Ísafold - 01.10.1902, Síða 1
Kemur út ýiuist einu sinui eða
tvisv. í'viku. Verð árg. (80 arb.
minnst) 4 kr., erlentlis 5 kr. eða
l’/2 doll.; borgist fyrir miðjan
júlí (erlendis fyrir fram).
Uppsögn (sW,ifleg) bundin við
iramót, ógild nema komin sé tii
útgefanda fyrir 1. október.
A fgreiðslustofa blaðsins er
Austurstrœti 8.
XXIX. árg.
Reykjavík miðvikiidaginn 1. október 1902.
65. blað.
I. 0 0. F. 84I0381/,. I.
h'oriigripasafn opið md., mvd. og Id
11—12.
Landsbanlcinn opinn hvern virkan dag
k. 11—2. Bankastjórn við kl. 12 — 1.
Landsbókasafn opið hrern virkan dag
4i. 12—2 og einni stundu lengur (til kl. 3)
n,d., mvd. og Id. til ntlána.
Náttúrugripasafn, í Doktorshúsi, opiö
á sd. kl. —3.
Tannlækning ókeypisíPóstbússtræti 14 b.
l. og 3. mánud. hvers mán. kl. 11 — 1.
SKBTPSTOFA ÍSAFOLDAR er
opin kl. 12—2; en afgreiðslan allan daginn
(7 árd — 8 síðd.). Þar, í afgreiðslunni, er
tekið við borgun fyrir blaðið, auglýsingum,
bókapöntunum og blaða, handritum til prent-
unar i ísafoldarprentsmiðju, m. m.; þar er
og bóka- og pappirsverzlun.
Nýprentað:
Úr íieimahögum.
Kvæði
eftir Guömund Friöjónsson.
Rvík (ísafoldarprentsm.) 1902. Með
mynd höf. framan við. 264 bls.
Fást í bókverzlun ísafoldarpientsm.
og hj;i öðrum bóksölum landsins.
Kostar í kápu 1 kr. 80 a.
— í skrautbandi 3 kr.
Undirstaða búnaðarframfara
Eftir
adjunkt Björn Jensson.
IV.
Einskisverðar jarðabætur.
Alt það, 8em gert er í framfara-
löndunum til þess að bæta jörðina, er
fólgið í þesau: að þurka og hita ura
leið, koma eldÍDU niður í jarðveginn,
og svo auðvitað bæta jörðinni önnur
efni, sem hana brestur, með áburði.
En það er ekki látið duga, að þurka
jarðveginn. J>að þarf að koma eldinu
betur niður í jörðina. Til þess er hún
plægð. |>á viðrast hún betur; loftið
leikur þá um hana miklu meir en ella.
Hvað af þessu gerir nú þúfnaslétt-
unin?
Ekki þurkar hún jarðveginn, og ekki
hitar hún hann heldur. Ekki greiðir
hún fyrir viðruninni.
Vér þekjum slétturnar þegar í stað
aftur, og lokum þarmeð jarðveginum.
Og þó viðrast jörðin rétt í svip, með
því að rist er ofan af, og gefur af sér
miklu meira gras en áður svo sem tvö
eða þrjú ár. En fiestir munu kaDnast
við, að til lengdar er enginn hagur að
þúfnasléttunum annar en sá, að túnið
er sléttara en áður og því auðunn-
ara; alt annað, sem aðrar þjóðir græða
á eínum jarðabótum, förum vér á mia
við með þessari aðferð.
þegar bændur sjá þessar afleiðÍDgar
af jarðabótum sínum, að þær verða
ekki endingarbetri en þetta, tala þeir
um, að sléttunin hafi ekki hepnast; en
þeir geta ekki búist við, að öðruvísi
fari. f>essi aðferð getur ekki gert
meira. Miklu meira gagn hefðu þeir
af því, að ræsa túnið; töðufallið yxi
auðvitað seinna með því lagi; en þeir
þyrftu heldur ekki að búast við aftur-
kipp, ef jörðinni væri haldið þclanlega
við.
Eg þykist nú hafa sýnt fram á, að
þúfnasléttunin, þessi aðaljarðabót nítj-
ándn aldarinnar á voru landi, er engin
s ö n n jarðabót, og að öllu því fé og
fyrirhöfn, sem varið hefir verið til henn-
ar, er til einskis eytt að öðru en því,
að gera túnin auðunnari.
Vér bætum ekki túnin með þeirri
»jarðabót«, þessar 3 ferhyrningsmílur,
sem vér höfum notast við til að draga
fram lífið í margar aldir, og því síður
að vér bætum við hið ræktaða land.
Og vér getum engum framförum tek-
ið, ef aðalundirstaðan undir öllum bún-
aðinum, ræktaða landið, stendur i stað.
Smjörbú, kynbætur, vegagerðir og alt
það, sem reynt hefir verið að gera til
framfara, verður oss til kostnaðarauka
og annars ekki. |>að fellur alt um
koll við fyrstu fyrirstöðu.
Vér verðum að hætta við svo vaxn-
ar »jarðabætur«.
Vér megum ekki vera lengur að hvetja
bændur til þess að vinna fyrir gýg og
veita þeim verðlaun til þess.
En ekki er þar með búið.
Vér verðum að afplána þá miklu á-
virðing nítjándu aldarinnar og snúa
hið bráðasta við blaðinu, áður en það
er orðið um seinan.
Vér verðum að hefjast handa þegar
á vori komanda.
V.
En hvað á þá að gera?
þurka jörðina, plægja hana
og gerahana að sáðlaudi.
Hætta að kalla annað ræktaða jörð
en sáðland.
Og sáðlandið á að bera gras aðallega;
öll ræktunaraðferðin að vera miðuð við
gras.
En kaupa má að vísu alla hluti of
dýrt.
Jpað er of dýrt að kosta 10 kr. upp
á að ná gulli úr hverri vætt af brenni-
stein8járninu 1 Drápuhlíðarfjalli, ef ekki
fást úr henni nema 8 kr.
|>að er þá tómur skaði.
Eins er um plægingu og sáningu.
f>að er of dýrt, að kaupa þetta því
verði, erbæudurhafaorðið fyrir að gefa.
En dýrleikinn hefir verið því að
kenna, að enginn hefir kunnað að
plægja til þessa.
Tilraunir Jóns Jónatanssonar sýna,
hvað gera má, ef kunnáttan er með.
Hann plægir og herfar dagsláttuna
tvisvar fyrir 45 kr., og jafnvel minna,
og það í óræktaðri, seigri mýri.
Fyrir það fó, sem vér höfum hingað
til eytt til þess að slétta eina dag-
sláttu til einskis — einskis gróðurauka
til langframa — íyrir það getum vér
ef vér kunnum að plægja, undirbúið 3
dagsláttur.
Og ekki er hætt við að uppskeran
verði ekki ríkuleg.
Tilraunin með hafrasáningu í Gróðr-
arstöðinni hér í fyrra sýndi, að með
þessari aðferð má fá 20—25 hesta af
dagsláttunni, og var þó jarðvegurinn
ekki ólitlegur þar, sem höfrunum var
sáð.
Ef vér nú plægjuin þannig og höld-
um jarðveginum opnum fyrir loftinu í
tvö ár og sáum svo hentugu grasfræi
þriðja árið og látum það standa svo
sem fimm ár, þá er ekkert efamál, að
það sprettur vel, betur en túnin, sem
vér nú höfum, og með talsvert minui
áburði, svo að vér getum fengið af-
gang til þess að færa út kvíarnar, auka
ræktaða landið.
J>á mun enginn vafi Á. að bændur
fara að finna til þess, að fyrirstaðan
fyrir framförum búnaðarins er að hverfa,
og þair fara að renaa grun í þann
mikla, ótæmandi auð, sem þetta land
geymir.
Rétta ræktunaraðferðin og langarð-
vænlegasta tvinbótin væri þá eitthvað
í þessa átt:
Bóndi tekur sig til í vor og plægir
þó ekki sé nema svo sem eina dag
sláttu af túni sínu. Sáir því næst í
flagið höfrum. þeir gefa samsumars
miklu meiri uppskeru en fengist hefði
af blettinum óhreyfðum.
Næsta vor plægir hann aftur og not-
ar blettinn það ár undir rófur.
þá hefir hann haldið moldinni op-
inni og öndverðri fyrir loftinu tvö ár
8amfleytt og látið hana soga í sig eldi
úr því allan þann tíma.
Jpriðja árið sáir hann 1 það hentugu
grasfræi. Af því sprettur samsumars
miklu meira gras ogbetra en afnokkr-
um bletti öðrum í túninu. |>essi ágæti
grasvöxtur erumiklar líkurtil að hald-
ist 4—5 ár samfleytt, með dálítilli um-
hiiðu og litlum áburði. f>ví valda
hinar miklu birgðir af eldinu, sem
moldin hefir drukkið í sig, meðan hún
var óbyrgð og laust um hana.
f>á fyrst, að þeim tíma liðnum, þarf
að plægja aftur, og hafa alla hina sömu
aðferð og áður. Og svo koll af kolli.
En arðurinn af ræktuninni, uppsker-
an af sáðlandinu verður þeim miklum
mun ríkulegri, að hann endurgeldur
ekki einungis allan kostnaðinn (plæg-
inguna m. m.), heldur skilur eftir svo
mikinn afgang, að vel hrökkur fyrir
kostnaði til sömu meðferðar á öðrum
bletti af túninu. Öll sú litla reynsla,
sem vér höfum hér af sáðlandi — með
kartöflum, rófum o. fl. — bendir á, að
svo mutii verða. þ>essu heldur bóndi
síðan áfram til þess er alt túnið er
upp unnið og taka má til að græða
það út með sama hætti.
|>etta erjarðabót. Jp e 11 a er tún-
bót, sem bygð er á réttum grundvelli,
með því að þar er reynt að nota nátt-
úrukraftana eins og á að nota þá.
|>að 8egir sig sjálft, að þetta, sem
hér hefir verið sagt um framræslu
og þurkun, ó ekki við uema um rak-
lendi. f>að kemur ekki til greina um
harðvelli eða sendna jörð. En svo
mun vera um meiri hluta túna hér á
Suðurlandi að minsta kosti, að þau
bagar of mikill raki, of mikið vatn í
jarðveginum.
VI.
Viðbárur.
Eg veit ve), að sumir kalla reynslu
fengna fyrir því hér á landi, að gras-
sáning hepnist ekki. En eg leyfi mér
að telja n ú reynslu fengna fyrir, að
húu hepnist, e f kunnátta er með; á n
hennar er ekki við því að búast. Hitt
er annað mál, að búast má við, að
hún hepnist ekki í ísárum þar, sem
' hafískuldinn nær fullum tökum, svo
sem erá Norðurlandi og ef til vill vest-
anlands jafuvel alt suður að Snæfellsnes-
fjíillgarði; og er mönnum því vorkunn
þar, þótt deigir verði að óreyndu að
leggja út í þessa ræktunaraðferð, sem
hér er haldið fram. En um Suður-
land er alt öðru máli að gegna. |>ar
get eg ekki efast um, að hún lánist.
Suðurland er vafalaust eitt með beztu
grasvaxtarlöndum hér í álfu, gengur
að öllum líkindum að ýmsum skilyrð-
um til Dæst írlandi eða Englandi vest-
anverðu, einkaulega að loftraka.
Séu þau tormerki á að koma við
sömu ræktunaraðferð norðanlands, að
óráð þyki að treysta henni þar, verð-
ur að leggja þar aðallega stund á sauð-
fjárrækt, en hugsa minna um kúabú.
|>urka má þó eins þar jarðveginn með
framræslu; en hún er til stórbóta, þótt
ekki só hugsað um að koma upp sáð-
landi.
En hvernig á að bæta úr kunnáttu-
leysinu að plægingu og annari sóð-
landyrkju?
Með sama hætti og siður er til ella
að bæta úr verklegu kunnóttuleysi: fá
að menn, sem kunna og kent geta síð-
an út frá sér aftur.
Vér verðum að fá útlenda verka-
menn, vana landyrkjumenn óbreytta,
frá Danmörku eða Norvegi eða báðum
þeim stöðum, meðan vér erum að kom-
ast í stöfun um slíka vinnu, — alveg
eins og vér fórum að, þegar loks tekið
var til hér á landi með almennilega
vegagerð fyrir hálfum mannsaldri.
þ>að lag hafa allar þjóðir, sem líkt
eru staddar að einhverju leyti.
Margir telja það ef til vill frágangs-
sök fyrir kostnaðar sakir. Erlendir
vinnumenn fáist ekki nema fyrir miklu
hærra kaup en hérlendir.
En 1 það tjáir ekki að horfa. Euda
kemur það í móti, að eftirtekjan eftir
þá verður meiri; hún verður miklu
arðmeiri eiumitt fyrir kunnáttu þeirra.
|>eir þurfa og ekki að vera ýkja-margir.
Og loks mundi landssjóðsstyrk til
búnaðarbóta naumast öðru vísi betur
varið en til að létta undir að einhverju
leyti með góðum bæudum að útvega
sér slíkan vinnukraft, svona í bili.
þ>að er í stuttu máli heimska að í-
mynda sér, að þessu landi geti orðið
verulegra framfara auðið í búnaði á
alt annan veg en öðrum löndum, — án
þess að hafa þá tilburði til að láta
náttúrukraftana þjóna sér, sem aðrar
þjóðir hafa. Vér komumst eigi hjá að
beíta sömu vísindalegri og verklegri
kunnáttu, sem þær gera, sömu atorku,
Bömu framsýni og fyrirhyggju.
|>að er skilyrði, einkaskilyrði fyrir
því, að landið verði byggilegt til fram-
búðar, innan um samkepni annarra
þjóða.
Sigling. Hinn 19. f. mán. kom skonn- 1
orta Minna (77, Brahaus) frá Hamhorg með
ýmsar nauðsynjavörur til kanpm. B. Krist-
jánssonar.
20. s. mán. Mysteriös (76, Eriksen) frá
Mandal með timburfarm til Jóh. Bjarnesen
0. fl.
29. s. mán. Amy (70, Thorkildsen) frá
Mandal með timburfarm til B. Guðmunds-
sonar kaupmanns.
S. d. Olga Pauline (109, F. Thorkildsen)
frá Halmstad með timhurfarm til Bjarna
Jónssonar húsasmiðs 0. fl.