Ísafold - 01.10.1904, Page 2
254
ungur sœmt hann kommandörkrossi
dannebrogsoiðunnar (II). •
Störf landfógetaembættisins hefir
Landsbankinn tekið að sór aðallega og
gegnir þeim sérstaklega V. Claessen
kaupmaður frá Sauðárkrók.
Heiðurssamsæti
hóldu Akureyrarbúar E i n a r i rit-
stjóra Hjörleifssyni að kveldi
kosningardagsins 10. f. m., og tóku þátt
í því 40—50 manns. AðalræSuna fyrir
heiðursgestinum flutti héraðslæknir
GuSm. Hannesson. Auk hans töluðu
Mattías Jochumsson, Stefán Stefáusson
kennari, Páll amtm. Briem o. fl. Viku
áður höfðu templarar bæjarins haldið
þeim hjónum skilnaðarveizlu.j (Norðurl.).
Bangarvallasýsla
er veitt Einari Benedikts-
syni yfirréttarmálfærslumanni frá 1.
þ. mán. Hann leggtir á stað austur í
dag. Hann ætlar að setjast að á
Helluvaði, við Rangá ytri.
Bátstapi og manntjón.
Bátur fórst nærri lendingu við Málm-
ey á Skagafirði 25. ágúst í sumar og
druknuðu 5 menn af 8, er á honum
voru; 3 var bjargað af kili. Báturinn
var frá Grafarós, í fiskiróðri. Formað-
ur hét Þórður Baldvinsson frá Grafarós.
Allir voru skipverjar þar af Höfða-
ströndinni. Einn var faðir formannsins,
Baldvin Gottskálksson, maður á níræð-
isaldri; hitt unglingspiltar.
Heklnmönnum
var haldið danzveizla, yfirmönnunum,
fyrra laugardagskveld, í Bárubúð.
Hin nýja skólareglugerð
fyrirhugaða er ókomin enu; kvað
vera væntanleg með Laura í næstu viku.
Þó á að haga kenslu í 1. bekk þegar
eftir því sem ætlast er til í henni.
Rektor og kennarar við latínuskólann
hafa lagt það til, að hætt verði nú
þegar við daglega vitnisburði í skólan-
um. Gengið er að því vísu, að stjórn-
in muni samþykkjast því.
Heiðurssamsæti
héldu margir Reykvíkingar G u ð-
1 a u g i sýslumanni G u ð m u n d s-
s y n i í gærkveldi í Iðnaðarmannahús-
inu, að skilnaði við burtför hans til
Norðurlands. Þar töluðu auk heiðurs-
gestsins Björn Jónsson ritstjóri, Harald-
ur Níelsson cand. theol., Einar ritstjóri
Hjörleifsson og stúdent Benedikt Sveins-
son.
Ceres biluð.
Það er hætt við að Ceres seinki eitt-
hvað í þessari ferð hingað. Hún hafði
orðið fyrir því áfalli á Seyðisfirði um
daginn hingað i leið, er hún lá þar við
bryggj u ásamt Hólum, að strengur
flæktist um skrúfuspaöana, er hún ætl-
aði á stað, og kyrsettist hún fyrir það,
en skipstjóri sendi eftir köfunarmanni
suður á Fáskrúðsfjörð til þess að rann-
saka, hvað að væri. Til þess var búist
við að færi 2—3 dagar. En þar við
bætist tími til aðgerðar, ef þess hefir
við þurft. Líklegra talið þó, að svo væri
ekki, eða þá sízt sem neinu næmi.
Frá útlöndum
hafa engin veruleg tíðindi borist
þessa viku, hvorki af ófriðinum né öðru.
Nær 18,000 er nú talið að Japanar
hafi mist í stórorustunni við Líaó-yang,
en Rússar 25,000, þar á meðal hers-
höfðingja sinn einn, Mishtshenko.
Þeim Viktor Emmanuel konungi á
Italíu og drotning hans (Helenu) fæddist
sonur 16. f. mán. Hann er beitinn
Umberto, eftir afa sínum, og kallaður
prinz af Piemont.
Bæjarstjórn Reykjavíkur veitti á
ankafundi 21. f. mán. 91 barni kauplausa
kenslu i barnaskólanum í vetur, og 5ð börn-
um helmings eftirgjöf á skólagjaldi
Skólaneínd tilkynti, að hún befði leyft
ungfrú Ingibjörgu Guðbrandsdóttur afnot
leikfimishússins með tilteknum skilyrðum.
Kosinn nýr maður í nefnd þá, er á að
sjá um girðing Austurvallar, í fjarveru Sig.
Thoroddsen. Það varð Halldór Jónsson,
eftir hlutkesti milli hans og 3 bæjarfulltrúa
annarra.
Frfðafestulöud. Þessi erfðafestulönd
veitti bæjarstjórn Reykjavikur á fundi 15.
f. mán.
Magnúsi Blöndal um 4 dagsláttna land
norðaustan við Hafnarfjarðarveg 10 álnir
frá honum upp af landi Jóh. T. Egilssonar,
50 fðm. meðfram veginnm, en austur og
norður að vegi, er liggur upp eftir mýrinni,
gegn 8 álna gjaldi eftir dagsláttuna.
Gnðmundi Kr. Eyólfssyni nm 4 dagsl.
meðfram sama vegi ofar og austar, 10 áln.
frá honum, 40 fðm. meðfram veginum og
áfast við land M. Bl. og norður að sama
raýrarvegi, gegn 7 álna gjaldi eftir dagsl.
Guðmundi Jakobssyni 10 dagsl. land
sunnan Eskihlíðar, samkvæmt uppdrætti, er
beiðninni fylgdi, gegn 6 álna gjaldi eftir
dagsl.
Ólafi Stefánssyni um 4 dagsl. i Rauðar-
árdal sunnan og austan við Sigurlaugar-
stíg og sunnan og vestan við erfðafestuland
þeirra Hannesar Thorarensen og Jóns Jak-
obssonar, gegn 8 álna gjaldi eftir dagsl.
HjálpræðÍ8bernum nær */» dagsl. í við-
bót við erfðafestuland hans á Melunum,
gegn 5 álna eftirgj.
Með Hólum komu austan að í fyrra
dag fjöldi kaupafólks og ennfremur Þor-
grímnr læknir Þórðarson á Borgum.
Frú Thore-félagi kom 26. f. mán.
gufuskip Elisabeth með ymsar vörurn frá
Khöfn og Leith. Farþegi Haraldur stúdent
Sigurðsson.
Við Flensborííarskólann er ráðinn
kennari i stað Jóhannesar Sigfússonar sira
Magnús Helgason á Torfastöðum og tek-
ur við þvi starfi í dag. Uppgjafaprestur
sira Stefán Sephensen þjónar brauðinu fyr-
ir nann í vetnr. Hann hugsar til að segja
því lausu frá næstu fardögum.
Fyrir Stokkseyrarbrauði hefirsíra
Stefdn M. Jónsson á Auðkúlufengiðkon-
ungsveitingu, eftir kosningu safnaðanna.
VeðurathuKanir
i Reykjavík, eftir Sigríði Björnsdóttur.
1904 I? 3-’ >- <1 ct> ox p œ w p 3 <3 3. •-t — pf 1|
sept. 3 < p O QTQ ■p ET 8 c* -JQ 3 3 | Q g
Ld 17.8Í742.9 10,7 E 1 9 11,0
2 743,8 11,4 E 2 10
9 743,5 10,7 NE 2 6
Sd 18.8 746,6 7,4 E 1 8 8,7
2 743,3 9,6 ESE 1 10
9 743,6 8,7 E8 1 5
Mdl9.8 753,2 7,7 8 W 1 5 6,0
2 755,5 10,6 8 1 7
9 757,3 7,2 8E 1 4
Þd 20.8 759,3 6,7 8E 1 8 6,7
2 760,0 11,0 88E 1 6
9 759,2 9,7 E 1 10
Md21.8 755,9 8,3 E 2 10 3,5
2 753,5 11,0 8E 2 10
9 754,8 9,8 8E 1 10
Ed22.8 762,2 6,6 SW 1 7 17,9
2 765,9 9,4 W8W 1 9
9 769,4 8,4 0 5
Fd23. 8 767,4 763,3 6,7 8E 2 10
2 9,9 8E 2 10
9 760,0 10,0 SE 1 10
Kálmeti,
svo sem:
Hvítkúl. — Rauðkúl. — Selleri. —
Piparrót, — Rödbeder. — Gulrætur,
fse eg nú með »LAURA«
Jes Zimsen.
Nýkomiö:
Kolaköriur.
Brauðhnífar.
Ullarkambar.
Steinolíumaakínur 3-kvaikj.
Leirkrukkur af ýmsum atærðum
o. m. fl. í verzlun
________H. P. Duus.
Höfuöboekur
og fleiri reikningsbækur ótrúlega ódýr-
ar í bókaverzlun ísafoldarprentsmiðju.
Viöskiftabækur
(kontrabækur), margar tegundir, afar
ódýrar, fást í bókverzlun ísafoldar.
CyóuBlöé
undir fylgiskjöl með hreppareikningum
fást í bókverzlun ísafoldar prentsmiðju:
(um eftirstöðvar sveitarsjóðs, um tíund
af fasteign og lausafé, endurgjald fr.
þurfamenn annara sveita, lagt þurfam.
annara sveita, vottorð um sektir,
kvittanir fyrir meðíögum o. s. frv.
samtals 14 eyðubl.).
Brent °§ malaö
Kaffi
bezt í verzlun
H P. Duus.
Ókeypis fæði getur vandað og
þrifið skólabarn (stúlka 10—15 ára)
fengið í vetur á góðu og fámennu
heimili nálægt barnaskólanum. Nafn
og heimili barnsins (*g helzt mynd af
því) sendist í lokuðu bréfi, merktu
»8kólabarn«, til ritstj. þesaa blaðs, sem
allra fyrst.
Nýkomið með »Vesta« í Veltu
aund nr. 1 alls konar hálslíll
og alt því tilheyrandi. Ullar-
nærfatnaður (normal) handakörlum,
kouum og börnum. Náttkjólar marg.
teg. Bolhlífar. Sokkar. Hvítar og
misl. milliskyrtur og margfc fl.
Kristín Jónsdóttir.
Stórt úrval. Lágt verð, hjá
Jónatan Þorsteinssyni
Laugaveg 31.
Gjörið svo vel og skoðið.
DNDIRSKRIFAÐUR hefir gert ráð-
stafanir til að fá þá beztu sauði
aem fáanlegir eru í Borgarfjarð-
ar- Árnes- og Rangárvallasýslum
og koœa þeir aðallega á tímabilinu frá
10.—25. október og verður þeim slátr-
að í hinu nýja slátrunarhusi mínu á
Móakotslóð, af beztu slátrurum þessa
bæjar. Pöntunum verður tekið á
móti í kjötsölubúð minni.
Einnig verður slátrað fé fyrir þá er
þess óska, þegar því verður við kom-
ið, og keyrt heim til þeirra fyrir sann-
gjarna borgun.
þar verða og kvenmenn til að taka
á móti slátri og þvo það, og eunfrem-
ur verða sviðin höfuð og fætur fyrir
þá er þess óska.
Byrjað verður að slátra í alátrunar-
húsinu næstk. raánudag 3. okt.
Rvík 30. sept. 1904.
Jón Þóröarson
kaupm.
Skólatöskur
stórt úrval og ódýrt hjá
Jónatan |>orsteinssyni.
Laugaveg 31.
LAMPAR
áreiðanlega
ódýrastir
1 verzlun
G. Zoéga.
mikið úrval af vel vönduðum og ódýr-
um fatnaði í verzlun
J. J. Lainbertsens
Aðalstræti 9.
Bezt kaup
Skófatnaöi
í
Aðalstræti 10.
Ábypgðapfélagid
MUNDUS
(danskt hlutafélag) tekur að sér:.
Barnatrygging
(Útborgun í lifanda lífi eptir ákveðino
árafjölda; deyi barnið áður, endurborg-
ast öll iðgjöld, nema hið fyrsta; deyi
sá sem tryggir barnið, þarf eigi lengur
að borga iðgjöld, en tryggingin gengur
aamt sem áður eigi úr gildi).
Lifsábyrgð.
Lífrentur.
LæknisYOttorð eigi nauðsynleg.
F.f þess er óskað, kaupir félagió
ábyrgðirnar eptir 3 ár, og veif.ir mönn-
um lán út á ábyrgðarskírteini.
Bonus fimta hvert ár.
Aðalumboðsmaður fyrir Island:
Cand. jur. Eggert Claessen.
Reykjavík.
E3 er aítið öen 6eóste.
Nýr kutter
Hákarlinn
með 8 hesta steinolíuvól (Friðrikshafn-
arvél), er til sölu með góðu verði, ef
samið er fyrir 10. okt. næstk.
Gufubáturinn GfRIM, ágætur flutn-
ingabátur, er einnig til sólu.
Dvergasteini við ísafjarðardjúp.
P. Herlofson.
Ágætt orgel, hér nm bil nýtt, til sölu
nú þegar, með góðam horgunarskilmálum.
Ritstj. vísar á.