Ísafold - 27.06.1906, Page 1
Kemur út ýmist einn sinni eöa
'tvisv. i vikn. VerÖ árg. (80 ark.
minnst) 4 kr., erlendis 5 kr. eöa
U/s doll.; borgist fyrir miðjan
júli (erlendis fyrir fram).
ISAFOLD.
Uppsögn (skrifleg) bnndin yíö
áramót, ógild nema komin sé til
útgefanda fyrir 1. október og kaup-
andi sknldlaus við blaðið.
Afgreiðsla Austurstræti 8
XXXIII. árg.
Reykjavík miðvikudaginn 27. júní 1906
42. tölublað.
I. 0. 0. F. 886299
Augnlækning ók. 1. og 3. þrd. kl. 2—8 l spítal
’Forngripasafn opiö á mvd. og ld. 11—12.
Hlutabankinn opinn 10—2 */* og ö*/*—7.
K. P. U. M. Lestrar- og skriístofa frá 8 árd. til
10 sibd. Alm. fundir fsd. og sd. 8 */* siód.
Landakotskirkja. öubsþj. 9 og 6 á helgidögum.
Landakotsspitali f. sjúkravitj. 10 */*—12 og 4—6.
Landsbankinn 10 */a—!2»/t. Bankastjórn við 12—1.
Landsbókasafn 12—B og 6—8.J
Landsskjalasafnið á þrd^ fmd. og Id. 12—1.
■Lækning ók. i læknask. þrd. og fsd. 11—12.
Náttúrugripasafn á sd. 2—8.
Tannlækning ók. i Pósthússtr. 14, l.og3.md. 11—1
fer upp í Borgarnes 29. júní,
10., 20. og 26. júlí. Kemur við
4 Akranesi í hverri ferð báðar leiðir.
Til Straumf jarðar og Akra
13. og 17. júlí.
Suður í Keflavík fer Reykjavíkin
4. og 23. júlí.
Og loks 4. júlí suður í Garð og
alla leið austur á Eyrarbakka
og S t o k k s e y r i, kemur við báðar
leiðir í Hafnaleir, Grindavík og |>or-
lákshöfn.
Um þingmannalieimboðið
er ritstjórnargrein í Ekstrabl. í Khöfn 13. f.
mán., rituð af meiri greind og skilningi
á vorum málum en vór eigum að venjast
af dönsknm blaðamönnurn. Þar virðist
og vera mjög nærri fariö um væntan-
legan árangur af þessu heimboðstiltæki.
■Og þótt ísafold samsinni engan veginn
•öllu, sem í greininni stendur, þykir hún
að öðru leyti vel til fallin að birtast
‘hór í heilu lagi.
Blaðið tekur það fyrst fram, að fyrir-
hugaðir samfundir íslenzkra alþingis-
manna og danskra þingmanna og stjórn-
málamanna muni vekja miög blandnar
tilfinningar á báðar hliðar, eftir alt það,
sem á undan er gengið,
Því næst segir þar ennfremur:
Af Dana hálfu verða tilfinningarnar
ef til viil ekki mjög eindregnar og kafna
fljótt í góðum mat og miklu víni með
þar með fylgjandi skálarræðum. Það
mun stafa ekki sízt af býsna-grunnri
þekkingu og ekki sórlega miklum áhuga
af hálfu danskra stjórnmálamanna yfir-
leitt á íslenzkum málum síðari árin.
Hinn mikli ókunnugleiki á þeim mun
gera það að verkum, að flestum dönsk-
tun þingskörungum mun fljótt hægjast
innan brjósts, í trausti þess, að góð sam-
húð við ísland haldist áfram, eins og
hingað til, og þess óskum vér allir af
hjarta.
Um íslendinga er alt öðru ináli að
§egna. Þeir eru mikið vel kunnugir
^önskum högum og háttum, ekki sízt
^jórnarhögunum, og þó að margt beri
Þeim f rnilli, þá kemur þeim saman um
eiU> og það er að vera miður ánægðir
meÖ sambandsástandið við Danmörku.
Pah, að þeir koma, sýnir auðvitað, að
t)eir koma í vinarhug. En hinu er oss
öhætt að ganga að vísu fyrir fram, að
,ekki iata þeir minstu vitund uudan í
þjóðernislegum kröfum sínum.
Að því leyti sem heimboðið er kurt-
eisis-tilvik og ástúðar frá Dana hálfu,
sprottið af þeirri ósk, að hafa samneyti
við fulltrúa hins fjarlæga lands, er óhætt
að segja það undir eins, að allar horfur
eru á að því reiði vel af og öllum til
ánægju. En fylgi því hins vegar ein-
hver ákveðinn stjórnmálatilgangur (og
hvers eðlis sá tilgangur er, um það geta
ekki verið skiftar skoðanir, eftir því sem
til hagar), þá má ganga að þvi jafnvísu,
að heimboðshugmyndin er á engu viti
bygð. Hafi stjórnin gert sér von um
að hæna íslendinga að sér með þessari
ástúð eða láta þá líta meiri vinaraugum
til Danmerkur og Dana, þá er það að
minsta kosti gert um seinan. Hreyfing
þeirri í áttina til meira’ sjálfstæðis og
þess, að losast við Danmörku. sem komið
hefir fram á íslandi, verður nú naumast
hægt að andæfa. Miklu fremur má
búast við, að sérhver tilraun í þá átt,
beinlínis eða óbeinlínis, muni gera ilt
verra. Það má eiga víst, að hvernig
sem vér staðfestum eilíft og óbreytan-
legt vináttuþel vort til íslands og Is-
lendinga með fjölda af skálarræðum og
húrrahrópum, þá hefir það engin veru-
leg áhrif.
Stjórnarmálið íslenzka er afarörðugt við-
fangs. Það mun sannast, að það verður
óviðráðanlegt. Meinið er það, að ekki
er í rauninni neitt sameiginlegt að þjóð-
erni með því sem danskt er og íslenzkt,
og að sterkustu tengslin, sem verið hafa
milli landanua og lengst munu haldast,
eru fjárhagslegs eðlis, stafa af því, hvað
ísland er fátækt, fólksfátt og stenzt illa
harðæri eða önnur áföll. Ef svo væri,
að Islendingum þætti, þegar alt kemur
til alls, frami í því, að vera einn liður
Danaveldis, yrði raunar sjálfsagt örðug-
leikar á að koma sambandinu milli land-
anna þannig fyrir, að íslendingar fengi
nægilegt sjálfsforræði, en þá mundi það
samt vafalaust verða gert. En úr því
að svo er, að íslendingar hafa öllu frem-
ur ímugust á oss og þeim finst það
jafnvel hálfgildis þjóðleg minkun og
niðurlæging, að vera nokkurs konar
undirlægja Danmerkur, þá er burtu
kipt grundvellinum undan verulegu og
varanlegu samkomulagi. Hann mun
raunar hafa vantað alla tíð, enda hefir
að minsta kosti fyr á.tímum verið farið
svo heimskulega að ráði sínu af Dana
hálfu og sórstaklega sýnt svo mikið
tómlæti í garð íslendinga og um ís-
landsmál, að það hefir af sór getið
beiskju, sem gerir alla alúð og einlægni
gersamlega ómögulega.
Vér getum því ekki spáð nema
mjög rýrum árangri af þessari kynnis-
för íslendinga. Vór megum meira að
segja kalla það góðra gjalda vert, ef
vel lánast að sneiða hjá því, er kynni
að valda enn meiri fáleikum eða óþæg-
indum.
Ekki er heldur hægt að segja, að til-
takanlega inhilegt danskt gleðiefni geti
þessi kynnisför verið. Stjórnarmálið ís-
lenzka verður oss nærgöngnlla; það er
alt og sumt. Og hvernig svo sem það
verður skýrt fyrir oss, mun það sann-
ast, að sjálfstæðiskröfur íslendinga eru
svo víðtækar, að í sama stað kemur
niður og ef farið væri fram á að losna
við oss, eða þó að minsta kosti ætlast
til, að heldur greiðist leiðin til skilnað-
ar, og er að því leyti til ekki loku fyr-
ir skotið, að yfir veizlufagnaðinn bregði
angurblíðum skilnaðarblæ, þess skilnaðar
milli íslands og Danmerkur, sem felst
vafalaust bak við alla íslenzka stjórn-
málaumhugsun og fram mun koma ein-
hvern tíma að vorri hyggju; — hvernig
hann verður lagaður og hve nær hann
ber að höndum, það vitum vér ekkert
um. —
Bæjarstjórn ReyUjavíkur sam-
þykti á fundi 26. f. mán., að ritsimastaur-
ana mætti leggja um Laugaveg, að því
áskildu, að landstjórnin bæti bænum kostn-
aðarlaust allar þar af leiðandi skemdir á
götum og rennum og að staurarnir verði
sæmilega útlítandi.
Samþykt var að leggja i sumar nýja
götu milli Njálsgötn og Skólavörðustigs og
veitt til þess alt að 1000 kr.
Þá var eftir tillögu veganefndar og verk-
fræðings bæjarins samþykt að verja alt að
1600 kr. til neðanjarðurræsis úr Hafnar-
stræti gegnum Hafnarbryggjuna út i sjó.
Bannað var að taka upp frá þessu möl
og sand nokkursstaðar i fjörunni frá bryggju
Geirs Zoega austur að Skanzinum, og sömu-
leiðis að aka mold eða uppfylling i sjóinn
og tjörnina — hvergi nema þar sem verk-
fræðingur bæjarins vlsar á.
Samþykt var sú ráðstöfun veganefndar,
að fela þeim Þórði i Laugarnesi og Jóni
á Laugalandi gæzlu á hestum bæjarins inn-
an girðinga fyrir 80 kr. þóknun á mánuði
til septemberloka, og 25 a. fyrir að sækja
hesta og flytja fyrir hesteigendur. Þeir
eiga að hafa hestaport inni í bænum.
Fyrir hagagöngu og gæzlu hrossa greiðist
2'lz kr. á mánuði eða part úr mánuði i
bæjarsjóð.
Vilhjálmi Bjarnarsyni á Rauðará leyft
að breyta í byggingarlóð og selja (á 90 a.
feralin) 400 ferálnir af erfafestulandi hans
gegn greiðslu á '/5 andvirðisins í bæjarsjóð
og að óskertum vegalagningarrétti um landið.
Brunamálastjóri segir af sér /frá ágúst-
mánaðarlokum.
Samþykt brunabótavirðing á þessum hús-
eignum: Iðnaðarmanna við Lækjargötu
34,471 kr.; Brynj. H. Bjarnason i Aðal-
stræti 13,094; Eyólfs Þorkelssonar í Aust-
urstræti 9,644; Jóhannesar Guðmundssonar
í Nýlendugötu 5,108; Eiriks Bjarnasonar
við Tjarnargötu 3,934; C. Frederiksen við
Amtmannsstíg 1248.
PóslKufusfeip Ceres (Gsd) kom á
helginni frá Khöfn, Leith og Færeyjum,
með marga farþega, auk Poestions og land-
ritarans Helga Jónsson náttúrufræðing, frk.
Unni Thoroddsen, D. Östlund ritstjóra,
kaupmennina Garðar Gislason (frá Leith,
sem fer aftur 2. júli), Hannes S. Hanson,
Gisla Jónsson og Erlend Erlendsson, stú-
dentana Geir Zoega, Guðmund Thoroddsen,
Ingvar Sigurðsson, Páll Egilsson (frá Múla),
Sigurð Sigurðsson og Skúla Bogason,
Carlquist vindlamann o. fl.
Hafísinn
sigldi á stað út af Húnaflóa sjálfan
hvítasunnudag, 3. júní, eftir 5 vikna
dvöl þar inni á öllum fjörðum. Að eins
autt með eystra landinu lengst af. Höpp
fylgdu ísnum lítil sem engin, nema að
á Steingrímsfirði náðust 100 hnísur og
höfrungar. Gangverð á hnísum er 5
kr. Höfrungar ekki hafandi til matar.
Brlend tíöindi.
Markonisk. 25/6
Margar Tyrkjahersveitir í Yemen hafa
gert samblástur gegn yfirmönnum sín-
um. Yfirherstjórinn lét hleypa á þá af
fallbyssum og komust fáir undan.
Frézt hefir, að þeir keisararnir Rússa
og Þjóðverja hafi fundist í dag úti í
Eystrasalti.
Roosevelt forseti tjáist einráðinn að
láta tafarlaust draga þá fyrir sakamála-
dóm, er ráða fyrir Standard-olíufélaginu,
og hefir gróðabrallslýð orðið heldur bilt
við. Enginn hafði búist við, að nokkuð
yrði úr því, að beitt væri þeim strang-
leika.
Rússneskir skipaútgerðarmenn eru að
bera sig að komast yfir alla mannflutn-
inga frá Rússlandi til Bandaríkja, sem
fara mjög vaxandi. Bráðum byrjar ný
mannflutninga-útgerð milli Libau og New
York með viðkomustað í Dover, og er
búist við hlífðarlausri farþegagjalds-niður-
færslu milli þeirra og þýzkra keppinauta.
Vilhjálmur keisari hélt þeim Long-
worthshjónum (Alice forsetadóttur og
manni hennar) viðhafnarveizlu í Kiel og
lét skemta mönnum á eftir með ljóm-
andi flugeldum.
Fimtíu og tveir Egiptar hafa verið
dregnir fyrir dóm í Cairo út af fráfalli
Bulls höfuðsmanns, sem var veginn á
dúfnaveiðum ásamt öðrum liðsforingja.
Veörátta
er allhagstæð orðin og hefir verið um
tíma fyrir grasvöxt, enda er hann sagður
vonum framar orðinn og líklegur víða.
Þó mjög tæpur á mýrlendi; mýrar hafa
skrælþornað í hinum óvenjumiklu og
langvinnu þurkum í vor. Náttfall hafir
bætt úr á valllendi. Þar hefir því
sprottið furðufljbtt og vel.
Dilskipaaíli
virðist hafa orðið í meðallagi hér ný-
afstaðna vorvertíð. Skipin eru að koma
inn þessa dagana og fæst ekki greini-
leg skýrsla fyr en síðar. Þau sem hafa
haldið sig hér í flóanum eða fyrir sunn-
an land, hafa fengið óvenjuvænan fisk.
En hin miklu smærri, sern farið hafa
vestur fyrir land.
Slysfarir.
Unglingspiltur, á fermingaraldri, misti
af sér hægri hönd í úlnlið í fyrra dag
í verksmiðjunni Völundi. Hann greip
til hendinni við falli og lenti fyrir vélar-
sög.
Skammbyssuskot lenti óvart í brjósti
á 7 vetra pilti hér í Þingholtum í gær.
Hann er þó enn með lífi. Kúlan hefir
ekki náðst.
Faxaflóagufub. Reykjavík komst
ekki með i morgun nema helming af þeim
mikla ferðamannasæg, sem þurfti að kom-
ast upp i Borgarfjörð. Hún fer á föstu-
daginn með þá sem eftir voru.