Ísafold - 11.05.1904, Blaðsíða 4
116
Sýslufundur Árnesinga.
Arnessýsln la/4 1904.
H£r hófst sýslunefndarfnndur 1_. þ. m.,
og var honum lokið 16. þ. m.
Helztn fundarmál vorn:
Samgöngumdl voru efst á baugi, eins
og vant er.
Má fyrst minnast á áfangastaðamálið.
Eggert i Laugardælum leyfði að taka
upp áfangastað i sinu landi fyrst um sinn.
fyrir 40 kr. árgjald. Nefndin gekk að því.
Þörf þótti vegna aukinnar umferðar, að
bæta við áfangastaðina á Torfeyri, og voru
veittar til þess 15 kr.
Gamlir átangastaðir fengu auðvitað ekkert.
Og þar eð utanhéraðsmenn nota áfanga-
staðina meira en mestur hluti sýslubúa,
þótti ráðandi til, að jafnaðarsjóður borgaði
þóknunina.
En til þess þarf lagabreytingu.
Uppsýslan hefir mikinn áhuga á að fá
veg frá Flatholti hjá Bitru upp að Laxá
(og þyrfti lengra), og svo álmu að Iðu-
ferjuBtað, sem ekki yrði dýr. Það eru 5
rjómabú, sem eiga án efa velferð siua undir
þvi, að þessi vegur fáist. Enda bjóðast
sveitirnar að leggja fram til þess frá sér
5—6000 kr., eftir því sem þær framast geta.
Nú lofaði sýslan 8000 kr. úr sýslusjóði, og
erum vér nú vongóðir um, að alþingi veiti
það sem á vantar úr landssjóði. Þenna
veg taldi sýslunefndin líka á undan öllu
öðru i svari sínu til landsstjórn.irinnar, er
spurði hana um áhugamál þau til framfara,
sem nú væri rikust með sýslubúum 0g
það var eflaust rétt. A engu riður meira
nú.
GrimsnesÍDgar báðu um 5000 kr. til
Sogsbrúar, og fengu þær veittar, mót
5000 kr. úr landssjóði og 5000 kr. úr
Grimsnesshreppi.
Um leið er áformað að skifta Grimsnes-
hreppi í 2 hreppa, og beri sá meira af
skuldinni, sem nær er brúnni og notar
hana meira.
Yegur upp að Sogsbrú og frá henni upp
Grímsnesið var meðal þeirra mála, sem i
svarinu til landsstjórnarinnar voru tekin
fram svo sem nauðrynleg framtiðarmál —
Ekki er hægt að hafa alt fyrir sér í einu.
Önnur smærri samgöngumál nenni eg
ekki að telja.
Það urðu ekki stórir skamtar, þá er farið
var að útbýta vegafénu til sýsluveganna.
Fjárhæðin var að eins 1,857 kr. 59 a., og
það með þvi, að hæklra vegagjald um 25
a. á mann, því verkfærír fækka óðum. —
Frá þessari fjárhæð voru fyrst dregnar
skuldir til landssjóðs og einstakra manna.
Gekk til þess meira en helmingurinn. Má
nærri geta, hve vel öllu hinu víðlenda sýslu-
veganeti verður borgið með tæpum 800 kr.
að bjargast við. Engin sýsla á landinu
mun eiga eins erfitt í þessu elniogÁrnessýsla.
— En í staðinn mun hún geta tekið hvað
mestum búnaðarframförum.
Af búnaðarmálum var áveitan úr Þjórsá
sett fremst í svarinu til landsstjórnarinnar,
þó ekki í þvi skyni, að næsta þing tæki
það mál að sjálfsögðu. Landsbúnaðarfélag-
ið mun ætla að undirbúa það. Það félag
var beðið að gera tillögur til umbóta tún-
girðingalögunum og gefa almenningi í
tima kost á því, að ræða þær tillögur. —
Túnamælingar voru þetta ár faldar á hend-
ur þeim mönnum, sem kosnir voru til að
skoða jarðabætur búnaðarfélaga.
Styrkur var veittur til fénaðarsýningar
i Biskupstungum og til annarar á Skeiðum.
Smá sýningahéruð þykja að svo komnu
bagkvæmust.
En eigi var veittur styrkur til kynhita-
stofnunar fyrir sauðfé í Fjalli. Fjárkyn
mundi svo best batna, að hver bætti það
hjá sér. Og það væri margir farnir að
gera. Sérstaka stofnun mundi ekki þurfa
til þess.
Fimm hreppum var leyft að taka lán
til að koma upp rjómabúum. Og 150 kr.
voru veittar Brynjólfi Yigfússyni á Eyrar-
bakka, tii að kaupa nauðsynlega hluti til
viðgerðar biluðum skilvindum. Hann hefir
lært að gera við þær.
Samþykt var, að ábyrgð á Eeykjafoss-
láninu stæði óhögguð, þó að þvi væri breytt
úr bankaláni í iandssjóðslán.
Tekin var og ábyrgð á alt að 50,000 kr.
láni handa sparisjóði Arnessýslu.
Lýst var yfir, að sel þyrfti að ófriða i
Ölfusá, og skýrt frá tekjumissi, sem sel-
veiðendur biði við það.
Mælt var með Guðmundi ísleifssyni og
Magnúsi Guðmundssyni til konungsverð-
launa, og með 22 bændum til Ræktnnar-
sjóðsverðlauna.
Sem mentamdl má nefna sjómannakenslu.
Til hennar næsta ár var veitt alt að 6U kr.
I þetta sinn var styrkurinn ekki notaður upp.
Helzta heilbrigðismál var, að Grafn-
ingsmenn óskuðu, að sin sveit legðist til
Eyrarbakkalæknishéraðs. Var lagt til, að
svo yrði, þar eð ástæður þóttu brýnar.
Gjöld sýslusjóðs eiu kr. 5592,31. Þar af
jafnað niður kr. 4800,00.
Hlutabankaráðið
lauk fundi sínum í fyrra dag.
Erindrekastofu þá í Kaupmanna-
höfn, er bankareglugjörðin gerir ráð
fyrir, vildi það ekki hafa að svo stöddu,
heldur láta Prívatbankann annast þau
störf, og reyna, hvernig það gæfist.
J>ó er sagt, að bankastjórnin hafi tal-
ið hitt ómis8andi þegar í stað.
Sparisjóðsinnlögum var f ráði að
hlutabaukinn tæki við bæði hér og á
útbúunum. En nú kvað eiga að eins
að gera það á útbúunum, en ekki hér.
Bankarnðinu hefir þótt óþarfi að vera
að draga neitt frá Landsbankanum
þann veg; hann mætti ekki af þeim
missa.
Tryersvi kongur, kapt. Emil Nielsen,
fór til Vestfjarða 8. þm. að morgni. Með
þvi fór til Isafjarðar Ásgeir kaupmaður
Sigurðsso í snöggva ferð og ýmsir farþegar
aðrir.
Sigling. Uér kom 5. þ. m. kaupfarið
Marthing (142, Friis) frá Alaborg með
sementsfarm til .Tes Zimsen kaupmanns; og
7. Ino (1.0, H. Weber) frá Khöfn með
alls konar vörur tii Thomsens magasins.
Með póstffufusk. Vestu, kapt. Gott-
fredsen, sem lagði á stað í gær vestur um
land og norður t<l útlanda, tók sér far
Páll Briem amtmaður til Akureyrar, Skúli
Thoroddsen alþingismaður til Isafjarðar,
og ýmsir hinir sömu aftur, sem komu um
daginn — samtals fjöldi farþega.
FERÐATÖSKUR
í verzlun
GtiscJiars.
Uppboðsauglýsing.
Samkvæmt beiðni Guðmundar Ey-
ólfssonar bónda í Eflíð í Garðahreppi
verður opinbert uppboð haldið sama-
Btaðar mánudag 16. þ. m., sem byrjar
kl. 12 á hádegi, og þar seldir ýmsir
lausafjármunir, þar á meðal 5 hross
(2 hestar fullorðnir, 2 hryssur og 1
trippi).
(Jppboðsskilmálar verða bírtir á upp-
boðsstaðnum.
Garðahreppi 7. maí 1904.
Einar f>orgilsson.
Til leigu ftá 14. maí 1 loftherbergi
fyrir litla fjölskyldu með góðu geymslu-
plássi. Ritstj. vísar á.
Piltnr, sem er vanur skrifstörfura, vill
fá atvinnu. Kaupið mjög lágt. Hann er
að hitta á Smiðjustíg 7.
Koramóður og rúmstæði úr þurru og
vönduðu efni t'æst keypt í Grjótagötu 9.
Tii 20 mai n.k. fást með niðursettu
verði alla vegana borð, skrifborð, stofuborð,
blómsturborð, borð sem vanalega kosta 12
kr. nú aðeins 8 kr. Kommóður rúmstæði
barnastólar ferðakúfort. Alt tiltölulega
jafn ódýrt. Ritstj. vísar á seljanda.
Uppboðsauglýsing.
Mánudaginn 16. þ. m. verður opin-
bert uppboð haldið á Laugaveg nr. 61
og þar seldur rúmfatnaður, stofugögn,
eldhúsgögn, bækur o. fl., tilheyrandi
dánarbúi Björns þorlákssonar frá
Varmá.
Söluskilmálar verða birtir á uppboðs-
staðnum á undan uppboðinu.
Bæjarfógetinn í Bvík 11. maí 1904.
Halldór Daníelsson.
Gufuskipafélagið „Thore“.
•Kong Trygve* Ú að fara héðan til Vestm.eyja, Eskifjarðar og útlanda
(Leith og Kaupm.hafnar) á miðvikudaginn þ. 18. maí-
Fargjald til Khafnar í 1. farrými . . . 65 kr.
matur á dag .... 2,50
--- — --- í 2. farrými ... 45 kr.
matur á dag .... 1,50
Skipið á að hitta annað skip frá félaginu á Eskifirði, og er það skip á
leið norður til Siglufjarðar í 7 ferð.
Ymsir munir
úr g u 11 i og 8 i 1 f r i, ekta og óekta,
sérlega hentugir til
c7crmingargjafa.
Hvergi jafn-ódýrir og laglegir sem í
Aðalstræti nr. 10.
Fyrirlestur um skóggræðslu-
málið heldur caod. C. E. Flensborg
á laugardaginn d. 14. maí kl. 9 síð-
degis í Iðnaðarmannahúsinu. Ljós
myndir af íslenzkum skóglendum verða
sýndar. — Allir velkomnir.
Sundmagi
vel verkaður, er keyptur fyrir peninga
í verzlun
B. H. Bjarnason.
Yandaður
ódýrastur
Aðalstræti 10.
Ódýrasta og stærsta
felié
Ipl i effi
leira.
Gegn peningum og eins með fyrir-
frampöntun sel eg lyrst um sinn á-
gætt
Skips-margarine
á 36 kr. 50 aur. pr. 100 pd.
SjSp- Sýnlshorn er fyrir hendi.
c3. cV. Jíjarnason.
Bezt kaup
Skófatnaöi
í
Aðalstræti 10.
er bezt að kaupa á Lauga-
vey 11.
I\/i JX gufuskipinu »Esbjerg«
iYlvU eru komnar ýmsar vörur
úr nikkel og silfurpletti, allar gerðar
eftir nýjustu tízku, mjög smekklega
valdar, og sérstaklega endingargóðar.
Mjög hentugar
T ækifærisgjafir
enda ódýnri en alment hefir gerst;
áður.
Aðalstræti 10.
af öllu tagi t. d.
Laxastengur
Silungsstengur
Færi, Kastlínur, Önglar.
Patrónubelti,
Veiðistólar,
Hlaðnar patrónur, Patrónuhylki, Púður,
Högl, Knallhettur o. fl.
er fjölbreyttast Of? ódýrast
í verzlun
B. H. Bjarnason.
Reiðhestur af húnvetnsku kyni er til
sölu; upplýsingar fást í Vesturgötu 27.
Tapast befir gult umslag með skjöl-
um i; er finnandi vinsamlega beðinn að
skila því gegn fundarlaunum til Jónasar
Guðlaugssonar i Mjóstræti 10.
Til leigu er frá 14. maí kvistherberg-
ið á Laugaveg 5; semja má við Jón Jónas-
son, Ingólfsstræti 6.
Morskúms munnstykki hefirtapast,
óskast skilað í afgr. Isaf. gegn fundarlaun-
um.
Ritstjóri Björn JóriKson.
IsafoldarpreutsmiOiii