Ísafold - 21.07.1906, Blaðsíða 2
Héraössýningin við Pjórsárbru
14.! .júlí.
SýQÍngarmerin voru sæmilega hepnir
með veður. J>að var gott um morg-
uninn, en rigndi nokkuð síðari part
dags.
Mannsafnaður töluverður úr báðum
sýslunum, sem sýningin náði yfir,
Árne88 og Bangárvalla.
Skráðir höfðu verið á sýninguna 27
graðfolar 3—6 vetra, og 17 naut, lJ/2
—4 ára. Gripirnir komu allir nema
1 eða 2.
Sýningin hófst stundu af dagmálum.
Henni var lokið um miðafcan, eða
þá höfðu dómnefndirnar lokið við sitt
starf.
Hrossadómnefndina skipuðu þeir
Guðjón Guðmundsson ráðunautur, Egg-
ert Benediktsson hreppstjóri í Laugar-
dælum og Bunólfur Halldórsson hrepp-
stjóri á Bauðalæk. En nautgripina
dæmdu þeir Sigurður ráðunautur Sig-
urðsson, þorsteinn Thorarenssen á
Móeiðarhvoii og Vigfús Guðmundsson
í Haga.
Engum fyrstu verðlaunum var út-
hlutað fyrir hesta (graðfola). f>eir
þóttu engir vera lýta- eða gallalausir.
Onnur verðlaun, 30 kr., fekk Hrossa-
ræktarfélag Austur-Landeyinga. Tveim
öðrum voru dæmd önnur verðlaun.
En þeir vildu ekki taka við þeim.
Ennfremur áttu 14 að fá^ þriðju og
fjórðu verðlaun, 20 oglOkr.; en sumir
vildu ekki þiggja þau, — þótti þau of
lág.
Fyrir nautgripi hlaut Nautgripafélag
Hreppamanna fyrstu verðlaun, 40 kr.
f>rír fengu önnur verðlaun: Sigurður
sýlumaður Ólafsson, Eggert í Laugar-
dælum og Nautgripafélag Ásahrepps.
Sjö fengu S. og 4. verðlaun.
Fyrir áminststórlæti nokkurrahrossa-
sýningarmanna urðu 130 kr. afgangs
af sýningarverðlaunafénu, og afréð
sýningarnefndin að leggja það í sjóð
og geyma til næstu sýningar.
Borðhald var haft í lok sýningar-
innar, og sátu að því rúml. 50 manns,
mest meiri háttar bændur úr sýslun-
um báðum.
Verðlaunamenn fengu skrautprentað
verðlaunaskírteini.
Guðj. Guðmundsson ráðunautur flutti
tölu um leið og verðlaununum var út-
býtt. Hann talaði einnig síðar um
kveldið og auk hans Sigurður ráðu-
nautur Sigurðsson, Einar á Geldinga-
læk, Páll í Ási og Eggert í Laugardæl-
um. •
Fólk skemti sér fram á nótt við
söng og ræður, dans og hljóðfæraslátt.
Sýningarsamkoma þessi hafði farið
mikið vel fram og skipulega.
Stjórnendur sýningannar voru þeir
Guðjón Guðmundsson ráðunautur,
Ágúst í Birtingaholti og þórður í
Hala.
Veðrátta.
Verið hefir þessa viku ákaflega 4ítið
um sumarhita. Norðan-næðingur dag
eftir dag. Sæmilega hlýtt um hádag-
inn, vegna sólarinnar. En kalt kveld
og morgna; mjög fárra stiga hiti á
nóttum í bygð ; sjálfsagt frost til fjalla.
En víðar er sumarið kalt en hér.
T. d. var frost á nóttu um mestalla
Danmörku í upphafi þessa mánaðar,
og olli skemdum á gróðri (kartölfum
o. fl.). Mánudagsmorgun 2. júli er
getið um, að lagðir hafi verið pollar
víða í Slagelse á Sjálandi eða þar í
kring.
En sunnar miklu getur kári skift
skapi um 'hásumar. Sömu vikuna,
hina fyrstu í þ. mán., gerði svo mikið
haglél suður í Valencia á Spáni, að 50
manna stórmeiddust, og eignatjón varð
mikið af þeim völdum. — —
Svo var gróðrarveðrátta góð hér
margar vikur framan af, eftir að bat-
inn kom, að mikið vel er látið af
grasvexti víðast þar er til spyrst.
Keimaraleiöangurinn.
Hann varð miklu fáliðaðri en ráð-
gert hafði verið, kennarahópurinn
norski og danski, er hingað kom um
daginn með s/s Tryggva kongí, ekki
nema 28 alls í stað 50. f>ar af eru
14 frá Norvegi, að meðtalinni fslenzku
kenslukonunni frá Moss, frk. Halldóru
Bjarnadóttur; 13 frá Danmörku, og 1
frá Svíþjóð (Málmhaugum). Stöku
maður í hópnum er utan kennarastéttar.
N o r s k a fólkið er :
Frk. Marie Blix frá Kristjaníu.
» Karoline Nikkelsen frá Kristjaniu.
» Marie Kolkinn.
» Pauline Leken frá Elverum i Eystri-
dölum.
» Karen Reitan frá Elverum.
Hr. Espeland bókari frá Kristjánssandi.
» Holmesen yfirkennari í Kristjaníu.
» Anders Hovden prestur í Krydsherred
(nál. Drammen), skáld og rithöfundur
(á nýnorsku).
» Rolleif Lian kennari frá Lundi á Þela-
mörk.
» Rustoen skólastjóri frá Heggedal nál.
Kristjaníu, formaður fararinnar.
» Rokke kennari.
» Trond Kvale ritstjóri frá Elverum í
Eystridal.
» (vantar nafn á einum).
D a n s k i hópurinn :
Frk. Astrid Aroup frá Silkeborg.
» Agnete Buhl frá Khöfn.
» Cohn frá Khöfn.
» Gjærding frá Khöfn.
» Marie Hansen frá Khöfn.
» Ingeborg Michaelsen frá Kallundborg.
» • Mikkelsen frá Khöfn.
» Karoline Möller frá Horsens.
» Anna Ottesen frá Kalundborg.
» Anna Reck frá Khöfn.
» Rosendal frá Khöfn.
Hr. Adrian frá Khöfn(?).
» G. Callesen frá Khöfn(?).
S æ n s k kenslukona
Frk, Kroon frá Málmhaugum.
Hópur þessi allur eða mestallur lagði
á stað á s/s Reykjavík upp í Borgar-
fjörð á miðvikudaginn og ætlaði að
Borg þá um kveldið, en þaðan upp
að Beykholti og upp í Hvítársíðu og
jafnvel upp í Surtshelli; þaðan á þing-
völl og þá hingað aftur í næstu viku,
nema ef eitthvað fer til Geysis frá
þingvöllum. f>að var ekki fullráðið.
Fyrir forgöngu 7 manna nefndar,
flest kennara, karla og kvenna, með
forustu M. Hansen skólastjóra, er gest-
um þessum skift niður til gistingar
á ýmsa bæjarmenn, er boðist höfðu
til að hýsa þá þær fáu nætur, sem
þeir dveljast hér í bænum.
þeim voru sýndar glímur á mánu-
dagskveldið og haldinn samsöngur
kveldið eftir f Bárubúð, hinn sami
sem þjóðverjum um daginn.
Þingmaniialieiinboðið.
Skraf er um það ofurlítið í dönsk-
um blöðum nýkomnum. Politiken
flytur þá frétc, að alþingismennirnir
komi a 11 i r nema einn, og er ósköp
kát yfir og hróðug. jpessi eini, sem
ekki kemur að hennar sögn, Björn
kaupm. Kristjánsson, gefur hún í skyn
að sitji kyrr vegna þess, að hann
sé mikill vinur ritstjóra ísafoldar!
(Sannleikurinn er sá, að 4 hafa þeir
setið heima, það er frekast vita menn
hér).
Politiken ætlaði að flytja mynd af
þingmönnum öllum, þeim er heimboð-
ið sækja, með æfiágripi eða lý6ingu á
þeim. Hún var komin með fáeina.
f>ar er borin óspart feitin á stjórnar-
liða.
Sama blað til nefnir mikinn fjölda
meiri háttar manna í Khöfn, er boðn-
ir 8éu í aþingismannaveizlurnar, bæði
hjá kongi í Fredensborg, dögurðinn,
sem þar átci að halc^a þeim í gær, og
þær, sem ríkisþingið heldur, — kveld-
verð í þinghúsgarðinum í fyrra kveld
og miðdegisveizlu í Oddfellow-höllinui
á morgun, — ein 400 eða 500 gestir.
Stjórnarblaðið Köbenhavn flytur 7.
þ. mán. dálitla ámælisgrein fyrir það,
að ekki sé ætlast til, að kaupmanna-
stéttin danska og iðnaðarstéttin skifti
sér neitt af heimsókn þingmannanua
íslenzku. Segir það sé skrítið, ef
annars sé hugsað til að eitthvað haf-
ist upp úr heitnsókninni og allri ferð-
inni. »Framar öllu öðru ætti þessi
heimsókn að vekja fjáraflamenn vora
til samvinnu við ísland; það er eina
leiðin til verulegra og öflugra danskra
áhrifa á eyna«(!).
Bæjarfógeti
Halldór Daníelsson kom heim aftur
úr utanför sinni með b/b Tryggva
kongi á helginni sem leið, og tók við
embættinu daginn eftir, en Páll sýslu-
maður Einarsson tók aftur við s/nu
embætti af cand. jur. Sigurði Eggerz.
f>eir Páll og Jón Magnússon skrif-
stofu8tjóri höfðu skift milli sín bæjar-
fógetastörfunum, Jón haft á hendi
bæjarstjórnarformenskuna, en hinn önn-
ur Btörf bæjarfógeta með bæjarfógeta-
fulltrúa cand jur. Halldóri Júlíussyni.
Tliorefélag
hefir enn keypt sér n ý 11 s k i p
til Islandsferða, frá Norvegi (Krist-
janíu), allstórt og vænt, 1047 smál.
brto, en 632 nto, og 105 álna langt,
smíðað í Leith 1890. Hefir 12 mílna
hraða og er alt raflýst.i f>rjú farrými,
er taka samtals 130 farþega. Skipið
heitir Stekling og á að byrja ferðir
sínar hingað eftir nýár í vetur. Fyí-
ir því verður Emil Nielsen, sá er nú
stýrir Tryggva kongi.
Mjölnir bilaöi
eitthvað á ferð með Austfjörðum um
mánaðarmótin síðustu, rak sig á sker
í Miðfirði. Hélt áleiðis til Eskifjarðar
og þaðan til Skotlands farþegalaust;
átti ekki undir öðru. ^par reyndist
bilunin hafa verið mjög lítil Og auð-
gert við hana.
Kitsíma til Eskifjaröar
ætlar Thor E. Tulinius stórkaupmað-
ur að leggja frá Egilsstöðum. f>að
mun kosta ærið fé. Sýslunefnd Suður-
Múlasýslu hefir veitt til þess 4000 kr.
styrk. Norðmýlingar synjuðu allra fjár-
framlaga
Skriðufall
mikið varðúr Hólmatindi við Eeyð-
arfjörð um Jónsmessuleytið, eftir
steypiregn, alt í sjó fram, og gerði svo
mikið bylgjukast, að braut báta og
skemdi bryggjur í kauptúninu á Eski-
firði.
Mannalat.
Hér í bæ andaðist 6. þ. m. prests-
ekkja Elín Jónsdóttirfrá Stað
á Reykjanesi, ekkja Filippusar prests
Magnússonar, rúmlega þrítug að aldri,
(f. 14. des. 1874, dóttir Jóns heit.
Jónssonar stúdents frá Steinnesi Jóns-
sonar prófasts Péturssonar. Hún ólst
upp hjá föðursystur sinni frú Elísabet
Jónsdóttur í Bæ og þeim hjónum (Ólafi
lækni Sigvaldasyni). f>eim síra Filippusi
varð 3 barna auðið, er eitt lifir móður
sína, fárra missira. Frú Elín sál. var
kona vel gáfuð, góðlynd og glaðiynd,
meðan hún var ómótlætt, og leugur
þó. Hún var nýkomin vestau frá-
Beykhólum, dauðvona af brjósttæring,
— sótt þangað af föðursystur sinni
frú Ingunni Blöndal.
þorvaldur bóndi Bjarnarson f. alþm,
frá þorvaldseyri misti konu sína 3.
þ. m. að heimili þeirra hjóna hér í bæ,
Elínu Guðmundsdóttur, nær
áttræðu (f. 1828), eftir 42 ára hjú-
skap og búskap, er þau byrjuðu félítil
heldur, en auðguðust vel og voru orð-
lögð fyrir gestrisni. Göfuglynd sæmd-
arkona. f>rotin að heilsu fyrir löngu.
Húsfrú f órunn f>orláksdótt-
i r að Hólum í Hornafirði lézt 1. f.
mán., að heimili sonar síns f>orleifs
Jónssonar, komin nokkuð á áttræðis-
aldur.
Embættispróf
við háskólann í lögfræði hafa þeir af
hendi leyst í sumar (áður ótaldir) Magn-
ús Sigurðsson (frá Bráðræði) með mik-
ið góðri I. einkunn og Stefán G. Stefáns-
son (frá Grundarf.) með II. eink,
— Einar Árnórson, sem áður er getið
að lauk lagaprófi T vor, fekk betri
einkunn en nokkur íslendingur hefir
blotið áður, að mælt er; skorti ekki
mörg stig í ágætiseinkunn.
Við liáskólanii
í Köfn lauk Jón Kristjánsson (yfir-
dómara) fyrri hluta lagaprófs í f. mán,
með I. einkunn, og í forspjallsheim-
speki Andrés Björnson, Guðjón Bald-
vinsson, Ingvar Sigurðsson og Ólafur
Lárusson með ágætiseink., en Guðm,
Thoroddsen, Júlfus Havsteen, Ólafur
Jóhannesson, Sigurður Lýðsson og f>ór-
arinn Kristjánssou með I. eink.
Bæjarstjórn Reykjavíkur samþyktP
á fundi 8Ínum 5. þ. m., að bækka bæjar-
bryggjuna alla um ‘/2 alin fremst og l‘/2
alin nm hana miðja, með því skilyrði, að
bafnfræðingurinn norski láti uppi það álit,
að slík hækkun sé gagnleg, fyrir hlutfalls-
lega borgun á við það verk, sem nú er
verið þar að vinna. Út af erindi frá bæjar-
fulltrúa Tr. Gunnarssyni og samkvæmt til-
löga hafnarnefndar var samþykt að fela
honum (Tr. G.) að kaupa járnteina nægi-
lega í tvöfalda sporbraut eftir bryggjunni
og upp að vörugeymsluhúsunum.
Til fjárhagsnefndar var vísað tillögu um
að kaupa Good-Templarahúsið til handa
bæjaístjórninni (ti! fundarhalda m. m.).
Samþykt erindishréf til handa A. L,
Petersen verkfræðing, er tekur að sér inæl-
ing hæjarins og uppdrátt af horium; þvi sé'
öllu lokið fyrir árslok 1909.
Yfirmatsmenn höfðu matið lóðarræmur
er taka þarf frá Geir T. Zoega yfirkenn-
ara, þrir af fjúrum á 6 kr. feralin hverja,
en einn á 4‘/.2 kr. Bæjarstjórn hauð 4’/4
kr.; vildi fá nýtt yfirmat að öðrum kosti.
Afsalað forkaupsrétti að erfðafestuland-
inu Litlahohsbletti, er eigandinn, Benedikt
Sveinsson ritstjórj, selur fyrir 10,000 kr.,
og neitaði að breyta því i byggingarlóðir
öðru visi en jafnóðum og mælt yrði þar
út undir hús.
Samþykt var hrunahótavirðing á þessum
húseignum : Kn. Zimsens verkfræðings við
Lækjargötu (Skólastræti neðanvert) 3ö,000;
kr.; JÞorsteins Sigurðssonar við Laugaveg
9,233 kr.; Arna Þorleifssonar við Njálsgötu
3,589 kr.; Guðmundar Jónssonar við Berg-
staðastr. 2,019 kr.; Magnúsar Gunarssonar
við Þingholtsstræti 1,710 kr.
Enn fremur leyfði hæjarstj. á fundi 19,
þ. m. eftir tillögum heilbrigðisnefndar Bergi
Einarssyni að reisa sútunarhús á útnorður-
borni Helgastaðalóðar, með þeim skilyrð-
um, er nefndin hafði til tekið.
Brunamálastarfið var ákveðið að auglýsa
með 480 kr. ársþóknun, og brunamálanefnd
falið það mál til ihugunar að öðru leyti.
Veittar voru 500 kr. éða alt að því til
þess að setja upp á 30 stöðum í bænum
föst mælingamerki, eftir tillögum A. F,
Petersens verkfræðings, er mælir bæinn.
Tilkynt var, að það sem kæmi til útbýt-