaða beið Vigfús Sigfússon veitingamaður, 40—50 þús., þar af húsin 30,000 kr. f>ar næst Sigvaldi þorsteinsson 20,000 kr. f>á Klemans Jónsson sýslumaður 1272 þús., þar af húsið 8 þús. Síra Geir Sæmundsson er hinn 4., sem brann hjá, fyrir 5 þús., þar af húsið 4 þús. Fimta húsið áttu Höepfners erfingj- ar. f>að var 3000 kr. virði. Loks 2 smáhús, um 1000 kr. virði hvort: (Ma Guðmundssonar og frú Margrétar Halldórsdóttur. Skemdir á húsum, sem ekkibrunnu til fulla (þeirra á meðal St. Stephen- sens umboðsmannsj, talin um 1500 kr. sarutals. Rúmir 50 manna urðu húsnæðis- lausir, og erfitt mjög að koma þeirn fyrir, með því að afarþröngt var í bænnm undir. Upp kom eldurinu í gestaherbergi hjáleiguskála veitingahússins. f>ar kom maður um nóttina frarnan úr Oxnadal og legst þar fyrir, en kveik- ir áður á lampa og hengir upp á fata- suaga rétt uudir súðinui. Sofnar síð- an frá logandi ljósinu, sem kveikti von bráðara í súðinni og heyi, er þar var fyrir ofan. Ekkert er slökkvilið á Akureyri né slökkvitól. En mikið orð á gert vask- legri framgöngu margra bæjarbúa að bjarga úr húsunum, sem brunnu, og verja hin. Amtmaður gekst aðallega fyrir björgunarsamtökum. Skjalasafni sýslumanns varð bjargað og bókasafni Jóns Borgfirðings í sama húsi. Öll voru húsin vátrygð, sem brunuu, og töluvert af lausafénu, en sumt ekki. Illkvitni og ósannsögli Svar tii Lárusar K. J. H. Bjarnasonar. f>essi virðulega peraóna hefir 4. okt. síðastl. látið gáfnaljós sitt uppljóma dálka »f>jóðólfs« í grein, er hann kall- ar svar til mín út af nokkurum orð- um, er eg hafði neyðst til að víkia að honum í »ísafold« 27. júlí síðastliðinn. Sumum athugulum mönnum kynni nú samt að þykja þetta pj’ ðólfs ljós eiga eitthvað fremur skylt við mrýraljós; en eg fæst ekkert um það. f>að væri sannarlega synd, að ræna manninn með öllu þeirri ímyndun, þó barnaleg 8é, að hann reiði þverpokana steytta a.j viti, hvar sem hann fer yfir foldina. Eg læt því þessa mikilmensku-brjálsemi mannsins hlutlausa, en verð að minna hann enn þá einu sinni á, að fult eins vel mundi fara á því, að hann héldi sér ofurlítið betur við sannleiksnn, og væri ekki eins smásmuglega illkvitt- inn og hann hefir reynst í döilu sinni við mig. En manntetrinu dauðliggur á að sverta mig; þess vegna sparar hann hvorugt, ósannsöglina ué ill- kvitnina, og þarf til hvorugs miklar gáfur. Lárus hefir lengi »steininn klappað«, að því er það snertir, að víkja mis- jöfnu að mér. Eg var ekki búinn að vera lengi í Stykkishólmi, þegar hann hóf það starf. Tilefnið tók hann sér af afstöðu minni í Skúlamálinu á þingi, þoldi það ekki, að eg, ásamt mjög mörgum öðrum þingmönnum, hélt því fram, að rétt væri að skipa opinbera rannsókn til að vita, hvort kærur þær yfir framkomu L. sem rannsóknar- dómara í greindu máli, er amtinu höfðu borist, væru á rökum bygðar eða ekki. Úr þessum kolunum hefir rokið síðan. Árið 1896 kom svo fyrir eitt atvik, er jók eigi alllítið á ilskuna og gremj- una í Lárusi við mig. Eg tók að mór, fyrir ítrekaða beiðni amtsins, skiftaráðandastarfið í dánarbúi Sig. sýslumanns Jónssonar, þegar ráðstafa átti búseign búsins. f>ótti mér ekki rétt að afsegja þetta starf, með því amtið lagöi að mér og virtíst ekki hafa á öðrum betri völ, þótt mig grun- aði þegar, af því eg þekti innræti Lárusar, að eg mundi með því starfi baka mér ýms óþægindi, eins og marg- faldlega er fram komið. Lárus vildi með öllum ráðum fá mig til að úr- skurða sér húseignina; en sannfæring mín, er eg hlaut að mtta meir en yf- irvaldið, leyfði mér það ekki. Ætlaði Lárus þá að ganga af göfíunum, hót- aði mér og búinu málsókn, sendi hrað- boða suður í Reykjavík til að fá tekna út yfirréttarstefnu í málinu; en með því aðfarir hans mættu þar ekki öðru ea annaðhvort undrun eða hlátri, en úrskurður minn talinn í alla staði rétt- ur og starf mitt fyrir búsins hönd allrar þakkar vert, heyktist maðurinn og þagnaði; en gleymdi ekki. Fult ár þar A eftir gat hann mig ekki aug- um litjð, og aldrei greri um heilt frá hans hlið. f>á komu þingkosningarn- ar 1900 og frumhlaup hans á hendur mér á Helgafelli, og áreitni hans við mig í grein »Snæfellings« í fyrra haust; eg segi hans, því fáir kunnugir munu nú framar efast um, að einmitt Lárus sjálfur, þessi hreinskilninnar engilll, hafi átt fullan bróðurpartinn í þeim samsetningi. Hann gat þá líka eftir þessu brugð- ið fyrir sig þeirri listinni, að skríða í skúmaskotin, sami maðurinn, sem bregður öðrum upp úr þurru um ó- hreinlyndi. En er honum þótti ekki lengur vært inni í skotinu, skreiddist hann út og hefir spúið yfir mig hverri ólyfjaninni annari daúnverri. Síðasta spýjan er f>jóðólfsgreinin 4. okt. síðastl. f>að er nákvæmlega sama markið á henni og hinum fyrri, sama ósvífnismarkið. Eða hvað segja menn um aðrar eins óþokkadylgjur og hann við hefur um breytni míua við presta þá, er eg er yfir skipaður, einkum þann, er hann nefnir nágrannaprest minn? Auðvitað nefnir hann ekki prestinn nafni, en kemur þó þannig orðum sínum, að lesandi þurfi ekki að vera í efa um, hvern sé við átt. Ekki nefnir hann heldur brot það, er eg hafi gjört mig sekan í gagnvart þessum presti; talar að eins undir rós um einhverja sögn, er eg hafi sagt af honum í margra manna áheyrn. En hvað þetta er líkt Lárusil, og einni persónu til — Gróu gömlu á Leiti. Hún hefði náum- ast gert það betur, og var hún þó sleip. Hér hygst Lárus að vinna tvö þarfaverkin! í einu: rægja mig við prestana, og hefna sín jafnframt á þeim og ástvinum þeirra. Komi Lár- us með sögu sína og hina mörgu sann- leiksvotta; eg öfunda hann ekki af þvf; honum lætur bezt, hvort sem er, hlutverkið gömlu Gróu. En hitt þori eg að fullyrða, að eg hefi ekki reynst neinn ódrengur, hvorki nágrannaprest- inum, né hinura öðrum, og væri vel, ef Lárus hefði sjálfur jafnhreinar hend- ur gagnvart þeim. Ekki þreytist Lárus á að blanda

x

Ísafold

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.