Ísafold - 21.05.1904, Page 2
126
Um
Laxárbrúarmálið o. fl.
eftir
Kjartan Helgason próf. i Hvammi
°g
Torfa Bjamason skólastj. í Olafsdal
/Skýrsla um fuud Yesturamtsráðsius
25. júlí f. á. er prentuð í Stjórnartíð.
1903 B-deild bls. 190—208. Sýslu-
reikningarnir úr Dalasýslu eru þar
fyrirferðarmestir. þeir höfðu legið fyr-
ir fundinum þrefaldir í roðinu (fyrir
árin 1900, 1901 og 1902) með allmikl
um athugasemdum; sérstaklega hafði
reikningurinn yfir kostnað við Laxár-
brúna valdið miklum glundroða. Um
hann og fleira, sem snertir reikninga
Dalasýslu, hafði verið þjarkað nærri
heilt ár við amtmanninn. Amtmaður
þurfti þvf að gefa fundinum skýrslu
til þess að greiða úr þessari reikninga-
flækju. Og hann gerði það líka á
Binn hátt. Skýrsla hans er tekin upp
í fundargerðirnar. J>ar er sagt frá
umkvörtunum þeim, sem komið hafa
frá nokkurum sýslunefndarmönnum í
Dalasýslu, yfir reikningsfærslu sýslu-
manns þeirra. En frá því er sagt á
þann hátt, að ókunnugir menn hljóta
að fá alveg ranga hugmynd um málið,
ef þeir lesa fundarskýrsluna eina og
trúa henni. Við neyðumst því til að
bæta þar við nokkrum athugasemdum,
sórstaklega vegna amtsráðsfundar-
mannanna, sem nauðsynlega þurfa að
þekkja meira en aðra hlið málsins.
I.
Fyrsta kæran (18. júlí 1902)
út af reikningsfærslu sýslumannsins
kom til af því, að hann hafði gert
sýslusjóði reikning fyrir 13 krónum
fyrir hverja tunnu af sementi því,
sem fór í Laxárbrúarstöplana og keypt
var hjá verzluninni í Búðardal. En
verzlunarstjórinn skýrði frá því, að
verðið hefði verið 11 kr. Sýslumaður
gerði amtmanni (og >þjóðólfi«) grein
fyrir því, hverníg á þessari skekkju
Btæði: Verzlunin hafði fyrst gefið
sýslumanni reikninp fyrir sementinu á
13 kr. (reikningsverð), en veitt svo af-
slátt eða uppbót á eftir (gegn peninga-
borgun). Erá þ e s s u hefir amtrnað-
ur skýrt amtsráðinu, og er svo að
heyra sem honum þyki kæran hafa
verið óþörf og finni ekkert athugavert
við aðferð sýslumannsins að því er
sementskaupin snertir. Sýslumaður
blandar reikningum sýslunnar saman
við sinn eiginn reikning, pantar í sam-
einingu sement til Laxárbrúarinnar og
fjósbyggingar heima hjá sér, setur svo
á brúarreikninginn það af sementinu,
sem dýrast reynist, lætur sýslunefnd-
ina ekkert vita um þann afslátt, sem
hann fekk, á sementsverðinu, fyr en
hann hefir verið kærður. Sementið er
keypt árið 1900. f> ó a ð sýslumað-
ur hefði ekki það árið fengið að vita
um afsláttinn, var bonum þó tilkynt
bréflega af verzlunarstjóranum, hve
mikla uppbót hann fengi, á ð u r en
hann samdi sýslureikninginn fyrir 1901,
svo að þar hefði mátt taka uppbótina
til greina, ef bréfið hefir komist til
skila. En þ ó a ð það hefði glatast,
þá hafði þó sýslumaður fengið við-
skíftareikning sinn frá verzluninni fyr-
ir árið 1901 — þar sem uppbótin er
tilfærð — á ð u r en bann hélt aðal-
fund sýslunefndarinnar 1902. Sá fund-
ur neitaði að samþykkja sýslureikning-
inn 1901 vegna útgjaldanna til Lax-
árbrúarinnar. |>á hefði sannarlega leg-
ið beint við, að sýslumaður skýrði frá
uppbótinni, svo að hún yrði tekin til
greina í áætlun um tekjur og gjöld
næsta árs; það hefði verið hrapalleg
gleymska af honum, að muna ekki eft-
ir því þ á, þegar hann var að reyna
að fá sýslunefndina til að samþykkja
reikningana, en henni ofbuðu útgjöld-
in. Og enn þá brýnna tilefni hafði
hann til að muna það skömmu síðar
— á aukafundi sýslunefndarinnar, því
að þann fund kallaði sýslumaður sam-
an eingöngu til þess að tala um Lax-
árbrúna, og sýna fram á, að hann
þyrfti meira fé til hennar. Sýslunefnd
in veitti þá eftir beiðni hans 700 kr.
í viðbót til brúarinnar. Sú fjárveit-
ing hefði ef til vill orðið einu hundr-
aði minni, ef þá hefði ekki e n n
g 1 e y m s t að skýra frá uppbótinni,
eða hinu sanna verði sementsins.
Sýslumaður rumskaði ekki, fyr en
amtmaður fór að ýta við honum út
af kærunni.
í kærunni er þess getið, að sýslu-
maður hafi talið verðið á hverri sem-
entstunnu 14 kr. í reikningi þeim
yfir brúarkostnaðinn, er hann sendi
landshöfðingja til þess að fá útborg-
aðan landssjóðsstyrkinn, sem ekki
mátti vera meiri en J/3 af öllum brú-
arkostnaðinum. Amtmaður segir, að
þessi reikningur sé >eigi neinn reikn-
ingur, heldur öllu fremur áætlun«, og
ber landshöfðingja fyrir því, að það
hefði engin áhrif haft á útborgun
styrksins, hvort verð sementsins væri
talið 11 eða 14 kr. Skjalið, sem
amtmaður vill ekki kalla reikning,
heldur áætlun, er á þessa leið:
Beikningur
yfir kostnað við brúargerð á Laxá.
64 tn. af sementi á
14 kr kr. 896 00
Vinna við brúarstöpl-
ana sumarið 1900 ... — 1425 37
Vinna við brúarstöpl-
ana sumarið 1901 ... — 540 001
(340 00)
Viður í brýrnar ... — 1280 001
(1100 00)
Járn — 425 00
Smíði — 300 00
Flutningur á efni að
brúarstæðinu — 80 001
(50 00)
Að fletta trjám í gólf
brúnna — 54 00
5000 37
|>e8si upphæð er &ð öllu borguð.
Við þetta bætist:
1. 1 tré 22 feta langt c. kr. 25 00
2. Elutningur á viðum . — 35 00
3. Eyrir járn sem skemdistc. — 25 00
4. Eyrir að endursmíða
það, sem brotnaði, og
koma brúnni á, c. . . . — 200 00
285 00
Skrifstofu Dalasýslu 4. des. 1901.
Björn Bjarnarson.
>J>essi upphæð er að öllu
b o r g u ð «, segir sýslumaður í reikn-
ingi þessum; en amtmaður segir: það
er áætlun, og gefur með því í skyn,
að ekkert geri til, þó að krítað sé lið-
ugt. Satt er það, að viðbótin — 4
síðustu liðirnir — er áætlun, og hefir
enginn fett fingur út í hana. En 8
fyrstu liðirnir, að upphæð kr. 5000 37,
er reikningur — rangur reikningur.
Verðið er of hátt á sumu, og við einn
liðinn er bætt kostnaði, sem brúnni
kom ekki við. Of langt mál yrði að
sýna fram á það hér, hve mikið er of-
reiknað, enda gætum við það ekki ná-
kvæmlega; en það getum við fullviss-
að amtmanninn um, að ef alt, sem of-
reiknað er, væri dregið frá, þá yrði
ekki eftir 5100 kr.; en það þurfti upp-
hæðin að vera til þess að allur lands-
sjóðsstyrkurinn (1700 kr.) fengist.
í bréfi til amtsins, dags. 19. ág.
1902, gerir sýslumaður grein fyrir því,
hvers vegna hann telji verðið á sem-
1 Neðri talan hefir fyrst verið skrifuð,
en efri taian skrifuð ofan í hana.
entinu svona hátt, 14 kr. á tunnu, 1
krónu hærra en hann telur það í
sýslureikningnum. Hann segir, að því
valdi pakkhúsleiga o. fl. Og á sýslu-
nefndaríundi 1903 sýndi hann til sann-
indamerkis kvittun fyrir pakkhúsleigu
árin 1900 og 1901, að upphæð 30 kr.
Sumum sýslunefndarmönnunum þótti
þetta tortryggilegt, því að þeir vissu,
að sementið hafði ekki í hús komið,
tóku því afskrift af kvittuninni, sendu
hana þeim manni, er kvittunina hafði
gefið, og beiddu hann um skýringu.
Kvittunin, sem sýalumaður sýndi, var
þannig:
Björn sýslumaður Bjarnarson hefir
greitt mér í pakkhúsleigu fyrir árið
1900 20— tuttugu —kr. og fyrir árið
1901 10— tíu — krónur.
Beykjavík 8. ág. 1902
Guttormur Jónsson.
En skýringin, sem við fengum, var
þannig:
Eg undirskrifaður votta hér með að
gefnu tilefni, a ð það sem sýslumað-
ur Björn Bjarnarson á Sauðafelli borg-
aði mér í pakkhúsleigu fyrir árin 1900
og 1901 og eg kvittaði fyrir í Beykja-
vík 8. ágúst 1902, var ekki fyrir
geymslu á sementi því, er brúkað var
til Laxárbrúarinnar, heldur fyrir
geymslu á ýmsum öðrum vörum, og
a ð ekkert af sementinu var geymt
í húsi því, er eg hafði umráð yfir,
nema ef vera skyldi 3 eða 4 tunnur
síðara árið.
p. t. Beykjavík 2. júlf 1903.
Guttormur Jónsson.
Á síðasta sýslunefndarfundi lagði
sýslumaður fram reikning yfir kostn-
að við Laxárbrúna frá upphafi, en þá
var pakkhúsleigukvittunin horfin úr
fylgiskjölunum, og engin pakkhúsleiga
talin til brúarkostnaðar.
II.
Eyrstu kærunni út af sýslureikning-
unum 1900 svaraði amtmaður 15. sept.
1902, og gat þess í svari sínu, að >álit
manna um, að hitt eða þetta hafi ver-
ið of dýrt sett«, geti ekki framar kom-
ið til greina, þar sem reikningarnir
væru saraþyktir af amtsráði og sýslu-
nefnd. Nokkrir (5) sýslunefndarmenn
skrifuðu þá amtmanni aftur og færðu
gild rök fyrir því, að nauðsynlegt væri
að endurskoða sýslureikningana 1900
af nýju. Amtmaður lét þá undan, og
sendi einum nefndarmanninum reikn-
ingana með þeim ummælum, að þeir
skyldu lagðir fram á næsta sýslufundi
til rannsóknar, en ekbi opnaðir fyr.
Eftir nokkra rekistefnu leyfði þó amt-
maður loks, að reikningarnir væru end-
urskoðaðir á venjulegan hátt af hinum
bosna endurskoðanda sýslureikning-
anna.
Helztu aðfinningarnar út af reikn-
ingunum fyrir árið 1900 voru fjórar,
og hefir amtmaður skýrt frá þeim á
amtsráðsfundinum, sagt álit sitt um
þær og að nokkru leyti haldið uppi
vörn fyrir reikningshaldara. Við skul-
um nú minnast á þessar aðfinningar
og afsakanir, hverja fyrir sig.
ífyrsta lagi er fundið að þvf,
að reikningarnir voru ekki löglega end-
urskoðaðir. Sýslumaður hafði sjálfur
valið sér endurskoðanda, annan en
þann sem sýslunefndin hafði kosið.
Amtmaður afsakar það með því, að
>aérstaklegar kringumstæður hefðu ver-
ið fyrir hendi«. En ekki getur hann
um, hverjar þær voru. Kunnugir menn
hér vestra þekkja þær ekki, nema ef
vera skyldu þær, að sýslumanni hafi
í þetta sinn verið >sérstaklega« óþægi-
legt, að fá sýslureikningana rækilega
endurskoðaða. Frjálslyndi er það ó-
neitanlega af amtmanninum gagnvart
sýslumanni, að taka ekki hart á því, þó
að hann brjóti lögin og velji sér sjálfur
endurskoðanda; en óþægilegar afleið-
ingar g e t u r það haft fyrir sýsluna,
þvf að erfitt er fyrir sýslunefndina á
fundum — í litlum húsakynnum og
á mjög takmörkuðum tíma — að end-
urskoða reikninga rækilega, einkum
þegar þeir eru jafn illa úr garði gjörð-
ir og venja er um sýslureikninga Dala-
sýslu. Auðséð var það í vetur sem
leið, að sýslumaður Dalamanna þekkir
frjálslyndi yfirmanna sinna, og kann
að nota sér það. Amtsráðið skipaði
svo fyrir á síðasta fundi, að sýslumað-
ur skyldi semja reikning yfir allan
kostnað við Laxárbrúna í einu lagi og
senda hann ‘endurskoðanda fyrir 1.
febrúar í vetur. Svona ófrjálslegri
skipun gat sýslumaður ekki verið að
hlýða, heldur lagði hann Laxárbrúar-
reikninginn óendurskoðaðan fyr-
ir sýslufundinn í vor — sjálfsagt í von
um sama frjálslyndið sér til handa sem
að undanförnu. — Geta má nærri,
hvernig sýslunefnd og hreppsnefndum
gengur að fá þennan sýslumann til að
gegna skyldu sinni, þegar amtsráðinu
með aðstoð amtmanns gengur það ekki
betur en þetta.
A n n a ð kæruatriðið var það, að
Dalasýslu eru taldar til útgjalda árið
1900 200 kr. til skóla í BúðardaL
Sýslunefndin hafði heitið þessum styrk
til þess að hvetja til skólastofnunar;
en varla hefir hún ætlast til, að fénu
yrði eytt fyr en einhver Bkóli væri
stofnaður. Nú var enginn skóli til £
sýslunni árið 1900, og ekki fyr en
haustið 1901. þá var farið fram á
það við sýslumann, að hann léti þetta
fé af hendi rakna til skólans; en hann
neitaði því (skriflega). í amtsráðs-
fundargjörðunum stendur, að amtmað-
ur hafi >löngu áður en kæran kom
fram gjört ráðstafanir til þess að kom-
ast fyrir um«, hvernig á þessu stæði.
Já, amtmaður skrifaði sýslumanni 18.
marz 1902 og heimtaði skilagrein fyrir
þessum 200 kr„ beið svo eftir svari
til 13. sept., skrifaði þá aftur og bað
um svar, en fekk enga áheyrn. Frá
þe8su hefir amtmaður sagt okkur sjálf-
ur í embættisbréfi 28. okt. 1902 og er
þá að ráðgera að skrifa sýslumanni í
þriðja sinn um skólapeningana Eftir
alla rekistefnuna komu peningarnir í
ljós. Haustið 1902 fekk Búðardals-
skólinn áhöld. Sýslumaður hafði keypfc
þau þá um sumarið fyrir sýslusjóðs-
tillagið, sem hann hafði trúlega geymt
í vasa sínum f 2 ár. Ekki lætur
amtmaður þess getið í fundarskýrslu
sinni, hvað sýslumaður hafi haft sér
til afsökunar í þessu efni, og við skul-
um þá gjöra honum það til geðs, að
þegja um það líka.
í þ r i ð j a 1 a g i var sýslumaður-
inn kærður fyrir það, að hann telur
55 tn. af sementi til kostnaðar við
Laxárbrúna 1900, en brúkaði ekki
nema 51 tn. Amtmaður segir í fund-
arskýrslunni: »Um sementsnotkun-
ina 1900 segjast kærendurnir hafa
skilríki í höndum, en þau eru enn
ekki fram komin. Sýslumaður lýsír
því aftur á móti yfir, að sá maður,.
sem álitið hafi, að aðeins hafi verið
notuð 51 tn„ geti erigi sagt neitt um
þetta með vissu«. Skilríkin, sem við
höfðum í höndum, þegar við skrifuð-
um amtmanni um þetta, var dagbók
verkstjórans. J>að er satt, að við
höfum ekki sent amtmanni hana, enda
hefir hann ekki farið fram á það.
Við héldum líka, að sú skylda hvíldi
á reikningshaldara, að sanna, hve
miklu hann hefði eytt, en að tæpast
Bé heimtandi af sýslunefndinni að hún
sanni, hve miklu hann hafi ekki
e y 11. — Fullkomin sönnun verður
það ef til vill ekki talin, sem verk-
stjórinn segir um þetta; en það er þó
eina sönnunin, sem til er, fyrir því,.
hve mikið af sementi fór í brúarstöpl-