Ísafold - 29.07.1905, Blaðsíða 3
íSAFOLD
192
Vaiialeg vörn
ELneykalið þetta, sem fjárlaganefnd
neðri d. hefir gert, að hafna tilboði
Thorefólagsins, en að ganga að tilboði
frá Sam. gufuskipafélaginu, er nú tekið
til að reyna að fóðra eða verja með
venjulegum óyndisráðum, að iíkt stend-
ur á: skáldskapnum, 1 y g i n n i, —
þeirri lygi, a ð Thorefélagið hafi ekki
treyst sér að taka að sór ferðirnar,
þær hafi verið mjög ófullnægjandi hjá
honum, og þar fram eftir götum; sér-
staklega er og reynt að verja gjörðir
nefndarinnar með þeim skáldskap, að
vonlaust sé um nokkurn styrk úr ríkis-
sjóði, ef hætt sé við Samein. félagið.
það er a l d r e i sagt, þegar rangt
er gert: eg gerði það að garani mínu,
eða af þeirri og þeirri óviðkomandi
ástæðu, af því að sá eða sá bað mig
um það og eg gat ekki neitað honum.
Eanglætið er jafnan varið með e i n-
h v e r j u m fyrirslætti, sem e i n h v e r
von er um að einhver renni niður,
sé sá nógu ókunnugur eða hugsunar-
laus..
|>ví þarf enginn að kippa sér upp
við þessa aðferð hér, í þessu máli.
Mútubrigzlin.
Helmingur þeirra, sem atkvæði
greiddu um daginn m e ð stjórninni, ráð-
gjafanum, í því málí, og báru hann
undan sök um mútubrigzlin, sem blað
hans Eeykjavík flutti nýlega, á hluti í
blaðinu — eru sameigendur að því með
ráðgjafanum og fl. þeir greiða þar at-
kvæði í sjálfs sínB máli, 4 af 8. Hefðu
þeir ekki gert það, mundu samþykt
hafa verið hörð og makleg ámæli gegn
ráðgjafanum fyrir ósómannþann. |>ví
5 atkv. voru í móti.
En svona, er þegar réttvísin og óhlut-
drægnin sitja í hásæti, eins og er og vera
ber á sjálfu löggjafarþinginu.
Fyrnefndir 4 »sannsöglismálgagns«-
eigendur eru: BMÓ, Eir. Briem, Jón
Jak. og Jón Ó.
Gjöld til landssjóðs frá sýslufélögum. Um
það atriði er nefmlin í sveitarstjórnarmál-
inn ósamdóma. Meirihl. (A. J., J. M. og E.
P.) vill láta samþykkja stjórnarfrv. óbreytt
að því leyti til, en þó að eins til bráða-
birgða, og falli gjaldið burt, þegar gagn-
gerð endurskoðun verður gerð 4 skattalög-
gjöf landsins. Minnihlutinn, Guðl. Guð-
mundsson og Jóh. Olafsson, vill lata fella
frumvarpið alveg
Við kind á sundi var einum þingmanni
vorum líkt nýlega. Það gerði einn kjós-
andi hans, sveitamaður, sem þótti hann
þurfa að hafa nokkuð oft flokksfataskifti.
Hvernig hagar kind á sundi sér? spyr
kaupstaðarbúi, sem það hafði aldrei séð.
Því svaraði viðstöðulaust drenghnokki,
sem verið hafði í sveit nokkur sumur:
Hún er alt af að líta aftur til sama lands
og á ýmsar hliðar, veit ekki, hvort hún á
að halda áfram eða snúa aftur.
Skipafregn. Hinn 19. þ. m. kom seglskip
Hydra (147, H. J. Albertsen) frá Dysart.
með kolafarm til Bj. Guðmundssonar.
Þá kom 24. þ. m. seglskip Habil (332,
Basmussen) frá Halmstad með timburfarm
til Bjarna Jónssonar og fl.
Ennfremur sama dag s/s H. S. Hartmann
(337, Olsen) frá Methel með kolafarm til
Brydesverzlunar.
Sömuleiðis s. d. s/s Bauta (447, N. Ny-
gaard, frá Leith með kolafarmtil Bj. Guð-
mundssonar.
Daginn eftir, 25., kom s/s Klar (315, G.
Kabe) frá Liverpool með kolafarm til G.
Zoega og Tborsteinson.
Og sama dag s/s Eriðthiof (689, P. Peder-
sen) frá Newcastle með kol til Sameinaða
gufuskipafélagsins.
Síðdegisguðsþjónusta í dómkirkjunni á
morgun kl. 5 (J. H.)
Kennaraskóli í Flensborg,
en ekki Eeykjavík. — Að því hall-
ast nefnd í efri deild í einu hlj., 5
manna nefnd, úr báðum flokkum, og
styður þá skoðun sína með sömu eða
líkum rökum, sem haldið hefir verið
fram í þessu blaði af síra Jens próf.
Pálssyni í Görðum.
Stjórnin vildi hafa kennaraskólann í
Eeykjavík og verja þar 40,000 kr. til
að reisa hús undir hann.
En nefndin leggur til: Kennaraskóla
skal setja á stofn í sambandi við gagn-
fræðaskólann í Flensborg og má verja
til húsabóta og áhalda alt að 33,000
kr. úr landssjóði.
Við hinn sameinaða gagnfræða og
kennaraskóla skulu vera alt að 35
heimavistir, og hafa nemendur kenn-
araskólans forgangsrétt að þeim.
Fastir kennarar eiga að vera 4 við
hinn sameinaða gagnfræða- og kenn-
araskóla, með 2500 kr. (forst.m.), 1800,
1600 og 1200 kr. launum. Forstöðu-
maður hafi auk þess ókeypis bústað í
skólahúsinu, og sá af kennurum, sem
hefir umsjón með heimavistarnemend-
um, auk þess ókeypis bústað í heima-
vistarhúsi skólans.
Nefndin ætlast til, að reist sé í
Flensborg nýtt skólahús fyrir 24 þús.
kr., gamla skólahúsinu þar breytt í
heimavistarhús (28—35 heimavistir)
með lítilli kennaraíbúð (3 þús.), reist
nýtt leikfimishús (3J/2 þús.) og áhöld
og munir keyptir fyrir 2'/2 þús.
Nefndin gerir a ð a 11 e g a þessa
grein fyrir tillögu sinni um að hafa
skólann heldur í Flensborg en í
Eeykjavík:
í Flensborg er og hefir verið um
mörg undanfarin ár álitlegur vísir til
kennaraskóla, vísir, sem er f vexti,
eins og aðsóknin að kennaradeild skól-
ans ber með sér, auk þess sem hlut-
verk gagnfræðaskólans þar er svo skylt
og nátengt kennaraskólanum, að sá
skóli virðist geta verið góður forskóli
undir kennaraskólann og þannig gert
hina 3. fyrirhuguðu ársdeild kennara-
skólans óþarfa. Við Flensborgarskól-
ann eru einnig kenslukraftar, sem um
undanfarin ár hafa lagt stund á kenn-
arafræðslu, og því hljóta, að öðru jöfnu,
að vera færari til þess starfa en þeir
menn, sem eigi hafa tamið sér hann,
enda bendir hin sívaxandi aðsókn að
skólanum og hið ágæta samkomulag
og samvinna milli kennara og nem-
enda á þaö, að skóla þessum muni vera
vel trúandi fyrir auknu verksviði; auk
þess er staðurinn sjálfur heilnæmari
en Eeykjavfk og mjög lítið um ýmsa
sóttnæma sjúkdóma, svo sem tæringu,
er svo margan ungan nemandann hefir
veiklað eða í gröfina lagt í námsstofn-
unum þeim, sem í Eeykjavík eru, að því
ógleymdu, að FlenBborgarskólinn er
svo settur, að þar er miklu minni
hætta á, að ungir og óráðsettir menn
leiðist út í hvers konar óreglu en í
solli og glaumi höfuðstaðarlífsins, en
slíkur ávöxtur af skólanámi verður að
teljast hinn sorglegasti, eigi sízt þegar
um þá menn er að ræða, sem eiga að
verða andlegir leiðtogar barnanna og
leiða ungar sálir fram á leið til dáða,
dygða og velsæmis í hvívetna. Að vísu
hefir Eeykjavík þann kost yfir Hafnar-
fjörð, að hún er aðalaðseturs3taður hins
íslenzka mentunarlífs og að þar er greið-
ari aðgangur að ýmsum mentunarskil-
yrðum en annarsstaðar á landiuu, svo
sem fræðandi fyrirlestrum, söfnum
o. s. frv. En hins végar ber þess vel
að gæta, að íjarlægðin milli Hafnar-
fjarðar og Beykjavíkur er eigi meiri
en svo, að nemendur mundu geta notið
margs af því, þótt skólinn væri í Flens-
borg, með því að heimsækja höfuð-
staðinn nokkrum sinnum á vetri, og
að því er aðalbókasafn landsins snertir,
þá er í lófa lagið, með lítilvægri breyt-
ingu á reglugjörð þess, að opna þeim
nálega jafngreiðan aðgang að þvf sem
bæjarmönnum. í sambandi við þetta
má geta þess, að Flensborgarskólinn
á bókasafn, sem auka mætti eftir þörf-
um, auk annars dálítils bókasafns, sem
nemendur eiga.
indriði Einarsson
revisor fór með s/s Botníu 23. þ.
mán. til Skotlands áleiðis á hástúku-
þing Goodteroplara í Belfast á írlandi.
Fallin frumvörp.
þ>au eru ekki nema tvö að svo
stöddu: 1., um afnám fóðurskyldu svo
nefndra Maríu- og Péturslamba; 2., um
að selja kirkjujörðina Bygggarð á Sel-
tjarnarnesi.
Með s/s Laura, kapt. Gotsche, fór héðan
til útlanda á fimtudaginn allmargt farþega,
þar á meðal jústizráð Hansen lyfsali frá
Hobro og sonur hans T. Hansen, frú Ingi-
björg Johnson og dóttir hennar frk. Aslaug
Johnson.
Við hádegismessu á morgun i dómkirkj-
unni stígur Storjohan prestur frá
Kristjaníu í stólinn; talar um hænina.
Sungið í ísl. Sálmahókinni.
Fórn Abrahams.
(Frh.i
Ef yður er það ekki móti skapi,
herrar míoir, ætla eg að leyfa mér að
vitna í nokkrar setningar úr riti eftir
enskan höfund, sem mér hefir borist í
hendur nýlega, mælti du Wallou enn-
fremur, og beið kurteislega þess, að
lautinantinn fengi tíma til að koma
með það, sem hann ætlaði að segja.
Hann segir, kvað du Wallou, að
öruggustu og kostnaðarminstu sigur-
vinDÍngar Englands væri að sigrast á
skynsemi og hjörtum mannanna. Eg
gæti bætt því við á mína ábyrgð, að
svo er um öll lönd önnur. þess kyns
hernámi þarf ekki að fylgja neitt setu
lið og eDgir herteknir bandingjar; þar
þarf ekki að beita herhlaupum á borg-
arvirki og þar er enginn maður tekinn
frá vinnu sinni; slíkt hernám getur
náð heimskauta í milli, og þá fær hver
enskur maður að vera frjáls á heimili
sínu. Styrkur EDglands er ekki fólg-
inn í herbúnaði og herhlaupum inn á
önnur lönd, heldur í alstaðar nálægum
iðnaði þess og í fjörgandi áhrifum þess
miklu þjóðmennÍDgar. Til eru lönd,
sem það getur ekki numið herskildi,
og eyjar, sem það getur ekki haldið;
en ekki er til nokkur ey, nokkurt
land, nokkurc konungsríki eða nokkur
heimsálfa, er það geti ekki hænt að
sér og tengt sér við hlið um aldur og
æfi með því að hafa yfir galdraþuluna
þessa:
Verið frjáls.
Sérhvert land, er England samsinnir
frelsisþrá þess, sérhvert land, þar sem
England forðar því, að þeirri þrá sé
misboðið, verður því vinveitt, áreiðan-
legur bandavinur þess, ljúfur gjaldþegn
þess og umfram alt trúr alúðarvinur
þess. Frelsismeginreglan heldur því
saman, sem nauðungarreglan tvístrar.
Hér höfum vér að minni hyggju
stefnuskrá, sem á það skilið, að eitt-
hvað sé í sölur lagt hennar vegna,
það, að hafna valdinu, en hlynna að
réttinum, ef rétt er mælt að kalla það
að leggja nokkuð í sölur.
En hvernig hafa þeir breytt og
hvernig breyta þeir?
Sérhver hernaður er stig aftur á
bak á hinni almennu framfarabraut.
En þessi ófriður er meira, því hann
hefir þau hausavíxl á öllum hugmynd-
um um rétt og rangt, að þjóð, sem er
smá að vfsu, en þá samrunnin þjóð,
með öllum brestum og kostum þjóðar,
á að tortímast fyrir yfirsjónir annarar
þjóðar. það sem eg hefi sagt um Eng-
land núna, á og auðvitað við um allar
aðrar þjóðir. En sú einkennilega hug-
mynd og óskiljanleg í augum hugsandi
manna virðist vera algeng, að hags-
munir þjóða séu hverir öðrum and-
stæðir, og þó eru hagsmunir mann-
kynsins sameiginlegir þrátt fyrir alt.
Djóöhátíðardaginn
sel eg undirrituð hér heima h.eitau
og kaldan mat, smurt brauð,
búðinga og ís m. fl.
Sigríður Sig-urðardóttir.
á íslandi fá hvergi eins góð kaup á
handsápu, allskonar ilmvötnum, sal-
míakterpintín-sápu, lútardufti, bleikju-
sóda o. m. fl. eins og í
Sápuverzluninni
Austurstíæti 6, Reykjavík.
Chocolade-tabriken
Elvirasminde.
Aarhus
mælir með sínum viðurkendu Choeo-
ladeteguudum, sérstaklega
Aarhus Vanille Chocolade
Garanti Chocolade
National Chocolade
Fin Vanille Choclade
og sömuleiðis með Cacaodufti, sem vér
ábyrgjumst að sé hreint.
Sherlock Holmes Opdagelser,
hinar heimsfrægu sögur eftir C o n a n
Doyle, eru að koma út í heftum á
10 aura- Menn panti sem fyrst í
bókverzlun ísafoldarprsm.
Frem
fæst í bókverzlun ísafoldar-
prsm.
Saltkjöt
bæði f heilum tunnum og eftir vigt
fæst í verzlun
Björns Kristjánssonar.
Moldóttur hestur,
fRssfSí*’**. stór, óafrakaður, svart-
hæfður, aljárnaður, vak-
— —ur 0g viljugur, tapaðist
frá Skildinganesi 24. þ. m. Óskast að
tomið sé til skila i Lækjargötu 6.
(Stjórnarvaldaaugl. ágrip.)
Snæbjörn Arnljótsson i Þórshöfn á Langa-
nesi lýsir eftir skuldakrufum i dhú sira
Arnljóts heit Ólafssonar 4 Sauðanesi og
konu hans Hólmfriðar Þorsteinsdóttur með 6
mán. fyrirvara frá 23. júní.
Sýslum. í ísafjarðarsýslu lýsir eftir skulda-
kröfum i dánarhú Asgeirs Einarssonar frá
Hvitanesi í Ögnrhreppi með.6 mán. fyrir-
vara frá 30. júni.
Patrónur
af mörgum tegundum í
verzlun EDINBORG.
Til þjóðhátíðarinuar
fæst ýmislegt sælgæti í verzlun
Einars Árnasonar.
eru beðnir
að vitja Isa-
foldar { af-
greiðslustofu blaðsius, Austurstræti 8,
þegar þeir eru á ferð í bænum