Ísafold - 26.07.1902, Blaðsíða 3
183
fá kjósendur til að gera: að bægja
frá þingi hættulegasta þingfarar-keppi-
naut téðs yfirvalds.
|>etta er þó nokkuð sérstaklegs eðlis.
Hér skal ekkert út í það farið,
hvað hæft muni eða ekki hæft í
almannaróm vestra um upptök kær-
unnar um ólöglega fjárbrúkun afvöld-
um alþingismanns Skúla Thoroddsen
honum til kjörfylgis, heldur að eins
bent á hitt, hvort ekki munu þurfa
nokkuð langt að leita dæmis fyrir því,
að maður leyfi sér að skipa dómara-
sæti í máli, sem honum er jafn-ná-
bomið og þar sem í hlut á maður, sem
hann hefir nýþreytt við skæðan bardaga
af hinu mesta ofurkappi, allra helzt
þar sem lög og réttarvenja ætlast til
gersamlegs hlutleysis dómara af mál-
um þeim, er þeir eiga um að fjalla —
vilja tryggja sem allra vandlegast
fyletu óhlutdrægni af þeirra hálfu.
En þau hafa það til að sofa stund-
um, lögin. Eða þá réttarmeðvitundin.
En ekki er skemtilegt ástand í því
landi, þar sem þeim verður mjög
svefnsamt.
Álþingi sett.
|>að var gert í dag á hádegi.
Prédikað áður í dómkirkjunni af
síra Eggert á Breiðabólsstað.
Kosinn var forseti í sameinuðu þingi
síra Eiríkur Briem (32 atkv.) og vara-
forseti Júlíus Havsteen (32).
f>essir 6 þjóðkjörnir þingmenn voru
kosnir upp í efri deild:
Eggert Pálsson (33).
Guðjón Guðlaugsson (34).
Guttormur Vigfússon (34).
Jósafat Jónatansson (34).
Sigurður Jen3son (34).
Skúli Thoroddsen (18).
Neðri deild kaus forseta Klemens
Jónsson, eins og síðast (22), og vara-
forseta f>órhall Bjarnarson (22).
Efri deild Árna Thorsteinsson (e. hl.)
og varaforseta Guðjón Guðlaugsson (6).
Skrifarar í sam.þ. L. H. B. og H.
f>. (um 20); í efri d. Egg. P. og Sig.
Jenss. (10); íneðrid. ÁrniJónsson (23)
og Jón Magn. (22).
Margra stunda (3) rimma út af
málinu um ólöglega peningabrúkun af
hálfu Skúla Thoroddsen við kosníng-
ar í vor, þ ó 11 alls ekki hefði yfir
kosningunni verið kært til þingsins.
Kosning hans þó samþykt.
Dáinn er
hér í bænum í fyrri nótt uppgjafa-
prestur síra |>orkell Bjaruason
frá Beynivöllum. Hans verður minst
frekara í næsta bl.
Strandferðasklp Vesta (Gottfredsen)
kom miðvikudagskveldift 23. þ. m. norðan
um land og vestan. Meft því kom lands-
höfftingi og frú hans; þingmennirnir Gnð-
jún Guðlaugsson, Hermann Jónasson, Lár-
us H. Bjarnason og síra Sigurður Ste-
fánsson; sira Lárus Benediktsson frá Selár-
dal hingað alfluttnr raeð fólk sitt (konu og
4 dætur); Þorsteinn Erlingsson ritstjóri frá
Bíldudal; frú Kaistjana Thorsteinsson(Rvík);
frú Katrín Briem (Viðey); ullarkaupmað-
urinn ameriski Mr. Griihnau, er farið hafði
kringum land; J<5n Jónsson læknir af
Vopnafirði; kaupmennirnir Sig. Johansen
frá Seyðisfirði, Grenwold frá Siglufirði,
Arni Sveinsson frá ísafirði; Davið Östlund
trúboði frá Seyðisfirði.
Veðurathuganir
í Reykjavik, eftir aðjunkt Björn Jensson.
1902 a 2”. ■< <D C* œ pr 9 5 <3 — rt-
júlí s g ÚQ 'p <T+- æ c* 9= ó§ s 5 • p 3z
Ld. 19.8 767,9 11,6 WNW 1 7 0,1 9,5
2 768,6 13,7 WNW 1 9
9 769,1 12,0 W 1 10
Sd. 20. 8 769,0 11,2 W8W 1 10 0,2 10,9
2 769,2 12,6 8W 1 10
9 768,8 11,6 W 1 10
Md.21. 8 766,3 10,7 WNW 2 10 1,2 10,2
2 765,6 11,7 W 1 10
9 764,9 10,6 0 9
Þd. 22. 8 765,1 10,4 0 10 9,2
2 765,8 12,6 0 9
9 765,8 11,4 NW 1 10
Md. 23.8 768,3 11,8 NNE 2 3 7,5
2 768,9 15,1 N 2 3
9 768,7 13,4 NNE 2 1
Fd. 24.8 766,6 10,8 NNW 1 1 7,1
2 764,1 13,6 W 1 3
9 762,7 12,7 NW 1 2
Fsd.25.8 760,2 11,6 WNW 1 3 7,1
2 759,6 14,5 NW 1 3
9 758,3 12,5 NW 1 3
I heljar greipum.
Frh.
Himiun var heiður og loftið tært, og
bar hvern hlut svo skírt og glögt við
móleit öræfin gróðurlaus, að því var
líkast, sem raðað væri leikfaugi á borð
örskamt frá þeim.
Dervisjarnir eða þeir sem uppi stóðu
af þeim, riðu hægt og ófylktir fram á
melinn spölkorn frá þeim; dröfnóttir
mötlarnir og rauðir túrbanarnir riðuðu
til, eftir því sem úlfaldarnir hreyfðu
sig. Ekki var á þeim að sjá, að þeir
hefðu borið lægra hlut, því þeir fóru
sér mjög hægt og spaklega; en þeir
lituðust um, eins og þeir vissu ekki
almennilega, hvað upp skyldi taka.
f>að var engin furða, þótt þeir vissu
það ekki, þvf svo voru þeir illa komn-
ir, sem framast mátti, á uppgefnum
úlföldunum. Sarras-sveitin var komin
ofan úr gjánni og farin af baki. Úlf-
aldarnir stóðu í smáriðlum, 4 og 4
saman, en hermennirnir lágu á hnjám
í langri röð og sendu hverja skota-
dembuna eftir annari á Araba, en þeir
skutu á hina aftur af úlfaldabaki skipu-
lagslaust. En áhorfendurnir höfðu
ekki augun á Aröbunum, og ekki á skot-
liðssveitinni á hnjánum. jþví að lengst
úti á öræfunum sáu þeir, hvar komu
8 sveitir úr Halfa-úlfaldaliðinu í þéttri
fylkingu, sem raðaði sér í fallegan
sveig, er hún þokaðist nær.
þeir voru komnir þarna í úlfakreppu,
Arabar.
•Lítið þið nú á!« kallaði hersirinn.
Úlfaldar þeirra dervisjanna lögðust
á hnén allir í senn og Arabar stukku
af baki. Fyrir þeim var hár maður
og tígulegur, og gat það ekki verið
neinn annar en hann Wad Ibrahim
emír’ Hann lagðist á knébeð litla
stund. |>ví næst stendur hann upp
og tekur eitthvað ofan af hnakknum
á úlfalda sínum, breiðir það á sandinn
og stígur á það.
»Vaskur drengur!« kallaði hersirinn,
•Hannstendurnúá sauðagærunni sinni«.
»Hvað eigið þér við?« spyr Stuart
klerkur.
•Sérhver Arabi hefir sauðargæruáklæði
yfir hnakknum sínum. þegar hann
sér, að úti er um hann, en er þó ein-
ráðinn að berjast, meðan uppi stendur,
tekur hann sauðargæruna og stendur
á henni, þangað til hann fellur. Lít-
ið þið á: nú standa þeir allir á sauð-
argærunum sínum. Nú veita þeir
hvorki né þiggja grið úr þessu«.
Nú stóðu þegar sem hæst leikar
niðri á melnum'. Halfa-liðið var kom-
ið nær. Dervisjar lágu á hnjánum og
miðuðu byssum sínum, en hringinn í
kring reykjarhverfing og blossa. Margt
dervisjanna var fallið. Enhinirhlóðu
byssur sínar og skutu, og sýndu þá
sem oftar, að þeir kunnu ekki að
hræðast. Tíu eða tólf lík í úlfgrá-
um einkennisbúningi lágu á melnum
út í frá á dreif og voru greinilegur
vottur þess, að Egiptar höfðu þó nokk-
uð til sigursins unnið.
Nú kvað við snarpur hornaþytur frá
Sarrasliðinu, og tók Halfa-sveitin und-
ir með sama hætti. Úlfaldar þeirra
voru líka allir lagstir, en liðið hafi rað-
að sér í langa bugðu. |>eir hleyptu
af byssum sínum í síðasta sinn, og
lögðu því næst til höggorustu og æptu
hið tryllingslega heróp Blökkumanna,
er þeirjhöfðu numið af villiþjóðum í Mið-
afríku. Nú var barist í einni bendu,
er var hringiðu líkust til að sjá, byssu-
skefti á lofti og spjótsoddar innan um
þykkan rykmökk af malarróti.
|>á kvað enn við lúðraþytur. Egiptar
léttu sókninni og röðuðu sér í skipulega
fylkingu aftur með svo skjótri svipan,
sem vel tömdum liðsmönnum er lagin.
En í miðjum hvirfingnum sást, hvar þeir
lágu hver á sinni sauðargæru, hinn
vaski stigamannahöfðingi og félagar
hans. Nítjanda öldin hafði hefnt sín
á sjöundu öldinni.
^Jarzlun
(~!HÐM.OLSEH’s
fekk nú með Laura fleiri tegundir af
OSTI, PYLSUM, og
MYSUOSTINN góða.
Ennfremur Vanillesykur, Cocao í
lausri vigt.
Kirseber — Bláber— Súpujurtir —
þurk. Epli — Macaroni — Rismjöl
Sagomjöl — Semoulegrjón — Bygg-
grjón.
Sultutauið góða, Avexti niðursoðna,
Lax, Pickles, og margt fleira til
heimilisþarfa.
STEINOLÍUMASKÍNURNAR
þríkveikjuðu.
Emaill. Kaffikönnur, Katla, Skálar,
Diska o. s. frv.
Hveryi betri kaup.
L 0. Luðvígssonar
Bókhaldari
duglegur og reglusamur, getur fengið
atvinnu hjá undirrituðum, frá i. nóv-
ember n. k.
Umsóknarbréf um stöðu þessa á-
samt meðmælum sendist undirrituðum
fyrir i. septbr.
Bíldudal í júlí 1902.
P. J. Thorsteinsson.
skóverzlun
selur til þjóðhátíðarinnar 2. ág. ýms-
ar tegundir af karlmanna- og kven-
skóm, einnig unglingaskó fyrir
afarlágt verð.
I?að mun borga sig, að kaupa í
skóverzluninni nr. 3 Ingólfsstræti, því
þar er að eins seldur úrvals-skófatn-
aður.
Sveitamenn!
Auglýsing.
Munið eftir þegar þið komið til bæj-
arins, að g ó ð u r, n o r ð l e n z k u r
Hákarl
fæst i verzlun
Jóns Þórðarsonar,
Þingholtsstræti 1.
Zeolinblekið góða.
í stórum og smáum bytfcum, aftur
komið í afgreiðslu ísafoldar.
Umsóknir
um styrk þann, er í fjárlögunum 1902
—1903 er veittur Iðnaðarmannafólag-
inu í Reykjavík »til að styrkja efni-
lega iönaðarmenn til utanfarar til að
fullkomna sig í iðn sinni«, verða að
vera kornnar til félagsstjórnarinnar
fyrir 24. ágúst næstkomandi.
Umsóknarbréfunum verða að fylgja
meðmæli frá þeim, sem hlutaðeigend-
ur hafa lært iðn sína hjá.
Yngri piltar en 18 ára geta eigi
orðið aðnjótandi þessa styrks.
Hús til leigu
í miðjum bænum frá 1. október í haust. —
Semja má við Matth. Matthiasson.
er af öllum þeim mörgu, sem reynt
hafa viðurkent að vera bezta smjör-
Hkið. Ekkert margarine hefir hér reynst
eins vel. — Engum sem ekki stend-
ur á sama um hvað hann borðar,
kemur því til hugar, að taka nokkurt
annað smjörlíki fram yfir Korsör-
m a r g a r i n e, sem óefað er hið
allra bezta og sem altaf fæst í
verzlun B. H. Bjarnason.
Hér með gefst skipa-útgjörðarmönn-
um til vitundar, að eg dvel hér í
bænum þangað til 3. n. m., til þess
að selja tvö fiskiskip mín, og geta
lysthafendur hitt mig á »Hotel Is-
land« á þessu tímabili.
p. t. lleykjavík.
Sig. Johanseu,
kaupmaður á Seyðisfirði.
U M B O D
Undirritaðir taka að sér að selja
ísl. vörur og kaupa útlendar vörur
gegn sanngjörnum umboðslaunum.
P J. Thorsteinsson & Oo.
Tordenskjoldsgade 34. Köbenhavn K.
Ostur
egta schw., rússn.,
Steppe,dansk, Gouda,
Bachsteiner,
Myse, Mejeri.
í verzl. Nýhöfn.
Margarínið
góða er nu komið aftur í
verzlun Guðm. Olsen
Fundist hefir skamt fyrir ofan Hamar
í Borgarbreppi svunta, nátt-treyja o. fl., og
getur réttur eigandi vitjað muna þessara
til Péturs Kristjánssonar á Guðnabakka,
gegn borgun þessarar anglýsingar.
Guðnabakka i Stafholtstungnm 20. júni 1902.
Pétur P. Kristjánsson.
Öllnm þeim, nœr og fjær, sem
hafa við fráfall okkar elskuðu
dóttur og st,iúpdóttur sýnji okkur
velvild og hluttekning i sorg okk-
ar, vottum við hór með innilegt
þakklæti.
Litlateig á Akranesi 25. júli 1902.
Katrín Oddsdóttir. Bjórn Hannesson