Ísafold - 09.04.1904, Síða 1
'Kemur út ýmist einu sinni eða
tvisv. í vikn. Yerð árg. (80 ark.
minnst) 4 kr., erlendis 5 kr. eða
l‘/s doll.; borgist fyrir miðjan
’úli (erlendis fyrir fram).
1SAF0LD.
Dppsögn (skrifleg) bundin við
áramót, ógild nema komin sá til
útgefanda fyrir 1. október.
Afgreiðslnstofa blaðsins er
Austurstrœti 8.
Keykjavík langardafcfinn 9. apríl Í904
XXXI. árg.
Jfíuá/tadá jfíw’ufO/lMi
lT 0. 0. F. 854l58‘/2.
tpr* Tyisvar í næstu
viku kemur ísafold, og svo
áfram í vor og fram eftir
sumri.
Fyrra blaöið í næstu
viku kemur út á m á n u -
daginn (11. þ. m.).
* Fólkstala á íslandi 1901.
Nú er ioks fyrir skemstu fullgengið
frá skyrslunum um fólksfjölda hérálandi
1. nóv. 1901 Það hefir gert landshags-
sk/rsinaskrifstofan danska í Kaup-
ma.nnahöfn, svo sem að undanförnu. —
Það e r vitanlega mikið verk og seinlegt,
að endurskoða þær allar, skýrslurnar
frá þeim, er fólkið hafa taiið hór, prest-
um og öðrum. leiðrétta synilegar villur
•og laga þær skekkjur, sem iaga má, og
fá þá samkvæmni í alt saman, sem
liægt er.
Mannfjöldi á öllu landinu fyrtéðan
dag (lfu 190!) hefir að dómi áminstr-
.ar skrifstofu verið nær 781/., þús., eða
78,470.
Síðast, þegar talið var þar á undan,
1890, var landsfólkið 70,927.
Það hefir því fjölgað 11 árin, sem
iþar liðu í miili, um 7,543, eða hátt upp
í 700 manns á ári.
Það er ólíkt því sem gerðist áratug-
inn þar næstan á undan, 1880—1890.
Landsbúum fækkaði þá uml518eða
ireklega 150 ári.
Hér er annars yfirlitsbrot yfir matin-
fjöldaun hér á vmsum fólkstalstímum
öldina sem leið :
1800 ..................... 47,240
1840 ............... 57,094
1880 ..................... 72,445
1890 ............... 70,927
Engan áratug 19. aldar fækkaði fólki
hór nema þennan eina, 1880—-1890.
Því ollu mest óvenjumiklar vesturfar-
ir, og því næst skæðar landfarsóttir, ekki
sízt mislingarnir 1882; þá dóu hér 1300
manns um venju fram.
(lizkað hefr verið á eða líkindarök
leidd að því, að mannfækkun af sóttum
hafi íiumið þau 10 ár 2000 manna um-
fram meðaital fyrir og eftir. Sömuleið-
is, að vesturfarir lia.fi numið þá hátt á
6. þúsund.
IJað er með öðrum orðum, að ef það
hefði hvorugt verið, þá mundi landsbú-
ar hafa komist 10 árum fyr hér um bii
upp í þessa tölu, er þeir höfðu í alda-
motin. Þeir hefðu þá verið orðnir rúm
78 þús. árið 1890.
Þá er að líta á tölurnar í syslunum,
nú og þrívegis á öldinni sem leið, til
samanburðar, að kaupstöðum og kaup-
túnum meðtöldum, öðium en Reykjavík,
með því að ekki var farið að greina hina
kaupstaðina frá fyr en nú í síðustu
skiftin.
ár 1801 1840 1890 1 901
Skuftaf.sýsla 2450 3198 3205 3106
Vestm.eyjas. 173 354 565 607
Raugárvallas. 4030 4589 4770 4366
Árnessýsla 4625 5001 6313 6394
Gbr.s.ogKj.s. 3698 4490 6254 5343
Reykjavík 307 890 3886 6682
Borgarfj.s. 1877 2155 2562 2520
S.-amtið 17160 20677 27671 29018
M/rasýsla 1478 1695 1926 1721
Snæf.n.,Hds. 3535 3557 2770 3469
Dalas/sla 1592 1829 1914 2044
Barðastr.s. 2494 2382 2890 3410
ísafj.s.og kpst. 3895 3987 6036 7275
Strandasýsla 982 1215 1574 1812
V.-amtið 13976 14665 17110 19731
Húnavatnss. 2850 3809 3774 3891
Skagafjarðars . 3146 3938 4052 4445
Eyjafj.s.,kpst, , 3366 1092 5557 6747
Þingeyjars. 3119 4164 4909 5166
Norðurmúlas 1695 2993 3832 4426
Suðurmúlas. 1928 2756 4022 5046
N.ogA.-amtið 16104 21752 26146 29721
Alt landið 47240 57094 70927 78470
Þessi var 1901 íbúatala í kaupstöðum
laudsins 4, að frátöldum útsóknum þeirra:
lleykjavík ...................... 6682
ísafjörður....................... 1220
Akureyri ........................ 1370
Seyðisfjörður .................... 841
Það sést á þessu yfirliti, að þó að
fjólgað hafi á öllu landinu samtals þessi
11 ár milli síðustu talniuga alls um
7x/2 þiis., þá hefir stórum fækkað yfirleitt
í suðurhóruðum landsins ntan kaupstað-
anna, og það ekki minna en um rúml lx/2
þús. Þar af koma rúm 900 á Gullbr.
og Kjósarsýslu. Það er óefað mest verk
botnvörpunganna ensku. Bátaveiðin hefir
lagst niður að miklu leyti vegiía ófrið-
arins, er af þeim hefir staðið; netaveið-
m nærri því hætt í aldarlokin. En fólkið
flykst til Reykjavfkur, eða þa vesturum
hafsumt. Þettamikla stökk upp á við,
sem Reykjavík tók á því tímabili, um
hátt upp í 3000 manns, stafar mikið
þaðan. Bátaveiöin snýst upp í þilskipa-
veiöi. Þilskipin eru gerð út frá Reykja-
vík. Þangað dregur því fólkiö sig.
Þar næst hefir fækkað í Rangarvalla-
sýsln um 400 manns og í Mýrasýslu um
200. Reykjavík hefir einnig dregið að
sér margt roanna þaðan. Að Arnessysla
hefir haidið sér á liku reki og áður,
mun stafa af því helzt, að þar helir á
fyrnefndu tímabili risið upp nýtt kaup-
tún, og margir þú svalað kaupstaðar
sækni /sinni með því að flytja sig þang-
að heldur en suður yfir fja.ll.
Bæjarstjórn ReykjavíUur. Frá
verkfræðingafúlagi þvi i Exeter á Eng-
landi, Willey et Co., sem er að hngsa
um að koma hér upp bæjarvatnsveitn, hafði
bæjarstjúrnin fengið snemma i f. mán. til-
mæli nm ýmsar frekari skýringar nm það
mál. Til að svara því voru kosnir á fundi
12. f. mán. með formanni þeir Guðm.
Björn^son og Sig. Thoroddsen, og eftir uppá-
stnngu fyrnefnds félags heitið 1800 kr. til
rannsóknarkostnaðar.
Þá var á fnndi 17. f. mán. samþykt til-
boð frá 2 lóðareigendum norðnr af hinn
fyrirhugaða Vonarstræti, þeim Indriða Ein-
arssyni og Kristjáni Þorgrimssyni, nm að
fylla upp á 3 ára fresti strætið fram und-
an lóðum sinum, bænum að kostnaðarlausu,
og það sem þar er í milli, gegn þvi að
eignast það svæði.
Til þess að segja álit sitt um áskor-
un frá Jarðræktarfélagi Reykjavikur um
girðing á Fossvogi til kúabeitar voru á
sama fnndi kosnir þeir Jón Magnússon,
Olafur Olafsson og Þórh. Bjarnarson.
Veganefnd hafði lagt til, að tekið væri
2000 kr. lán til að lengja Hverfisgötu nið-
ur að læk og austur að Laugaveg. Bæj-
arstjórnin fól formanni sinum að leita heim-
ildar landsstjórnarinnar til að leggja Hverf-
isgiitu yfir Arnarhólstún, en fól veganefnd
að rannsaka að öðru leyti, hvað bæjarsjóð
mundi kosta lóðarnám undir alla götuna
austur að Laugavegi.
Skólanefnd falið að ráða þvi, hvort
Haraldur Árnason o. fl. mætti nota leik-
fimishús barnaskólans til leikfimisæfinga.
Samþyktar voru á sama fundi þessar 3
brunabótavirðingar: húseign Kristjáns E.
Ilanssonar við Frakkastig 3925 kr.; Tryggva
Matthiassonar við Laugaveg 3„10; Gisla
Gislasonar við Grettisgötn 2944.
Þetta gerðist helzt á síðasta fundi, i
fyrra dag:
Til að vera i kjöri til sáttanefndar, í
stað síra Eiríks Briem, er hefir fengið
lausn frá þeim starfa, voru til nefndir: sira
Þórb. lektor Bjarnarson, sira Jóhann Þor-
kelsson dómkirkjuprestur, sira Jón Heiga-
son prestaskólakennari, og Sighv. Bjarna-
son bankabókari,
Eftir tillögu nefndar í þvi máli var
samþykt að setja járngirðing um Ansturvöll
og t.aka til þess 2000 kr. lán. Söniu nefnd
falin framkvæmdin.
Erindi frá Kristjáni Þorgrímssyni bæjar-
fulltrúa um að banna að fylla npp undir
hússtæði i Tjörninni sunnan Vonarstrætis
milli Bárubúðar og Iðnaðarmannahúss var
visað til nefndar i málinu um ráðstöfun fyr-
ir svæðinu, þar norðan Vonarstrætis. Einnig
vísað til sömu nefndar skjali um að fylla
upp i Tjörnina suður af húsi H. Kr. Frið-
rikssonar beitins.
Frumvarpi frá byggingarnefnd nm breyt-
ing á byggingarsamþyktinni og viðauka
við hana var visað til nefndar i þvi máli
frá 15. apríl f. á.
Fela skyldi óvilhöllum mönnum að meta
lóð nndir framhald af Miðstræti að Bók-
hlöðustig, er taka þarf af Hirti Hjartar-
syni og Ragnheiði Gnðiohnsen; sömilleiðis
lóð undir Tjarnargötu frá adjunkt Geir T.
Zoéga.
Barónsstig var samþykt að lengja upp
að Grettisgötu; það verður að mestu unnið
fyrir fé, er lóðareigendur þar leggja til.
Landsstjórnin liafði veitt heimild til veg-
arlagningar nm a rnarhólstún, beint fram-
hald Hverfísgötu alla leið niður að læk,
með því skilyrði, að vegurinn verði hafð-
ur 24 álna breiður og gripbeld girðing
sett fram með honum beggja vegna. Bæj-
ar8tjórnin gekk að þvi.
t Bæjarstjórn afsalaði sér forkaupsrétt að
Elsumýrarbletti, er eigendurnir, Sighv.
Bjarnason og Andrés Bjarnason, ætla að
selja fyrir 6000 kr.
Með því að Magnús Einarsson dýra-
læknir, sem er einn í nefnd þeirri, er und-
irbýr heilbrigðissamþykt fyrir bæinn, er
og verður fjarverandi all-lengi, var kosinn
í hans stað i þá nefnd Kristján Jónsson
yfirdómari.
Þessar 5 brunabótavirðingar voru stað-
festar:
Húseign Gnðjóns Sigurðssonar við Hafn-
arstræti 69,395 kr.; Sveins Gíslasonar við
Hverfisgötu 6,763; GuÖmundir Brynjólfs-
sonar við Grettisg. 5,888; Jóns Bjarnar-
sonar við Hverfisgötu 3,533; Skúla Jóns-
sonar við Grettisg. 3,154.
Um ónotaðar útmœldar lóðir gerði
bæjarstjórnin svofclda samþykt á síðasta
fundi:
19. Mað.
Allar lóðir, sem ekki eru nýttar 31. des.
þ. á., en hafa þá verið útmældar fyrir 2
árum eða meir, skulu þá falla aftur til
bæjarins; og þar eftir falla allar lóðarút-
mælingar úr gildi jafnskjótt sem þær eru
orðnar 2 ára gamlar án þess að hafa ver-
ið nýttar. Undanþágu frá þessari reglu
getur þó bæjarstjórn veitt eftir meðmælum
l)yKKÍnSarnelI>dar, ef sérstaklega stendur á.
Orðið »nýttar« í samþykt þessari skilur
bæjarstjórn svo um húslóðir, að grunnur
þarf að vera hlaðinn og hús reist á hon-
um.
Lausn frá prestskap hefir fengið
eftir umsókn án eftirlauna sira Richard
Torfason i Guttormshaga i Holtum.
Braudakassinn. Þau eru ekki færri
en tiu núna, brauðin, sem uppi standa i
branðakassanum. Hér eru þau upp talin
og matið aftan við, i krónum:
Háls í Fnjóskadal . . . . 973 kr.
Hof á Skagaströnd . . . . 907 —
Hofteigur á Jökuldal . . . 967 —
Holtaþing . 1077 —
Lundarbrekka . 807 -
Meðallandsþing .... . 688 —
Sandar í Dýrafirði . . . . 1140 —
Sandfell i Öræfum . . . . 857 —
Stokkseyrarprestakall . . . 2479 —
Þönglabakki . 1621 —
Eitt af brauðum þessum, Meðallands-
þing, hefir nú verið laustfull 4, ár og tvö,
Lundarbrekka og Þönglabakki, full 2 ár.
Mörg hinna eru frá árinu sem leið og eng-
inn farinn að sækja um þau enn. Það er
vist um eitt, að það rennur út; það er
Stokkseyrin. Hin er hætt við að megi
telja vonargripi.
Óveitt prestakall. Holtaþing i Rang-
árvallaprófastsdæmi (Marteinstungu, Haga,
og Árbæjarsóknir).
Lán úr landssjóði til húsbyggingar hvilir
á prestakallinu, tekið 1897 og 1899, upp-
runalega 2200 kr., nú að eftirstöðvum kr.
1596, sem endurgreiðist með 76 kr. árlega,
auk vaxta.
Mat kr. 1076, 81.
Veitist frá næstu fardögum.
Aoglýst 8. april.
Umsóknarfrestur til 23. mai.
Snori-i húsasmiður á Akureyri. Hún-
vetningur einn, hér staddur, vill ekki kann-
ast við, að Snorri Jónsson á Akureyri sé
bæði ódýr húsasmiður og vandvirkur þó (sbr.
ísaf. 2. þ. m.). Segir að kvennasltólahúsið
á Blöndnós eft-ir bann sé ekki vandað.
Það hafi gisnað svo mikið á fyrsta vetri,
að varla hafi lift verið i því vegna súgs
og kulda. Hafi því orðið að »drifa« það
alt á næsta sumri með ærnum kostnaði úr
skólasjóði og hafi þó gisnað erm veturinn
eftir töluvert; enda verið krankfelt i því
báða veturna og ein námsstúlkan dáið sið-
ara vorið.
En hann lætur þess ógetið, áminstur
Húnvetningur, hvort Snorri befir útvegað
sjálfur viðinn eða ekki. Hafi það ekki
verið og honnum fenginn viðurinn blautur
að smiða úr, verður honum alls ekki um
kent, þó að liúsið hafi gisnað. Og það er
meira að segja, að þó að hann hefði pant-
að viðinn, þá er óvist, að hann hafi tekið
eða getað tekið ábyrgð á þvi, að hann
yrði þnr, er smíða þurfti úr honum; hann
gat hafa vöknað í uppskipun, i hafnleysinu
á Blönduós, o. s. frv.
Yfirliðar á Heklu. Þessir eru nú
yfirliðar á herskipinu Heklu: Yfirforingi
er P. A. Grove kapteinn; honum næstur
að völdum V. Jorgensen pr.lautinant; þá
eru 3 pr.lautinantar aðrir: L. D. de la Cour,
H. C. Gad og D. de Jonquiéres Hansen.