Ísafold - 13.10.1906, Blaðsíða 1
{ífcœur át ýmist einn sinni eíJa
tvisv. i vikn. Yerð árg. (80 ark.
minnst) 4 kr., erlendis 5 kr. eöa
l'/» doll.; borgist fyrir miOjan
jáli (erlendis fyrir fram).
ISAFOLD.
Dppsögn (eknfieg) bnndin vitJ
iramót, ógild nema komin sé til
átgefanda fyrir 1. október og kanp-
andi gknldlans við blaðið.
Afgreiðsla Austurstrœti 8
XXXIII. árg.
Reykjavík laug/ardaginn 13. oktober 1906
67. tölublað.
Verzlunin Edinborg i Reykjavík
lætur sína heiðruðu viðskiftamenn vita, að nú hefir
vefnaðarvörudeild
hennar fengið feiknin öll af alls konar nýjum varningi, sem deildarstjórinn
(Mr. Graham) hefir keypt inn á öllum helztu mörkuðum Stóra-Bretland og
víðar. Auk gæða og verðs hefir hann og haft fyrir augum hvað bezt og
hentast væri hér samfara nýjustu tízku, og munu menn fljótt komast að
raun um, er þeir skoða vörurnar, að hér hefir æfður cg kunnugur maður
fjallað um. Mun nú vefnaðarvörubúð Edinborgar fyllilega jafnast á við sams-
konar búðir, hvar sem er í heiminum, að gæðum, smekkvísi og verði.
Margt alveg nýtt og fáséð!
Alt til gagns, prýðis og gamans, ekkert óþarft.
I. 0. 0. F. 8810198'/, Fl.
Augnlækning ók. I. og 3. þrd. kl. 2—8 i spital
^orngripasafn opið á mvd. og ld. 11—12.
Hlutabankinn opinn 10—2 */■ og u1/t—7.
'K. F. U. M. Lestrar- og skrifstofa frá 8 Ard. til
10 siðd. Alm. fundir fsd. og sd. 81/* aiðd.
Landakotskirkja. Guðsþi.91/* og 6 á helgidögum.
Landakotsspitali f. sjúkravitj. 10l/t—12 og 4—6.
Landabankinn 10*/s—2 */*. Bankastjórn við 12—1.
Landsbókasafn 12—B og 0—8.
Landsskjalasafnid á þrdn fmd. og Id. 12—1.
Lækning ók. i læknask. þrd. og fsd. 11—12.
Náttúrugripasafn á sd. 2—8.
Tannlækning ók. i Pósthússtr. 14, l.ogS.md. 11—1
FmflöapfuMiiiim DEMIilK
fer upp í Borgarneí
18. og 23. okt.; 2., 8. og 18. nóv.;
3., 13. og 20. des
Suður í Keflavík m. m. fer harm
15. og 27. okt.; 13. nóv. og
20. dee.
Reykjayíkur Biograftheater
foyrjar í þessum mánuði í
Breiðfjörðs-húsi
sýningar sinar á
lifandi myndum.
fNýtt prógramm hverja viku.
Sýning á hverju kveldi.
Hljóðfærasláttur og raflýsing.
Úr prógrömmunum má nefna:
Hs. hátign Friðrik 8.
tekur við konungdómi;
Alþingismenn i Khöfn
og margt annað.
Aths.: Sýningarskálinn verður bygður
um til batqaðar.
Bankavextir hækkaðir.
HlutabaDkinn fekk á miðvikudaginn
símskeyti frá Khöfn um að bankavext-
ir væri hækkaðir þar upp í 6—6'/2 af
-hundraði.
Við þesau var hálfbúist, eftir eíð-
ustu fréttum af peningarmarkaði er-
lendis.
En góð tíðindi eru það ekki,
Lánsfé þótti ærið dýrt orðið áður
hjá bönkunum hér, 5—5J/2 af hundraði.
Hækkum úr því um heilan af hundr-
ftði er ekki smáræðis stökk. — —
Miður fróðir lesendur munu ef til
vill svara sem svo, að ekki komi oss
Þ»ð við, hér úti á ÍBlandi, á hala ver
Mdar, þóct bankavextir hækki einhvers
^taðar úti í heimi.
&eim mun þó skiljast það öllum við
^öari athugun, að úr því að bank-
aínir hér þurfa að lána fé erlendis í
íþarfir inulendra lánbeiðenda, mega
til að fá hjá þeim ekki lægri
,e'gu en þeir láta sjáltir. Hitt væri
selja undir innkaupsverði, sem
^allað er.
^uk þess má ekki gleyma því
^keikula allsherjar-peningarmarkaðs-
,ögtnáli, að þar sækir peningaeftir-
l8Purnin fastast á, er leigan er lægst,
a,Veg eins og vatnið leitar þangað,
8etn I»g8t er fyrir, og léttir eigi fyr
en jafnvægi kemst á, ef hallalaust er.
þetta lögmál nýtur sín nú betur hér
en áður vegna ritsímanB. Eða, rétt-
ara sagt, hraðskeytasambandið við um-
heiminn veldur því, að áhrifa þess lög-
máls verður vart hér jafnóðum.
Ýmsar eru orakir þessarar vaxta-
hækkunar erlendis, og þær mjög svo
eðlílegar og auðskildar.
það fyrst í Danmörku, að þar hefir
verið undanfarið óvenjumikið um húea-
gerð, einkum í kaupstöðum og þá ekki
sízt í Khöfn. Fólki fjölgar þar ört,
viðlíka að tiltölu og hér í Reykjavík.
En þó er húsafjölgun þar þeim mun
örari, að þar voru 10—11 þús. híbýli
alls auð og ónotuð fyrir 5—6 vikum.
Svo örir höfðu þeir verið á sér, er gera
sér eða vilja gera húsasmíði að gróða-
veg. En þeir þurfa á ógrynnum fjár
að halda.
þá eru í annan stað iðnaðarfyrirtæki
í miklum uppgangi í Danmörku. þar
er önnur peningaholan, og hún ósmá.
Loks hafa nokkur helztu stórgróða-
félögin í Khöfn fært út kvíarnar óvenju-
mikið einmitt í sumar og haust, —
aukið hlutafé sitt um marga tugi mil-
jóna. Svo er um Sameinaða gufuskipa-
félagið, Austurasfufélagið og stórsmíða-
félagið Burmeister & Wain. f>etta
gleypir og ósmáa fúlgu af peDÍnga-
markaðsbirgðunum.
Um vöxt og viðgang 1 iðnaðarfyrir-
tækjum er lfkt að segja bæði á Eng-
landi og ekki sízt á þýzkalandi. Fyrir
því hefir og peningaleiga hækkað mjög
í haust í höfuðbönkum þar.
Loks bætist ofan á alt þetta, að Ame-
ríka kvað hafa verið óvenjuþurftar
frek á peninga f haust, vegna afbragðs-
uppskeru í Bandaríkjum einkanlega.
f>að þarf geysifé til að borga bændum
alt kornið og aðrar afurðir, er þeir
koma með á m&rkað þar og kaupmenn
selja aftur hingað í álfu að miklum
mun. f>að sverfur að bönkunum austan
hafs. Til dæmis að taka hafði Lund-
únabanki, þungamiðja allra peainga-
viðskifta í heimi, orðið að snara út á
einni viku í haust og senda vestur um
haf handa Bandamönnum einum 2
milj. pd. sterl. (36 milj. kr.) í tómu
g u 11 i. Fyrir þann austur þótti
honum varlegra að hafa vaðið fyrir
neðan sig og brá því óðara fyrir sig vana-
þjóðráðinu til að draga úr þess háttar
óð8treymi: hækkaði peningaleiguna.
f>ann veg er þessu öllu háttað.
Yér huggum oss við það, að þessi
dýrtfð standi ekki mjög lengi, og treyst-
um því, að bankarnirverði ekki seinni
á sér að lækka aftur peningaleiguna
en þeir eru nú &ð hækka hana.
Ekki er ráð fyrir öðru gerandi en að
bankarnir hér hækki innlánsvextina
um leið og þeir færa upp útllánsleig-
una hjá sér.
Þakkarávarp.
Öllum þeim, bœði nœr og fjær, utan
lands sem innan, blaðamönnum, rithöf-
undum og fólki allra stétla, leyfi eg
mér hér með að fiakka fyrir þau merki
vinsemdar og viðurkenningar, sem þeir
sýndu d 80 dra afmœli mínuþann 6. októ-
ber síðasta, bœði með einstaklega smekk-
vísri blysför, frá stúdentum vorum,
fallegum kvœðum, símskeytum og hjart-
anlegum lukkuóskum, ásamt fögru og
myndariku minningarriti, kostuðu af
vini minum Sigurði Kristjdnssyni bók-
sala og sömdu af hinum fœrustu og
liprustu rithöfundum vorra tima.
Það eina, sem slær skugga á þessa
björtu og sjaldgæfu viðhöfn, er það, að eg
þykist ekki eiga skilið helminginn af
henni.
Reykjavík, 12. október 1906.
Ben. G r ö n d al.
Ritsímafréttir erlendar
til ísafoldar.
Khöfn 12. okt.
Uppreisnin á Cuba.
Roosevelt forseti lýsir yfir því, að
hann hugsi ekki til að leggja eyna
við Bandarfkin.
Vilhjálmur keisari og
K uniberlandshertogi.
Vilhjálmur keisari vill ekki sam-
þykkjast því, að yngsti sonur hertog-
ans af Cumberland sé gerður ríkis-
stjóri í Brúnsvík.
Kosningarréttur kvenna.
Oscar konungur heitir konum þeím,
er kosningarréttar beiddust, að styðja
það mál.
Stjórnbótarmál vort
á ríkisþinginu.
Zahle fólksþiugismaður talar ein-
dregið máli íslendinga á fólksþinginu.
Drachmanns-afmælið.
Afmælishátfð í ráðbúsinu og blys-
för á miðvikudaginn.
* *
Hertoginn af Cumberland, konungs-
son frá Hannover, maður f>yri Krist-
jánsdóttur Danakonungs hins níunda,
er borinn til ríkis í Brúnsvíkurhertoga-
dæmi á Norður þýzkalandi (67 fermíl-
ur með 400—500 þúsund íbúum)
að fornum lögum, en yfirstjórn
ríkisins (keisaradæmisins þýzka) setti
honum það skilyrði fyrir 20 árum, að
hann léti af tilkalli til ríkis f Hannóver.
f>að hefir hann ekki viljað gera. Nú
átti að gera það til miðlunar, að láta
son hans taka við ríkisstjórn í bili,
meðan verið væri að reyna nýja mála-
miðlun. þar um segir ritsímafréttin
í gær, að keisari hafi ekki viljað sam-
þykkjast því. — Hertoginn situr suður
f Austurríki, í Gmunden.
Albrecht Prússaprinz var kjörinn til
til ríkisstjórnar f Brúnsvík 1885, er
hinn gekk frá. Hann lézt f sumar seint.
Holger Drachmann, höfuðljóðskáld
Dana um vora daga, varð sextugur á
þriðjudaginn, 9. þ. m. f>á stóðu til
mikil afmælishátíðarbrigði f Danmörku
eða í Khöfn aðallega. Frá því segir
lauslega ritsfmafréttin hér að ofan.
Eyjafirði (Svarfaðadal) '*/9. Ná er
snmarið að segja af sér. Það hefir verið
hér kalt og voðviðrasamt. Þó er heyaflí
manna orðinn 1 meðallagi og nýting heldnr
góð.
Þorskafli var hér i vor óvanalega-
mikill og vænn, og i sumar hafa 3 vélar-
bátar, sem út er haldið héðan, aflað mjög
vel: einn um 60, annar um 80, og þriðji
um 100 skpd. Beita fæst hér engin öðru-
vfsi en keypt, ýmist af innlendum eða út-
lendum mönnum, þeim er sildveiði stunda
með reknetum. — Ekki er annað sýnna en
að menn neyðist alment til þess að vera
sér úti nm vélarbáta, þó efni skorti til
þe88, þvi nú gengur mjög illa að fá menn
til að róa á gömln bátunum. Þeim þykir
sem von er, hæði leitt og erfitt að »ýtast
með árum á hárum*.