Ísafold - 31.03.1906, Side 2
74
ÍSAFOLD
aðrir fyrir okkur. Krossunum var
dembt á norsku sendinefndina alveg
fornspurða. Sumir í henni höfðu strengt
þess heit, að láta aldrei »kro88ast«.
En nú urðu þeir að hafa það svo
búið, til þess að »fornerma« ekki kong-
inn. Og úr því að við fáum titlana
óumbeðið, þá þurfum við enga leigu
að gjalda eftir þá. Okkur dettur það
ekki í hug — nema þá ef þingið vill
gera það, af »öðrum alþingiskostnaði«.
— Nú eða aldrei. Aldrei, aldrei,
aldrei!
það er ógurlegt orð, þetta a 1 d r e i.
Okkur óar við því!
Stauraflutningurinii.
Skrifað er ísafold úr Skagafirði 22.
þ. mán.:
Lítið gengur með staurafiutninginn
hér vestan Héraðsvatna. Flestir staur-
arnir liggja ennþá á mölinni á Sauðár
krók, örfáir komnir lítið eitt áleiðis og
liggja þeir flestir frosnir niður.
Sigfús Dagsson er víst kominn að
þeirri köldu raun, að flutningur þessi
muni ekki verða mikið gróðafyrirtæki,
enda hefir hann verið tældur á þung-
anum.
Eítthvað var Trausti í Hólum búinn
að bisa sínum staurum áleiðis með
ærnum kostnaði, er síðast fréttist.
Mannalát.
F. héraðslæknir Kangæinga, 01 a f u r
S. Guðmundsson, andaðist 16. þ.
mán. að heimili sínu Stórólfshvoli, eftir
langa vanheilsu. Hann var fæddur 4.
des. 1861 að Kvennabrekku í Dölum,
sonur Guðmundar prófasts Einarason-
ar, síðast prests að Breiðabólsstað á
Skógarströnd (f 1882) og konu hans
Katrínar Ólafsdóttur prófasts Sivertsen
í Flatey (f 1861). Hann útskrifaðist
úr Reykjavíkurskóla 1881 og af lækna-
skólanum hér 1885, var sfðan nokkur
ár aukalæknir á Akranesi, fekk því
næst Kangárvallalæknishérað og þjón-
aði því þar til í sumar er leið, að
hann fekk lausn frá embætti. Kvænt-
ur var hann Margréti Magnúsdóttur
R. Olsen frá þingeyrum, er lifir mann
sinn. þeim varð ekki barna auðið.
Ólafur sál. læknir var gæðamaður
mikill, viðkynningamaður hinn bezti
og gleðimaður, enda fyrirtaks ástsæll.
Fiskiskúturnar
héðan hafa komið inn þessa dagana
nokkrar, eitthvað 10 eða svo, úr sinni
fyrstu útivist, með dágóðan afla, 5—10
þús. á skip af mikið góðum fiski.
Mestur er Hjalti Jónsson, á Swift.
Hann fekk hálfan aflann undan Vest-
manneyjum, en hitt djúpt af Selvogi.
Veður mjög ilt fram til 14. þ. m., en
ágætt úr því. Heldur tregt um fisk
orðið. Hann heldur sig undir landi,
grynnra en þilskipum er óhætt. segja
þeir, — eltir loðnu.
Afbragðsafii
hefir verið um hríð í Garðsjó, vænsti
netafiskur. Sömuleiðis mikið góður afli
í Grindavík og Selvogi.
Tíðarfar
hefir verið mjög blítt og hagstætt
um hálfan mánuð. Marahláka, og fann
kyngið tekið mjög upp. Hiti 4—6
stig (C.) dag hvern, stundum 7—8 stig.
S/s Vesta, frá Sam.fél, kom' loks í
gærmorgnD, norðan nm land og austan, frá
ntlöndum, vikn' á eftir áætlun, sem ekki
er raunar neitt sérlegt tiltökumál um þetta
leyti árs og í slikum veðraham. En hýsna-
orð mundi þó sjálfsagt hafa verið á því
gert, af þetta hefði verið Thorefélagsskip.
Með skipinu kom allmargt farþega, þar
á meðal Jón prestur Arason frá Húsavík,
Bjarni Benidiktsson verzlunarm. þar, Árni
Á. Þorkelsson, sýslunefndarm. frá Geita-
skarði o. fl.
— Alþýðublaðið —
stefna og þess starfssvið.
I.
Til mín hafa borist 3 eintökin fyrstu
af Alþýðublaðinu nýja, sem
gefið er út af alþýðumanni í Reykja-
vík. Blað þetta lítur vel út. Búning-
urinn fer vel, og þráðurinn er betur
spunninn en algengt er hjá viðvaning-
um alþýðumanna. Færri eru snurð-
urnar og styttri bláþræðirnir en sjá
má stundum hjá æfðum mönnum og
»útlærðum«. Orðin eru íslenzk og
auðskilin, setningarnar stuttar, ljósar
og ákveðnar. þ>etta er nú meðferð
efnisins.
En hvað er þá um efnið sjálft að
segja ?
Virðíngarverður er kjarkur alþýðu-
mannsins, viljinn og einbeitnin til að
rétta blut þeirra, sem eru minui
máttar.
I fyrBtu greinninni talar ritstjórinn
frjálslega og feimníslaust, undir nafni
íslenzkrar alþýðu í heild. Lýsir því
hvað »við erum«, »þurfum »og« getum«.
Vitanlega vonaðist maður þá jafnframt
eftir því, að ritstjórinn sýndi góð ráð
til þess, h v e r n i g vér getum bætt
úr þörfinni, orðið meiri menn og betri.
Greinin í 3. blaðinu: »Erum vér
undirlægjur eða undirstöður«, er ekki
síður skýr og. skorinorð um það, hvað
vér erum og getum. Hún er þess
verð, að allir lesi hana, bæði alþýðu-
menn og embættismenn, alþíngismenn
og leiðtogar þjóðarinnar, einkum þeir,
er nálega a 11 vilja gera til að tína
blöðin, blómin og ávextina af þjóð-
stofninum, en svo að segja e k k i
n e i 11 hlynna að rótum hans.
Ef ræturnar af þjóðstofninum slitna
smátt og smátt upp úr jarðveginum,
þá vísna blöðin, blómin falla niður og
ávextirnir hætta að vaxa. f>ess í stað
vaxa þá kvistir og kræklur, spiltir
áVextir og eitraðir.
jpjóðin þarf að læra að gera sér
jörðina undirgefna, ef ekki f y r s t, þá
með því fyrsta, sem henni er
kent, innan takmarka tímans og rúms-
ins. |>á mun hún jafnframt breiða út
blöð lærdóms og mentunar, blóm lista
og bókmenta, og ávexti vizku og sið-
gæðis.
Eins og áður er sagt, eru þessar 2
greinar ritaðar fyrír a 1 þ ý ð/u-blað, og
vonast maður því eftir góðu áframhaldi
í sömu átt.
En flestar greinar aðrar í þessum
blöðum eru ritaðar að eins fyrir
verkmann a-blað. »Verkefnið« t. d.
og »Kjör vinnufólks í sveitum« eru
ákveðnar og æsandi verkmannagreinar.
Hvert á blaðið þá að vera alþýðu-
blað eða fyrir verkamenn einungis?
Eg er hræddur um að slíkar greinar
sem hin síðastnefnda fæli bændur og
aðra vinuuveitendur frá blaðinu og
málefni vinnulýðsins, fremur en hitt,
að þær laði þá til að gefa þeim gaum ;
og tel eg þá illa farið.
Verkamenn og vinnufólk hefir þó
sannarlega þörf á að kjör þeirta batni
á ýmsan hátt. Óska ættu allir þess,
að kjörin bötnuðu, þvi allir hafa gott
af því, vinnuveitendur líka, e f breyt-
ingin gerist með aukinni ánægju, þrosk-
andi þekkingu og vaxandi uppskeru.
f>egar nú verkamennirnir eru sjálfir
lagðír á þetta vað, þá er þeim afar-
áríðandi að byrja ekki tæpast á brot-
inu. f>eir mega ekki æsa strauminn
móti sér.
Eigi Alþýðublaðið ekki að
ganga undir fölsku nafni, þá ræðir það
málin frá sjónarsvæði beggja flokka
alþýðunnar, þeirra er vinnu selja og
hinna, er vinnu kaupa. Umfram alt
ætti að ræða máleíniu með hógværð,
gætni og sönnum rökum. Verði þeirri
reglu fylgfc, óska eg blaðinu gengis, og
tel vísa von um árangur, mikinn og
góðan.
Verði hins vegar Alþýðublaðið
verkmannablað einungis, þá er hætt
við aðrir vilji ekki kaupa það eða losa,
og að öll stefna blaðsins og þesskonar
starfsemi verkalýðsins yfir höfuð verði
andvíg þeim, er vilja láta vinna, og
eru þá fyrir dyrum hinar verstu af-
leiðingar. f>á eyða þeir, sem eiga að
afla, rífa þeir, sem eiga að reisa, berj
ast þeir, sem eiga að starfa saman
friðsamlega, og hatasb í stað þess að
unnast. (Niðurl.).
Biðjið kaupniami yðar
um
o D CIGARETTCN
1 * Tl P TO P 0 ]
ogönnur algeng nöfn á vindlum vor-
um, cígarettum og tóbakstegundum
og verið vissir um, að þér fáið jafnan
vörur af beztu tegund.
Karl Petersen & Co.
Köbenhavn.
Góöar vörur! Ódýrar vörur!
Hrokkin sjöl
mjög margar tegundir frá 7—30 kr.
Kvenslifsi
mjög mikið úrvar frá 0,90—3,00,
Linoleum- gölfdúkur
Reiðfataefni
og ýmislegt annað, auk þess sem áð-
ur er auglýst, er nú nýkomið í verzl.
G. Zofe’ga.
n ■ sem æskja eftir styrk a
X tJli 8jhkrasjóði hins íslenzka kven
fólags, eru hérmeð ámintir un
að senda umsóku sína fyrir 15. apríl
Katrín Magnússon.
Islenzkt smjör
fæst í verzlun
Matth Matthíassonar.
Fundist hefir gamall steinhringur á
götum bæjarins. Ritstj. visar á.
Látið eigi gabba yður og gætið þess
að þér fdið
Bkta Kína-Lífs-
Blixír.
Það er á boðstólum mesti fjöldi af
heilsubitterum og nálega allir eru þeir
hafðir líkir Waldemars. Petersens ekta
Kína-IJfs-Elixír að nafni og útbúnaði,
og hvers vegna?
Að segja eins og er, er kærasta
skylda hvers ráðvands manns. Þorp-
arar einir reyna að dylja varmensku
sína og sviksamlegan tilgang með þeim
viðurkenningarvott, er veittur er þvír.
sem er sannarlega gott og ágætlega
frá gengið.
Hinn ekta Kína-Lífs-Elixír Walde-
mars Petersens hefir áunnið sér viður-
kenningu heimsins og fengið fyrir
það mikinn fjölda öfundarmanna, er
reyna að ábatast á því, að hafa á boð-
stólum einskisverðan tilbúning með
þeim útbúnaði, að ilt er að varast að
rugla því saman við hinn eina ekta
KÍNA-LÍFS-ELIXÍR,
sem hefir að vörnmerki Kínverja með
glas í hendi á fiöskumiðanum oginn-
siglið í grænu lakki á tappanum.
Það sér hver maður, að mér er
ekki láandi, er eg segi:
varið yður a fölsunumr
og hafnið eftirstælingum, svo sem
»China bitter«, »Lifs elixír« og þess
háttar. Biðjið ætið um ekta Kína-
Lífs-Elixír frá Waldemar Petersen,
Kaupmannahöfn-Friðrikshöfn.
B’sost alstaðar á 2 kr. flaskan.
Etamine
ljómandi fallegt úr ull og silki
fæst í verzlun
G Zoega.
Frá 1. apríl
tökum við undirritaðar hærri f æ ð i s -
peninga en áður.
María Hansen, Asta Hallgrímsson,
Hólmfríður Gislad., Sigriður Sigurðard.
f Jarðarför móður minnar Guðnýjar Jóns-
döttur fer fram mánud. 2. april og byrjar
kl. 10 árd. að heimili mínu Bræðraborgarstig 8.
Rvlk all3 1906. — Hjalti Jónsaon.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
kostar 2 kr. árg. (18 bl.; 12 síður auk
kápu). — Afgr. á Laugaveg 18 (2. Iofti).
Mýraíélag-ið
(Moseselskabet)
í Danmörku
veitir ókeypis aðstoð við rannsókn og
hagnýting m ó m ý r a, og lætur í té
leiðbeiningar um hentug eldstæði fýt'
ir mó.
Menn geta snúið sér til umboðs-
manns félagsins á íslandi, cand. polýt-
Ásgeirs Torfasonar í Reykjavík, 0r
einnig veitir viðtöku beiðnum um inn-
töku í félagið. Árstillagið er 4 krónuf
og er meðlimum félagsins fyrir þa^
send rit þess ókeypis.
Kirsiberjalög
og aðra aldinlegi, nýja eftirtekju,
fínustu tegundir að gæðum, er mönn-
um ráðið til að kaupa frá
Martin Jensen, Köbenhavn K*