Ísafold - 23.06.1906, Síða 1
Kenmr út ýmist einn sinni eða
'tvigv. í vikn. Yerð árg. (80 ark.
minnst) 4 kr., erlendis 5 kr. eða
ll/a doll.; borgist fyrir miðjan
júlí (erlendis fyrir fram).
Uppsögn (skrifleg) bnndin v.ð
áramót, ógild nema komín sé til
útgefanda fyrir 1. október og kanp-
andi skuldlans við blaðið.
Afgreiðsla Austurstrœti 8,
XXXIII. árg.
Rcykjavík laugardaginn 23. júní 1906
41. tölublað.
Ferðamenn!
Munið eítir pakkhúsi Edinboryar-vcrzlunar, því
þar fást allar matvörui* og nauðsynjavörur með
beztu verði í stórkaupum.
En i nýlendmTörubúðinni í Hafnarstræti 9 er þó langbezt að verzla i smákaupum, þar fæst
öli nauðsynjavara hverju nafni sem nefnist.
tlljóf og lipur qfgrQÍésía, veré og gœéi Batri an almaní garist.
I. 0. 0. F. 886299
Augnlækning ók. 1. og 3. þrd. kl. 2—3 i spítal
^orngripasafn opið A mvd. og ld. 11—12.
Hlntabankinn opinn 10—2 */» og ö*/s—7.
P. U. M. Lestrar- og skrifstofa frá 8 árd. til
10 sibd. Alm. fundir fsd. og sd. 8 */s sibd.
'Landakotskirkja. Gubsþj. 9 og 6 á helgidögum.
Landakotsspítali f. sjúkravitj. 10 */a—12 og 4—6.
Landsbankinn 10*/*—2 V** Bankastjórn við 12—1.
Landsbókasafn 12—3 og 6—8.:
Landsskjalasafnið á þrdn fmd. og ld. 12 1.
Lsekning ók. i læknask. þrd. og fsd. 11 12.
^Náttúrugripasafn á sd. 2—8.
Tannlækning ók. i Pósthússtr. 14, l.og3.md. 11 1
Faiflóapíitótiirinn REYKJAVIK
fer upp í Borgarnes 27. juní,
10., 20. og 26 júlí. Kemur við
4 Akranesi í hverri ferð báðar leiðir.
Til Straumfjarðar og Akra
13. og 17. júlí.
Suður í Keflavik fer Reykjavíkin
25. júní, og 4. og 23. júlí
Og loks 4. júlí suður í G a r ð og
alla leið austur á Eyrarbakka
og Stokkseyri, kemur við báðar
leiðir í Hafnaleir, Grindavík og |>or-
lákshöfn.
Næsti vetnr.
Stórkaup
a útlendum fóðurbæti.
1 miljón kr. sparaðar.
Sannfrétt er nú úr öllum bygðarlög-
um landsins, að bændur hafa sloppið
nokkurn veginn ómeiddir frá vetrinum
•og vorinu meS skepnuhöld, þrátt fyrir
Vorhörkurnar og gróðurleysið. En frótt-
Unum um þolanleg skepnuhöld fylgir
alstaðar, að flestir eða allir hafi gefið á
enda, að örfáum undanteknum, og að
mjög víða hafi orðið að gefa mikið af
hornmat, til þess að forða felli.
Þegar athugað er, að jörð fór eigi að
grænka fyr en í júnímánuði, og að grip-
hagar komu ekki fyr en um og eftir
uiiðjan mánuðinn, liggur í augum uppi,
að sláttur hlýtur að byrja seint. Þott
t(ð verði hagstæð hór eftir, er því engin
v°n vim, að heyskapur í sumar geti
uokkursstaðar á landinu orðið meiri en
í meðallagi, ekki sízt vegna fólkseklunn-
ar. Auðsætt er því, að heybirgðir verða
með allra minsta móti í haust, þótt
sumarið verði gott, miklu minni en und-
anfarin haust, hvað þá heldur ?f sum-
arið verður óhagstætt. Og þar sem nú
reynslan er búin að sýna, að skepnur
eíu orðnar svo margar, að allar hey-
fyrningar frá síðustn árum, sem öll hafa
verið í meðallagi og þaðan af betri, hafa
’lrmist upp á einum vetri, er augljóst,
að annaðhvort verða bændur að fækka
s^epnum sínuvi stórkostlega í haust, eða
^aupa mikið af útlendu fóðri.
^kepnum hefir fjölgað mikið síðan á
a'úaruótunum, einkum á Suðurlandi,
er*da verð á afurðum bnpenings stöðugt
íarið hækkandi, og gott útlit fyrir að
Það haldist.
Það er því stórkostlegur hnekkir fyrir
landbúnaðinn, að þurfa nú að fækka
nautpeningi og sauðfé mjög mikið, ekki
sízt þegar þess er gætt, að slíkri fækk-
un hlyti að fylgja verðfall á kjöti og
tólg.
Hitt úrræðið, að kaupa útlent fóður,
er ólíkt vænlegra, og í sjálfu sér ekkert
neyðarúrræði, ef ekki skortir fyrirhyggju
og framtakssemi.
Auðvitað er dýrt að kaupa rúg og
rúgmjöl handa skepnum með almennu
búðarverði, eins og venja hefir verið til,
þegar útlent skepnufóður hefir verið
notað á annað borð. En í því er engin
fyrirhyggja.
Það á ekki að kaupa nig til skepnu-
fóðurs, heldur maís.
Hann er eins góður til fóðurs, en hér
um bil þriðjungi ódýrari, ef hann er
keyptur í stórkaupum.
Ódýrast væri að fá hann beint frá
Ameríku, en það er eigi hægt að þessu
sinni, af því að beint verzlnnarsamband
vantar við hana.
Eftir seinustu verzlunarskýrslu, er
eg hefi fengið frá Kaupmannahöfn og
nær til 6. þ. m., var verðið þá á maís
kr. 4,60 á 100 pnndum. I stórkaupum
hefir hann þá líklega ekki kostað meira
en 8 kr. 200 pd., og alt útlit fyrir, að
bæði maís og aðrar fóðurtegundir geri
fremur að lækka en hækka í verði, þeg-
ar á líður sumarið, því bezta útlit er
með uppskeru bæði í Ameríku og hér í
álfu.
Af olíukökum ættu bændur helzt að
lcaupa: bómullarfrækökur eða bómullar-
fræmjöl, hörfrækökur og rapskökur.
Verðið á þeim var, eftir áðurnefndri
skýrslu, 100 pd. á 6,80, 7,00, 6,85 og
6,00 kr. Þó má óefað fá verulegan af-
slátt í stórkaupum. ®/4 pd. af olíukök-
um jafngilda til fóðurs 1 pd. af maís
eða rúg. Flutningskostnaðurinn á þeim
verður því mikið minni. Af öllum þess-
um kökum má fá stórum ódýrari teg-
undir (franskar, rússneskar, egipzkar o.
s. frv.), en þær eru sem því svarar lak-
ari til fóðurs.
Fáar vörur er auðveldara að svíkja en
olíukökur, enda er það ekki óalment.
Mjög áríðandi er því að kaupa þær af
áreiðanlegum verzlunum, sem geta sýnt
trygging fyrir, að þær séu góðar og
óskemdar.
Maís getur og verið misjafnlega góð-
ur, eins og yfir höfuð allar korntegundir,
og fer fóðurgildi hans og verð eftir því.
Dýrustu tegundirnar bæði af olíukökum
og maís eru venjulega þær ódýrustu,
þegar tekið er tillit til fóðurgildisins,
og einkum yrði það hjá oss, þar sem
flutningskostnaður er svo mikill.
Til þess að eigi þurfi að fækka skepn-
um verulega i haust, mun eigi veita af,
að keypt só útlent fóður sem svarar 2
kýrfóðrum á hvert býli á landinu. Meðal-
kýrfóður er 5000 pd. af töðu, og 2000
pd. af maís eða 1500 pd. af olíukökum
jafngilda því til fóðurs. A öllu landinu
eru rúm 6600 býli, og þyrfti þá að
kaupa nál. 26 J milj. pd. af maís eða sem
því svarar í olíukökum og maís. 26 J
milj. pd. er sama sem 132 J þúsund
200 punda sekkir. En það er aftur
sama sem 13 þ þúsund smálestir. Með
öðrum orðum: rúmir 13 þúsund-smálesta
skipsfarmar. Það mundi kosta utanlands
rúma 1 miljón kr. Væri flutningnum
haganlega fyrir komið, ætti flutnings-
kostnaður frá Danmörku ekki að vera
meira en J eyrir á pd., eins og hann er
yfir Atlanzhaf eða 132 þús. kr. alls.
Heimflutningur á fóðrinu af höfnum
geri eg ráð fyrir að mundi kosta 1 eyri
á pd. upp og niður.
Alt fóðrið, 13,200 kýrfóður, kostaði þá
heimflutt tæpa 1 J miljón, eða kýrfóðrið
ekki nema 110 kr.
Væri helmingurinn af þessu fóðri not-
að handa kúm, en hitt handa sauðfó,
mætti setja á í haust 6,600 kýr fleira
en ella og fast að 200,000 fjár.
Mörgum mun þykja þetta háar tölur,
og vaxa í augum kostnaðurinn. En
þegar tekjuhliðin er athuguð, vona eg
að allir sjái, að hér er ekki um neina
fjarstæðu að tefla.
Meðalkýrnyt er um 2000 pt. af mjólk,
og só potturinn reiknaður á 10 a., er
mjólkin 200 kr. virði.
Þótt 10 kr. sóu reiknaðar á kú fyrir
ábyrgð og uppyngingu, og mykjan og
kálfur látinn jafnast móti hirðingu, húsa-
vist m. fl., verður hagnaðurinn 80 kr.
á hverri kú.
Og með því háa verði, sem nú er á
sauðfjárafurðum, er óhætt að gera arð-
inn af sauðfé, sem fóðra má á kýrfóðr-
inu, 80 kr. að minsta kosti. Beini hagn-
aðurinn af fóðurkaupunum yrði þá rúm
1 miljón króna.
Svona fóðurkaup eru því fjarri því
að vera neitt neyðarúrræði, og ófyrir-
gefanlegt framtaksleysi væri það af bænd-
um, að vanrækja þau alveg, þar sem
fyrirsjáanlegt er, að annars verður að
fækka skepnum stórkostlega í haust, eða
setja á »guð og gaddinn«, og eiga undir
tilviljun einni, hvort ekki verður al-
mennur fellir næsta vetur.
Til þess að komast að sem beztum
kaupum og flutningskjörum er nauð-
synlegt að fleiri hóruð leggi saman.
Hreyfing í þá átt er þegar byrjuð aust-
anfjalls fyrir forgöngu Agústs óðalsbónda
Helgasonar í Birtingaholti, og er eigi
ólíklegt, að Borgfirðingar verði með í
þeim félagsskap.
Líklega væri bezt að semja við Thor
E. Tulinius um flutninginn, að minsta
kosti á því fóðri, sem ætti að fara til
Stokkseyrar.
Norðan-og austanlands mun hagkvæm-
ast, að kaupfélögin gangist fyrir fóður-
kaupunum, og mjög sennilegt er, að fá
mætti ódýran flutning á fóðrinu með
fjártökuskipunum í haust.
Peninga til fóðurkaupanna efast eg
ekki um að fá megi í bönkunum, eða
fyrir milligöngu þeirra, að svo miklu
leyti sem þess þyrfti við.
Eg hefi slcrifað tveimur stórum og
áreiðanlegum verzlunum í Khöfn, sem
verzla með skepnufóður, og spurst fyrir
um verð á maís og olíukökum í stór-
kaupum seinni hluta ágústmánaðar eða
framan af september. Svari býst eg við
um eða fyrir miðjan júlí. Auðvitað má
fá verzlunarfóður eins ódýrt á Englandi
og í Danmörku, en mér er ekki kunn-
ugt um, hvernig eftirlitinu með því er
hagað þar, en á því ríður mjög, einkum
á olíukökunum.
Guðjón Guðmundsson.
Aflast hefir
fyrirtaks-vel í vor við ísafjarðardjúp,
meira en dæroi eru til síðan mislinga-
vorið (1882). Þeir höfðu drýgt skepnu-
fóður með ýmis konar fiskifangi, ísfirð-
ingar, og bjargast fyrir það þolanlega,
þótt mjög væri orðnir heytæpir. Ný-
lega var farið að fást við síld við Djúpið
í dráttarvörpur, og því taldar góðar
horfur á; að sumarið verði ðflasælt.
Hlaðafli var á Austfjörðum, er síðast
fróttist, einkum á Seyðisfirði.
Kommgkj örlnn þing;maður
er orðinn Steingrímur Jónsson sýslu-
maður á Húsavík. Ekki þarf á honum
að halda á þingi fyr en að ári. En í
krásina þurfti að komast, þingmanna-
heimboðið. Fyrir upphefðinni þessari
hafði liann ærið unnið f fyrra með því
að fá 33 Þingeyinga til þess að rita
undir hollustuskjal til ráðgjafans og
trúnaðartrausts út af ritsímamálinu.
Kunnugir bera honum og engu minni
fylgispekt við ráðgjafann en Pótri
á Gautl. bróður hans, og er þá langt til
jafnað. Aðra sórstaklega þingmensku*
hæfileika kannast þeir ekki við.
Með skemttferðamenn, rúma 20 að
tölu, flestalla enska, kom s/s Botnia i gær-
kveldi frá Leith.
Enn fremur komu frá Khöfn stórkaup-
mennirnir Lefolii (Eyrarb.) og Ólafur
Ólafsson (Duus).