Ísafold - 12.07.1906, Page 2

Ísafold - 12.07.1906, Page 2
177 ÍSAFOLD Satt er það að vísu, að talsvert víða hefir nú á áliðcum vetri, þessum hin- um síðaata, gosið upp kláði og kláða- hræðsla hér nyrðra. Mér er ekki eins kunnugt um, hvað annarsstaðar gerist, en skýrslur hafa fengist um, að hans hafi orðið vart á stöku bæ í 5—6 sýelum. þ>etta hefir orðið matur fyrir þá, sem ekki vilja trúa því að kláðan- um verði útrýmt. Einhver Eeykv/kingur hefir í apríl mánuði ritað bréf, sem prentað er í daDska blaðinu Dannebbog 14. maí í vor, þess efnis, að allar ráðstafanir til útrýmingarinnar muni vera unnar fyrir gýg, og aldrei muni takast að vinna bug á kláðanum að fullu, og aldrei lánist að ganga milli bols og höfuðs á seinasta kláðamaurnum. Ber bréfritarinu fullar brigður á, að kláð- inn sé upprættur í Noregi, og að sama brunni muni bera hér. Verkin sýni merkin. Kláðinn sé enn lifandi og með fullu fjöri. Svo er endað með því, að hollast muni vera að halda sér við gamla lagið: halda kláðanum í ekef- jum með böðum og hirðusemi; það þurfi ekki að kosta landssjóð neitt o. s. frv. Svo mörg eru bréfritarans orð. f>ess- ar kenningar kváðu líka við í hverju horni fyrir 10—20 árum, og kváðu hafa bergmálað nýlega vestan úr Stranda- sýslu í Lögréttl'. f>eir tala digrast í þessu máli, sem enga hugmynd eða þekkingu hafa á því, eins og nú er orðið títt. En hvað um það — maurar hafa fundist og það nokkuð víða, en n æ r- felt alstaðar alt aðrir maur- ar en þeir, er valda hinum hættulega fjárkláða. f>að hafa Bmásjár-rannsóknir á Akureyri á maurum þessum sýnt og sannað. En bó að svo sé, þá er það þó ilt, að kláðamaur er enn til. En við það leyfi eg mér að halda mér, þangað til annað verður sannað, að hr. Mykle- stad hafi tekist að vinna svo bug á hinum hættulega kláðamaur, að alhægt ætti að vera að útrýma honum að fullu, ef nógur áhugi og aðgæzla er viðhöfð. Og það er stórvirki, sem landið fær honum aldrei fullþakkað, þótt aldrei væri nema það eitt, að kynna mönnum eðlisháttu maursins . og lífs- skilyrði, og hvernig bezt n\á vinna bug á honum. Eins og nú stendur, álít eg sjálf- sagt að gera enn þá alt til þess, að vaka yfir kláðanum og baða almennu kláðabaði um alt land í hau3t, t. d. í nóvembermánuði. Báðstafanir í þá átt væru miklu þarfari a ð o f a d, þarna úr Beykjavík, heldur en aðrita bréf í útlend blöð, þess efnis, að nlakka yfir því, að kláðanum verði ekki út- rýmt, og spilla þannig fyrir kjöt- og ullarmarkaði vorum utanlands, — auk þess sem það vekur vantraust þjóðar- innar á þessu mikla velferðarmáli, og getur orðið til þess, að útrýmingin til fullnustu gangi seinna en ella mundi V8rða. Bifkelsstöðum, 20. júní 1906. Hallgr. Hallgrímsson. Rekln lík. Hér nærlendis rak vik>ina sem leið 4 lík þeirra manna, er fórust með fiski- skipinu Ingvabi í Viðeyjarsundi 7. apríl í vor. Tvö líkin þektust: Kláusar Jónssonar frá Ausu í Borgarfirði og Sig- urðar Jóhannessonar úr Keykjavík. Þau voru jörðuð hér öll í fyrra dag og stóð Duus-verzlun fyrir. Bein Yiðskifti við Araeriku eru i boði Hr. Guðjón Guðmundsson hefir í grein sinni í Isafold 23. f. mán. um stórkaup á útlendum fóðurbæti kom- ist meðal annars þannig að orði: — nódýrast vœri að fá hann (fóður- bætinn — maísinn) beint frá Ameríku; en það er eigi hœgt að þessu sinni, af því að beint verzlunarsamband vantar við hana*. Gagnvart þessari staðhæfingu vil eg taka það fram, að eg hefi nú þegar beint verzlunar-samband við Ameríku bæði á maís og öðrum akurafurðum þar, o. fl., eins og eg hefi nokkurum sinnum auglýst síðastiiðna 4 mánuði. það er þess vegna algerlega óþarft fyrir lands- menn, að sæta Dokkrum öðrum kaup- um á fóðurbæti frá útlöndum, uú eða eftirleiðis, en þeim allra beztu, sem mögulegt er að fá í stórkaupum, beint frá Ameríku. Eg get meira að segja útvegað 1000 sekkja sendingar (127 pd. sekki) til einstakra hafna hér á landi með allra lægsta stórkaupaverði, jafnódýrt og heill gufuskipsfarmur væri beina leið frá Ameríku (ef skipið fer tómt til baka og alt fer vel með afferming hér), meðan þeir íiutningskostir gilda, sem eg hefi komist að og líkur eru til að haldist, ef menn aðeins vilja nota þá. Sannanir fyrir því, að þetta sé rétt- ur framburður, hefi eg í höndum; og auk þess má benda á, að eg hefi nú nýlega fengið nokkur hundruð sekki af hveiti og haframjöli og fóðurmjöli beint frá New York til Bvíkur, sam- kvæmt þessum flutnings-samningi, og er í þann veginn að senda af stað næstu pöntun. Einnig get eg útvegað beinan ódýr- an flutning á vörum héðan til Ameríku, með nokkurum fyrirvara, hvort heldur í smærri sendingum eða heilum skips- förmum beina leið S6m og samband við verzlunarhús vestan hafs. En eg snerti ekki við slíku nema fyrir fulla borgun. Fólk hér hefir lengi þráð beint við- skiftasamband við Ameríku. Nú er það fengið. — Láti menn nú sjá, að þeir vilji nota það. Fólk hefir hér haft þá skoðun, að beÍD viðskifti við Ameríku væru ómögu- leg, nema með beinum gufuskipsferð- um, en til þess að þær gætu komist á, væri viðskiftaþörfin hér alt of lítil. En sannleikurinn er nú sá, að vöru- flutningur á slíkum skipum er miklu áhættumeiri, en e n g u ó d ý r a r i, þó að fullfermi væri aðra leiðina, en þau flutningskjör, sem eg nú hefi á smærri sendingum — nema því að eins, að unt væri að ferma skipið að talsvert miklu leyti vestur aftur. En ef menn samt sem áður vilja fremur heila skipsfarma beina leið, þá get eg líka útvegað það. Sinnið þeasu í tíma, landar góðir; það getur fært yður margra miljóna króna hag í framtíðinni. Látið ekki þvæla yður út í neitt pantanakák upp á falsvonir um ómögulegt verð. Pantið þær vörur á þenna hátt, beint frá Ameríku, sem þaðan eru annars fluttar hingað fyrir milligöngu verzl- unarhúsa í Norðurálfu með álögðum margs konar aukakostnaði. Kaupið þær með lægsta heildsöluverði frá fyrstu hendi, vandaðar, nýjar og óskemdar, og sparið yður allan óþarfan kostnað á þeim. Eeykjavík, 30. júní 1906. S. B. Jónsson. Framfarir Daumerkur. Glögt og fróðlegt yfirlit yfir þær um daga Kristjáns konungs níunda, meira en 40 ár, er í nýrri bók, safni til sögu hins framliðna konungs (eftir dr. H. P. B. Barfod). Fám míssirum eftir að Danir mistu Slésvík, á fyrsta ríkisstjórnarári Kr. konungs, stofnuðu þeir Heiðafélagið józka (1866), til þess að græða sér land í skarðið upp úr Jótlands öræfum. ji>eir hafa grætt þar út 20 fermílur skógar, mörg þúsund engisdagsláttur og grafið meira en 50 mílna vatns- veituskurði. Velmegun þjóðarinnar hefir vaxið stórum og fólksfjöldí aukist að því skapi, sem sjá má á þessu yfirliti, er Hagfræðisskrifstofan í Khöfn hefir samið. þar eru tekin til samanburðar árin 1860 og 1906. Fólkstala var 1860 1906 í Khöfn . . . 155,241 427,494 á Friðriksbergi . 8,164 87,699 í öðrum kaupst. 213,745 509,337 utan kaupstaða 1,231,310 1,563,673 1,608,362 2,588,203 Talið var ekki fólk í Danmörku árið sem Kr. konungur kom til ríkis. En það næst áætlað, að mannfjöldinn hafi verið þá 1,672,000 (auðvitað auk Her- togadæmanna). f>á voru í þann mund alls í Dan mörku 74 s p a r i s j ó ð i r með 72 milj. kr. innlögum, en 1904, réttum 40 ár- um síðar, voru þeir orðnir 535 með 768 milj. kr. innlögum. Innlögin höfðu með öðrum orðum meira en tífaldast. B a n k a r voru í Danmörku 18 að tölu árið 1865 með 44 milj. króna hlutafé, en 100 árið 1904 og hlutaféð 152 milj. kr. T e k j u r þjóðarinnar voru gerðar 374 milj. árið 1870 eða 210 kr. á mann, hvert mannsbarn í landinu. En árið 1904 eru þær taldar 995 milj. kr. þjóðareignin taldist vera 1870 nálægt 4 biljónum, eða 4,058 milj. kr.; en 7 eða 75/4 biljónir voru þær gerðar um aldamótin. Verzlunarviðskiftamagnið við önnur lönd hafði aukist sem hér segir: aðfl. vör. útfl. vör. viðsk. öll kr. kr. kr. 1869—70 158 milj. 116 milj. 274 milj. 1904 599 — 498 — 1097 — Búpeningur var 1866 1903 Hross....... 352,603 486,935 NautpenÍDgur 1,193,861 1,840,466 Sauðfénaður. . 1,875,052 876,830 Svín........... 351,512 1,456,699 Annálaðar eru framfarimar í s m j ör- framleiðslu. Um 1865 seldu Danir smjör til annarra landa fyrir um 8 milj. kr. f>að hefir hér um bil tvítugfaldast síðan. f>að nam sem sé 152 milj. kr., sem Danir seldu út úr landinu af innlendu smjör árið 1904. — Fyrstu samvinnusmjörbúin voru stofnuð 8kömmu eftir 1880. f>au voru orðin 1064 að tölu árið 1905. Bæktað land var í Danmörku árið 1866 um 4,830,000 tunnur lands, sama sem nokkuð meira en 8 milj, vallardagsláttur. En 1901 voru komnar í rækt rúmar 6 milj. tunnur eða 10V3 milj. dagsl. f>að er sama sem 87 af hundraði af öllu landinu. f>að var 70 af hundraði fyrir 40 árum. Kaupskipafloti Dana hefir aukist sem hér segir: 1864 1904 skip smál. skip smál. Seglskip 3,028 143,538 3,130 135,550 Gufusk. __51 4,742 549 317 532 3,079 148,280 3,679 453,112 Járnbrautir voru í Danmörku 481/, míla vegar árið 1863, en 456 mflur þetta ár (1906). K i r k j u r voru 15 (lúterskar) í Khöfn árið sem Kristján konungur kom til ríkis, en eru nú 44. Viðbótin mest- öll reist með frjálsum samskotum. — Ekki batnar Bjarna enn — Nú er svo langt siðan að eg .áttii orða- skiftum við síra Bjarna Þorsteiusson 4 Siglu- firði um Kirkjusöngsbók hans, að eg var ' búinn að steingleyma honum fyrir löngu, En það er svo að sjá, sem hann muni þá betur eftír mér, — sbr. Isafold 33. tbl. þr á. (,3/í) og er það eigi smálitill sómí fyrir mig! Sr. B. Þ. er nú að leitast við að sýna fram á, að eg hafi (í »Hörpuhljómum«) gert mig sekan í sams konar glappaskotum og hann gerði, er hann bjó Kirkjusöngsbókina undir prentun. En hér er nú sinn háttur á hvoru,. síra minn! Eða er sr. B. ókunnugt um, að menn vikja að jafnaði frá svo ströngum reglum, sem gerðar eru til raddsetningar á sálma- lögum, þegar um annars konar söngljóð er að ræða! Hefir bann t. d. aldrei rekið augun i, að tónskáld raddsetja s$o\textans vegna, að ófært þætti i sálmalögum? Hann hefir liklega aldrei heyrt »program- musik« nefnda! Hefir maðurinn yfir höfuð að tala enga hugmynd um mismunandi »stil« i söng (musik). Eg 8é að öðru leyti enga ástæðu til að fara frekara út í þetta mál. Lög mín eru nú gefin út í Kaupmannahöfn og Leipzig,. hafa fengið og fá vafalaust erlendis dóm merkari söngfræðinga en sr. B. er, svo að mig má einu gilda hvað »þýtur í þeim skjá;« enda mun eg ekki virða hanu svars, þótt hann kunni að hreyta úr sér einhverjunu ónotum enn þá. St. á Akureyri 14. júni 1906. Sigfús lCinarsson.. t Gunnlaugur Grímsson stýrimaður f. 24. mai 1873, druknaði 8. april 1906 - (frá Hrólfskála) Móðurkveðja. Elskusonur, Ijóðin liða læt eg til þin út í höf, þar sem ólgar aldan striða yfir þinni bárugröf. Andlátsstunur þungar þaggar þrúðelfd bára i æðismóð, — er í dýpsta dúr hún vaggar, dauðinn kveður vögguljóð. Himinvakinn ástar-ylur að eins léttir þetta böl: Guð og enginn annar skilur instu móðurhjartans kvöl. Engin tunga’ er til, sem getur' trygð og sorg að fullu lýst, slíku lýsir langtum betur logheitt tár, er fram það brýzt- Fleirum hefir borfið kæti helfregn þina við en mér: Þú varst yndi’ og eftirlæti allra mannna’, er kyntust þér. — Einatt sá, er sizt þó skyldi, sökkur niður’ i kaldan mar kappa þeirra, er harða hildi heyja og kljúfa öldurnar. Hjartans kveðju’ í sædjúp senda systkinin þin nær og fjær; — þar sem raun er öll á enda, okkur vaggar friðarblær. — Sól og vorið, sérhver stjarna sýnir votan legstað þinn. — Heill að brjósti hafsins barna hvildu, elskusonur minn! Guðm. Guðmundsson,-

x

Ísafold

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.