Ísafold - 27.08.1902, Blaðsíða 3

Ísafold - 27.08.1902, Blaðsíða 3
219 og varast að erfa þar nokkurn fornan flokkaríg og erjur. Þingmálaskrá 1902. Þessi 21 frumvörp hafa samþykt verið 4 þinginu í snmar, — og eru 8 hin fyrst- nefndu stjórnarfrumv. 1. Um breyting á stjórnarskrá um hin sér- staklegu málefni íslands 5. janúarl874. 2. Fjáraukalagafrv. fyrir árin 1902 og 1903. 3. Um varnir gegn því, að næmir sjúkdóm- ar berist til Islands. 4. Um breyting 4 lögum um heimild til að stofna hlutafélagsbanka á Islandi 7. júní 1002. 5. Viðaukalagafrv. við lög 12. jan. 1900 um stofnun veðdeildar í Landsbankanum i Eeykjavík. 6. Um sildarnætur. 7. Viðaukafrv. við h'g (i. apríl 1898 um bann gegn botnvörpuveiðum. 8. Um breyting 4 lögum fyrir Island 13. sept. 1901 um tilhögun á löggæzlu við fiskiveiðar i Norðursjónum. 9. Um breytingar á lögum um kosningar til alþingis frá 14. sept. 1877 (heimul- legar kosningar). 10. Um löggilding verzlunarstaðar við Os- höfn við Héraðsflóa. 11. Um brúargerð á Jökulsá i Öxarfirði. 12. Um stofnun brunabótafélags. 13. Um löggilding verzlunarstaðar við Flat- ey á Skjálfanda. 14. Um að selja salt eftir vigt. 15. Um lielmingsuppgjöf af láni til brúar- gerðar 4 Ölfusá. 16. Um breyting á lögum 4. nóv. 1881 um gagnfræðaskóla á Möðruvöllum. 17. Um heimild til að selja hluta af Arn- arhólslóð í Reykjavík. 18. Um löggilding verzlunarstaðar við Járn- gerðarstaðavik í Grindavik. 19. Um viðauka við lög 8. nóv. 1893 um hagfræðisskýrslur. 20. Um kjörgengi kvenna. 21. Um breyting á 18.gr. í lögum um kosn- ingar til alþingis 14. sept. 1877 (kjör- dæmaskiftingin isfirzka). F e 1 d hafa verið þessi 5 frv., alt þing- mannafrumv.: 1. Um sölu á laxveiði í Laxá í Kjós, er tilheyrir þjóðjörðinni Valdastöðum. 2. Um gjald af hvölum, sem veiddir eru við ísland 3. Um breyting á yfirsetukvennalögum 17. des. 1875. 4. Um vinnuhjú og daglaunamenn. 5. Um breyting á lögum 12. júli 1878 um gjafsóknir. Loks óútrædd 6 frv., alt þm.frv. 1. Um afnám framtals á lausafé og um breyting á gjöldum þeim, er bundin eru •^ð lausafjártiund. 2. Um manntalsþing. 3. Um gjaldfrelsi afréttarlanda. 4. Um beimild til að veita undanþágu frá lögum um bann gegn botnvörpuveiðum nr. 8, 6. apríl 1898. 5. Um eftirlaun. 6. Um skyldu embættismanna til að safna sér ellistyrk eða kaupa sér geymdan lifeyri. Þá hafa verið samþyktar 11 þings- ályktunartillögur: 1. Um undirbúning og fyrirgreiðslu i sam- göngumálum. 2. Um lifsábyrgðarstofnun. 3. Um ráðstafanir gegn útbreiðslu berkla- veikinnar. 4. Um efnarannsóknastofu o. fl. 5. Um landbúnaðarmálefni. 6. Um gagnfræðaskóla 4 Akureyri. 7. Um breyting á kosningarlögunnm 8. Um stjórnvalda auglýsingar. 9. Um reglugerð Ræktunarsjóðs íslands. 10. Um breyting á reglugerð hins lærða skóla i Reykjavik. 11. Um ráðstafanir gegn fjárkláðanum. En 4 þingsályktunartillögur voru ekki útræddar eða ekki afgreiddar í þingsálykt- unarformj. 1. IJm þráðlaus rafmagnsskeyti. 2. Um nefndarkosning til að íhuga dóm- skipan landsins. 3. Um að skipa nefnd viðvikjandi verzl- unarmálinu. 4. Um ávarp til konungs. Ein fyrirspurn var upp horin á þinginu, um Presthólamálið. Alþingi var slitið mánud. 25. þ. mán., eins og til stóð. |>ingmenn farnir heim á leið flestir eða á förum. Þingstökur. |>egar grimm með görpum stóð Gjafsóknanna hrina, Guðjón sína grætti þjóð, En gladdi valdsmennina. Hann er þeirra styrkust stoð Við stjórn þá skifc er orðum, Enda fær hann ugga og roð Undan þeirra borðum. (Eftir »Arnfirðing«). Dr. Valtýr Guðmundsson liáskóla- kennari fór i gær með Ceres aftur til K,- hafnar. En kona hans varð hér eftir sak- ir veikinda. Umboðsstjðrn landsins. N efndarálit stjórnarskrárnefndarinn- ar í eíri deild, um fyrirkomulag hinn- ar væntanlegu umboðsstjórnar lands- ins, er svolátandi í heilu lagi, að inn- gangi sleptum: »Vér álítum, að eigi sé ráðlegt uú þegar að stofna til frekari breytingar á embættaskipun landsins en þeirrar, sem er nauðsynleg afieiðing af stjórn- skipunarbreytingunni, því að eigi sé rétt að taka fram fyrir hendurnar á hinni væntanlegu stjórn vorri frekara en nauðsyn ber til, en það á að vera hennar hlutverk, að segja til um það, hvaða krafta hún þarf til þess að reka stjórnarathöfnina, og hvernig hún álít- ur hagfeldast að skipa stjórnarstörf- unum til meðferðar, afgreiðslu og úr- slita. Yfirleitt þykir oss það ráðlegt, áð fara hægt og gætilega í breyting- ingunum, enda mun gjörsamleg um- steyping hinnar æðstu umboðsstjórnar vorrar þurfa nokkuð langan tíma til að komast í kring, og verður þar margs að gæta. f>egar sérstakt ráðgjafaembætti er sett á stofn fyrir ísland, og ráðgjaf- inn á að hafa aðsetur sitt í Reykja- vík, verður hin íslenzka stjórnardeild í Km.höfn að leggjast niður. Jafn- framt verður að setja fastan forstjóra fyrir landsstjórninni í Reykjavík, sem í Btjórnarskrárfrumvarpinu er kallaður landritari. Hið núverandi landritara- embætti verður að leggja niður, en á stjórnarskrifstófuna verður að skípa næga aðstoðarmenn og skrifara, og yrði líklega nægilegt í þessu efni: 2 »assistentar« eða »fullmektugar«, 3—á skrifarar og 1 sendiboði. Jafnframt yrði að setja á fót í Km.höfn afgreiðslu- skrifstofu, er lúti beint undir stjórn- arráðið, og búumst vér við, að á henni þyrfti að vera skrifstofustjóri, »assi- stent« eða »fullmektugur«, skrifari og 1 sendiboði. Frekari breytingar en þessar eru eigi nauðsynleg afleiðing af stjórnarskipunarbreytingunni. En vér teljum eftirfarandi breyting- ar ennfremur ráðlegar og tiltækilegar: Amtmanna-embættin bæði mætti leggja niður, og mun það vera almenn- ings ósk, að svo sé gert; en það ætti ekki að hrapa að því, fyr en störfum þeirra væri viðunanlega komið fyrir; sum störfin mundu falla alveg niður, það er þau, sem eingöngu hvíla á þeim sem millilið milli hínnar æðri land- stjórnar og lægri stjórnarvalda; flest ðtörfin mundu leggjast til stjórnarráðs- ins, en ýtns störf þeirra mundu þó geta lagst til sýslumanna. —Jafnframt og amtmanna-embættin væru lögð nið- ur, yrði að setja á stofn 2 skrifstofu- stjóra-embætti undir landritaranum. Vér teljum það óráð, að leggja land- fógeta-embættið saman við stjórnar- ráðið, þannig, að annar skrifstofú- stjórinn þar hafi einnig gjaldkerastörf- in. — Jpetta væri miður heppileg sam- steypa ósamkynja mála, og mundi veikja eftirlitið mjög, þar sem það þarf að vera skarpast. Auk þess mundi störfum þá of hlaðið á nefndan skrifstofustjóra. Ef embætti þetta verður eigi látið staDda óhaggað sem sérstakt gjaldkera embætti fyrir lands- sjóðinn, mætti að voru áliti fela lands- bankanum gjaldkerastörfin (innheimtu og útborgaoir landssjóðsins), og mundi eigi þurfa að auka nema einum manni við starfslið bankans fyrir þessa breyt- ingu. Vér leggjum það til, að sýslan hins umhoðslega endurskoðanda standi ó- breytt að sinni, en vér viljum benda á það, að bráðnauðsynlegt er að setja á stofn hagfræðis-skrifstofu, og væri þá sjálfsagt hagkvæmast, að setja hana í samband við hina umboðslegu end- urskoðun, þannig, að sami maðurinn stæði fyrir báðum starfsdeildunum. Með því móti yrði stjórnarskrifstofan losuð við mikið starf, sem leiðir af skýrslum þessum. Vér viljum að endingu taka það fram, að í athugasemdum ráðgjafana er kostnaðurinn við hið fyrirhugaða stjórnarfyrirkomulag vafalaust talinn alt of lítill. Ef landfógeta-embættið væri lagt niður og störfin lögð til stjórnarráðsins, eins og ráð er fyrir gert í ástæðunum fyrir stjórnarakrár- frumvarpinu, yrði það óhjákvæmilegt, að bæta við 3. skrifstofustjóranum í stjórnarráðinu, til að hafa á hendi gjaldkerastörfin. Enn fremur er upp- hæðin, sem áætluð er til aðstoðar og 8krifstofukostnaðar (9000 kr.), vafa- laust of lág. fessi upphæð á að jafngilda skrif- stofufé landshöfðingja, beggja amt- manna, landfógeta og launnm landrit- ara, eins og þetta er nú, svo og því, sem gengur til skrifstofukostnaðar í stjórnarráðinu í Km.höfn, því að land- stjórnarskrifstofan á að leysa af hendi skrifstofustörf allra þessara embætta. Vér geturn eigi gert neina áætlun um, hve mikill þessi kostnaður verður, þegar búið verður að leggja amtmanna- embættin niður, en það þykir oss mjög líklegt, að hann hljóti að fara fram úr 9000 kr., og það teljum vér mjög rnisráðið, að skamta hinni vænt- anlegu landsstjórn vorri féð svo spart, að það legði haft á framkvæmdir hennar í þarfir landsinst. Niðurjöfnunarnefnd. Þessir hafa kosnir verið i niðnrjöfnunarnefnd Reykja- viknr, fimm 1 fyrra dag og einn i dag (af hærri gjaldendum): 1. Asgeir Sigurðsson kaupmaður. 2. Grisli Jónsson fátækraf. i Nýlendu. 3. Guðm. Guðmundsson fátækrafulltrúi. 4. Jónas Jónsson í Stóra-Steinsholti. 5. Kristján Þorgrimsson kanpmaður. 6. Sigvaldi Bjarnason trésmiður. Þeir Guðm. G. og Kr. Þorgrimss. voru áður i nefndinni; hinir eru nýir. Niðurjöfnunarnefndin er nú niu-manna- nefnd, samkvæmt bæjarstjórnarsamþyktinni nýju; i stað 7 manna áður. Hinir 3, sem kyrrir sátu nú i nefndinni, eru þeir Hannes Hafliðason skipstjóri, Ólafnr Ólafsson prentari og Pálmi Pálsson adjunkt. Póstgufuskip Ceres (Kiær) lagði á stað til útlanda i gærkveldi. Með þvi fór fjöldi farþega, meðal annarra kaupmennirn- ir: Á. Asgeirsson og A. Riis frá ísafirði, Ó. Ólafsson frá Keflavik og Adolph stór- kaupmaður. Til Ameriku dr. Ben. Einars- son, Ólafur Ólafsson hókav. frá Chicago, Ingvar Búason stúdent og Ólafur Ólafsson húsameistari frá New-York (ættaðnr úr Strandasýslu). Til Khafnar auk þess eand. mag. Sigfús Blöndal og unnusta bans frk. Björg Þorláksdóttir, ekkjufrú Kristín Skúla- dóttir, frk. Anna Ásmundsdóttir; stúdentarn- ir: Bjarni Jónsson frá Unnarholti, Bjarni Jónsson úr Reykjav., Brynjólfur Björnsson, Guðm. Þorst°insson, Jón Isleifsson, Jón Stefánsson, Magnús Guðmundsson, Ólafur Björusson, Páll Sveinsson, Pétur Bogason, Sveinn Björnsson, Sigurður Sigtryggsson, Sturla Guðmundsson, Vernharður Jóhanns- son, Þorsteinn Þorsteinsson. Til Skotlands Garðar Gíslason agent, og kona hans, og Einar Benediktsson málaflutningsmaður. Ennfremur allmargir enskir ferðamenn og danskir mælingamenn. Bnnkaráðið. J>að afrek vann meiri hlutiun á al- þingi núna þingslitariaginn, að kjósa af sinni hálfu í stjórnarnefnd hluta- bankans fyrirhugaða eða bankaráð svo nefnt auk Sigurðar Briem póstmeist- ará, sem þingið kaus alt nær í einu hljóði, þá Sigfús Eymundsson agent og--------Lárus nokkurn H. Bjarna- son, þm. Snæfellinga ! !! Bankaráðið mun þurfa að eiga fund með aér daglega oft og tíðum og naumast sjaldnar en einu sinni í viku að jafnaði. þ>að er því mál manna, að þm. þessi muni ætla sér að bregða sér í loft-anda, áður en hann tekur til að gegna því starfi ! Til að vera á aðalfundum hluta- bankafélagsins væntaulega af þingsins hálfu kaus meíri hlutinn enn fremur þá landfógetann og----------þ>jóðólfs- útgefandann !! Fórn Abrahams. Eftir Gustav Janson. Fyrsti kapítuli. Fyrsta missirið. pað var komið undir sólarlag. Rökkrið færðist seint og hægt yfir flat- neskjuna, er hæðadrög lágu norðan að, en að baki þeim var eins og myrkrið lægi í leyni og væri við búið að vinda sér suður yfir fellin og hjúpa alt hel- dimmum sorta. f>ar gat að líta dálitla hestmanna- sveit á ferð eftir endalausri flatneskj- unni, er enginn sá, hvar hafði upptök eða endi. peir voru 15 saman og hvorki fleiri né færri. f>eir keyrðu ó- apart reiðskjótana sporum, en komu þeim ekki nema fót fyrir fót. Tveir liðsforingjar, hvorugur eldri en þrítug- ur, riðu fáa faðma á undan liðinu, er fór heldur óskipulega og hafði hljótt umsig og varmeð döpru bragði. Var auð- 8Óð á því, hvernig hermennirnir sátu á hestbaki, að þeir voru dauðþreyttir; en á svipnum lýsti sér, að þeim var þungt niðri fyrir og gramt í geði. þeir höfðu verið á hestbaki nær 3 sólarhringa samfleytt. Hitt var þó lakast, að njósnarferðalag þeirra hafði verið alveg árangurslaust. f>eir höfðu runnið allir i svita í sólarbrunanum á daginn, ætlað að sálast í kulda á nóttum og voru þar að auki banhungr- aðir, með því að vistaforðinn, er ætl- aður hafði verið til 3 daga, var upp genginn þá um morguninn. Ekki vissu þeir hót, hvar þeirvoru staddir, en gerðu sér í bugarlund, að það gæti varla verið meir en svo sem 20 mílur enskar frá höfuðstöðvunum. Svo hafði farið hvar sem þeir könn- uðu landið þessa 3 daga og Ieituðu fjandmanna sinna, að hvergi hafði fyr- ir þeim vottað minstu vitund. Svo voru þeir skjótir viðbragðs. Og þó höfðu þeir einhvern veginn fundið það greinilega á sér hver fyrir sig, frá því daginn áður, að óvinaliðið væri á næstu grösum, færi í hámót á eftir þeim og vissi ávalt, hvað þeim leið. Enginn hafði séð bregða fyrir skugga af nokkr- um Búa, hvað þá meira, og þó höfðu

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.