Ísafold - 23.08.1902, Qupperneq 3
215
í borginni bauð mér að vera hjá sér,
og þá eg það.
í Kaupmannahöfn átti eg inörgum
vinum að fagna, enda íanst mér nærri
sem eg væri kominn heim til mfn.
Öllum oss, sem dvalið höfum víð há-
skólann æskuárin, hlýtur að þykja
vænt uœ Kaupmannahöfn; þar höfum
t vér lifað margar fegurstu æfistundir
vorar.
Annars er Kaupmannahöfn alt af að
breytast og stækka; það má nú heita
jötunvaxin borg, í ekki stærra landi en
Danmörk er. Hún mun nú hafa um
J miljón íbún. Af nýreistum húsum
þar er Káðhúsið (bæjarstjórnarhöllin)
langfegurst. það eykur og eigi lítið
fegurð borgarinnar, að nú eru fiestar
höfuðgöturnar lagðar jarðbiki (»asfaltpr-
aðar«) og rafmagnssporvagnar þjóta
fram og aftur um borgina alla. Ekki
þarf að standa lengi við í þeirri borg
til þess að sannfærast um, að Danir
standa framarlega meðal menningar-
þjóða heimsins, þótt smáþjóð sóu kall-
aðir.
f>ótt eg stæði við heila viku í Kaup-
mannahöfn, gat eg ekki heimsótt nærri
því alla þá, er mig langaði til að finna.
Eg ætla ekki að nefna neina nema
einhjón: þau prófessor Harald Krabbe
og konu hans frú Kristínu Krabbe.
Margir íslendingar hafa notið mikill-
ar gestrisni hjá þessum merkishjónum
á námsárunum, og eg er einn meðal
þeirra. Prófessor Krabbe er tekinn að
eldast og hefir nú sótt um lausn frá
embætti sínu; en all-heilsugóður er
hann enn. Frú Kristín, kona hans,
er enn kát og fjörug, og viðmótið jafn-
elskulegt og áður. Velvildarþel henn-
ar til íslands minkar aldrei, enda
fylgist hún vel með í öllu, er diér ger-
ist. Hún er elskuð og virt af öllum,
sem þekkja hana, og vildi eg óska, að
ísland ætti marga slíka fulltrúa erlend-
is, sem hún er; og farsæld og frami
íslands mun aukast, þegar m a r g a r
konur á íslandi eru orðnar henni lík-
ar.
Eitt kveld var eg á G.-T.-stúkufundi
merkustu stúkunnar þar í borginni;
hún heitir Tempelherren nr. 1. f>ar
sagði eg frá starfsemi Goodtemplara
á íslandi og hversu langt bindindis-
málinu væri komið hér. Fanst mönn-
um þar mikið til um bindindislöggjöf
vora, enda á bindindi örðugt uppdrátt-
ar í Khöfn. f>ar eru ekki nema um
500 Good-Templarar, en auðvitað fjöldi
bindindismanna 1 öðrum bindindisfé-
ölgum. H. N.
filskipa-afli.
Meira hefir aflast að tölu til á þil-
skip hér úr Reykjavík fyrri sumarúti-
vist þeirra núna, frá Jónsmessu til
ágúst-byrjunar, en dæmi eru til áður;
en óvenjusmátt á mörg skipin, jafnvel
enn smærra en áður, og er þó ekki á-
bætandi. Sum skipin afla ávalt vænan
fisk.
Hér er yfirlit yfir síðustu árin 4,
fyrnefnt tímabil.
Skipatala. Afli, fiskar.
1899 35 533,000
1900 37 594,000
1901 46 869,000
1902 41 932,000
Ávarp framsóknarflokkslns.
Mjög er vel yfir því látið, ávarpinu
frá framsóknarflokknum á þingi, því
er birt var í síðasta blaði, af öllum
nema afturhaldsliðinu, og kvað mál-
gagns þess hér vera í gær meðal ann-
ars með þau ósannindi, sér til svölun-
ar, að einhverir flokksmenn hafi ekki
skrifað undir það. En því fer fjarri.
f>eir hafa a 11 i r gert það, í báðum
þiugdeildum, þjóðkiörnir og konung-
kjörnir.
Erlend tíðindi.
Kólera gengur á Egiptalandi,
heldur skæð. Gaus þar uppaltíeinu
og læsti sig ein8 og eldur í sinu um
mikla víðáttu. Skemtiferðafólk héðan
úr álfu flýði þegar land sem fætur
toguðu, eða réttara sagt: járnbrautir og
gufuskip. Mikil mildi, að hún er ekki
hingað kómin f hafnarborgir álfunnar.
Borist hafði ’nún að vanda með pfla-
grímum austan úr Asíu. Keynt var
að koma á sóttvörnum fram með
Rauðahafi endilöngu. þarlendir höfð-
ingjar höfðu tekið að sér að halda
þeim uppi og hafa pílagríma í hálfs-
mánaðar sóttvarnarhaldi. En þeir
þágu mxrtur af pílagrímunum. Auk
þess líta Austurlandabúar svo á, sem
drepsóttir séu sendar af drotni til
refsingar mönnum fyrir syndir þeirra
og fyrir því sé ósvinna að gera þeim
nokkurn farartálma.
Vilhjálmur keisari nýlega heim kom-
in úr Noregsför sinni og lagður á stáð
austur á Rússland sjóleiðis kynnisför til
Nikulás keisara.
Róstur nokkrar á Frakklandi hingað
og þangað út af harðfengilegri aðför
af stjórnarinnar hálfu að þeim, er ó-
hlýðnast lögum og fyrirskipunum um
niðurlagning klaustraskóla þeirra, er
eigi hafa sótt um og hlotið stjórnar-
löggilding.
Steijn, fyrrum forseti Oraníuríkis,
kom til Hollands snemraa í þ. mán.
Játvarður konungur bauð honum að
vera við krýninguna. Hann tók því
boði vel og kurteislega, en gat eigi kom-
íð vegna augnaveiki og annars lasleika.
Búahershöfðingjanna Botha, Delarey
og De Wets var von til Englands í
miðjum þ. mán., og stóð til að þeirn
yrði vel fagnað, bæði af konungi og
landslýð öllum.
Baldwin norðurskaut3fari frá Amer-
íku, er lagði á stað í fyrra sumar
norður í Spitsbergen og ætlaði að
leggja upp þaðan í vor í norðurskauts-
leit, er nú kominn aftur til Noregs við
svo búið, á skipi sínu »America«.
Kent er um missætti milli hans og
skipstjóra, sem er sænskur og heitir
Johanson.
Einhverjar ískyggilegar skotspóna-
fréttir hafa borist af þeim Sverdrup
og hans félögum á »Fram«, er létu í
haf fyrir 4 árum norður fyrir Græn-
land. En þær eru vefengdar. þeir
höfðu vistir til 5—6 ára.
Alþlngi
verður slitið á mánudaginn 25. þ.
mán.
Fært út kvíarnar hefir konsúll D.
Thomsen hér í bænmn þessa dagana með
þyi að kaupa verzlunina Nýhöfn, eins og
hún er, og bæta henni við verzlun sína
(H. Th. A. Thomsens-verzlun), eins og hún
var úður, og all-stórvaxin þó. Nýhafnar-
verzlun er hin sama sem konsúll M. Smith
átti einu sinni og síðar J. O. Y. Jónsson.
— Hr. D. Tbomsen konsúll tók við verzl-
uninni að föður sinum látnum, H. Th. A.
Thomsen kaupmanni, fyrir rúmum 3 árum,
en hafði verið áður í félagi við föður
sinn frá því 1895, sem rak hér verzlun
meir en 40 ár. En faðir hans og afi D.
Thomsen konsúls hóf hér verzlun 1837; var
áður faktor i Keflavik. Konsúll D. Thom-
sen hefir flestum kaupmönnum meir um sig
hér á landi, þeirra er eigi hafa þlsskipaút-
veg að auki. Haun hefir verzluDarerind-
reka á báðum strandferðabátunum; sauma-
stofu, vindlaverksmiðiu, gosdrykkjaverk-
smiðju, brjóstsykurverksmiðju, etc. Hann
hefir um 70 manna i fastri þjónustu viö
verzlun sína hér og verksmiðjur.
--------------------
Veðrátta.
Fyrir fám dögum brá til votviðra,
eftir eitt hið mesta þurkasumar í
manna minnum. En kalt hefir það
verið. Grasbreatur töluverður víðast
um land, en uýting fyrirtak, og því
heldur von um, að heyskapur verði
all-góður.
Bæjarstjórn Reykjavíkur. Sam
þykt á fundi i fyrra dag, við 2. umr., að
veita 250-{-'350 kr. til ofaniburðar í Lækjar-
götu og steinboga yfir Lækinu, er sé hafður
alt að 6 áln. á breidd.
Visað var til veganefndar tii álita mála-
leitan frá C. Zimsen konsúl fyrir hönd
Franska-spitala-félagsins á Eyólfsstaða-
bletti um, að breytt verði stefnu á fyrir-
huguðum viðbæti við Lindargötu, svo að
hún liggi þar jafnhliða Hverfisgötu.
Launaviðbótarbeiðni frá Sigurði Péturs-
syni lögregluþjón frestað til þess er áætl-
un verðnr samin í haust.
Ljósker skal setja á hornið á húsi
Timbur- og kolaverzlunarinnar við Kaik-
ofnsveg.
Fyrir uppsagt lán úr Fiskimannasjóði,
6400 kr., samþykt að taka jafnmikið lán
úr Hafnarsjóðl.
Gunnari kaupm. Einarssyni synjað um
erfðafestu á spildunni milli Elsumýrarbletts
og Rauðarártúns.
Afsalað forkaupsrétti að 600 ferh.álnum
af HlíðarhÚ8abletti 3., er Schreiber prestur
vill selja, vestan við Stýrimannaskóla-
stiginn.
Til veganefndar visað beiðni um veg
milli Kiapparstígs og Yatnsstigs, um svo-
nefndar Traðir.
Samþykt brunabótarvirðing á húsi Elís
Magnússonar við Laugaveg 5060 kr., og á
húsi Péturs kaupm. Jónssonar við Lauga-
veg 8755 kr.
Allir á fundi nema Sig. Thoroddsen.
Niðurjöfnunarnefnd á að kjósa i
hér á mánudaginn, & menn alls. Ganga
4 úr nefndinni, en hinn 5. er viðbót sam-
kvæmt hinni nýju bæjarstjórnar-samþykt.
Frá fara þeir Kristján Jónsson yfirdómari,
Kristján Þorgrímsson kaupmaður, Ólafur
Amundason faktor og Guðmundur Gruð-
mundsson fátækrafulltrúi. Það er all-lik-
legt, að þeir verði allir endurkosnir, ef
kost gefa á sér, — nema ef ráð þætti að
geyma þá, einn eða fleiri, til bæjarstjórnar-
kosningar i vetur.
Síðdegisguðsþjónusta á morgun kl.
5 (J. H.).
Veðurathuganir
i Reykjavik, eftir aðjunkt Björn Jensson.
1902 ÍH. W ct; <J CD CX w 3 <3 z.. ** — pr E3
ágúst B 3 OQ "p <rr c-t- »-í tr æ « B p CJQ 3 P'l p Sn
Ld. 16.8 763,5 11,1 NW 1 5 10,0
2 761,6 14,6 NW 1 3
9 760,7 11,1 E 1 2
Sd. 17.8 759,8 11,4 0 4 8,9
2 758,3 13,6 NW 1 5
9 756,7 11,5 NW 1 8
Md. 18.8 753,8 9,8 0 9 0,1 9,2
2 752,5 11,8 NW 1 5
9 751,9 6,7 N 2 6
I>d. 19.8 753,0 6,9 N 3 4 5,0
2 755,6 8,6 N 2 4
9 757,5 6,5 N 2 2
Md. 20.8 758,7 6,1 0 1 1,5
2 758,7 10,6 NW 1 6
9 757,9 9,3 0 9
Fd. 21.8 754,6 10,4 E 2 9 4,6
2 751,5 10,6 E 2 10
9 748,7 10,9 E 2 10
Fsd.22.8 744,9 11,6 E 1 9 3,7 9,3
2 741,8 12,6 , ENE 1 10
9 738,4 11,6 E 1 9
Regnkápur
( W aterproof)
hyerffi betri eða ódýrari.
en í verzlun
Th. Thorsteinsson.
Lampasprittið
er nú komið aftur og kostar eins og
áður að eins
55 a. pr. pott.
B. H. Bjarnason.
THE EDINBURGH
Roperie & Sailcloth Co. Ltd.
established 1750
verksmiðjar í Leith, Glasgow og Lund-
únum contmctors, to the War Office
& to the Admirality,
búa til f i s k i 1 í n u r, n e t g a r n,
alls konar kaðia og segldúka
Fæst hjá kaupmönnunum.
Einkaumboðsmenn fyrir Island og
Færeyjar:
F. Hjorth & Co.
Kjebenhnrn K.
Nýtt og vaiuiað ibúðarlrús á einum
fegursta stað í bænum er til sölu fyrir lágt
verð. Dálítii lóð fylgir, Jón G. Sigurðs-
son bæjarfógetaskrifari visar á.
NÝtt úrval,
af ódýrum og vönduðum
Skófatnaði
kom nú með Lauru í
%Jléaísírœíi 10.
Amerískar og rússneskar
• GALOSCHER.
beztar og ódýrastar.
cTaícofni úr al-ull
frá 8 kr.—28 kr. í alfatnað, (þar á
meðal Cheviot á 12—15 kr. í fatn-
aðinn og ekta kamgarn á 2y—28 kr.)
fást nú langbezt og ódýrust eftir gæð-
um, með því að panta þau hjá und-
irrituðum. Verksmiðjan tekur engar
tuskur, og er efnið því áreiðanlega hið
vandaðasta. Fóður og alt annað til-
heyrandi hverjum fatnaði fæst einnig
mjög vandað fyrir kr. 4,50—6,50.—
Afgreiðsla fljót og viðskifti áreiðanleg.
Komið og skoðið sýnishornin áður
en næsta póstskip fer.
Reykjavik 23. ágúst 1:02.
Siggeir Torfason.
tJ
Jh-A-jer með auglýsist, að bæjarstjórn
Reykjavíkur hefur selt herra H. A.
Payne veiðirjett allan í sjó fyrir landi
jarðarinnar Klepps og er þvi öllum
óheimilt að nota tjeðan veiðirjett án
leyfis hr. Paynes.
Bæjarfógetinn í Reykjavík, 19. ágúst 1902.
Halldór Daníelsson.
Samkvæmt ofanrituðu er hérmeð
öllum bönnuð veiði í sjó fyrir Klepps-
landi. Hver sá, er gerir tilraun til
að brjóta þetta bann, verður lögsótt-
ur til ábyrgðar.
Reykjavík, 19. ágúst 1902.
Fyrir hönd friðdómara H. A. Payne
Jón Jakobsson.
Sunnanfari
kostar 2‘/a kr. árg.. 12 arkir, ank titilbl.
og yfirlits. Aðalútsala í Bókverzlun ísa-
foldarprentsm., og má panta hann auk þess
hjá öllum hóksöfum landsins, svo og öllum
útsölumönnnm Isafoldar.
CRAWFORDS
ljúffenga BISCUITS (smákökur) tilbúið
af CRAWFORDS & Son
Edinborg og London
Stofnað 1813.
Einkasali fyrir ísland og Færeyjar
F. Hjortli & Co.
Kjöbenhavn.