Ísafold - 04.04.1903, Blaðsíða 2

Ísafold - 04.04.1903, Blaðsíða 2
62 landssögu og menningarsögu, en þó hlustaði eg örsjaldan á 2 aðra kenn- ara. Allir kennararnir virtust mér kappkosta að haga svo fræðslunni, að atburðirnir yrðu sem ljósastir og fest- ust sem frekast í minni nemandans. Sumt af því, er eg heyrði, hafði eg les- ið um áður; engu að síður lærði eg á að heyra það. Með hinu lifandi orði urðu hugsjónirnar Ijósari og atburðirn- ir líkari því, að maður sæi þá eða heyrði sjálfur, og þar af leiðandi minnisstæðari. En það sem eg aðal- lega lærði var, að finna greinilegar en áður til þess, hve lítið eg hafði num- ið áður, og áhrifin, sem þessi stutti námstími hafði á mig, er aðallega fólg- inn í ríkari lögun eftir frekari fræðslu. Eg ^ygg stofnunina vera einkar- hentuga fyrir hvern þann alþýðumann, sem hefir lítinn tíma til náms, en þó löngun til einhverrar mentunar, og slíka hygg eg marga vera. Eg leyfi mér að þakka kennurunum fyrir alúðlegt viðmót á liðnum tíma, en sérstaklega finn eg mér skylt að minnast forgöngumanns stofnunarinn- ar, og þakka elju hans og ástunduu, og óska eg þess og vona, að hann njóti þeirrar ánægju, að sjá skólann verða að tilætluðum notum. Bæjarstjórn Beykjavíkur sam- þykti á næstsiðasta fundi, 19. f. m.,jaÖ kosta að hálfu merkjagarð af gaddavir milli htejarlandsins og Skildinganess, frá merki- steini í Eskihlíð til merkisteins i Skild- inganesahólum, alt að 200 kr. úr bæj- arsjóði. Það var skoðun fjárhagsnefndar um Selstún, að eigi skyldi að svo stöddu mæla þar út húsastæði, en að setja hæri á sínum tíma reglur um húsaskipun þar og gatna, og láta ekki lóðir þá falar nema fyrir hæfilegt verð, með því að land það hefði bærinn orðið að kaupa, enda væri það í rækt. Klæðaverksmiðjunni Iðunni veitt með venjulegum lóðarkjörnm óhygt land milli Rauðarár og Elsumýrarhletts upp að Hverfisgötu, og eunfremur neðan við sama hlett alt til s.jávar. Eftir tilmælum sóknarnefndar var sam- þykt, að færa mætti austurgirðing kirkju- garðsins um alt að 1 alin nær götunni (Suðurgötu) á sumum stöðum, svo að ekk' þurfi að raska leiðum í garðinum, og enn- fremur að verja alt að 900 kr. til að kosta að hálfu móts við sóknarnefndina steinlímúa rennu meðfram garðinum að utan. Mælt var með að síra Eiríkur Briem yrði skipaður prófdómandi við Stýrimanna- skólann. Til að endurskoða lögreglusamþykt kaupstaðarins voru þeir kosnir með bæjar- fógeta Kristján Jónsson yfirdómari og Halldór Jónsson. Dáin í Khöfn 10. fyrra mán. biskupsfrú Sigríður Bogadóttir, ekkja dr. Pétura biskups Póturssonar. Hennar verður minst frekara í næsta blaði. Póstgufusbip Vesta komaftur vest- an af JBreiðafirði mánudagsmorgun 30. f. m. og með henni ýmsir farþegar, þar á meöal þeir prófastarnir Sigurður Jensson i Flatey og Sigurður Gunnarsson i Sthóhni, sýslum. Lárus H. Bjamason, Þorlákur hóndi Bergsveinsson í Rúfeyjum o. fl. — Hún fór aftur í gærkveldi áleiðis vestur um land og norður og með henni farþegar flestir hinir sömu. Herskipið Hekla, strandgæzluskipið, kom hingað sunnudagsmorgun 29. f. mán., frá Khöfn og Fáreyjum. Yfirmaður á því er nú A. F. M. Evers, bofuðsmaður í skipaher Dana. Næst.ur hon- um gengur F. Thomsen premierlautinant. Aðrir foringjar eru Maegaard, Nörregaard og Asmussen premierlautinantar; læknir heit- ir Bentzen, vistráður Petersen og vél- stjórar Rasmussen og Bistrup. Gufnskip Skald (751, Christiansen) kom hingað I fyrra kvöld með timburfarm og kola frá Englandi til kaupm. B. Guð- mundssonar. Með þvi kom Þorvarður Þor- varðsson prentari, er sigldi í vetur með gufusk. ísat'old síðast. Af þiuprmálafundarnefnu eða borgarafundar, er haldin var hér í vikunni í Iðnaðarmannahúsinu, — það var 1. þ. m., — fyrir forgöngu þeirra bankastjórans og hans nánustu fylgifiska, segir svo einn fundar- maður: Eæða skyldi eftir fundarboðinu, er bankastjóri virðist hafa orðað: stjórnar- skrármálið, bankamálið og »önnur bæjarmáh. En þótt fundurinn stæði fullar 5 stundir, tókst að eins með herkjumunum að lúka við fyrsta mál- ið; svo forsjállega var tímanum varið eða hitt heldur. jþeim var raðað hverjum á fætur öðrum til ræðuhalds, höfuðgæð- ingum fundarleiðtoganna þjóðólfsmanni, Jóni Ólafssyni og aðfengna hjálpræðinu: Stykkishólmsyfirvaldinu; Jóni Jens- syni þó lofað þar inn í milli sem nr. 3, — ekki þótt almennilega annað hlýða um þingmannsefni. Hann talaði þeirra langstyzt. Eftir að þeir hinir höfðu sölsað undir sig alveg ótakmark- aða tímalengd af fundartímanum, var tekið til að skamta hann, sumum loks afmældar 5 mínútur og öðrum alveg varnað máls. Fundarsamþykk- is var leitað fyrir því, ef aðrir en kjósendur hér vildu taka til máls, nema auðvituð ekki handa »þingsins herraa hinum snæfelska;' hann er vit- anlega þar að auki laganna herra og allra fundarskapa. Ræða þjóðólfsmannins var, sem nærri má geta, ekki annað en sama súr- mjólkin og hann er vanur að skamta les- endum sínum á prenti. Lagsmaður hans og þeirra félaga hinn nýi, Jón Olafs- son, lagði sig mest fram um að hauga brigzlum og getsökum yfir Framsókn- arflokkinn um launmök við Landvarn- armenn og svikráð við stjórnarbótina þá í fyrra, og féll það í heldur en ekki góða jörð hjá flokksmönnum hans hinum nýju. »Nei, sko rektor — klappar sjónvitlaust fyrir Jóni Ólafs- syni«, kallaði einhver stúdent, sæmi- lega kunnugur hugarþeli höfðingjans þess til J. Ó. til skamms tíma. Ekki var bankastjórinn látinn segja nokkurt orð á fundi þessum annað en að setja hann, og töluðu menn um sín í miili, að það væri viturlega ráðið. Bjargvættin pantaða, Jöklaragoð- inn, mun hafa átt að bæta það upp. En heldur fanst fundarmönnum fátt um málsnild hans í þetta sinn. f>eir hlógu margir dátt að honum og sendu honum tóninn miður virðulegan. Ræða hans var mestöll út í hött, alveg fram hjá því, sem hann þóttist ætla að hrekja, en það var aðallega það, sem Jón Jensson hafði sagt. En nóg um gorgeir að vanda og afkáralega mont- tiiburði, sem fundarmenn hæddust að margir upp í opið geðið á honum. Ýmsir tóku, fleiri tíl máls (Bjarni frá Vogi Jónsson, Jón sagnfræðingur Jónsson, þórhallur lektor, Magnús Einarsson dýralæknir, Jón G. Sigurðs- son skrifari, Benedikt Sveinsson) og sagðist sumum vel, einkurn þeim Jóni frá Ráðagerði og Bjarna frá Vogi. Loks var stundu eftir miðnætti til atkvæða gengið og samþykt með rúm- um 80 atkvæðum (af nær 800 kjósend- um hér í þessu kjördæmi) áskorun til allra kjósenda á landinn um að kjósa ekki aðra á þing en þá, er samþykkja vildu óbreytt frumvarpið það í fyrra. En 50—60 urðu á móti: Landvarnar- meDn. Svo átti að bera upp tillögu frá Jóni Jenssyni um að biðjaalþingi aðgæta landsréttindanna; en hana aftók fundar- stjóri (Jón Jakobsson) að bera upp; og munflestum hafaþótt það heldur skrítið, — ekki skilið, að þ a ð gæti verið neitt viðsjált frá neinu sjónarmiði. því að fyr mætti nú vera kúfvending en ef búsetu-höfðingjarnir, hinar ntryggu leifar« flokksin3 með alinnlenda stjórn að stefnuskrá, mættu nú orðið ekki heyra nefnd íslenzk landsréttindi. Hin tillagan, sem samþykt var, mun hafa átt að verá stíluð gegn kosningu Jóns Jenssonar hér. Að öðru leyti virðist hún hafa verið sæmilega óþörf, að minsta kosti svo framarlega sem landshöfðingi býður sig ekki fram til þÍDgfarar; en vitanlega hefir slík á- skorun frá l/1() hluta kjósenda hér eng- in áhrif á áform meiri hluta þeirra um að kjósa Jón .Tensson, þótt alkunna sérstöðu hafi í stjórnarskrármálinu; enda öllum vitanlegt, að refarnir eru eingöngu til þess skornir fyrir hinum, að reyna að forða bankastjóranum við falli í vor. þess vegna ganga þessi ósköp á fyrir þeim — sömu mönn- unum, sem vilja út af lífinu að lands- höfðingi komist á þing, þótt jafnand- vígur muni vera ríkisráðssetunni eins og Jón Jensson! Bæjarstjórn Reybjavíkur synjaði á fundi sínum í fyrra dag með öllu (11) atkvæðum gegn 1 (M. E.) Gunnari Einarssyni kaupmanni um meðmæli til að öðlast víusöluleyfi í bænum. Málaleitun frá Garðahreppi um sameiginlega réttarbygging hjá Hrauns- nefi sá bæjarstjórn sér ekki fært að sinna, en kvaðst verða sem fyr í fé- lagsskap við Seltirninga um fjárrétt bæjarmanua. Oluf Hansen hattara synjað um einkarétt til laxveiða fyrir Rauðarár- landi og Fúlutjarnar. Til hafnarnefndar var vísað beiðni frá Jul. Schou um að mega gera bryggju fram undan húai sínu við Norðurstíg. Jón Magnús8on kosinn í sóttvarn- arnefnd. Samþykt brunabótavirðing á húsi Jóns kaupm. þórðarsonar í Hverfis- götu 3197 kr. Eftir beiðni þeirra Geirs Zoöga og Th. Thorsteinssons kaupmanna sam- þykti bæjarstjóruin fyrir sitt leyti, að þeir mættu hafa bræðsluskyli í Orfirisey, þó með því skilyrði, að ekki yrði brætt þar, þegar vindur stendur á bæinn eða höfnina. Launabótarbeiðni frá Benedikt Jóns- syni sótara frestað þar til er fjárhagsá- ætlun yrði samin næst. Formanni bæjarstjórnarinnar falið að fullgera kaup á húsi og lóð Eyólfs Ófeigssonar trésmiðs í Hverfisgötu — til þess að geta haldið götunni áfram beina leið. Kseran gegn Dalavaldsmanni. Ekki hefir heyrst, að amtmaður vor hafi enn mikið aðhafst út af kæru nokkurra sýslunefndarmanna í Dala- sýslu í fyrra á hendur yfirvaldinu þar um misfellur á sýslureikningsskilum hjá honum, sérstaklega fyrir Laxárbrúna, annað en að hann hefir loks gefið sýslúnefndinni kost á að endurskoða reikningana — hún hafði aldrei feng- ið því framgengt, að sýslureikningarnir fyrir árið 1900 væri löglega endurskoð- aðir. Nefndin hefir nú haldið fund nýlega, og endurskoðaði þar í einu þriggja ára sýslureikninga. Um 2x/2 þúsund krónum taldist henni eytthafa veriðsamtals úr sýslusjóði þessi ár í heimildarleysi, og neitaði að sam- þykkja þær greiðslur. Auk þess frestaði húnað samþykkja 700 kr. styrksviðbót- til Laxárbrúarinnar, unz sannað væri með úttekt, að brúin væri fullgjör og hún dæmd vel at hendi leyst. Sementskaupin, sem kært var yfir í fyrra, neitaði nefndin og að samþykkja, þótt sýslumaður lofaði að skila aftur því, sem hann hafði ofreiknað að verði til,— vegna þess, að sannanir vantaði fyrir því, að sementið hefði alt verið notað til Laxárhrúarinnar, »en sterkar líkur fyrir hinu gagnstæða«. Veðurathuganír í Reykjavik, eftir aðjunkt Björn Jensson. 19 0 3 marz — aprfl Loftvog millim. Hiti (C.) í»- err~ trt- a> c* P cr 8 cx Skjmagnl Urkoma millim. Minstur hiti (C.) Ld.28.8 727,7 0,6 ENE 1 6 5,4 -2,0 2 730,4 2,0 E 1 8 9 732,3 0,9 E 1 lu Sd.29.8 736,3 0,0 E 1 6 0,7 -1,6 2 738,7 1,6 ) E 1 7 9 740,7 0,4 0 3 Md30.8 748,6 -0,8 0 7 -2,9 2 754,2 1,5 0 10 9 757,4 0,4 ENE 1 10 Þd.31.8 751,6 2,3 E 10 2,9 -1,3 2 745,5 3,6 E 3 10 9 739,8 4,6 E 3 10 Mv.l. 8 744,0 0,5 8SE 1 3 20,2 -0,5 2 746,4 2,5 E 1 8 9 742,9 0,6 E 1 4 Fd. 2. 8 744,7 0,1 88E 1 10 2,4 -1,3 2 735,2 2,4 ESE 2 10 9 735,4 1,6 sw 1 7 Fsd.3. 8 739,4 1,1 w 1 8 7,7 -0,9 2 743,3 1,8 w 1 6 9 744,6 -0,9 w 1 4 Öllum þeim, er heiðruðu jarðarför manns mins sál. Hinriks Jónssonar, eða sýndu hluttekníngu á annan hátt votta eg innilegasta þakklæti mitt, foreidranna og systkinanna. Reykjavik i marzmán. 1903. Guðrún Daníelsdóttir. HMBETisaaaaKæusBaHHBBBeaBi&Baiiiauaea Timbuf o| Koiaveízlun „Reykjavik11 nefir nú fengið miklar birgðir af Timbri, Og von á seglskipi meS timbur bráðum. Sömuleiðis miklar birgðir af kol- Um, sömu tegundar og áður hafa komið. Þeir, sem hafa pantað VagllhjÓl hjá undirskrifuðum, eru vinsamlega beðn- ir að vitja þeirra nú þegar. Reykjavík 3. apríl 1903. c3/- Suémunésson. Óskilakitldur seldar í Kjalarneshr. haustið 1902. 1. Hvítur hrútur (lamb) mark: Sylt hægra, sneitt fr. biti aftan vinstra. 2. Hvít gimbur (iamb) • mark: Hvatt biti aft h. Blaðstýft aft biti fr. vinstra. 3. Svartur geldingur (lamb) mark: stúf- rifað h. sneitt fr. gagnbitað vinstra. Kjalarueshreppi, Bjargi 8. jan 1903. 1». Runólfsson. Til páskanna! Hveiti — Rdsínur — Svezkur Strausykur —- Kardemommur. Consum-Chocolade og aðrar nýlenóuvörur Hattar—Kaskeiti —Hdfur enskar— Göngustafir Karlmanna-slaufur. Kvennslifsi —- Sjöl stór og smá Svuntutau dr ull og silki og margt fl. W. Fisehers-verzlun.

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.