Ísafold - 03.10.1903, Side 3
247
Jón Þórðarson á Stóra-Fjarðarhorni, báðir
i Strandasýslu; Baldvin Benediktsson á
f>orgerðarstöðum í Norður-Múlasýslu; Gísli
Hjálmarsson á Nesi í Suður-Múlasýslu.
Verðlaun samtala 4,375 kr.
Varðskipið »Heklac
er að búa sig til brottferðar héðan
frá landinu. Yfirmaður þess, Evers,
hefir hér getið sér ágætis orðstír fyr-
ir dugnað, skyláuræbni og viðfeldni.
Svo hefir maður því gagnkunnugur
skýrt oss frá, að ekki muni í annan
tíma hafa orðið betri árangur af
vörn varðskipsins en í sumar, að
minsta kosti ekki umhverfis Faxa
flóa. Beztu óskir fylgja því höfuðs-
manni Evers og skipverjum hans, er
þeir nú hverfa til heimkynna sinna.
En hörmulegt er til þess að vita,
að landið skuli vera látið varnarlaust
fyrir yfirgangi útlendra fiskimanna frá
þvf í október og fram undir lok marz-
mánaðar ár hvert. Á því þarf lag-
færing að fást. Vonandi að Dana-
stjórn sinni kröfum vorum og skyldu
sinni að verja landhelgina einnig þann
tíma ársins, með því að senda sér-
stakan varðbát, er hafi hér gæzlu þá
mánuðina, sem varðskipið er ebki hér
við land.
»Kong Inge«
kom að vestan í gær morgun ogfór
héðan aftur í gærkvöldi, um miðaftan,
beina leið til Khafnar. Með skipinu
tóku sér far: frk. Sigríður Björnsdótt-
ir (ritstjóra), frk. Ragnheiður (Einarsd.)
Guðjohnsen, frk. M. Rohrweger frá
Kristjanfu, er hér hefir verið um tíma
til að bynna sér hag og framfarir
kvenna hér á landi. — Enn fremur
kandídatarnir Ásgeir Torfason og Sig-
urður Eggerz, stúdent Jón ísleifsson,
Arnbjörn Ólafsson fyrv. vitavörður o.
fl.
Verzlunarlóð Beybjavíkur
Samkvæmt nýstaðfestum lögumverða
takmörk verzlunarlóðar Reykjavíkur
þessi: Austurtakmörk: merkjaskurður
og garður austan við Rauðarármýri
(Félagstún) frá sjó upp að Laugavegi;
suðurtakmörlc: lína frá enda nefnds
garðs við Laugaveg í suðurhorn Grænu-
borgartúns og þaðau lína með suður-
jaðri Sauðagerðistúns vestur í Kapla
ekjólsveg, og vesturtakmörkin: lína
þaðan í enda Framnesvegar við
Graadabót.
Slysfarir.
Snemma í ágústmán. druknaði Tóm-
as bóndi Sigmundsson f Fremri-Dufans-
dal í Arnarfirði og sonur hans, Júlíus
að nafni.
Útróðrarmaður á Bakka í Arnarfirði,
Tómas Nikulásson, fanst örendur þar
í flæðarmáhnu, og er ætlun manna,
að hann hafi drekt sér; en hugsaulegt
er og, að hann hafi orðið skyndilega
sjúkur og lagst fyrir og sjór fallið yfir
hann.
' Fyrir skömmu druknaði kvenmaður
í bæjarlæbnum á Tungufelli í Ytri-
hrepp í Árnessýslu, Guðlaug Eiríks-
dóttir að nafni. Hún hafði verið að
þvo í læknum og mun hafa fengið
slag, sem hún átti vanda til, og fallið
í lækinn.
Við Iðuferjustað í Biskupstungum
vildi til slys 18. f. m. Dragferja er
þar á ánni (Hvítá), en varð eigi not-
uð fyrir þá sök að hún nam niðri á
eyri í ánni, og var þennan dag verið
að lagfæra það. Bar þá ferðámenn
að ánni (þingmenn Árnesinga o. fl.)
og settu þá fjórir menn, er við ána
voru staddir, bát á flot og ætluðu að
ferja þá yfir ána. f>eir settu bátinn
á flot fyrir ofan dragferjustrenginn,
en straumurinn bar hann niður eftir
ánni og lenti hann á strengnum. Tveir
af mönaunum gátu lyft strengnum yfir
höfuð sér, en þá féll hann í fang hin-
um tveiraur og tók þá útbyrðis; gat
annar þeirra bjargast eftir strengnum
til lands, en hiun druknaði. |>að var
bóndinn á Iðu, Runólfur Bjarnason,
efuismaður, rúmlega þrítugur að aldri.
Steinsæti.
þeir Björn M. Ólsen rektor, Mr.
Hall Caine og dr. Jón Stefánsson
fundu í hellisför sinni á þingvöll stein
einn allmikinn í Óxará, er rektor
hyggur vera eitt af Bteinsætum þeim,
sem Jón Ólafsson Grunnvíkingur segir
frá, að velt hafi verið af Lögbergi of-
an í ána til að gera stillur af 1724.
Steinn þessi stóð upp úr eyri í ánni;
var grafið frá honum og honum velt
upp á eyrina. í ráði er að presfcurinn
á þingvölium komi honum síðar upp
á Lögberg.
Steinninn er 26 þuml. á hæð, 22
þuml. á lengd, og 15 þuml. á breidd.
Lækiiaskólinn.
Elzta deild: Jón Rósenkranz
og Matthías Einarsson.
Onnur deild: Eiríkur Kjerúlf
og Jón Jónsson (táka fyrri hluta í
janúar næstk.).
þriðja deild: Henrik Erlends-
son, Halldór Stefánsson, Guðm. Tómas-
son, Jóhannes Jóhannesson, Kristján
Sigurðsson, Sigurmundur Sigurðsson,
Sigvaldi Stefánsson, Valdemar Steffen-
sen og |>órður Sveinsson.
Yngsta deild: Guðm. þor-
steinsson, Guðm. Grímsson og Ólafur
þorsteinsson.
Mannalát
21. júlí 1903, dó M a g n ú s bóndi
Einarsson í Miðfelli í Hruna-
mannahreppi, rúmlega hálfsextugur (f.
9. obt. 1847). Hann var aonur Ein-
ars bónda Magnússonar, er þar bjó
lengi á undan honum, og Margrétar
Magnúsdóttur frá Syðralangholti.
Hann var kvæntur Sigríði Halldórs-
dóttur, Böðvarssonar frá Reyðarvatni;
lifa 4 börn þeirra, öll ung. Magnús
var vel metinn maður í sveit sinni og
víðar, enda var hann maður ósérhlíf-
inn og félagslyndur og drengur hinn
bezti.
Jakob Jónsson, trésmiður á
Oddeyri, áður bóndi á Grísará, bróðir
konu dr. Jóns þorkelssonar lands-
skjalavarðar, andaðist 27. ágúst síð-
astl.
Filippus Magnússon, fyr
prestur að Stað í Reykjanesi, andað-
ist á spítalanum á ísafirði 26. f m.
33 ára að aldri, fæddur 16. júlí 1870
Halldór Lárusson, prests
Halldórssonar, andaðist hér í bænum
28. f. mán., að eins 22 ára gamall,
fæddur 4. febrúar 1881.
Gróa Oddsdóttir (frá þerney)
andaðist í gær hér í bænum, 82 ára
að aldri, fædd 6. ágúst 1821 á Gest-
húsum á Alftanesi, gift Sigurði Ara-
syni, er þar bjó lengi rausnarbúi.
þaðan fluttu þau hjón búferlum til
þerneyjar á Kollafirði og bjuggu þar
5 ár, en árið 1874 fluttu þau hingað
til Reykjavíkur. Sigurður andaðist
1877. Úftu hjón murg börn, og
eru meðal þeirra kona síra Árna þor-
steinssonar á Kálfafcjörn, Guðrún, kona
Helga kaupm. Helgasonar í Ameríku,
og 3 sysfcur ógiftar heima, Soffía,
Kristín og Sigríður.
VeðurathuKanir
i Reykjavik, eftir aðjunkt Björn Jensson.
1903 !£ « c-t- >- < ct> cx p œ pr 3 <■* — 5^ 1?
okt. 3 3 05 "p cr <rf rr $ cx 3 p K 3 3 P -Sc •-*
Ld 26.8 756,0 9,2 0 9 2,2 "7,0
2 755,2 10,5 'nw 1 S
9 752,6 10,1 0 4
Sd.27.8 750,9 8,7 0 9 4 6,0
2 748,5 10,6 NW 1 10
9 747,4 11,7 NW 1 10
Md28.8 746,6 10,0 0 4 0,5 6,0
2 747,5 11,6 S 1 8
9 749,7 10,9 ESE 1 10
bd 29.8 750,9 10,5 NW 1 10 0,1 7,0
2 751,2 10,7 NNW 1 10
9 752,1 10,7 E 1 10
Md30.8 752,8 10,0 E 1 10 3,0 6,0
2 753,4 10,7 NE 1 10
9 753,6 9,3 N 1 8
Fd 1.8 753,6 7,9 N 1 4 ubet 5,0
2 757,7 12,0 0 7
9 758,9 7,7 0 2
Fd 2.8 758,5 0 5 4 1,0
2 758,8 10,6 NW 1 8
9 757,3 8,5 0 10
Stjórnarvalda-augl. (ágrip).
Skuldalýsingar í dánarbú Gunnlaugs
Gunniaugssonar á EyvindarBtöðum í Bessa-
staðahreppi sendist skiftaráðanda í Kjósar
og Gullbringusýslu innan ti mánaða, frá
2. þ. mán. að telja.
Gjaldkerastaðgn við Holdsveikraspítal-
an í Laugarnesi er laus. Laun fyrir 1904,
Ö00 kr. 1905, 300 kr. — Umsókn sendist
amlmanni J. Havsteen fyrir 1. desbr. næst-
komandi.
Hérmeð tilkynnist vinum og vandamðnn-
um nær og fjær, að vor elskulegi og
heittelskaði sonur og bróðir Halldór Lár-
usson andaðist aðfaranðtt hins 28. f. m.
Áformað er, ef guð lofar, að jarðar-
förin verði næstkomandi þriðjudag, 6. þ.
m. og hefjist kl. II árdegis frá húsinu
nr. 4 við Suðurgötu.
Reykjavik, 3. okt. 1903.
Ldrus Halldórsson
i Kirstín Pétursdóttir
Guðrún Ldrusdóttir
Valgerður Lárusdóttir
Pétur Ldrusson.
Lotterisedler
med Plan tilsendes mod Forudbetaling.
Gennemgaaende Lotteriseddel 15 Kr.
10 Óre. Gevinsterne tilstiiles eftir
Önske. I næste Serie 118,000 Lodder,
75,000 Gevinster.
Overretssagforer Thomsen
Kollektor for Alm. dansk Vare og
Industrilotteri
Gl. Strand 38 2. sal. Kobenhavn K.
Undirritaður tekur að sér að
innheimta skuldir, annast lántöku í
bankanum, kaup og sölu á fasteignum
og skipum, gjöra samninga og flytja
mál fyrir undirrétti. Heima kl. 11-—
12 og 4—5.
Lækjargötu 12.
Eggert Claessen cand. jur.
Ávalt nægar birgðir af Líkkröns-
um af öllum stærðum og von á mik-
illi viðbófc með »Ceres« og »Laura«.
iSuérún Qlauscnf
16 Hafnarstræti 16.
Leirkrukkur,
hentugar undir smjör og slátur, fást í
W. FischerH-verzlun.
verður haldinn annaðkvöld (sunnudags-
kvöld) i Goodtemplarahúsinu kl. 81/,,
til ágóða fyrir söngsjóð dómkirkjunnar.
Sjá götuauglýsingar í fyrra málið.
Herbergi til leigu í þingholtsstræti,
inngangur um forstofu.
Guðbjartur Sigurðsson Þingholtsstræti 3.
Skemtileg stofa með húsgögnum er
til leigu við Klapparstíg, i húsi Sigurðar
Hjaltesteðs.
Ensku, Þýzku og Dönsku
kenni eg þeim sem óska, konum og
körlum.
Þorsíeinn Erlingsson
Lesiö petta.
Til sölu smærri og stærri hús á góð-
um stöðum í bænum, og til leigu her-
bergi eifct og fleiri, einkar hentug fyr-
ir sjómenn. Semja má við
Bjarna Jónsson
trésmið við Klapparstíg.
Allir þeir,
8em skulda í verzlun Björns |>órð-
arsonar, eru vinsamiega beðnir um að
borga sem allra fyrst.
Björn Þói ðarson.
Húsið Nr. 6 í Bröttugötu
fæst keypt, sem.ja má við W. Ó. Breiðfjörð.
ísl. Mmerki, gamla
peninga (allra þjóða) kaupir hæsta
verði
Lúðvig Hafliðason, Edinborg.
eFrá Buriunoktbr n k fæst
Jc/ keypt fæði i
aHALSTRÆTI 6 hjá
Margréti Bjarnesen
Verzlun
Björns Þórðarsonar
er nú flutt á Laugaveg nr. 20 B. (áð-
ur hús herra úrsmiðs P. Hjaltesteðs).
Hér með tilkynnist heiðruðum
skiftavinum, að eg er flutt í Veltu-
sund 1 (áður búð frú Nielsen) og
tek þar á móti taui til þvotta og
strauningar, og hefi þar til sölu fram-
vegis alls konar h á 1 s 1 í n með öllu
tilheyrandi, nærfatnað handa kven-
fólki, svo sem: skyrtur, náttkjóla,
nátttreyjur, bolhlífar (undirlíf) og
alls konar barnanærföt. Enn fr*m-
ur: karlmannaskyrtur, manséttskyrtur,
hvítarog mislitar, o. fl. Með Laura
fæ eg Dæst mikið af prjónanærfatnaði.
Kristín Jónsdóttir.
Kutter <Golden Hope« er til sölu.
Lysthafendur snúi sér til Helga Jónssonar
Klappiirstig 11, fyrir þann 10. þ. m.
Til ieigu nú þagar 1 stofa i Suðnr-
götu með eða án húsgagna. Ritstj. visar á.
Stúlka, 17 —18 ára, óskast í vetrarvist
uú þegar. Ritstj. visar á.
Chr Junchers klædefabrik
R a n d e r s
er viðurkend að vera meðal hinna
bezta og áreiðanlegusfcu ullarverksmiðja
í Danmörku; hún afgreiðir mikið fljót-
ara, og býr til betri og fjölbreyttari
vefnaðarvöru en flestar aðrar verk-
smiðjur.
Aðalumboðsmenu fyrir Vesturland
erum við undirrifcaðir. Sendið okkur
ull og munum við útvega yður ódýr
og vönduð fataefni.
Bíldudal 19. marz 1903.
P. J. Thorsteinsson & Co.
S KANDIN AVISK
Exportkaffi-Surrogat
KjobenhavD. — F- Hjorth & Co-
Herbergi fyrir einhleypa fæst til leigu
í Bankastræti 7, með öllnm húsgögnum.
29. september 1903 töpuðust: rauður
hestur, 7 vetra, mark: stýft hægra, fjöður
aftan, hlaðstýft aftan vinstra, hiti fr., gam-
aljárnaður og rauður hestur, 6 vetra, mark:.
hálfta faftan v., nýjárnaður; óskast leiðbeint
til Árna Gislasonar pósts i Reykjavík eða
Bjarna Péturssonar á Grund. i Skorradal.
Útgefandi Björn Jónsson.
Ábm. Ólafur Rósenkranz.
Isafoidarprentsmiðja.