Ísafold - 19.12.1906, Qupperneq 2
334
ISAFOLD
Undanbrögó frá þingrofi.
Undan þingrofeáskorunblaðanna, sem
þorri þjóðarinnar mun vafalaust taka
emdregið undir, spá þeir, sem erusæmi
lega kunnugir hugsunarhætti stjórnar-
innar, að hún ætli sér tvær smugur.
Önnur er sú, að úr því að bornar
séu brigður á samræmi þings og þjóð-
ar, eins og þingið er nú skipað, þá sé
bezt að fresta kosningu í millilanda-
nefndina þangað til á þingi 1909, eftir
almennar kosningar 1908.
En heldur mjó mun henui rejmast
smugan sú.' Höfðinu kemur hún út
um hana f hæsta lsgi, en meira ekkí.
|>ar verður hún föst, og smugan frem-
ur að snöru en útgöngudyrum.
|>ví annaðhvort er, að hún treystir
á fylgi þjóðarinnar, eða hún treystir
því ekki.
Ef hún treystir því, má hún verða
fegin að eiga kost á því að sanna sitt
mál sem allra fyrst og mega svo sitja
í næði 6 ár þar á eftir, hvað sem á
dynur.
Treysti hún því ekki, liggur það
hverju mannsbarni á landinu í eug-
um uppi, að henni gengur það eitt til
með dráttinn, að hanga í valdasessin-
um þau missirin enn, í óþökk þjóðar-
innar.
Eíkisþingið kýs í nefndina í vetur,
og nefndarmenn þeir verða sjálfsagt í
hóp þeirra 40 þingmanna, sem ningað
boma kynnisför í sumar. Heldur færi
vel á því, ef þeir væri látnir grípa þá
í tómt og fá það svar, að þeir yrðu
að bíða tvo vetur enn, tvö þing enn í
Khöfn, áður en þeir f e n g i að taka
til starfa, vegna þess, að stjórnin
islenzka yrði að lafa við völd það
lengi, en vissi þess litla sem enga von,
ef nefndarkosningarmálinu væri skotið
til þjóðarinnar uú þegar! þeim mundi
finnast það heldur skoplegt gabb, og
þykja sem íslendingum fyndist sér
liggja ekki á. f>eir gæti verið dánir,
helmingurinn af þeim, eða af þingi þar
í Danmörku fyrir þann tíma; því þing-
rof er til þar, eins og hér.
Hin smugan er sú, að úr því að meiri
hlutinn, sem nú er á þingi, hafi haft
upptökin að málaleituninni um nýjan
sambandssáttmála, í utanförinni í sum-
ar, þá fari bezt á því, að hann haldi
því máli áfram, með marg-umtalaðri
nefndarkosning.
En þá mundi þjóðin vilja spyrja,
hvaða umboð þingmenn hafi haft til
ákveðinna samninga við Dani í utan
förinni í sumar, og þar næst, hvort
þeir geti ábyrgst, að nefDd, sem þeir
kjósa í sambandsmálið, geri ekki eitt-
hvað það, er þjóðinni sé mjög í móti
skapi og hún sæti fyrsta færi til að ó-
nýta, þ. e. sæti fyrsta tækifæri, sem
hún hefir til þess að skifta um þing-
menn.
Væri þingið í sumar ekki síðasta
þing á kjörtímabilinu, gæti verið dá
lítið vit í að segja: vér getum ráðið
því frá íslands hálfu, hver verða enda-
Iok á sambandssamningunum, þvf að
vér hinir sömu fáuœ málið til meðferð-
ar frá nefndinui á næsta þingi, og þarf
því ekki að kvíða ósamræmi milli
hennar og vor, umbjóðenda hennar.
— f>etta gætu þeir sagt þá, ef neyta
vildu valds síns svo sem lög leyfðu
frekasc, og hirða ekki hót um, hvort
þjóðinni líkaði betnr eða ver.
En nú er ekki því að heilsa, vegna
þess, að kosningar m e g a t i I fram að
fara milli þinganna 1907 og 1909, e f
ekki er þing rofið áður, er óumflýjan-
Iegt, að ýmsir aðrir þingmenn fjalli
um málið, þegar það kemur f r á nefnd-
inni, heldur en þeir, er í hana kjósa,
og komi þar fram fylsta ósamræmi.
Smugurnar eru báðar jafnófærar.
Stjórnarvaldaaiifflýsingar
hefir »Sannsöglin« hrept. Hún varð
hæstbjóðandi, fyrir Sll1/^ kr. Aðrir
buðu 520, 500 og 400 kr., — sem
sé ísafold, Lögrétta og þjóðólfur.
Almenna aðdáun hefir sú stjórnar
ráðstöfun hlotið. Samkynja aðdáun
og æði-margar aðgerðir stjórnarinnar
aðrar. Aðdáun fyrir firaleikann að
hitta á það, sem sízt dettur nokkurum
manni í hug og first þykir fara öllu
viti.
Víðlesin þykir ella hlýða að þau
blöð séu, sem flytja stjórnarvalda
auglýsingar. Hér er til þess valið
blað, sem um sannaðist fyrir fám
mísstrum með d ó m i, að það hafði
eftír skýrslu sjálfs afgreiðslumanns
þess ekki yfir 600 kaupendur alls, um
sama leyti sem það þ ó 11 i s t hafa þá á
4 þús. kaupendur. Nú þykjast menn
vita um blað þecta, að það sjáist ekki
í heilum sýslum.
það þykir hlýða, að þau blöð séu
nokkurs metin, er með stjórnarvalda-
auglýsingar fara. En mundi vera
hægt að hafa blað í minni metum en
þorri manna hefir þetta blað, sem nú
hefir hlotið þær?
Stjórnin hafði til tekið, að helm-
ingur hvers tölublaðs minst yrði að
vera fréttir eða annað lesmál en aug-
lýsingar. þetta blað er eða hefir að
minsta kosti verið aðallega til þess
ætlað, að flytja t ó m a r auglýsingar.
En gjaldið, hið háa gjald, — helgar
þ a ð ekki alt um það þessa stjórnar-
ráðstöfun? spyrja menn.
— Jú, þvf ekki það, e f það verður
ekki fært eftir á niður um helming !
Eitt aðdáunaratriðið er það, og ekki
hvað minst, að svo er ráðgjafinn ósér-
plægimn, að þetta háa gjald lætur hann
sitt eigineignar málgagn bera, og hugsar
sér þar með að greiða það úr sjálfs sfn
vasa og meðeigenda sinna, ef svo
kynni að fara, að blaðið risi ekki undir
því sjálft. þetta er og því aðdáanlegra,
sem reynslan er eú um arðinn af stjórn-
arvaldauglýsingum undanfarin ár hin
síðari, að fyrir þær gelzt alls og alls
8—900 kr. um árið, og væri þvl rétt
eða hæfilegt gjald eftir þær svo sem
300 kr., eftir vanalegum afsláttarmæli-
kvarða við Btærstu og beztu auglýs
ingaskiftavini. — Að ísafold bauð nú
rniklu hærra, var eingöngu gert
til að prófa, hvort stjórnin stæði við
það sem hún hafði sagt nývemið fyrir
munn Lögréttu: að hún mundi
ekki í neitt manngreinarálit fara um
það, hvern stjórnmálaflokk blað fylti,
er í þær byði.
Af því að ísafold hafði mjög lengi
flutt síjórnarvalda-auglýsingar, gerði
hún það til þæginda lesendum sínum,
er þær voru færðar yfir í annað blað
fyrir nær 4 árum, að láta þá vita
eftir sem áður innihald þeirra, í stuttu
ágripi. Nú þyrftu sem flest blöð vor
að taka upp þann sið, til þess að
almenningur fari hvergi alveg þess á
mis, sem lögboðið er að auglýsa og
mörgum er áríðandi að vita, svo sem
eru skuldbeimtutilkynningar, nauð-
UDgaruppboð og ýmislegt fleira.
Peningaleiga
enn að hækka á heimsmarkaði.
Sfmskeyti til Islandsbanka frá Khöfn
í gær segir hana vera komna upp í
7% á jiýzkalandi.
Reykjavikur-annáll.
Oánir. G-lsli Tómasson vm. (Bergst.str.
46 B) 17. des.
Gnðný Gnðmundsáóttir ekkja, 76 ára
(Grtg. 46 B) 11. des.
Þórnnn Pálsdóttir ekkja, 74 ára (Berg-
stöðum) 15. des.
Fasteignasala (leiðr.). Yegna hálfgerðra
makaskifta hafði sölnverð húseignurinnar
nr. 34 við Laugaveg, sem um getur í sið-
asta bl., veriö að réttu lagi um 7000 kr.
Hjúskapur. Axel Meinholt söðlasm. og
yngism. Kristin Benediktsdóttir (Laufásveg
20) 15. des.
Ingvar Bjarnason og ym. Steinunn Gisla-
dóttir (Yitastíg 15) s. d.
Sigurjón Jóhannsson og ym. Margrét Þor-
leifsdóttir (Barónsstig 18) 16. deB.
Vilbogi Pétursson og ym. Kristín Bryn-
jólfsdóttir (Hverfisg. 51) 15. des.
Þorbjörn Klemensson trésmiður og Guð-
riður Agústa Jónsdóttir (Vesturg. 35) s. d.
Samein. félag. Gufuskip Vesta lagði á
stað frá Seyðisfirði biugað i gærmorgun
kl. 10. Kemur þá liklega á morgun ein-
hvern tíma; átti hvergi að koma við nema
í Vestmanneyjum.
Parþegar með s/s Laura um daginn héð-
an voru, auk þeirra, er þá voru nefndir,
Th. Tborsteinsson kaupm., V. Claessen lands-
féhirðir og frk. Þórunn Jónsdóttir frá Flens-
borg (Hafnarfirðí).
Kangárvallstsýslu (miðri) 28. nóv.
Tíðarfar hefir verið stirt hér og óstöðugt
þetta haust, alt fram að byrjun þ. m. Þá
batnaði veðrátta og héizt það til 15., en
versnaði þá aftur. Hinn 17. gerði hér
aftaka-vonzku-byl, sem hélzt til 18. Fén-
aður var úti um alt og urðu víða fjárskaðar
meiri og minni. Fé fenti, og er nú sumt
fundið, ýmist dautt eða lifandi. Frá mörg-
um bæjum sem liggja nærri Þverá (Markar-
fljóti), hrakti fé i hana og fórst þar. Þó
var nokkru bjargað lifandi eftir bylinn,
er hafði staðið á bökkum hennar og hún
flóð þó langt upp yfir þá. Hross lentu
og allmörg i flóði úr henni fram undan
Fljótshlíð utanverðri (móts við Lambey).
Munu þau flest hafa náðst lifandi, þó við
illan leik; stóðu orðið i miðjar síður. Þó
urðu björgunarmenn varir við 1 hross
dautt. Þeir töldu liklegt, að fleiri kynni
þau að vera; því fleira vantar af hrossum,
sem biifðu haldið sig þar.
Heyskapur varð viða heldur iýr hér
um slóðir, sakir þess, að grasspretta varð
heldur með lakara móti, og þar við bættist,
að sláttur varð mjög endasleppur sakir
rosa og rigninga. Munu margir hafa
gengið nærri sér með að farga kúm og
jafnvel lömbum.
Hfer er allmikill áhugi með ýmsar fram-
farir, svo sem jarðabætur og húsa. Nokkurir
breppar hér um miðsýsluna og austan til hafa
haldið plægingamann í alt sumar. Hann
mun hafa plægt nál. 40 dagsl. að minsta
kosti. Maður þessi heitir Guðmundur Sig-
urðsson, Rangæingur að ætt, og hefir lært
plæginguna í Brautarbolti
Fólki líður yfirleitt vel hér i sýslu.
Sveitarþyngsli fara óðum lækkandi í mörg-
um breppum. £n undan þeim hefir löng-
um verið kvartað, og ekki um skör fram.
Það sem bændur þykir helzt að sér ama,
er vinnubjúaeklan. Það væri þarft verk,
ef hægt væri að finna ráð við henni.
Áburðarfélagið
Vegna vanskila á borgun fyrír
hreinsun salerna sér félagið sér ekki
fært annað en breyta til með inn-
heimtu. Er því ákveðið að hafa til
sölu miða sem menn geta keypt og
þannig borgað fyrirfram. Verður þvi
ekki hreinsað hjá neinum eftir 1. jan.
næstk., sem ekki hefir keypt slíkan
miða. þeir fást keyptir hjá:
Jónatan þorsteinssyni kaupmanni
Laugaveg 31.
f>orsteini Sigurðssyni Laugav. 5.
Jes Zimsen Hafnarstr. 23.
Einari Árnasyni Aðalstr. 14.
Hreinsað verður í hverjum hluta
bæjarins sömu nætur og áður.
Reykjavík 12. desbr. 1906.
Stjórnin.
Bjarni iYarsson
bókbindari.
Laugaveg 24. Tls. 118.
Búnaðarf élag
Garðahrepps heldur hinn ákveðna að-
alfund 15. janúar 1907 í Goodtempl-
arhúsinu í Hafnarfirði kl. 12 á hád.
Bakka 17. des. 190A
____ísak H.ini-iiason, formaður._
Tveir piltar,
16—18 ára að aldri, frá góðum heim-
ilum, geta komist að á Hotel ísland
frá næsta nýári til að læra alt þaðr
er lítur að veitingu og sölu, m. fl.t
á gisti- og veitingahúsi.
A sama stað getur vinnumaður milli.
tvitugs og þrítugs fengið vist með
háu kaupi.
Menn eru beðnir að snúa sér tií
veitingamannsins, hr. S. Carlsen á
Hotel Island, 1. og 3. herbergi.
Karlmanna- og kvennmannaúr,
með tveggja, þriggja og fjögra ára
skriflegri ábyrgð, aftur komin í verzL
Matth. Matthíassonar-
Spyrjið fyrst
um verð á niðursoðnum vörum í
AðaMræti nr. 10.
Ætíö bezt kaup þar.
Spil og jdlakert j
fást í verzlun
Matth. Matthíassonar.
Hver sá er borða vill gott
Margaríne
fær það langbezt og
ödýrast eftir gæðum hjá
Guðm. Olsen.
Telefon nr. 145.
Syltetau
ágætt, lang-ódýrast
í Aðalstrœti 10.
Jólatrésskraut,
mikið og fagurt, nýkomið í verzlun
Matthiasar Matthiassonar.
Umboð
Undirskrifaður tekur að sér að kaupa
útlendar vörur og selja fsl. vörur gegu
mjög sanngjörnum umboðslaunum.
G. Sch. Thorsteinsson.
Vindar, Vindlingar,
Lemonade, óáfengt Ö1 (Dimm-
ur) og Maltöl fæst í verzlun
Matth. Matthíassonar.