Ísafold - 22.10.1904, Blaðsíða 3
275
j
i Ánana»8tum oj; Arintijiiin Sveinbjainar-
son bókbindari.
Samþyktar voru bruiiabótavir5ingar á þess-
um húseignum: Siggeirs Torfasonar kaup-
manns við Laugaveg iti. 811 kr.; erfingja
Kristinar Bjarnadóttur við Lækjargótu
12,506; Jónatans Þorsteinssonar við Vatns-
stig 12,239, og sama manns við Laugaveg
4,445; Jóns Sveinssonar við Templarasuud
11,099; Þorsteins Egilssonar við^Vesturgötu
4,984; Ólafs Magnússonar við Skólavörðu-
stig 2457; Jóhannesar Cruðmundssonar við
Njálsgótu 2,239; Einars Eiuarssonar i Há-
holti 2158; geymsluhús Jiirgens k’órðar-
sonar við Spítalastíg 576, og llelga Jóns-
sonar við Bókblöðustíg 560.
Konungkjörið þingmannsefni.
Jón Ólafsson ber ekki á móti því,
að bann eigi að verða konungkjörinn
þingmaður, og þrætir ekki fyrir, að hann
viti um það. Bn það segir hann sé
lygi, að hann liafi nokkrum maunifrá
þu' sagt sjálfur. Hann mun og lík-
lega ekki hafa gert það í votta viður-
vist. Auk þe88 muna ekki allir ætíð
alt, sem þeir segja.
Gufub. Oddur fra.
Hann rak á laud í Járngerðarstaða-
vík í afepyrnuroki sunnudag 9. þ. m.
og bilaði svo, að hann mun vera al-
veg frá. Hefir þó ekki verið dæmdur
óhaffær, með því að ábyrgðarfélag það,
er hann hafði vátrygt, hefir bannað
að gera það um sín skip fyr en það
veit af. Gufuvélin hafði verið óskemd,
er slysið varð. Eu skrokkurinn dæld-
aður mjög og jafnvel gat á. Hann
stendur hér um bil á þurru; rak það
langt upp í brimi dagmn eftir. Mönn
um var bjargað úr honum áður en
hann fór að reka til muna.
Kirkjumálanefndin
sat hér á ráðstefnu, eins og fyr hef-
ir verið frá skýrt, frá því í áliðnum
ágústmánuði og þangað til viku af þ.
mán.
Hún hefir þó hvergi nærri lokið starfi
sínu, ætlar að halda áfram í vor
fyrir þing og hugsar ekki til að verða
búin fyr eu 1906. Hún á eftir að
ræða skipun prestakalla og launamál
presta, fjárhald kirkna, um prestsetr-
in og hýsing þeirra, m. m.
Mlsllngar
eru kviknsðir aftur á ísafirði og
komnir þar í nokkur hús, eða voru
nú fyrir fám dögum, er Laura var þar
á ferð. Hafa borist einhversstaðar að
úr útsveitum sýslunnar, þar sem þeir
hafa ekki verið um garð gengnir alveg.
Annars var rétt að því komið, að
kaupstaðurinn væri Tosaður úr sótt-
haldi.
Nú ber annars ‘hvergi á sóttinni,
nema ef hún lifir enn í Reykhólasveit-
inni og á nokkrum bæjum í Dýrafirði
norðanmegin; þeir höfðu borist þangað
í haust sjóveg og bæirnir verið sótt-
kvíaðir. Sunnan fjarðarins, í Hauka
dal, þar Bem sóttin gerði vart við sig
1 sumar, hefir lánast að taka fyrir
hana alveg. Sama er að segja um
Fellsströndina. Hún komst þar aldrei
nema á einn bæ.
Mislingar komu á Siglufjörð í sum-
ar á færeysku fiskiskipi, er hafði 6
menn veika innanborðs. J>að var haft
i sóttvarnarhaldi lögboðinn tíma, og
komust mislingar aldrei á land. Enda
hafði skipstjóri sýnt af sér sérlega lög-
hlýðni.
Hlatabankinn.
Lánað hafði hann út alls í lok f.
mán. nær 430 þús. kr. gegn veði og
sjálfskuldarábyrgð, nær 420 þús. gegn
víxlum og um 174 þús. gegn handveði:
Málmforðinn var þá 520 þús. og eru
útgefnir seðlar 915 þús. Innstæðufé
á dálk og með iunláuskjörum 124
þús. kr.
Við rithtjórn Fjullkoiiuiinar
hefir hr. Einar Hjörleifsson
nú tekið, þótt eignarumráðin bíði ára-
móta. þetta eina tbl., sem út er
komið frá honum, 18. þ. m., ber greini-
leg einkenni alkunnrar ritsniidar hans,
vitsmuna og stillingar.
Dáin er
hér í bænum i gærkveldi rektorsfrú
Sigríður Jónsdóttir, ekkja
Jóns heit. þorkelssonar rektora, en
systir Magnúsar beit. Jónasonar síðasts
prests að Laufúsi, komin nokkuð á ní-
ræðisaldur, mesta sæmdarkona í hví
vetna.
Heiðm-s.anisœti héidu skólapiltar i
gærkveldi fyrver. ketmara slnum cand mag.
Bjarna Jónssyni (frá Vogi), er laud-
stjórnin svifti kennarastöðunni í 6nmar, —
allir nema nýsveinar í 1. betk og fáeinir
aðrir, er foreldrar þeirra eða vandamenn
hötðu bannað það.
Þeir gáfu honum um leið mjög vandað-
an göngustaf gulli bninn og áletraðan
latneskum einkunnarorðum.
Með póstgiifiisUipi Laura (Aas-
berg) komu í fyrra dag vestan af Isafirði
þeir Ásgeir kanpm. Sigurðsson, Kristján
kanpm. Þorgrimsson og Hjalti bróðir Ás-
geirs (frá Ameriku), er allir böfðu farið
vestur með Bkipinu nm daginn, og þar að
auki fjöldi verkaíólks.
Siðdegisffuðsþjóiiusta á morgnn kl.
5 (sira Jón Helgason).
Fórn Abrahams.
(Frh.)
það vildi svo vel til, að þeir þurftu
ekkr lengi að híða eftir að fá svalað
forvitninni að nokkru. þeir náma
staðar í miðjum herbúðunum. f>ar
höfðu þjónar nöfuðsmannsins, af Kaffa
kyni, breitt hvítan dúk á jörðina, og
borið þar á borð nægtanóg af enskum
dósum með niður3oðnum mat ásamt
mafskökum og smjöri. |>á tekur du
Wallou til máls og segir :
Eg ætla ekki úrhættis, áður en vér
tökum til snæðinga, að eg segi til,
hver eg er. Eg veit fyrir mitt leyti
varla annað spilla framar fyrir manni
matarlyst en að vera hræddur um, að
maður sé ekki í góðu samneyti. Jæjaþá
— hann hneigði sig ofur kurteislega —
doktor f heimspeki du Wallou (eg hefi
hefðarskjalið í vasanum) segir yður
velkomna, herrar mínir! Til þess að
girða fyrir allan raisskilning, læt eg
þess getið, að vagga mín stóð 50
enskar mílur héðan, sem nú erum vér
staddir. Forfeður mínir voru meðal
fyrstu Hugenottanna, sem hingað flutt-
ust búferluni. Ætt mín er nú meðal
hinna smæstu hér í þeasu ríki. En
vér frændur höfum jafnan getið oss
allgóðan orðstír. Sjálfur hef eg stund-
að nám við ýmsa Norðurálfuháskóla,
og þegar ófriðurinn hófst, fleygði eg
frá mér bókunum, hvarf heim aftur og
er nú hermaður. Fyrir það, hve ætt-
fólk mitt mátti sín mikils, varð eg
merkisvaldur, og þegar höfuðsmaður
vor féll, varð eg eftirmaður hans; þeir
af oss, sem eru ekki herteknir, falla
jafnan. því miður hefir sveitin mín
gengið töluvert saman. En ekki er
það tiltökumál þar, er brezkar kúlur
og eiginhagsmunir leggjast á eitt og
gera slíkan usla, sem hér eigum vér
að venjast. Nú munuð þér þá bera
sæmileg kensl á mig, herrar mínir.
Eg fyrir mitt leyti veit, að þar hittir
maður jafnan fyrir sæmdarmenn, sem
eru brezkir liðsforingjar.
Höfuðsrnaður hneigði sig snyrti-
mannlega, uui leið og hann lauk máli
sínu, og seuir glaðlega:
Kveldverðurinn bíður. Setjumst að
máltíð, h ’rrar míuir.
VeðiiruI niix;-.i ii>t
í Keyk|«vik. eftir Sif/ridi Hjörnsdóttur.
1904 okt. Loftvog millim. Hiti (C.) >■ err e* cx C "1 cr cx cr. 7T B p TQ Urkoma millim.
1/115.8 739,5 3,1 S 1 10
2 737,7 2,6 « 1 9
9 734,5 1,6 s 1 3
S(II6. 8 732,9 3,1 SE 1 10 •4,0
2 730,2 3,6 8E 1 7
9 725,5 2,5 0 5
M. 117.8 7 26,5 -0,2 0 10 1,5
2 732,2 1,4 8E 1 10
9 737,9 0,7 1 3
IM18. 8 751,1 2,2 w 1 6
2 754,2 2,7 0 3
9 752,4 1,9 SE 1 10 8,6
Mdl 9.8 749,7 7.7 s 1 10
2 754,4 9,0 0 7
9 753,4 8 6 E 1 8
K<1 20.8 748,5 10.7 8 1 10 . ■
2 750,2 7,8 S 1 10
9 751,4 4,7 0 2
KJ21.8 751,4 6.1 0 3 1,9
2 750,5 5,0 0 3
9 747,0 4,5 0 2
Stjórnarvalda-augl. (ágrip).
Skiftaráðiuidinn í ísafj -sýslu lýsir eftir
kröfum i þrotabú Ituðrúnar Jónsdóttur frá
Armúla með 6 mán. fyrirvara frá 23. f.
mán. og i þrotabú Guðmundar Kristjánsson-
ar i Arnardal með 6 mán. fyrirvara frá
14. þ. mán.
Björn Ólafsson í Mýrarhúsnm kallar inn
kröfur í dánarbú Önnu Björnsdóttur frá
Mýrarbúsum á 6 mán. fresti frá 30. f. mán.
(»ept,)
Jarðarför Geirs Snæbjörnssonar
fer fram frá Sct. Josefs spitala mánu-
daginn 24. október 1904 kl. I e. h.
Jarðarför Stefáns sál. sonar okk-
ar fer fram á þiiðjudaginn 25. þ. m.
og hefst kl. Il‘/S frá húsinu nr. I við
Laugaveg.
Sluríður Ottesen.
Vaidiiiiar Otteseu.
Stúdent. veitir tilsögn i gagnfræða- og
latínuskólanámsgreinum. Nánari upplýs-
ingar i Þinghjltstræti 18.
Yfirfrakki af raeðalmanni, litið slitinn,
til sölu með gjafverði. Kitstj, visar á.
Buffet-skápur til sölu, Upplýsingar
gefur Guð.jón Einarsson prentari.
Helgakver
fæst i afgreiðlu ísafoldar.
Þeir, sem vilja fá tilsögn i ensku á
kvöldin, snúi sér til Sigurðar Árnasonar í
Iðunni.
Mikið væn eldavét nokauð brúkuð
fæst með mjög miklum afslætti. Ritstj.
visar á.
Jarpur hestur, mark blaðstýft fram-
an bæði, marki á hægri lend A. Ó., var
hirtur á Kolviðarhóli 14. þ. m. Hestinn
verður að birða sem fyrst, þvi hann þarf
að vera á gjöf.
Guðni Þorbergsson.
Eg undirskrifuð tek að mér eins
og að undanförnu guitarskenslu og hann-
yrðir. Vesturgötu 32.
Halla Vaage.
SKANDINAVISK
Exportkaffi-Surrogat
Kobenhavn. — F Hjorth & Co-
Leikfélag Reykjavíkur
Leikur á morgun.
VS’ Sjá götuauglýsingar
Jarðyrkj uverkfæri.
Ólafsdalsskólinn selur eins og vanb
er yms jaiðyrkjuverkfæri, og sendir
þau kaupendum kostnaðarlaust, á
hverja höfn á landiuu sem óskað er,
með strandskipuDum í maí eða júní
næstkomandi, ef þau eru pöntuð fyrir
miðjan vetur, og að svo miklu leyti
sem upplagið af verkfærunum endist.
Verð verkfæranna er þetta:
PlógurÍDu uýi, svo sterkur að
hann þolir alls konar jörð, kr. 40,00
Tindaherli vanalegt . . — 16,00
Hemlar fyrir 2 hesta . . — 10,00
Hestareka............— 30,00
Aktýgia 2 plóghesta
með dragtaumum úr hlekkjum — 35,00
Ristuspaðar skeftir . . — 3,50
do Ó8keftir . . — 3,00
Kerrur með Olafsdnlslagi —100,00
A k t ý g i fyrir 1 kerruhest — 28,00
Öll verkfærin eru vönduð að efni og
smíði, og margreynd að vera hentugri
og sterkari en útlend verkfæri.
Eg áskil, að borgun fyrir verkfærin
séu komin til mín fyrir lok septem-
bermánaðar næstkomandi.
Ólafsdal 12. okt. 1904.
T. Bjarnasou.
Aðallundur
í Útgerða.rfélaginu við Hafnarfjörð,
verður haldÍDn á Óseyri laugardag 5.
næsta mánaðar kl. 11 f. h.
Hafnarfirði 18. okt. 1904.
Stjörn félagsins.
ULL:
haustull og vorull
kaupir klæðaverksmiðjan Iðunn
liæsta verði.
Síðari ársfundur Búnaðarfélags
Seltjarnarneshrepps verður haldinn á
laugardaginn 29. okt. kl. 1 e. m. í
barnaskólahúsi hreppsins.
21. okt. 1904.
S t j ó r n i n .
EIMREIÐIN.
Fjölbreyttasta tímarit á íslenzku.
Ritgerðir, myndir, sögur, kvæði.
Hérmeð er skorað á þé kaupmenn
bæjarins, er selja vilja fátækrasjóði
nauðsynjavörur handa þurfamönnum
næstkomandi ár, að senda hingað á
Bkrifstofu tilboð um það fyrir 27. þ. m.
Bæjarfógetinn í Rvík, 20. okt. 1904.
Halldór Daníelsson.
Nú geta menn fengið vátrygðar
vörur sem sendar eru með skipum
Thore-gufuskipafélagsins
héðan frá Rvík, bæði innanlands og
milli landa.
Menn eru beðnir að snúa sér til af-
greiðslumannsins.
H. Th. A. Thomsen.
Haustull er keypt i verzlun
Björns Þórðarsonar
Bezt kaup
Skófatnaði
1
Aðalstræti 10.
/