Ísafold - 15.09.1906, Blaðsíða 3
ISAFOLD
235
Dtsalan árlega
i velráamiiveizl. Ik. Ilioislenn’s
að Ing-ólíshvoli
er byrjuð og eru þar seldar miklar birgðir af vörum með óvenjulega lágu verði.
Verzlunarbúð
ásamí sfirifstofu og geifmslufícrBargi i
miéjum Bœnum (nœrri sjónum) Jœst iil
laicju Jrá 1. nóv. nœstfí.
%5iitstj. visar á laicjjanéann.
Eclipse-segldúkur
ódýrastur
i Bryde’s verzlun i Reykjavík.
Til sölu
Fórn Abrahams.
(Frh.t.
Vau der Nath þreifaði höndun'i út
í loftið aftur fyrir sig heila alin og
fann ekkert. Hann skjögraði að borð
inu og bneig niður á stól.
— Alt úti! sagði hann með magn-
lausri röddu, þegar hurðin féll sjálf-
krafa aftur á hæla Blenkins. |>ú hefir
dæmt þig, — og mig, ísak.
Blenkins hafði eigi venð meðvitund-
arlaus, þótt keyrishöggin hefði fletc
í aundur húðinni á honum. T því bili,
er feðgarnir tókust á, fekk hann tíma
til að átta Kig, og lífshvötin veitti hon
um mátt til að skríða fram að dyrun-
um. jþá er hann var kominn þangað
slysalaust, fekk hann opnað læsinguna
og velt bér út. Hann fann ekkert til,
þótt hann fe gi nokkur högg af því að
rekast á það, sem fyrir honum varð,
og ekki fremur þótt flaskan dýrmæta í
afturvasanum molaðist og nokkur
glerbrot rækist inn f holdið á honum.
Hann var kominn til herraannanna, og
það var höfuðatriðið. Og þá kom
Ó3vífnin að honum aftur. Hann skildi
hreint ekkert 1 því, hvernig hann hafði
getað legið kyrr og tekið á móti högg-
unum; hann skildi engan hlut af því,
er við hafði borið, en kendi sársaukans
eftir höggin, og um leið óstjórnlegrar
græðgi í hefnd þá undir eins. Hann
stóð upp með þraut og hvæsti til
h rmannanna:
— Skjótið þið, þorparar, skjótið!
Heyrið þið það?
Einn maðurinn lyfti upp byssunni
sinni, en þó mjög seinlega; hinirfimm
stóðu hreyfingarlausir.
— Gerðu það ekki, Mac Ginnis, sagði
riðilstjórinn byrstur; það getur eigi
verið átt við neinn okkar, er talað er
svona.
— Skjótið þið! æpti Blenkins fok
vondur.
Dátinn stakk niður byssunni og fór
að blístra.
— Hvað er það, sem þér eruð að
þvogla um, herra minn góður? spurði
riðilstjórinn.
— Skjótið á uppreisnarmanninn
þarna inni; drepið upphlaupsforing-
jann. Hann er verstur af þeim öllum.
— þér eruð nokkuð órór að sjá,
tók riðilstjórinn fram í fyrir honum,
ofurhógvær, eins og þér væruð ekki vel
frískur. Leyfist manni að spyrja, hvort
yðar dýrmæta heilsa hafi beðið tjón
af því, þótt ferðalagið niður riðið væri
heldur óalgengt? |>að er líklegast sér-
benni á yður að haga þessari för þann
veg; það er kannske ættarmót. Ekki
veit e g það. Ef marka má litinn á
þeftólinu yðar, notið þér líklega þessa
sömu aðferð á hverju kvöldi, áður en
þér skríðið heim á hálmdýnuna yðar
til að hrjóta þar og safna þrótt til
þess að verða út úr fullur aftur.
Blenkins var utan við sig af bræði,
og gaf sér hvorki tíma til að hugsa né
til að rannsaka, hvernig á því stæði,
að dátarnir höguðu sér svona. Hann
staðnæmdisc beint fyrir framan ríðil
stjórann.
— Ætlið þér eigi að hlýða? öskraði
hann bálvondur.
Biðilstjórinn sneri baki við honum og
sagði við einn af liðsmönnunum í hópn-
um:
— Graggs, hefir þú heyrt nokkurn
ávarpa Mac Dunn riðilstjóra í þessum
tón? Hvernig heldur þú að fari fyrir
þeim sem leyfir sér það?
Craggs kreisti kjúkur og fólagar hans
tóku undir; þeim þótti gamau að.
Blenkins lagði höndina á handlegg
riðilstjórans.
— Dirtist þér að þrjózkast við skip-
Unum mínum?
Riðilstjórinn yptiöxlum óþolinmóður,
hristi af sér hönd Blenkins og hélt
áfram sem áður:
— Wat Kenzie, heyrðist þér einhver
segja eitthvað miður vingjarnlegt ?
það var alveg eins og óviðkomandi mað
ur hefði sletc sér fram í samtal okkar.
þessi, sem síðast var ávarpaður, var
maður hár vext og herðibreiður, og
varaði í sama anda:
Reykjavikur-annáll.
Dáinn 12. þ. m. í Landakotsspítala Jón
Sigfússon Blöndal, bróðir Magn. Bi. húsa-
meistara, — frá Stafholtsey, ráðsmaður þar,
um fertugt.
Fasteignasala. Enn eru hér taldar nokkr-
ar meiri háttar húseignir m. fl., er gengið
hafa þ. á. kaupum og sölum hér í hæ, og
loks ö 1 I slík kaup, er þinglýst hefir verið
i þessari viku:
Jóbannes trésmiður Lárusson selur Þ. J.
Thoroddsen féhirði nr. 46 á Laugavegi á
28,000 kr., þingl. 26/4
Jón Stefánsson skósm. selur Olafi Stephen-
sen l/a nr. 2 B við Hverfisgötu á 9,000 kr.,
þl- */.■
Jón Reykdal og Kristján Möller málarar
selja Jens B. Waage bankassistent nr. 24 i
Þingboltsstræti á 14,000 kr., þl. *°/8.
Magnús Vigfússon vegfræðingur selur
Herbert Sigmundssyni prentara og Korneli-
usi Sigmundssyni nr. 19 við Hverfisg. á
7,500 kr., þl. “/,.
Sturla Jónsson kaupm. selur Jóni P. Jó-
natanssyni nr. 15 í ÞingholtEBtræti á 8 500
kr., þl. 2í/2.
Sami selur Copland & Berrie Ltd. nr. 11
i Austurstræti á 35,000 kr., þl. 8/3.
Sami og Gísli Þorbjarnarson búfr. selja
síra Árna Þórarinssyni á Rauðamel nr. 68
við Laugaveg á 15,000 kr., þl. 31/r,.
Sveinn Jónsson trésm. selur J. G. Hal-
berg veitingamanni nýtt hús við Laufásveg
með 1440 □ ál. lóð á 22,000 kr., þl. »/8.
Hlutafél. Völundur selur Einari Zoega
veitingamanni nr. 12 (nýtt hús) i Austur-
stræti á 30,000 kr. Lóðina, 540 ferál.,
kaupir E. Zoiiga af Sveini Sigfússyni kaupm.
á 6000 kr., þl. */2.
Jes Zimsen kaupm. og Sigurjón Sigurðss.
trésm. selja Guðmundi Egilssyni nr. 18 við
Grettisgötu og erfðafestuland þar hjá, l'/2
dagsl., á 9.000 kr., þl. a5/,.
Benóný BenónýsB. kaupm. selur Jóni Jóns-
syni á Laugavegi nr. 46 húseignina nr. 43 B
á Laugavegi á 5,300 kr, þl. 13/„.
Þorst. Magnússon trésm. selur Kristjáni
Kristjánssyni steinsm. húseign sina við
Rauðarárstíg með 500 ferál. lóð á 2,400
kr., þl. 13/„.
Egill Diðriksson Laugaveg 40 B selur
sonum sínum Jóni og Sveini þá húseign á
4.0 '0 kr., þl. ls/9.
Kaupskipafregn. Hér kom 12. þ. m. s/s
Urania (300, H. Petersen) frá Leith með
með ýmsar vörur til Edinborgar-verzlunar,
einkum kol og kokes.
Frá sömu verzlun fór i gærkveldi með
fiskfarm til Spánar s/s Ansgarius (350, H.
J. Halvorsen).
Veðrátta. Ljómandi fagurt veður i dag,
heiðríkja og sólarhiti. Einnig i gær dágott
veður. En fyrri part vikunnar stórviðri og
rigning dag eftir dag, þótt yfir tæki fimtu-
dagsnóttina hér sem annarsstaðar. Hér í bæ
urðu þó ekki skemdir, svo að kvæði.
Þorvaldur Krabbe verkfræðingur lagði á
stað i gærmorgun norður á Blönduós að
skoða þar hafskipabryggjustæði og segja
fyrir um, hvernig hentast muni að haga
slikri bryggjnsmíð.
Þaðan ætlar hann vestur i Olafsvík, rann-
saka þar höfnina og ef til vill segja fyrir
um skjólgarð eða öldubrjót, er skýli róðr-
arbátum.
Þórarinn B. Þorláksson málari er nýlega
heim kominn úr ferðalagi austur um sveitir
alt í Skaftártungu og upp um óbygðir hérna
megin Yatnajökuls, upp hjá Fiskivötnum og
lengra norður þar um slóðir en farið hefir
verið áður. Hann hefir gert um 20 lands-
lagsmyndir. i þeirri ferð, meiri hlut-
ann úr óbygðum. — Hann ætlar að bafa
sýning i haust einhvern tíma fyrir almenn-
ing á þessu og miklu fleira af myndum
sinum, nýjum og nýlegum.
Porskhöfuö
hert og saltmeti margs konar er nú
til og verða í haust nægar birgðir, sem
selst með góðu verði í
Yerzl. Godthaab.
Til sölu
eru ný dagblöð á 4 aura pundið.
Joh. P. Boldt,
Hausergade 22. Köbenhavn K.
Agæt bújörð
við sunnanverðan Faxaflóa fæst til
kaups og ábúðar í næstkomandi far-
dögum, 1907. Túnin eru slétt og gefa
af sér f meðalgrasári 150 hesta af
töðu. Timburíbúðarhús, 15 x 10 ál.
að stærð, alþiljað innan, fylgir með í
kaupinu, og þrjú önnur timburhús,
fimm fénaðarhús, heyhlaða og eitt
tómthús m. tí. Ágæt lending, vergögn
og þangfjara. Allar frekari upplýsing-
ar gefa þeir Jón Gunnarsson verzlun
stj. í Hafnarfirði og Björn Kristjáns-
son kaupmaður í Reykjavík.
Wm. Crawford & Son
ljúffenga BISCUITS (smákökur) til-
búið af CRAWFORDS & Son
Edinborg og London
Stofnað 1813.
Einkasali fyrir ísland og Færeyjar
F. Hjortli & Co.
Notið tækifærið!
Gott fortepiano, en nokkuð
brúkað, er til sölu í Thomsens maga-
síni, möblu deildinni. Hljóðfærið er
uppstandandi og prýðis fallegt — sönn
stofuprýði. Yerð 300 kr. Ofurlítill
Bfsláttur fáanlegur, ef kaupandi gefur
sig bráðlega fram.
á Sauðárkrók, vandað íbúðarhús
og b a k a r í með góðum steinofn.
Húsið er að stærð 14x12 áln., port-
•bygt, og viðauki 6x10 áln., og er í
honum brauð sölubúð. Kjallari er
undir húsinu.
Lysthafendur snúi sér til verzlunar-
stjóra Stepháns Jónssonar á
Sauðárkrók.
Olíuföt
frá Hansen & Co.
í Frederiksstad í Norvegí.
Verksmiðjan brann í fyrra sumar
en er nú aftur risin úr rústum og
hagað eftir nýjustu tízku í Ameríku.
Verksmiðjan býr því aðeins til föt
af allra beztu tegund.
Biðjið þvi kaupmann yðar að út-
vega yður olíuföt frá Hansen & Co.
í Frederiksstad.
Aðalumboðsmaður fyrir ísland og
Færeyjar er
Lauritz Jenseu
Enghaveplads nr. 11
Köbenhavn V.
Tilboð.
Duglegir og ráðdeildar-
samirskipstjórar, er hefðu löng-
un til að eignast h 1 u t í ágætum þil-
skipum, með mjög hægum kjörum, og
sjálfir sjá sér fyrir hásetum, geri svo
vel og sendi tilboð fyrir mán,-
m ó t merkt 222 til ritstjóra.
Takið eítir!
í nýju búðinni í húsi hr. trésmiðs
Jóns Sveinssonar, Pósthússtræti, fást
flestar þær matvörutegundir, sem dag-
lega eru brúkaðar á hverju heimili.
Ennfremur mikið úrval af allskonar
vefnaðarvöru. — Komið og skoðið, það
mun borga sig.