Ísafold - 30.05.1903, Side 1
Kemnr út ýmist einn sinni eða
tvisv. i viku. Yerð árg. (80 ark.
minnst) 4 kr., erlendis 5 kr. eða
1 */, doll.; borgist fyrir miðjan
júli (erlendis fyrir fram).
Uppsögn (skrifleg) bnndin við
áramót, ógild nema komin sé til
útgefanda fyrir 1. október.
Afgreiðslnstofa blaðsins er
Austurstrœti 8.
XXX. árg.
Reykjavík laugardaginn 30. maí 1903.
31. blað.
jffuóJadé
r~0. 0 F. 856129. Er.
Augnlœkning ókeypis 1. og 3. þrd. á
hverjnm mán. kl. 11—1 í spltalannm.
Forngripasafn opið md., mvd. og ld.
11—12.
K. F. U M. Lestrar- og skrifstofa op-
j in á hverjum degi kl. 8 árd. til kl. lOsíðd.
Almennir fundir á hverju föstndags- og
sunnudagskveldi kl. 8*/2 síðd.
Landakotskirkja. Guðsþjónusta kl. 9
og kl. tí á hverjum helgum degi.
Landsbankinn opinn hvern virkan dag
ki 11—2. Bankastjórn við kl. 12—1.
Landsbókasafn opið hvern virkau dag
ki. 12—2 og einni stundu lengur (til kl. 3)
md., mvd. og ld. tii útlána.
Náttúrugripasafn, i Doktorshúsi, opið
á sd. kl. 2—3.
Tannlækning ókeypis i Pósthússtrœti 14b
1. og 3. mánud. hvers mán. kl. 11—1.
Gufub. Royk.javik fer upp í Borgar-
nes 5., 12. og ltí. júni; 3., 9., 15., 21. og
27. júli. Snýr aftur daginn eftir og kemur
við á Akranesi báðar leiðir; skreppur þar
að auki inn á Straumfjörð 13. og 16. júni,
og ltí. og 21. júii.
Suður i Keflavik fer báturinn 4., 6., 10.
og 20. júní; og 7., 18., 17. og 24. júlí; snýr
aftur samdægurs, nema 28. júni í stað 20.,
með því að þá fer hann austur i Vik. Kem-
ur við i íiafnarf. og á Vogavík suður i
leið 4. júni og 7. júli, og auk þess 6.
júni báðar leiðir þar og víðar.
Erlend tíðindi.
Khöfn 19. mai,
Ekki er neitt lát á Balkanskagaó-
eirðunum. J>aðan berast dag hvern
miklar sögur um unnin hryðjuverk.
Er 8vo að heyra, sem Búlgarar hafist
að meira en sjálfir Makedónar, þótt
verið sé að berjast fyrir velferðarmál-
um þeirra. T. d. voru það Búlgarar,
sem alla sæmdina eða öllu fremur
vansæmdina áttu af manndrápum í
Saloniki, sem áður er um getið. |>eir
atburðir hafa mælst afanlla fyrir
hvarvetna og dregið mikið úr fylgi
því, sem uppreísnarmenn hafa átt að
fagna með vesturþjóðum álfunnar.
Standa þeir nú mun ver að vígi en
áður vegna þessara hryðjuverka, og er
alls óvíst talið, að Makedónar fái
nokkra verulega leiðrétting mála sinna.
Játvarður konungur þykir hafa farið
góða för suður í Róm og París. Eink-
um er framkoma hans í París mjög
rómuð. Frönsk »heimastjórnar«-blöð
fóru allþungum orðum um konung og
Breta, er það spurðist, að hans væri
þangað vou, og eggjuðu alla sanna
ættjarðarvini að smána konung með
ópum og öðrum strákapörum. En úr
því varð harla lítið, heldur var kon-
ungi tekið með mestu virktum af öll
Um lýð. J>að er þakkað stakri lipurð
og kurteisi, sem Játvarði konungi er
sérstaklega lagin, svo og fortölum
frjálslyndu blaðanna.
Austur í Mantsjúríu láta Rússar
heldur ófriðlega. þeim er mjög í mun
að ná landinu undir sig, til þess að
oiga greiðari veg til Japans og Kína.
í>eir hafa setulið á nokkrum stöðum
þar í landi. Stórveldunum, einkum
Bandaríkjunum, þykir meira en nóg
um þær aðfarir og hafa krafist þess
ótvíræðlega fyrir munn sendiherra
sinna, að þeir hefðu sig á brott.
þessu hafa Rússar svarað svo, að
þeim gangi gott eitt til; þeim búi það
eitt í hug, að vernda verzlun sína og
hinna stórveldanna þar eystra. Ekki
trúa stórveldin því meira en svo, og
halda fast við sínar kröfur. Dregur
eflaust að því, að Rússar megi láta
undau síga.
Dáinn er í gær (18. maí) Carl
Snoilsky, helzta ljóðskáld Svía, rúml.
sextugur (f. 1841).
Frá Danmörku. f>að er þar
tíðinda, að lokið er bandalagi vinstri-
manna og sósfalista. — f>að var stofn-
að fyrir nær 20 árum, um að hvorir
styddu aðra í kosningum. f>að \ar á
þeim tímum, er Danir áttu um sem
sárast að binda undir Estrups-okinu.
Sáu báðir flokkar, að slíkt bandalag
var eina ráðið til þess að vinna bug
á Estrup og hægrimönnum. Eftir
langvinna baráttu tókst loks að koma
vinstrimönnum til valda 1901. En
eftir það tóku sósfalistar brátt að
veitast að vinBtrimannastjórninni nýju,
bæði í ræðu og riti; þótti hún mjög
bregðast vonum þeirra og loforðum
vinstrimanna. Nokkur hluti vinstri-
manna vildi, að þeir segði þá þegar
sundur með sér, og má telja Alberti
ráðherra þar fremstan í flokki. En
hinir frjálslyndari vinstrimenn vildu
að bandalagið stæði enn fyrst um sinn
og studdi »Politiken« það mest. f>ó
gekk nokkur hluti vinstrimanna í lið
með hægrimönnum í bæjarstjórnar-
kosningum í vetur. f>á fór svo, að
hægrimenn báru hærra hlut. Nú í
þessum mánuði öndveróum áttu sósí-
alistar þing með sér í Arósum. f>ar
var samþykt að láta sósíalista bjóða
sig til þings m ó t i vinstrimönnum f
12 kjördæmum, þar á meðal f kjör-
dæmi Hage fjármálaráðherra. f>etta
kölluðu vinstrimenn sambandsrof og
sögðu bandalaginu þegar slitið. f>. 16.
júnífara fram kosningar til fólksþings-
ins. f>á telja hægrimenn sér vísan sigur
í mörgum kjördæmum.
fúngi var slitið 13. maí.
Gufuskip Scandia
kapt. Gundersen (229) kom i fyrra
dag frá Mandal með timburfarm til
B. Guðmundssonár.
Gufuskip Perwie
frá Thore-félagi kom hér í nótt frá
útlöndum með timburfarm; fór frá
Khötn 20. þ. m. Farþegar: 9 stúd-
entar íslenzkir og 3 danskir köfunar-
menn til Stokkseyrar — hleypt á land
á Eyrarbakka.
Skipið fer héðan til Ólafsvíkur og
Stykkishólms.
Póstgufuskipið Vesta
er enn ókomið hingað, 3 dögum
eftir áætlun. Hefir ef til vill tepst af
hafís við Horn.
Álygarnar á Framsóknarflokkinn.
f>að er kunnugra en frá þurfi að
segja, hvað mest hefir einkent bar-
daga-aðferðina gegn Framsóknarflokkn-
um síðustu 3—4 missiri.
f>að eru álygarnar.
Látlaus rógur og óskammfeilinn,
— aumlegt volæðisvottorð fyrir þá
er þá vörn hafa úti látið, sönnun
þess, að þeir viti sig sjálfa hafa
ilt mál að verja, og að þeir láta
sér fátt fyrir brjósti brenna í þeim
bardaga.
1. Mvitubrigzlin eru einn minni-
legasti þátturinn. Afturhaldsflokkur-
inn safnaði allmiklu fé í þinglok 1901
til undirbúnings kosningunum næstu,
vonlaus um að komast hjá greinileg-
um ósigri þá öðruvísi en með ríflegri
fjárbrúkun. Enda var fullkunnugt,
að ekki var sparað fé af þeirra hálfu
í fyrra vetur og vor, alt fram á kjör-
fund. f>að mun hafa skift allmörgum
þúsundum. Hvort hagnýting þessi
hafi öll verið lögmæt eða ekki,
skal ekkert um dæmt. Auðvitað ekki
látið fara í hámæli, ef eitthvað hefði
út af borið.
f>að hefir líklega verið í því skyni
gert, að afsaka það fjársafn og hag-
nýting þess, er smíðuð var sagan um
mörg þúsund króna fjárframlag af hendi
hlutabankamannanna í Khöfn, þeirra
Arntzen’s og Warburgs, í svo nefndan
kosningasjóð Framsóknaflokksmanna,
sem engiqn var til nokkuru tíma.
Stjórn flokksins lýsti þá sögu lygi alla
frá rótum, og var þá að vísu þagnað
á henni; en aldrei tóku þeir hana
aftur né beiddust afsökunar, er hana
höfðu til búið eða flutt sem víðast.
2. þessum rógi er skyld aðdróttun
sú af hálfu eins meðal afturhalds-
höfðingjanna að Indriða Einarssyni
revisor, að hann hefði verið »keyptur«
af fyrnefndum bankamönnum til þess
að flytja þeirra mál eða hlutabankaus
í ísafold, og var sá fyrir það dæmd-
ur í háa sekt og ummælin dæmd dauð
og marklaus, en birt yfirlýsing frá
þeim, að drengskap viðiögðum og eiður
boðinn fyrir, þar sem tekið var vand-
lega út fyrir allar æsar um, að hann
(I. E.) hefði aldrei nokkuru sinni
hvorki beinlínis né óbeinlínis fengið
neina þóknun eða fjárstyrk hjá þeim
til þess að vera hlyntur hluta-
bankastofnuninni eða vinna að henni
á nokkurn hátt.
En þeir A. og W. eru báðir valin-
kunnir sæmdarmenn, er njóta hins
mesta trausts og álits meðal þeirra,
er þá þekkja.
3. Dunið hefir látlaust á Fram-
sóknarflokksmönnum sá áburður, að
þeir vildu með hlutabankastofnuninui
ofurselja landið útlendu okurvaldi, en
hinn flokkurinn hafi viljað forða því við
þeim háska og ófögnuði. Og þó höfðu
helztu menn hins flokksins, þess er
þessum brigzlum beitti eða hans mál-
tól, greitt fullnaðaratkvæði með stofn-
un hlutabankans á þingi 1901. Enda
öllum skynbærum mönnum vitanlegt og
afflestum þjóðræknum mönnum viður-
kent, að hlutabankastofnunin er hið
mesta nauðsynja- og framfara-fyrirtæki
fyrir land vort.
4. þegar ekki tókst lengur að af-
stýra því, að lögheimiluð væri hluta-
bankastofnunin, var það ráð tekið af
hinna hálfu, að láta í veðri vaka, að
þeir A. og W. væru ráðalausir að koma
bankanum á fót sakir fjárskorts og
lántraustsleysis, og væru því uppgefn-
ir við það fyrst um sinn og biðu þess,
að Framsóknarflokkurinn kæmist í
meiri hluta á þingi, og notaði þá vald
sitt til þe8s að leggja niður Lands-
bankann og gera hinum þar með
kleift að koma á hlutabankanum og
ná peningavaldinu yfir landinu.
En sannleikurinn er sá, að bæði
eru þeir A. og W. stórauðugir menn,
með um eða yfir 50,000 kr. árstekjur
hvor, og traust reyndust þeir hafa
svo ríflegt, er til kom, að þeim bauðst
þá ferfall það, er þeir þurftu til banka-
stofnuuarinnar, og það sém hlutafé, en
ekki lán.
5. J>egar uppvíst varð um hina
árangurslau8u tilraun í vetur að ná
frá þeim A. og W. hlutabankastofn-
unarleyfinu í hendur I.andmandsbank-
anum í Khöfn í sambandi við Lands-
bankann, fyrir 35,000 kr. — þ á
mátti bankavaldið gjarnan komast í
hendur útlendum auðmanni!— ogþað
mæltist miðlungi vel fyrir, sem
von var, fyrir margra hluta sakir,
meðal annars þess, að þar með var
stofnað til bankaeinveldis þess hér,
sem látið var sem mest lægi á að af-
stýra, — þá var óðara gerð tilraun til að
snúa þeirri frétt upp í það, að það
væri þ e i r, hlutabankamennirnir, sem
hefðu viljað selja leyfið, en boðinu
verið hafnað. Raunar var farið lágt
og heldur gætilega með þann uppspuna
og bausavíxl á réttu og röngu; með
því að nóg eru vitni að sannleikanum;
en það er söm þeirra gerð, er hér áttu
hlut að.
6. Alla tfð síðan er konungsboð-
skapurinn 10. jan. 1902 varð kunnur,
hefir sá rógur verið fluttur með mik-
illi frekju, að framsóknarmenn ætluðu
sér e k k i að samþykkja stjórnbótar-
frv. íslandsráðherrans — frumvarp
þeirra sjálfra frá 1901, að ráðgjafabú-
setunni viðbættri —, heldur fella það,
og samþykkja í þess stað frv. frá
1901, ef þeir yrðu í meiri hluta á
þingi. f>eirri lygi er enn á lofti hald-
ið af miklu kappi, þvert ofan í eud-
urteknar yfirlýsingar flokksins og ein-
róma fylgi hans við frv. á síðasta
þingi. Og til frekari áréttingar hefir
sú lygi verið smíðuð, að hr. Einar
Benediktsson hafi verið keyptur til
þess af Framsóknarflokknum, að hefja
baráttu gegn stjórnbótarfrumv. síðasta
alþingis, — frumvarpinu, sem allur
flokkurinn greiddi atkvæði með.
7. |>að er framhald af þeirri svik-
semisaðdróttun, er andstæðingar Fram-
sóknarflokksins hafa hvað eftir annað
gefið í skyn fullum fetum, að hanu
eða stjórn hans kosti blaðið »Land-
vörn«, er hér var stofnað í vetur til
I höfuðs stjórnbótarfrumvarpinu frá því