Ísafold - 15.12.1906, Blaðsíða 2

Ísafold - 15.12.1906, Blaðsíða 2
401 f SAFOLD Firmað skrifstofu sína til Chr. Fr. Nielsen & Co. Niels Juelsgade 7. Peder Skramsgade 26, hefir flutt Firma þetta, sem þegar er orðið vel þekt, vegna þess, hve vel það hefir selt íslenzkar vörur, og hve vel því hefir að sama skapi tekist að útvega ódýrar og góðar útl. vörur, væntir nú enn meiri viðskifta frá kaupmönnum og kaupfélögum næsta ár. Vér notum tældfærið til að minna menn á, að kaupa ætíð hið ágæta smjörlíki, sem nefnt firma útvegar, sem er t. d.: »Sóley«, »Fjóla«, »C. F. N.«, »Fjalikonan«, »Hekla« og »Isafold«. Allir, sem reynt hafa »Flaggþappann« til húsaklæðningar, segja, að hann skari fram úr öllum öðrum pappategundum. Ofannefndar vörur fást lijá flestum verzluuum. >3 É? Í 3 <5 ÍH. ». s I ^ oi 3 s- S 5S % 1 væri ætlað að fara með eitthvað af málunum af beggja hálfu, þótt ekki væri nema um sinn. Með þeirra sam- sinni yrði hann að komast á. En úr því að hann væri á kominn, svo vax- inn, að upp frá því skyldu íslendingar einir ráða með konungi öllum sínum málum, nema öðruvíai væri um samið, mætti Danir þar eigi nærri koma framar. Ekki skal að þessu sinni neinu um það spáð, hvernig fyrirhuguðum sam- bandssamningum muni reiða af. En hitt er víst, að verði Danir þar þung- ir í skauti, munu Íslendingar ganga miklu ódeigari út á skilnaðarbrautina eftir þessa hugvekju G. H. en áður, með þeim ráðum eða því líkum, er hann bendir á, og koma, sem nærri má geta, hvergi nærri neinum ofbeld- istilraunum eða uppreísnar. Bæklingur þessi mun sannfæra marg- an mann um, að ó f æ r er sú braut engan veginn, og venja þá á að hugsa um hana öðruvfsi en með þeim undir- gefnisreigingi, er höf. eignar einkum ýmsum svo nefndum heldri mönnum vorum og hann fullyrðir að sé »áreið- anlega lítið annað en fáfræðinnar og skammsýninnar fyrirlitlegi gorgeir«. Aðdróttanir sínar þær hinar lúalegu, sem ísafold mintist á um daginn, tekurnúLögr. aftur í fyrra dag, kannast við, að þær hafi verið af fljótfærni sprotnar. Hún hefir sannfærst um, að þær væru al- veg úr lausu lofti gripnar, eins og ísafold sýndi fram á, auk þess sem hr. E. H. hafði Iýst því yfir, að hann hafi hvergi komið nærri fréttaburði þeim, 8em L ö g r. var að finna að og brigzla honum um. Tilraun til vafninga út af aðgrein- ing ísafoldar milli símskeyta og ann- arra frétta héðan í P o 1 i t i k e n veðrur L ö g r. að engu hjálpræði. Hún bregður þar fyrir sig í vandræðum sínum því ranghermi, að Pol. auð- kenni hvorttveggja alveg eins, i fyrisögninni. En það gerir Pol. einmitt ekki. Hún setur við hraðskeytin af- greiðslustað þeirra (Rvík, o. s. frv.) ásamt degi og kl.stund, en ekkert slíkt við ninar fréttirnar. Svo er t. d. um fréttina 7. nóv., sem L ö g r. er að vitna f; þar er engin staðsetning né dagsetning. Euda sýnir innihaldið greinilega, að hraðskeyti er hún allsekki. L ö g r. hefir annaðhvort glæpst á því, eða er að reyna að nota sér það, að Pol. minnist á þá fréttaklausu 2 dög- sfðar eins og hún hefði verið hraðskeyti, annaðhvort í gáleysi eða þá af ekki alveg dæmalausu blaðamonti. það e i n a dæmi, sem L ö g r. hefir fyrir sig að bera, kemur henni því að engu haldi. Mætti um það segja eitthvað lfkt alkunnum dönskum talshætti svo sem t. d.: Einn hafði hertoginn her- manninn, og hann hágrátandi. Erlendar ritsíniafréttir til ísufoldar frá R. B. Kh 13. des. 6 10 sd. O 8 c a r konungur hœttulega veikur, fyrir hjartanu. Lauritzen konsúll f Esbjerg hefir pantað 7 vélarskútur til f i s k i v e i ð a við ísland. Samein. félagið ætlar að láta smfða sér tvö íslands ferðagufuskip. (Löngu frétt áður!). D r u k n a ð hafa 30 fiskimenn í síðustu stórviðrum við Noregs-strend- ur. Konungskoman. Blöð viðtökunefndarmanna skýra lauslega frá ráðagerð hennar. — Kon- ungi er ætlað að hafast við hér í latfnuskólanum. En rfkisþingmönnum 40 í íslands-hóteli, sem mun þó ekki vera fullráðið. þar að auki á að reisa hér f bænum allmikinn matarskála, sem mun vera ætlast til að rifinn sé niður aftur og efnið selt. Landferðin byrjar 1. ágúst, til þing- valla, á lánshestum af Suðurlandi milli Skeiðarár og Gilsfjarðar og 3 vestur- sýslunum norðanlands, 18 góðum reið- hestum úr hverri sýslu með söðulreiði, eu kaup og hestleiga meðreiðarmanna úr héruðum greiðist úr landssjóði. Einhver myndarbóndi úr hverri sýslu fylgi hestunum þaðan og kemst fyrir það í allan mannfagnaðinn sér kostn- aðarlaust. Gistiskála mikinn skal reisa á þing- völlum. þar gistir konungur og mat- ast og alt hans föruneyti tvær nætur og einn dag, 2. ágúst; þá verður þar þjóðhátíðarsamkoma. Daginn eftir er ferðinni haldið áfram og austur að Geysi. Næsta dag Gullfoss skoðaður. Gisting við Geysi í nýjum skála, gerðum sömu- leiðis á landssjóðs kostnað, en minni þeim á þingvöllum, svo og í tjöldum, er landssjóður á mikið til af; við þarf þó að bæta stórum matartjöldum og eldamensku. Ekki er ætlast til að konungur ríði Tungufljót, heldur á að verða komin brú á það. Frá Geysi verður haldið í áfanga niður að þjórsárbrú, 5. ágúst. Hvítá ekki farin á ferju, heldur á nýrri brú, hjá Brúarhlöðum. Hreppsmenn ytri bæta veginn hjá sér f vor, f notum brúarinnar. Daginn þann sama vænt- anlega fjölmenn héraðssamkoma við Fjórsárbrú. f>á verður haldið út f Ölfus 6. ágúst og suður Hellisheiði 7. Á hádegi messar í dómkirkjunni á morgun síra Bjami Hjaltesteð. Engin síðdegisguðsþjónusta. Reykjavikur-annáll. Fasteignasala. Þinglýsingar frá í fyrra dag: Guðmnndnr Þorleifsson steinsmiður selur Magnúsi BjörnSByni skósmið húseign nr. 4! B við Njálsgötn með kálfri tilh. lóð á 2892 kr. Jón Pálsson bókhaldari selur Rannesi Magnús8yni í Stóru-Sandvik húseign nr. 34 við Laugaveg með 1500 ferálna lóð á 2566 kr. Kristján Guðmundsson selur Tómasi Skúla- syni í Álftagerði húseign nr. 14 við Klapp- arstíg með 1200 ferálna lóð á 8200 kr. Runólfur Sverrisson makaskiftir '/2 hús- eigninni Litluklöpp til handa Sveinbirni Stefánssyni trésmið gegn húseign nr. 40 B við Njálsgötu. Uppboðsráðandi í Rvik selur Runólfi Sverrissyni veitingaþjóni húseignina Litlu- Klöpp við Klapparstig á 2020 kr. Þórður Þorkelsson selur Jóni Bjarnasyni málara hús nr. 27 við Hverfisgötu með tilh. 500 ferálna ióð á 2000 kr. Heilsufar. Af taugaveiki segir hér aðslæknir að veikst hafi hér frá nóvember- byrjun 58 alls, flestalt unglingar og karl- menn á bezta aldri. Einn hefir dáið. Hinir flestir í afturbata; fáeinir albata. Nokkrir liggja heima hjá sér einangraðir, en meiri hlutinn, 30, í sjúkrahúsunum. Yeikin er nær eingöngu i austurbænum, í Lindargötn, á Laugaveg og Hverfisgötu. Einir 5 veikst i vesturbænum, engiun i miðbænum. Yfir- leitt að eins 1 veikst á heimili. Það bend- ir á, að ekki sýki hver annan, heldurkomi sóttkveikjan úr neyzluvatninu. Tveim vatns- bólum lokað í austurbænum. Veikindi á börnum venju meiri halda enn áfram, og barnadauði í meira lagi. Siðast i gær misti Ásgeir Sigurðsson kaupm. 4 mánaða gamlan dreng (Jón Hjaltalin). Hjúskapur. Guðni Guðnason og yngism. Sóldís Guðmnndsdóttir (Vatnsstíg 10 B), 14. des. Samein. félag. Póstskip Laura (Aasberg) lagði á stað út miðvikudag 12. þ. m. Ear- þegar meðal annara Björn kaupm. og al- þingism. Kristjánsson og Guðm. Oddgeirs- son verzlunarmaður. Thorefélagsskip. Helgi kongur Ingði á stað i gærkveldi vestur um land og norð- ur áleiðis til Khafnar. Samsönguriun i dómkirkjunni á miðviku- dagskveldið var vel sóttur fremur og þóttj vel takast, bæði sveitarsöngurinn, nær 30 karla og kvenna, og sóló-söngur hinna ungu sönglistarkvenna tveggja, frk. Elínar Matthiasdóttur og frú Elisabetar Þorkels- son, hovriar á sinn hátt. Frk. Elín hefir sér til ágætis meðal annars mjög skýran framburð. Þar heyrðist hvert orð glögt um alla kirkjuna. — Samsöngurinn verður endurtekinn á morgun. Veðrátta. Frost nokkurt til muna og hreinviðri þessa viku yfirleitt. Snjór á jörðu töluverðnr. Bæj artalsíminn á Seyðisfirði var fullger um mánaða- mótin okt.—nóv., og kvað hafa kostað um 6000 kr. Hann er kominn í svo mörg hús sem stöðvarborðið leyfir (24); nn í sambandið vilja fleiri komast, og er því ráðgert að fá stærra stöðvar- borð. Allir, sem þyrstir eru, koma í brauðabúð Björns Símonar- sonar, Vallarstr. 4, og spyrja fyrst um mjólk, svo um aðra góða drykki: Vorteröl, Mörk o. fl. Nú hefir bakaríið aukið svo mjólkurinnkaup sín að hér eftir geta menn fengið mjólk eftir þörfum. Vindlar til jólanna, þeir beztu í bænum, segja allir er reynt hafa hjá Gruðm. Olsen. Fallegasta og ödýrasta jólatrésskraut fæst í nýju verzluninni í húsi Björns- Símonarsonar, Vallarstr. 4. REYKIÐ aðeins vindla og tóbak frá B. D. Kruseinaim tóbakskonungi i Amsterdam (Holland).. Beztu tegundir af chocolade- seljast ódýrt í brauðasölubúð Björns- Símonarsonar, Vallarstr. 4. Þar fást góð epli og appelsinur, einnig margs konar útl. kökur og kex. Et fortræffeligt Middel mod Exem er KOSMOL Virker helbredende, giver en klar, ren< Hud og Hænderne et smukt Udseender er tillige et udmærket Middel mod al Slags daarlig Hud og röde eller rev- nede Hænder. Koster 2 Kr. 50 Öre' -j- Porto 50 Öre pr. Flaske og for- sendes mod Efterkrav eller ved Ind- sendelse af Belöbet. (Frimærker mod- tages). Anbefalinger fra Exemlidende foreligger til behgl Eftersyn. Copi af disse sendes paa Forlangende. Fabrikken ,,Kosmol“ Afdeling 11________Köbenhavn. rffinélar og vinólingar þykja beztir og ódýrastir í brauðasölubúð Björns Símonarsonar Vallarstr. 4. Þeir seljast með sama verði uppi fs kaffistofunum í því húsi. Gull en etti grísi Gull- herra úrfestar mjög fall- egar tækifæriskaup til Jóla að eins beztu sortir vasúr ótrú- lega góð og ódýr ankerúr. Bankastræti 12 Helgi Hannesson.

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.