Ísafold - 19.09.1906, Blaðsíða 1
yCenrar út ýmist einn sinni eöa
tvisy. í vikn. YerÖ árg. (80 ark,
minnst) 4 kr., erlendis 5 kr. eöa
l1/, doll.; borgist fyrir miöjan
júlí (erlendis fyrir fram).
ISAFOLD.
Uppsögn (skrifleg) bnndin víÖ
áramót, ógild nema komín sé til
átgefanda fyrir 1. október ög kaup-
andi skuldlans við blaðið.
Afgreiðsla Aunturstrœti 8
XXXIII. árg.
Reykjavík
miðvikutlaginn 19. september 1906
60. tölublað.
I. 0. 0. F. 889218'/*
Augnlækning ók. 1. og 3. þrd. kl. 2—3 i spítal.
Forngripasafn opió á mvd. og ld. 11—12.
Hlutabankinn opinn 10—2*/* og ö1/*—7.
K. F. U. M. Lestrar- og skrifstofa frá 8 árd. til
10 sibd. Alm. fundir fsd. og sd. 8 */» siðd.
LandakotskirkjA. Gubsþj. 91/* og 6 á helgidögum.
Landakotsspitali f. sjúkravitj. 101/*—12 og 4—6.
Landsbankinn 101/*—21/*. Bankastjórn við 12—1.
Landsbókasafn 12—3 og 6—8.
Landsskjalasafnið á þrdn fmd. og Id. 12—1.
Lækning ók. i læknask. þrd. og fsd. 11—12.
^áttúrugripasafn á sd. 2—8.
'Tannlækning ók. i Pósthússtr. 14, l.ogS.md. 11—1
Fataflðaplubðturinn REVKJMIK
fer upp í Borgarnes
23. sept., 3., 10., 18. og 23. okt.;
Suður í Keflavík uj. m. fer hauu
27. sept., og 6., 15. og 27. okt.
Ingölfsmyndin og Einar Jónsson.
Eitt félag gefur 2,000 kr.
Tillaga ísafoldar um daginn um að
sinna Einari Jónssyni og Ingólfsmynd
hans hefir fengið fyrirtaks-byr. Ailir,
aem á það mál minnast, taka mjög vel
i það í orði, og allar horfur á, aðeins
verði á borði, ef marka má, hve stór
mannlega runnið er á vaðið.
E i 11, að eins e i 11 af ótal félögum
'hér í bænum hefir gert sér og Beykja-
vík og Iandinu þann sóma, að gefa
beint úr sínum sjóði 2000 kr.
f>að er Iðnaðarmannafélagið.
f>ar bar málið fram Jón Halldórsson
atofugagnasmiður, einn í trésmiðafirma
Bigurjón Ólafsson & Co., maður, sem
íarið hefir viða um lönd og dvalist
langvistum meðal annars í einum
heims-höfuðstaðnum, Berlín, sér til
frama og fullkomnunar í sinni iðn,
hefir því séð mikið af heimsins fræg-
ustu listaverkum og lært að meta þau,
líklega töluvert betur en þorrinn af
svonefndri »lærðri« kynslóð vorri. Hann
flutti málið vel og skörulega.
Stjórn félagsins tók undir eins mjög
vel í það. Hún stakk fyrst upp á
500 kr. gjöf úr félagssjóði, ekki af því,
að hún væri ekki rauuar meðmælt
töluvert meira, heldur vegna sparnað-
arábyrgðar sinnar öðrum félagsmönnum
framar.
Sveinn Jónsson húsasmiður (frá
Vestmanneyjum) tók þegar öfluglega í
þann streng, og stakk upp á 2000 kr.
Sagði, sem satt var, að ef félagið hugs-
aði til að taka að sér forgöngu þessa
máls, sem hann var eindregið á, þá
mætti það ekki vera smátækara en
þetta. Annað mál, ef svo hefði ekki
verið.
Sú tillaga var, eftir nokkurar umræð-
Ur og óvenju-fjörugar, samþykt með
ö 11 u m atkvæðum, þar á meðal fé-
lagS8tjórnarinnar; og var á fundi mikill
meiri hluti félagsmanna, en þeir eru
um 150. Fundur fjölsóttari en dæmi
sru til um langan tfma.
pví næst var eamþykt, að félagið
tæki að sér að standa fyrir frekari
samskotum í þessu skyni, og var tal-
að um meðal annars að efna til tom-
bólu hér í haust,
Húsnæði til allra skemtana, erhald-
nar kynnu að verða til að afla fjár til
Ingólfsmyndarkaupanna, samþykti fé-
lagið ennfremur í einu hlj. að láta í
té ókeypÍB.
Fastlega var ráð fyrir því gert, að
ekki yrði farið út fyrir Reykjavík í
samskotaleit til þessa fyrirtækis, og
umfram alt: ekki til þingsins. En
vitaskuld vel þegið, ef einhverir sæmd-
armenn utan Beykjavíkur legðu fram
fégjafir ótilkvaddir, smáar eða stórar.
Loks var kosin nefnd til að standa
fyrir samskotunum o. s. frv.: Sveinn
JónBson, Jón Halldórsson, Magnús
Benjamínsson, Magnús Blöndahl og
Kn. Zimsen (formaður Iðnaðarmanna-
félagsins).
— það er sem fyr segir, að 2000
krónurnar á að greiða beint úr sjóði
félagsins. Auk þess má ganga að því
vísu, að ýmsir félagsmenn gefi frá
sjálfum sér að auki, eða svo hefir heyrst.
Er það tekið fram Iðnaðarfélagsmönn-
um til enn meiri sóma og — öðrum
til fj'rirmyndar.
Lauslega er gizkað á, að 20,000 kr.
muni myndin mega til að kosta. Meira
vitum vér.ekki.
þetta eina félag, Jðnaðarmannafélag-
ið, hefir þá, ef sú áætlun lætur nærri,
lagt fram úr sínum sjóði beint ^io
hluta alls fjárins.
40 ísl. þilskip
segir Norðurl. að stundi síldarveiðar
nyrðra, þar af 18 af Akureyri. En
flest smá, 10—40 smálestir. Tvö hafa
hjálparvél. Auk þess hafi Islendingar
leigt 2 norsk gufuskip til sildveiða með
hringnót; þriðja gufuskipið er íslenzk
eign, en skipshöfn norsk mestöll.
Veiðiaðferðina þá, með hringnót, hafi
íslendingar ekki lært enn til fullnustu.
Ritsíminn.
Norður á Akureyri tókst að símtala
í gær, og þaðan að Hofi í Vopnafirði.
En þar í milli og Seyðisfjarðar var
eitthvað að, svo að ekki tókst að ná
tali þangað eða þaðan.
Skaöaveöriö
um daginn, aðf.nótt 13. þ. m., kvað
ekki hafa náð til Vestfjarða. Haft
eftir fiskiskútum, að þar hafi verið logn
eða hægviðri.
Mælt er að ekki muni menn eftir
meira veðri né sjógangi á Eyrarbakka
og Stokkseyri en þá nótt. Sjór gekk upp
yfir alla varnargarða. þrettán opin
skip brotnuðu á Eyrarbakka, og 17 á
Stokkseyri.
Kirkjan í Odda færðist á grunni um
2 þuml. Hún hefir aldrei hreyfst
neitt áður.
Loftskeytafrettir
18/o
Frá Rússlandi.
Keisari og drotning hans eru farin
á stað með fólk sitt (börn) í skemti-
ferð um Kyrjálabotn nokkra daga, og
eru þeír i för með þeim, heimilisráð-
gjafinn og herflotamála.
Stúlkau, sem skaut til bana Minn
bershöfðingja, var hengd í gær. f>egar
snaran var lögð um háls henni, hróp-
aði hún: Lifi þjóðfélagsbyltingin og
landeignafrelsi!
Komin er á aftur kyrð og spekt á í
Siedelece á Póllandi. Fólk hefir forðað
sér burt vxr bænum þúsundum saman.
Óeirðarseggir fluttir til Varsjá. Mörg
hryðjuverk framin þar. Yfirmaður yfir
aðkomumannadýflissunni myrtur.
Uppreisnin á Cnba.
Stjórnín í Washington (Bandaríkj.)
hætt að draga úr því, hve alvar-
legt er ástandið á Cuba. Er mælt, að
(herskipið) Desmoines sé viðbvvið að
taka við á skipsfjöl Palma forseta, ef
nauðsyn ber til. Brynsnekkjan Denver
frá Bandaríkjum kom til Havaua og
hleypti þar á Iand hundrað flotaliðs-
mönnum; þeir gengu brátt á skipsfjöl
aftur, en skildu eftir á landi dálítinn
sendiherra-varðflokk.
Síðari fréttir bera með sér, að óðum
syrtir að þar á Cuba. Bandaríkjaher-
lið gengið á land í Chienfuegos, sem er
umsetin af uppreisnarmönnum. Sam-
baudsþingið hefir á aukaþingi veitt
Palma forseta fulla heimild til þess að
re.ka hernað (gegn uppreisnarmönnum).
Roosevelt forseti hefir gert stjórninni
á Cuba viðvart um, að eina leiðin til
þess að komast hjá íhlutun Banda-
ríkja sé, að koma á aftur reglu innan-
lands og halda uppi friði.
Taft hermálaráðgjafi (Bandar.) og
Bacon undirráðgjafi leggja á stað á
morgun áleiðis til Cuba, til þess að
rannsaka, hvernig högum horfir þar og
hjálpa til að koma þar á reglu. Fjór-
ar brynsnekkjur eru á leið til Cuba í
viðbót.
Síðustu fréttir segja, að stjórnar-
höfðingjum á Cuba líki vel framkoma
Roosevelts forseta. f>eir séu undir
niðri hlyntir íhlutun hans.
Frétt er um harða orustu þar sem
heitir Alcauo. Stjórnarmenn eigna sér
sigur þar.
Mikið gengur á fyrir flotastjórn
Bandaríkja. Höfuðorustuskipin Louis-
iana og Virginia eru látin í haf með
innsigluðum fyrirskipunum. Skipshöfn
og liðsmenn eru um 800 á þeim hvoru
um sig.
Prá ýmsnm lönduni.
T y r k i r hafa pantað 50 Maxim-
fallbyssur frá f>ýzkalandi, en ónýtt
fyrirhugaða pöntun á jafnmörgum fall-
byssum með annari gerð frá Frakklandi.
Landskjálftakippi verður
enn vart við í Chile. Biobo-elfi hefir
fiuzt vvr farveg sínum vegna þess, að
jörðin hefir lyfzt upp.
Birt hérstjórnarfyrirskipun á E n g-
1 a n d i, þar sem herforingjaráðinu er
fengið í hendur vald til að ráða al*
mennri tilhögun á hernum, sjá um,
að hernaðarvísindi séu tekin hæfilega
til greina og hermensku hagað eftir
þýzkri fyrirmynd og japanskri.
Hertogafrúin af Connaught, mágkona
Játvarðar konungs, og dætur hennar
voru á bifreiðarferðalagi hjá Hounslow,
skamt fyrir vestan Lundúni, og ráku
sig á pilt, er meiddist svo mikið, að
bann beið bana af.
Hinrik keisarabróðir hefir verið
skipaður höfðingi yfir öllum vígum
herskipastól f>jóðverja.
Falliéres Frakklandsforseti er farinn
suður í Marseilles. Sérstaklegrar var-
úðar er gætt á því ferðalagi hans, fyrir
hótanir óstjórnarliða. Hann er látinn
ferðast í brynjuðum vagni og sprengi-
kúlnatraustum.
Bandalag óháðra kjósenda í N e w
Y o r k hefir tilnefnt William Hearst
(ritstjóra) til ríkisstjórakosningar í
New-York-ríki í nóvember.
Strokleðurs-stórgróðabandalagið í
Bandaríkjum hefir keypt stóra Lund-
únaverzlun með þá vöru. Mælt er,
að það sé síðasta stigið til þess að fá
umráð yfir öllum óunnum strokleðurs-
birgðum í heimi.
Reykjavíkur-annáll.
Bankarnir. Landsbankinn átti úti, er síð-
ast var saman lagt, nú fyrir skemstu, 6
milj. og 400 þús. kr. alls og alls. Mánuð-
ina júní og júlí átti hann um 1 milj. úti í
tómum vixlum.
Þ a r var þó íslands banki enn drýgri.
Hann átti úti i júlílok 1 milj. 400 þús. kr.
í víxlnm eingöngu.
Dánir. G-ísli Guðnason skölapiltur hér í
4. hekk, reykviskur, lézt 15. þ. m.
Helgi Jónsson, háseti á fiskiskútunni
S v a n, er á Jón á Bakka Guðmundsson,
en fyrir ræður Jón MagnússoD frá Miðseli,
16—17 vetra piltur, frá Bárugerði á Miðnesi,
druknaði (tók út) fyrir fám dögum.
Póstferó héðan norður og vestur 17.þ.m.
frestaðist um 1 dag, með því að gufúb.
Eeykjavik gaf ekki i fyrra dag upp i Borg-
arnes. Komst ekki fyr en i gær.
Veðrátta. Stormur og rigning aftur kom-
in á sunnud., og hefir sá veðrahamur'hald-
ist siðan. Þó rofað til endrum og sinnum.
Gránufélagið.
f>að er í æðistórri skuld til hius
gamla aðalumboðsmanns síns í Khöfn,
F. Holme stórkaupmanns, um 425 þús.
kr., og mun þó hafa veriðjenn meiri fyrir
10—12 árum, um það leyti er kaup-
stjóraskifti urðu í félaginu : Tr. Gunn-
arsson fór frá, en Chr. Havsteen tók
við. Kostur er á að fá nobkuð upp
gefið af skuldinni, ef hitt er greitt
bráðlega. Frekari samninga þar að
lútandi var kaupstjóra falið að leita, á
félagsfundi, á Oddeyri 18. f. m. Talið
er, að félagið eigi útistandandi um
milj.