Ísafold - 12.03.1904, Síða 3

Ísafold - 12.03.1904, Síða 3
47 en það, að kind gæti troðist þar inn. En færeyskt fé er stnávaxnara en vort. Skjólkampar voru fyrir dvrun- um hvorutveggju við vindáttinni. Vér ráðgerðum að rífa dyrnar og víkka, ef vér yrðum að vera þarna nætursakir, til þess að allir kæmust inn. Stúlkan okkar, er við nefndum svo, skipsjómfrúin í 1. farrými, er oss hafði líkað öllum vel við á ferðinni, með því hún stundaði svo vel það sem hún átti að gera, og var lipur og lagleg, — hafði reynst engu óvaskari né hug- minni en karlmennirnir. Hún rendi sér til lands á seilinni næst á undan mér; •kvenfólkið fyrstn. Holdvot var hún neðan til og heldur klæðlítil, með ber- ar hendur og illa skædd. Kapteinn inn lánaði henni af sér regnkápuna og í henni gekk hún, gyrð digru svarð- reipi um lendar. Nú sló að henni, er vér námurn staðar. það voru undnir af ihenni sokkarnir, við vermdum hana á fóturn milli handanna á okkur og færðum hana aftur í sokka og skó. Síðan smaug hún inn um »nálaraug- að«, inn í fjárhúsið, og var látin ganga þar hratt, húsið af enda og á, sér til hita. Vér sendum frá oss njósnara í yms- ar áttir, tvo og tvo saman, að skygn- ast um, ef eitthvað rofaði til. þeir máttu ekki fara lengra en svo, að rak- ið gætu sig aftur heim að fjárhúsinu. Var enn nokkur óvissa um það, hvar vér værum niður komnir, og héldu menn hálft í hvoru, að það kynni að vera Hestey, vestur af Straumey, og var enginn avo fróður að vita með VÍS8U, hvort þ a r væri mannabygð. Fór mönnum ekki að lítast á blik- una, ef vér værum staddir f eyðiey, í svartabyl, þar sem hvergi sæist til bygða. Fjárhirs gátu þar vel verið, þótt mannlaust væri. því léttist brúnin, er sá til manns með stóran göngustaf í hendi og lamb- húshettu á höfði, og við hlið sér gul- an hund, sem flaðraði upp á okkur með miklum fagnaðarlátum, svo sem hefði h a n u oss úr helju heimta. þetta var fyrsti Færeyingurinn, sem kom í móti oss. Stúlkan okkar þaut eins og örskot út í móti honum. þ>eir höfðu, framliðar vorir, verið svo hygnir, að halda sig nærri sjó, og ætl- uðu sér að kanna eyna alla þann veg, ef til þyrfti að taka, með því að við sjó hlyti bygðin að vera. Mannabygð öll er í Færeyjum í þétt- býlum þorpum, en ekki bær og bær á 8tangli, eins og hér gerist. Skálavík (Skaalevig), í Sandey aust- anverðri, var fyrsta bygðin, sem þeir hittu fyrir, eða réttara sagt; smalamann þaðan, sem vísaði þeim þangað. J>að- an dreif óðara fjöldi ■ liðs á stað að leita hinna skipbrotsmaunanna, svo og frá Sandi, annari bygð stærri vestan á eynni (600 manns). þeir höfðu með sér nægar vistir, hert kjöt (skærpeköd) og heita mjólk á flöskum; bjuggust við að vér værum að fram komnir af hungri, þreytu og vosbúð. En því var raunar fjarri. Matarlausir höfðum vér raunar verið 16—17 stundir, nema hvað vér fengum dálítið af skonroki, áður en vér hófum göngu vora, úr Stóru pjáturhylki, er hafði verið fleygt útbyrðis áður en skipið var yfirgefið Og látið reka á land. Eg fylgdist það sem eftir var heim að Skálavík með ungum Færeying. Eg atuddi mig við hann með öllum mín- um þunga. En það var eins og hann munaði ekkert um það. Og svo fim- ur var hann og fótviss, að hvorki rasaði hann sjálfur nokkurn tíraa, hvað sem fyrir var, bratt eða hált, né lét mig steyta fót minn við steiui. Eg hefði svo sem ekkert komist ella. Eg held nærri því, að þó að eg hefði reynt að bregða fyrir hann fæti þá hefði mér fráleitt tekist að fá hann af fótum. það hefði líka verið miður vel til fallið, enda vantaði hvorttveggja, vilja og mátt. Hann var spurull um strandið, svo sem ekki var láandi. Eg skil, eg skil! kvað alt af við hjá honum. En eg er hræddur um, að hann hafi ekki skilið nema sumt. það er yfirleitt að eins roskið kaupstaðafólk, er dönsku skilur í Færeyjum. Aðrir tala tóma færeysku og skilja lítið annað. Eg held að þetta, að hann lézt skilja alt, hafi fremur verið sprottið af góðmannlegri hlífð við mig, skipbrotsmanninn; að láta mig ekki vera að tví- eða þrí- taka það, sem eg sagði. Greind og góðmenska voru samtvinnaðar í svip hans. Mannalát. Síra 6 1 a f u r Helgason, prest- ur að Stokkseyri og daufdumbrakenn- ari, er sigldi til Danmerkur með póst- skipinu 10. f. mán., varð bráðkvaddur á leiðinni í Englandshafi 19. f. mán. Ingibjörg Torfadóttir (skóla stjóra í Ólafsdal), forstöðukona kvenna. skólans á Akureyri, lézt þar 6. f. mán. úr tæringu. Hún var mætavel að sér, og miklum mannkostum búin og at- gervi. Hún giftist aldrei. Þetta er 4. barnið, sem Torfi skóla- stjóri hefir mist uppkomið núna á ör- fáum árum. Frú Matthildur Magnús- d ó 11 i r, kona þorsteins læknis Jóns- so’nar í Vestmanneyjum, andaðist snögglega 5. þ. m. úr slagi. Hún var 71 árs að aldri, fædd 6. janúar 1833, gift 12. október 1865 og hafði því lifað í ástúðlegu hjónabandi 38 ár og nál. 5 mán. —»Matthildur sál. var góð og ástúðleg eiginkona, móðir og húsmóðir, sístarfandi, reglusöm, um- hyggjusöm og sparsöm. Hún mat ávalt annara þægindi raeira en sín; hennar hugsun var ávalt að gera sem mest gagn og sparaði hún enga fyrir- höfn að greiða fyrir öðrum*. Uppreisn á Balkansskaga.t Síðustu dagaua hafa staðið skæðar orustur með Tyrkjum og Albönum. Eússar og Austurríkismenn eiga, svo sem kunnugt er, að gæta þess, að framkvæmd verði á réttabótum þeim, er Tyrkir hafa lofað að gera á stjórn- arfari í Makedoníu. Hinum ríkjunum og fylkjunum á Balkanskaga er miður vel við réttarbætur þessar. Svo er þar megn rígur í milli eður og fullur fjandskapur. Svo er um Alban- fufylki. Nú er Rússar hafa ærið að vinna lengst austur í Asíu, hugsa Albanar sér gott til glóðarinnar og reyna að sporna við því, að réttur sé hlutur Makedona Við Austurríkismenn eina eru þeir hvorki hræddir né Tyrkir. þó hafa Tyrkir ekki átt annað undir en að senda her manns á höndur Al- bönum. f>ar hafa orðið tvær orustur. Féllu af Albönum 800 í annari orust- unni, en 500 í hinni. Tyrkir mÍBtu og margt manna. Borist hefir hingað nýverið, að Nikulás keisari hafi í hyggju að fá f hendur Witte, er áður var fjármálaráð- herra Eússa og í miklum metura hjá keisara, alræðisvald á Rússlandi, með- an ófriðurinn stendur. Uppreisn kviknuð í einum stað í Kína, Szetschwani, í miðju landi, og háðar þar skæðar orrustur við herlið Kíua8tjórnar. Kungusar beitir moDgólskur þjóð- flokkur í Mandsjúríu. þeir hafa gert Eús8um ýmsan óskunda og Kínastjórn orðið að senda her naanns í móti þeim. Hlutabankinn. Sú frétt kom með póstskipinu Ceres í gær, að nú væri loks búið að til- nefna bankastjórann víslenzka, er fyrir hlutabankanum á að standa með hr. Emil Schou; hann er yfirbankastjóri. það er Landsbankinn, sem hefir loks af brjóstgæðum sínum og hugul- semi hlaupið undir bagga með keppi-' naut sínum hlutabaDkanum og hjálp- að honum um bókarann siun, hr. Sighvat Bjarnason. Eu nokkrum vikum áður höfðu þessir sömu menn, fulltrúar peninga- stofnana þeirra erlendis, er hafa iagt fram stofnféð f hlutabankann, ásamt þeim Arntzen og Warburg, ráðið hr. Pál ajntmann Briem á Akureyri í þetta embætti, sem hr. Sighv. B. er nú falið, með þeim hætti, að þeir skrifuðu honum og buðu honum það eða báðu hann að taka það að sér, og skyldi hann ráðinn samstundis sem hann fengi bréfið, ef hann gengi að því. Og svar er ekki enn komiðfráamt- manninum, hvorki já né nei. Eftir kvæðinu þessu má belzt búast við, að næsta póstskip flytji þá frétt, að hætt sé við hr. S. B. og enn ein- hver annar ráðinn! Sumir segja, að íslenzku bankastjór- arnir eigi nú að vera tveir — þeir eru kallaðir gæzlustjórar í reglugerð bank- ans — og þá einmítt þeir Páll Briem og Sighv. Bjarnason, með jöfnum völdum og launum m. m. En alt virðist það vera enn nokkuð á reiki, auk þe8s sem enginn kann á það að gizka, hve lengi sú ráðsályktun stend- ur, þó svo væri, að hæft væri í henni. Rjóirmbú við Geirsá í Borgarfirði er ákveðið að stofna og tekur það til starfa á komand vori. Stofnfundur þess var haldinn að Deildartungu 1. þ. m., og var Sig. Sigurðsson ráðunautur þar á fundin- um. I búinu eru menn úr Reykholts- dalshreppi, Bæjarsveit, Hvítársíðu og ennfremur uokkrir búendur úr Lundar- reykjadal, Stafholtstungum og þverár- hlfð. Rjómabú Bæaveitinga hverfur inn í þetta nýja bú roeð þeim hætti, að búið við Geirsá tekur við eignum þess og skuldum. Félagar búsins eru orðnir meir en 40, og kúgildatala 340 alls. Samþykt var og á fundinum að Deildartungu, að skora á Landsbúnað- arfélagið, að semja og láta prenta reglur um meðferð mjólkurinnar og rjómans til leiðbeiningar fyrir þá, sem rjómabúin eiga. Embættispróíi í lögum við Khafnarháskóla hafa þeirlokiðf f. mán., Magnús Jóns- son og Tómas Skúlason, báðir með I. einkunn. Vestmanneyjum 8. marz. í janúar var mestur hiti 22. 8,2°, minstur aðfaranótt 15. 10°. í febrúar var mestur hiti 27. 7,9°, minstur aðfaranótt 21. -f- 7,1. í jan- úar var úrkoma 131, i febrúar 112 milli- metiar. Hart kuldakast var frá 11.—16. janúar; annars umhleypingar með stormum af ýmsnm áttum, regni, hagli og snjó. Frá 4. —18. febrúar voru þurviðri, annars regn og haglél: fyretu 12 daga mán. biésu nær sifeldir norðanstormar. Á Þorra var hér taisverður fi.skur fyrir, og aflaðist þá allvel langa og þorskur, þegar gaf, en svo komu nær sifeldir storm- ar fyrri helming (íóu, og nú má beita nær fiskilaust hér umhverfis, á svæði því, sem opín skip fara um. Aftur er sagður næg- ur fisknr á hinum stóru miðum 4 milur suðvestnr af Heimaey. Þar er 60 faðma dýpi og sandbotn. Þar halda botnvörpuDg- ar sig og hafa þar nógan fisk. Eru nú um 40 botnvörpungar og lóðaskip ensk hér umhverfis, enda segja þeir að mestallur fiskiútvegnr Breta sé nú við Island, því landar sinir vilji nú ekki lengur annan fisk en íslenzkan, hann sé svo bragðgóður, miklu betri en Norðursjávarfiskur, og nú hirða þeir alls kouar fisk, sem þeir afla, en ileygja engn. Hér er alls búið að róa 14 róðra síðan 6. febrúar, og er hæstur hlutur orðinn um 220, nær s/4 þorskur og langa. Alls ganga hér nú til fiskjar 28 stærri og smærri skip og bátar. Siðan fólki fjölgaði, hefir talsvert borið á kvefi og hósta í mörgnm manni, og nú er lungnabólgan farin að taka sig npp aft- ur. Sem stendnr liggja 4 í benni. Er hún ávalt mikill vogestur, eigi sizt á vertíð, þegar menn verða að leggja á sig stranga vinnu ýmislega til reika, og oft i kalsa veðri. Thore-félagið sendir nýtt skip hingað 20. þ. m., eins og til stóð, til þess að halda uppi áætluniuni. Póstskipið Laura (kapt, Aasberg) hafnaði sig hér i dag kl. 2‘/2, eftir 4 daga ferð frá Leith. Farþegar: kaupmennirnir Gunnar Einarsson, HelgiZoega, Jón Bjarna- son, Vald. Ottesen, Ben. S. Þórarinsson; slökkviliðsstjóri Mattías Mattíasson hér úr Rvik; Finnur Þórðarson frá ísafirði; Ein- ar Markússon frá Olafsvik; Kristján Júnas- arson agent, 0. fl. Síðustu ófriðarfréttir. T i 1 7. m a r z. Sunnudaginn var, 6. þ. mán., réðst japönsk flotadeild í Vladivostok. En Rússar svöruðu ekki skotusi Japana, vegna þess, að þeir böfðu ekki nema ónýtar byssur, miklu skamm- drægari en fjandmenn þeirra. Meira var ekki fréfct. J>es8 er til getið, að atlaga Japana að Vladivostok hafi verið til þess gerð helzt, að bafa betra næði að skjóta her á land í Kórea þar skamt suður frá. Japanar eiga og að hafa komið ber á land á Liao-Tang-skaga, og á hann að sækja Port Arthur laudmegin. Setulið er í Vladivostok 7200 manns, en vistaforðiaf skornum skamti. Sömu svikin þar með vistabirgðir og í Porfc Arthur. Ein fréttin segir, að nokkru áður hafi flotadeild rússnesk, er þar lá í Vladivostok, æfclað að komasfc út og suður með landi, til Port Arthur, en Japanar hrakið hana aftur. Landorusta sögð í nánd í Korea norðan til og búist við henni all-skæðri Rússum, líkt og viðureignin á sjó fyrstu dagana. Tíðindaritarar dást að því, hve Jap- anir kunni vel að leyna fyrirætlunum sínum og koma fjandmönnum sínum alveg á óvart. Rússur hafa auk annars þungar áhyggur af því, hve Pólverjar eru fceknir til að láta ótryggilega. Látinn er Waldersee greifi, yfirhers- höfðingi bandamannabersins héðan úr álfu í Kína fyrir nokkrum, einna mestur herstjórnargarpur þjóðverja sfðan er Moltke leið.

x

Ísafold

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.