Ísafold


Ísafold - 30.05.1903, Qupperneq 2

Ísafold - 30.05.1903, Qupperneq 2
122 - í fyrra. f>að blað hefir nú lýst það helber ósannindi og boðið rógberunum upp á að skoða reikninga blaðsins og önnur gögn sínu máli til sönnunar. En óvíst er, að þeir hætti samt. Enda mun þetta eiga að vera aðal- lega hefnd fyrir samlög meðal Fram- sóknarflokksmanna og Landvarnar- liða hér í þessu kjördæmi um sam- eiginlegt þingmannsefni. En það vita allir, að þess kyns samlög eru algeng annarsstaðar meðal framsóknarflokka, hversu sundurleitar skoðanir sem þeir hafa jafnvel í stórmálum, til þess að afstýra öðru verra, sem sé því, að afturhaldshöfðingjar beri hærra hlut. En þess sannmælis mun ilt að synja Landvarnar-Iiðinu, að afturhalds- sinnað er það ekki, og að því gengur annað göfugra til sinnar baráttu en ófrjó valdafíkn. Ekki er þetta raunar nema hrafl af álygum þeim, er beitt hefir verið gegn Framsóknarflokknum. En nóg mun það vera til þess að sýna, hve sæmileg vopn eru að honum reidd og hve fýsilegt muni mætum mönnum að skipa sér undir merki þeirra, er þar ráða fyrir. -----9 • Um að leigia utanríkisgufuskip til botnvörpuveiða. Slík tillaga var til umræðu á auka- þinginu í fyrra. Eftir henni átti landshöfðingi að mega veita hérlend- um mönnum leyfi til að leigja 1-—2 utanríkisgufuskip til fiskiveiðatilrauna, En tillagan var feld á þinginu. Eg hefi ekki séð þingtíðindin, því miður, en hefi heyrt, að eio á@tæðan fyrir synjuninni haíi verið sú, að ó- líklégt væri að stjórnin í Khöfn vildi staðfesta slík lög. Eg á bágt með að skilja, að sú á- Stæða sé á rökum bygð. Eg skal leitast við að skýra þessa skoðun mína með sennilegum ástæð- um. þ>að er fyrir löngu veitt heimild til að taka á leigu utanríkisskip til verzl- unar og vöruflutninga. Danir eiga nóg af verzlunarskipum til að leigja, og væri þess vegna ekki óumflýjanlegt til þess að fá skip á leigu, að mega taka á leigu utanríkisskip. En Danir eiga mér vitanlega lítinn kost fiskigufuskipa eða að minsta kosti ekki svomikinn, að þeir hafi aflögu til að leigja þótt ekki væri nema eitt nýtilegt skip. f>egar nú Landsbankinn er peninga- tæpur, landssjóður getur ekki lánað nema 30,000 kr. á ári til þilskipakaupa og fáir Islendingar svo efnaðir, að þeir geti keypt gufuskip, þótt lítið sé, þá verður í mínum augum ástæðan líkust því, að Danastjórn vilji koma í veg fyrir, að vér getum fylgst með öðrum þjóðum að ná fiskinum við vort eigið land, eða með öðrum orðum, að hún vilji ekki lofa oss að fiska nema af skornum skamti. |>ótt nú Danastjórn hafi ekki verið oss meír en svo hliðholl stundum, þá dettur mér ekki í hug að ætla henni slíkt. Að fiskiveiðar séu arðsamari á gufu- skipum en seglskipum yfirleitt sést bezt á því, að flestallar fiskiþjóðir, nema vér íslendingar, eru að fækka seglskipura, og taka upp gufuskip. Auk þess eru að tiltölu miklu færri mannslíf í hættu á gufuskipum en seglskipum, — þarf minni mannafla að tiltölu. Eg skal taka til dæmis botnvörpu- skip. f>að má fiska eins mikið og jafnvel meira á einu botnvörpugufu- skipi með 15—18 mönnum en á 3 kuggum, sem hér gerast með 60 mönnum, og útgerðarkostnaður er að öllu æðimiklum mun minni fyrir 1 botn- vörpung en 3 kugga (kúttara). Eg býst við, að sumum þyki eg mæla öfgar. En þetta er þó satt; mér er útgerð og veiðiaðferð á botn- vörpungum talsverð kunn, og eins á kuggunum okkar. Ef útgerðarmenn eru nú í vandræð- um að fá háseta á skipin, og sveita- menn í vandræðum með vinnukraft, því þá ekki að spara vinnukraftinn? Eg hef heyrt menn er segja: það ber sig ekki, að fiska á gufuskipum; kolin eru svo dýr. Já, rétt er það. Kolin kosta helmingi meira á ís- landi en á Englandi eða Skotlandi. En vér mundum eyða meir en helm- ingi minna jafnlangan fiskitíma vegna þess, að fyrír útlendingum fer meir en helmingur af tímanum í ferðir fram og aftur, og skip brennir meiri kolum með fullum hraða en á fiskveiðum. Fyrir 10—12 árum var talið of stórt fiskiskip fyrir Islendinga, ef stærra væri en 30—40 smálestir. Nú vilja flestir helzt hundrað smálesta skip. Að nokkrum árum liðnum verður vonandi fengin reynsla fyrir því, að gufuskip séu betri. Vér verðum að gera alt, sem vér getum, til að fylgjast með öðrum þjóðum að ná sem mestu af fiskinum. Frakkar, Englendingar, Skotar, f>jóð- verjar, Hollendingar, Belgir, Norð- menn og Færeyingar, — allir þessir veiða fiskinn, hvalina og síldina í haf- inu kringum oas; hvorki vér eða Danir geta aftrað því með lögum og varð- skipi. f>eir koma og fiska hvort sem vér viljum eða ekki. Hið eina skynsamlega, sem vér get- um gert, er að læra af þeim að fiska, úr því að þeir kunna það betur en vér, og fiska sem mest vér getum með sem min8tum mannafla og minstum kostn- aði að verða má að tiltölu við aflann, og leitast við að fá aflann sem allra bezt borgaðan. Hafið kringum land vort er auðs- uppspretta, já gullnáma. Ur þeirri námu eigum vér að ausa. Eftir því sem aflinn eykst og velmegun vex, og verzlunarstaðirnir eflast, verður meiri og betri markaður í landittu sjálfu fyr- ir sveitavöruna. Sveitabóndinn á þar af leiðandi hægra með að fá vinnu- kraft. Hann getur þá borgað vinnuna, héyjað meira og befcur, og hlynt að ábýli sínu. Vér erum allir limir á sama þjóð- líkama, verðum að taka höndum sam- an til að efla atvinnuvegina á sjó og landi, bæta vegina, leggja nýja vegi, svoað sveitamaðurinn þurfi ekki að eyða öllum bezta vinnutímanum vor og haust í að brjótast um á óvegum í óþolandi aðdráttahnauki. Oss vantar vita meðfram ströndum landsins. Oss vantar nýtilega höfn í Reykja- vík, höfuðstað landsins. 083 vantar greiðari og tíðari sam- göngur við önnur lönd, einkum Skot- land og England, sem næst liggja. Oss vantar fréttaþráð o. fl. En hvað gerum vér? Vér hálfsofum. Vér höfum um miljón kr. í vara- sjóði, en látum ógert flest sem gera þarf landinu til góða. Vér erum annaðhvort hinir mestu fjármálagarpar hér í álfu og þó víðar sé leiíað, eða þá þvert á móti. Onnur ríki horfa ekki í að stofna sér í skuld- ir til eflingar framförum og þrifum á landi og sjó. En vér söfnum í sjóð, en látum flest ógert. Betur að það yrði ekki köfnunar- sjóður, — köfnun allra þjóðþrifa. Forfeður vorir og afar grófu peninga í jörðu, ef þeir áttu þá, og fundu þá ekki aftur stundum. Eg vona að betri dagar séu í nánd, og að þing og þjóð fari að taka sér fram og gefa atvinnumálum vorum betri gaum, sveita- og sjávar-menn taki höndum saman til bróðurlegrar framfara-viðleitni og láti sér skilj- ast hið fornkveðna, að »þá er öðrum vá fyrir dyrum, er öðrum er inn kom- ið«. Fiskimaður. * * * þess er nóg að geta til fróðleiks og ómakssparnaðar höfundinum og öðr- um, er kynnu að hafa ekki lesiðþiug- tíðindin, fremur en hann, að það voru aðallega »heimastjórnar«-menn, sem risu í móti umræddri tillögu og fengu hana felda, af þeirri miður heima- stjórnarlegu ástæðu, að ekki mætti veita íslendingum heimild til að Ieigja utanríkisskip nema Dönum yrði veitt hún líka, til fiskiveiða hér við land. það mætti ekki setja þá hjá. Vér mættum engin sérréttindi haía íþeirri grein. J>eir bóldu því og fram, að ella mundu lögin ekki fást staðfest. Hinum, framsóknarflokksmönnum, fanst þetta vera heldur innlimunar- kent. Og þeir töldu þetta að öðru leyti hættulausa tilraun, 1—2 skip fáein ár, sem fiskuðu eingöngu utan landhelgi, eins og önnur utanríkisskip, um sömu slóðir sem botnvörpungarn- ir ensku fiska nú og vér fáum ekki fyrirmunað þeim. Flutningsmaður tillögunnar (B. Kr.) benti sérstaklega á, hver vinnusparn- aður fylgdi því, að hafa gufuskip til veiða í stað þilskipa þeirra, sem nú gerast. »Ef maður gerir« mælti hann, »að botnvörpuskip kosti 100,000 kr., þá samsvarar það verði 10 kútt- ara, en á þeim 10 kútturum þurfa að vera alls um 200 manns, þar sem botnvörpuskipið kemst af með 14—15 menn. Hér er því æðimikill aparnað- ur á vinnukrafti, og það ætti því sízt að vera landbúnaðinum til hnekkis, þegar litið er til þess atriðis« (Alþt. 1902 B 571). það var Snæfellingaþingmaðurinn, (Lárus Bj.), sem barðisfc af mestu kappi gegn tillögunni. Guðl. Guðmundsson svaraði honum því, meðal annars, að sér væri óskilj- anlegt, hvernig hann (L. B.) ætlaði að fara að verja það gagnvart þjóð- inni, að korna fram með tillögu um að afsala þeim réttindum, sem þjóðin hefir getað kreist út úr höndum Dana. »Eg álít það mjög varhugavert« mælti hann, »að þurka út takmörkin á milli íslenzkra landsréttinda og dansks al- ríkisréttar. það er þeim mun víta- verðara, sem Danir sjálfir eru farnir að viðurkenna réttindi vor«. (Alþt. 1902 B 575). Byggingarsamþyktin. Byggingarnefndin vill gera nokkrar breytingar við frumvarpið (sbr. síðasta bl.). þessar eru helztar: Stuttar götur (sund) mega vera mjórri en 20 álnir. Vegghæð hÚBa má ekki vera meiri en breidd götunnar. þetta á þó ekki við um hús, sem reist eru við torg eða við götu andspænis opnu svæði. Vegghæð timburhúsa má vera 16 álnir og steinhúsa 25. Hússtæði íbúðarhúsa mega vera alt að s/4 þeirra lóða, sem ekki hafa meiri breidd frá götu en 25 álnir, og alt að 2/s þeirra lóða, sem liggja að 2 götum. f>ó getur byggingarnefnd veitt hér ívilnun, ef lóð skerðist við götu- breikkun. Bárujárn sé utan á öllum timbur- húsum. Samþyktin öðlist gildi 6 mánuðum eftir að hún er staðfest af landshöfð- ingja. Fólksfjölgunar-hraðinn. Hvað lengi er fólkstala hér á landi að tvöfaldast? það er eitt atriðið, sem hr. Indriði Einarsson hefir tekið til íhugunar í aldarskýrslu sinni, þeirri er minst var á í síðasta tbl. Hann nefnir til samanburðar nokk- ur dæmi af öðrum þjóðum hér í álfu frá öldinni sem leið. Hraðastur vöxtur þeirra á meðal er tvöföldun á hér um bil hálfri öld. Svo er um England (með Wales) og Saxland. Noregur gerir það á 59 árum og Prússland á 62, Bkotland á 66, Dan- mörk á 73 og Svíþjóð á 84 árum. |>að er kunnugt, að íslandi dugði hvergi nærri 19. öldin öll til tvöföldunar á fólkstölunni. Landsbúum fjölgaði hér um bil 312 á ári að meðaltali alla öldina. Tvö- falt fleiri en 1801 yrðu þeir ekki orðn- ir með eigi meiri fjölgunarhraða fyr. en árið 1950. f>eir þyrftu með öðrum orðum 150 ár til að tvöfaldast, og yrðu þá 94 þúsund; voru sem sé 47 þús. í upphafi 19. aldar. En vitaskuld var fjölgunarhraðinu. miklu meiri en fyr segir, þegar leið á öldina. Síðustu 20 árin fæddust rúmir 700 fleiri en dóu um árið að meðaltali, en hátt upp í 1000 síðustá 10 árin. Með sama framhaldi og viðlíka fólksflutningi af landi burt eins og þá, 2—300 á ári, yrði tvöföldunartak- markið (94 þús.) komið árið 1920. En 100,000 yrðu landsbúar orðnir með sama fjölgunarhraða árið 1929t f>á er tvöföldunarhraðinn orðinn 75 ár, eða litlu minni en hann var í. Danmörku á öldinni sem leið. Fjarri fer því, p,ð frjósemi kvenna eða tíðar fæðingar ráði mestu um fólks- viðkomu í landi. Fyrri hluta 19. aldar komst t.ala fæddra barna hér á landi sum ár upp í 40 á þúsund landsbúa. En það er óvenju-mikið. Svo sem 35 á þúsund þykir gott annarsstaðar. T. d. ekki nema 30—31 í Noregi, Svíþjóð og Sviss á öldinni sem leið. En þrátt fyrir þessa miklu frjósemi hér framan af öldinni sem leið, fjölgaði landsbúum þó nauðalítið. |>að sannast þar sem ella, að ekki er rninna í varið að gæta fengíns fjár en afla. Vanhöldin voru geysileg, einkum barnadauði mikill og tíður, sakir lækna- skorts og ljósmæðra. Sum árin gerðu og skæðar sóttir mikinn usla. það bar oft við öndverða öldina, að miklu fleiri dóu á ári en fæddust. Mislinga- árin 2 á öldinni (1846 og 1882) og 1 kveflandfarsóttar árið (1843) eru mestu mannfeliisárin, um 1000—1200 fleiri dánir hvert árið en fæddir. Stundum bar við, að tala fæddra var viðlíka miklum mun hærri en dáinna eða vel það. Til dæmis árið 1853 fæðast 1345 fleiri en deyja og meira að segja árið eftir (1854) um 1050 fleiri. f>að hafa verið mikil veltiár í fólksviðkomu. Viðlíka munur eða alt að því er býsna- tíður síðasta tug aldarinnar. Hátíðainessur. Hvítasunnudag kl. 8 árd. síra Jón Helgason; kl. 12 dómkirkjupr.; kl. 5 síðd. síra Friðrik Friðriksson. Annan í hvítasunnu á hádegi kand.

x

Ísafold

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.