Ísafold - 29.12.1906, Síða 1

Ísafold - 29.12.1906, Síða 1
Kemur út ýmist sinn sinni eOa tvisv. i viku. Verð árg. (80 ark. minust) 4 kr., erlendis 5 kr. eða D/1 doll,; borgist fyrir miðjan júli (erlendis fyrir fram). ISAFOLD. UppBÖgn (sanfieg) bund n Ö iramót, ógild nema komin sé til átgefanda fyrir 1. október og kaup- andi skuldlaus við blaðið. Afgreiðsla Auxtumtræti 8. XXXIII. árg. Reykjavík Iauj*arclag:inn 2í). deseinber 1906. 86. tölublaö Eftirmæli ársins. Öllu lakara en í meðallagi mun árið Aiafa verið yfirleitt, bæði til lands og sjávar. Vetrarríki allmikið og vor- Larðindi, einkum norðanlands og auat an. Vægara sunnanlands og veBtan. Hafís við Norðurland frá sumarmál- um^til |fardaga, þó hvergi landfastur, nema við fíorn, og tepti eigi samgöng- Ur til muna. Bati kom um land alt með fardögum. Sumarið sæmilegt syðra og vestra, en lakara nyróra og á Austfjörðum, einkum meinlega kalt og votviðrasamt. Haustveðrátta hvik- ul og rosasöm um land alt. Grasspretta sæmileg, einkurn á tún- Um. Nýting allgóð sunnanlands og vastan, en fremur slæm í hinum lands- fjórðungunum, og heyafli með minna móti yfirleitt. Garðar brugðust mjög, vegna kuldanna. Afli allgóður á þilskip og báta syðra og vestanlandö vetur og vor. Sumar- vertíð þilskipa lélegri en um mörg ár undanfarin. Sumar- og haustvertíðir norðanlftnds og austan með rýrara móti. Útlend þilskip miklu fleiri en áður að veiðum hér við land, einkum Norð- menn við síldveiði. þeir öfluðu alls um 175 þús. tunnur síldar, yfir 2^/j kr. virði. Hvalveiðar með minsta móti. Vélarbátum fjölgað mjög í flestum meiri háttar veiðiatöðum landsins. Verzlun sæmilega hagfeld. Verð á innlendum afurðum hærra en venja er til, einkum á ull og fiski. Búnaðarframfarir nokkrar. Jarða- bætur Btundaðar í góðu meðalagi. Plægingar fara í vöxt, og á nokkrum fitöðum farið að nota sláttuvélar. Itjómabúum fjölgað, en arður þeirra Aeldur rýr, vegna kuldanna. Um 100 manns mun hafa fluzt héð- an á árinu til Vesturheims. Nokkrir landar fluttust heim aftur að vestan, og allmargir útlendir ritsímastarfsmenn settust hér að. Sennilegt að staðist hafi á endum fólksflutningur úr landi og í. Slysfarir óvenjumiklar. Sex inn- lendar fiskiskútur fórust, og druknuðu ,þar nær 100 manns, Auk þess allmik- ið tjón bæði á mönnum og skepnum. Konungaskifti urðu á árinu. Krist- ján konungur IX. andaðist 29. janúar, en við ríkinu tók sonur hans Friðrik VIII. Eitsími lagður til landsins eystra og þá andveg til Reykjavíkur. Ritsímafél. uorræna lét leggja sæþráðinn, frá Hjaltlandi til Seyðisfjarðar; því var lokið 23. ágúst. Landsfmann annaðist landsstjórnin. Hann var tilbúinn til almenningsnota 29. sept. Loftritun Marconifélagsius hingað, er hófst í júní 1905, hélt áfram þar til er ritsíminn var tekinn til starfa. Viðtökustöðin hér við Reykjavík stend Ur óhreyfð. Konungur og ríkisþing Dana bauð AÍþingismönnum í kynnisför til Dau- tterkur. þeir fóru 35 af 40. þeir v°ru sóttir og fluttir heim aftur á ríki8ins kostnað. f>eir stóðu við er- íeodis 12 daga (18.—30. júlf) í bezta ýörlæti. þeir buðu aftur hingað 40 '^önskum þingmönnum að sumri. Þeb verða í för með konungi, Bem þá <er hingað von. þingmenn áttu f för- þessari lítils háttar samtalsfund við 30—40 rfkisþingsmenn um stjórnmál landsins; þeir tóku vel á því að, að sinna kröfum íslendinga. — Almenn óánægja í landinu yfir stjórnarástand- inu eins og það er, og vottar fyrir ákveðn- ari sjálfstæðsþrá en áður. — Tillaga ura sérstakan íslandsfána fær alment góðan byr. Heilsufar sæmilegt yfirleitt. Mis- lingar fluttust til Seyðisfj. með færeysk- um sjómönnum, en voru stöðvaðir þar; urðu engum að bana. Skarlatssótt gekk við Eyjafjörð, Vopnafjörð og komst til Skagafjarðar. Taugaveiki g6kk í Hafnarfirði á öndverðu ári; allmikil brögð að henni í Rvík undir árslok. Hennar varð og vart á Seyð- isfirði. Reykjavikur-annáll. Brunabótavirðing var samþykt á síðasta fundi á þessum búseÍKnum i kr.: Jóiis Péturssonar á Glíslaboltslóð . 6,383 Otta Guðmundssonar i Vesturgötu . 27,»'87 Dánargjöf höfðinglega hefir f. útveg6bóndi Einar heit, Sigvaldason hér í bæ (f 8. nóv. þ á., hálfniræður) ánafnað Fiskimannasjóð Kjaiarnesþings, á að gizka 5—6 þús. kr. Það var aleiga hans. Dánir. Árni Sæmundsson trésm. (Grtg. 57), 25. des., 43 ára. Magnús Árnason steinsmiður (Hverfisg. 31) varð bráðkvaddur Þorláksmessudag á rjúpnaveiðum skamt frá Baldurshaga, 28 ára. Sigríður Gnðrún Gnðmundsdóttir í Heil- mannshúsi, 34 ára, ógift, dó 26. des. Sigriðnr Kristjánsdóttir járnsmiðs, yngis- stúlka, 19 ára, dó 24. des. úr taugaveiki. Hátiðarmessur. Kveldsöngur gamlársdag kl. 6 í dómkirkjunni: sira Rikarð Torfa- son; i trikirkjunni cand. tbeol. Har Niels- son. Nýársdag siðdegis cand. theol. Sigurbj. A. Gislason. — Sóknarprestarnir að öðru leyti: á morgun á hád. og á nýársdag. Heilsufar. Taugaveikin heldur í rénun. Þessa viku bæzt við að eins 2—3. Alls veikst frá byrjun um 80. Mörgum batnað, þótt fleiri séu hinir. Einn dáið þessa viku. Hjúskapur. Bogi A. J. Þórðarson kaup- maður og yngismær Kristin Sigurlaug Lár- usardóttir (Laugav. 23) 22. des. Brynjólfur Olafsson og ym. Jónina Sig- riðnr Jónsdóttir (Njálsg. 49 B) s. d. f Eirikur fiinarSBOn og ym. Sigriður Olafs- dóttir (Njg. 43) s. d. Guðlaugur Sigurður Eyólfsson (frá Eski- firðí) og Málhildur Þorkelsdóttir 24. des. Jón Jóhannsson og ym. Guðrún Guð- mundsdóttir (Hverfisg. 58) 22. des. Pétur Pálsson skrautritari og ym. Mar- grét Isaksdóttir (Grtg. 2 s. d. Leikhúsið. Nafnkent leikrit franskt, eftir Alexander Dumas hinn yngri, Kamelíufrúin (afleitt heiti á íslenzkn), var tekið til við hér annan í jóium. Þar þótti frú Stefanía Guðmundsdóttir leika höfuðpersónuna til- talianlega vei, og er þó allvandasamt. Þá var húsfyllir. Færra kveldið eftir, vegna kuldans helzt. Næturvörður hinn þriðji hér er skipaður Sigurður Jónsson, Laugaveg 50 B. Steinoliubirgðir ætlar danska deildin úr Standard Oil Co. i Ameriku að hafa hér eftirleiðis í Örfirisey; hefir fengið til þess leyfi bæjarstjórnar gegn 25 a. árgjaldi eftir feralin hverja. Veðrátta. Alhvit jól og eftir þvi köld. Hvassviðri af ýmsnm áttum, oft með fjúki. Frostið sem hér segir (C): jólanótt 12.6; næstu nætur tvær 11.9 og 11.3; i fyiri nótt 10 7; en i nótt sem leið 1,8. Þjóðhátiðarnéfndin sótti um 800 kr. styrk úr bæiarBjóði til að greiða tekjuhalla við þjóðhátiðarhald hér siðustu árin, en bæjar- stjórn synjaði þess á síðasta fundi. Fjallkonu-ritstjóraskifti. Með þessum áramótum lætur E i n a r Hjörleifsson af ritstjórn Fjall. konunnar, bæði sakir heilsubilunar, og þess annars, að hann þráir mjög að geta gefið sig við öðru, er alkunnugt er að honum lætur manna bezt hér á landi, en það er að rita skáldsögur. Þar missir íslenzk blaðamenska sinn ritfærasta mann, eftir 19 ára dyggilegt starf og mjög svo mikilsvert, »vestan hafs og austan«. Missir hann í bráð. Vér v o n u m, að það verði þó ekki fyrir fult og ait. Missiriun er meiri en lýst verði í ör- fáum orðum. Ritsnild hans og rökskygni fylgir fá- gæt mannúð og drengskapur, einlægni og trúmenska við góðan málstað, hvort sem almennum byr á að fagna eða ekki. En það eru einmitt þeir kostir, er blaðamenn prýða framast. Blaðið Fjallkonan heldur áfram, með óbreyttri landsmálastefnu, og gerist kand. Einar Gunnarsson ábyrgðarmaður þess. Ritsímabilanir. |>ær hafa verið með langmesta móti nú um jólin. Samband slitið milli Seyðisfjarðar og Akureyrar öll jólin þangað til í gærkveldi. Hraðskeyti frá Khöfn jóladag legaðist á Seyðis- firði þangað til i morgun. Og ekki komst haidur hraðskeyti frá Akureyri annan í jólum fyr en nú í dag. Ritsímastjórinn, hr. O. Forberg, hef- ir beðið ísafold fyrir þennan pistil út af Krarups-greininni í sfðasta bl.: Hr. ritstjóri! Það er misskilningi undir- orpið, er hr. Krarup ritsímaráðunautur gef- ur i skyn t (sjá útdráttinn úr grein hans í slðasta bl. Isafoldar), að eg sé honum sam- dóma uni, að aðalástæðan til hinna tiðu BÍmslita hér sé ill meðferð á siraa- þræðinum við flutning hans hér á landi. Sennilegt er, að einstöku símslit hafi orð- ið af þeirri ástæðu, en þó mjög fá. Það hefir komið í ijós, að flest símslitin hafa orðið annarsstaðar en þar, sem flutningur- inn var lengstur og erfiðastur. Það hefir ekkert orðið að simanum á verstu fiallveg- unum, Heljardalsheiði, Smjörvatnsheiði og Fjarðarheiði. Aðalorsök óhappanna hlýtur þvi að vera önnur, og vil eg þá fýrst og fremst benda á það, að harðdreginn eir- þráður »er fyrst i stað mjög næmur og viðkvæmur fyrir hitabreytingum«. Enn verð- ur eigi séð, að slitunum fækki. Þau munu aldrei hafa verið eins tið og nú í harð- viðrunum um jólin. — En þótt horfur séu iskyggilegar sem stendur, treysti eg þvl fastlega. að úti sé hið versta um það er liður þessi vetur; þvi þráðurinn hefir sína kosti. I grein hr. Krarups er þess getið, að harðdreginn koparþráður sé lakari til sam- tals en eirþráður. Þetta hlýtur að vera sprottið af misskilningi. Koparþráður veitir rafmagn8straumnum minni mótspyrnu en eirþráðurinn, og er sá munur likt og 2‘/2: 3l/2. Ef vér hefðum koparþráð jafngildan eir- þræði þeim, er nú höfum vér, mundu sam- töl héðan heyrast eins glögt til Seyðis- fjarðar eins og þau heyrast jú til Reykja- hliðar. En hvort sem notaður er kopar- eða eir- þráður, fæst aldrei eins örugt samband milli Reykjavikur og Seyðisfjarðar eins og með stálþræði. Bæði af þeirri ástæðu og til þess að geta haft full og eðlileg not af ritsímasambandinu væri því mjög æskilegt, að fá slikan þráð lagðan sem ailra fyrst; enda mun það verða nauðsynlegt áður langt um liður, bæði hentugra ug hagvænlegra. Reykjavik 28. des. 1906. Forberg. Frjálst sambandsland eða ekki. Lögkktta síðasta (22. þ. m.) flytur mjög villandi og blekkjandi ritstjórnar- grein um »ágreininginn milli meiri og minnihlutans um sambandsmálið«; og er því miður ekki rúm tii að svara heuni í þetta sinn öðru en því, að sé Lögr. og hennar liði alvara að Island verði f r j á 1 s t sambandsland við Danmörku, g e t u r húu eða það með engu móti viljað halda í ríkisráðssetuna. M e ð henni er hégómi að tala um frjálst sam- bandsland. Það er eintóm blekkiug, að vera að veifa þeim fána á slíkum grund- velli. Viðurvistartilbúningurinn — að Islandsmál séu flutt í ríkisráði af ís- landsráðgjafanum, á n þess að hann só meðlimur ríkisráðsins, að eins í á h e y r n hinna ráðgjafanna, — er eintómur reyk- ur. Lögr. á því enn alveg ósvarað, hvað henuar menn hugsa sér að gera, ef Danir vilja ekki líta við þeim tilbún- ingi; en það þarf enginn að láta sér detta í hug að þeir geri. Um ríkisráðið getum v é r engar reglur sett. Það er dönsk stofnun, sem Danir ráða einir og vér getum eigi notað öðru vÍ8Í eu þeir vilja. Að tala um, að lakara geti verið fyrir oss að hafamál vor utan ríkisráðs, er sama sem að segja, að lakara geti verið að vera frjálst sambandsland en innlimaður hluti Danaveldis. Séu Lögréttu-menn þeirrar skoðunar, þá eiga þeir að segja það yfirdrepsskaparlaust. Þá er »frjálsa sambandslandið« úr sögunni fyrir þeim. Þá eiga þeir að draga þann fána niður. Með svofeldu móti er tóm blekking að veifa honum. Þá fyrst, er vér erum lausir við ríkis- ráðið og viðurkent er, að vér séum frjálst sambandsland, kemur til vorra kasta, að ráðstafa stjórn vorri. Þá ráðum vér einir tilhögun hennar, með konungi. Það mál er órætt enn. Hitt verður að ganga fyrir. Erlendar ritsímafréttir til ísafoldar frá R. B. Kh 25. des. 6, 6 sd. Kommgskomaii. Samein. félags gufuskip T i e t g e n á að verða samferða konungsskipinu í sum- ar til íslands með skemtiferðamenn. Stjórnmálafundur í Khöfn. Fjölsóttur stjórnmálafundur meðal ís- lendinga hér í bænum. Frummælandi Einar sýslumaður Benediktsson, og tal- aði frá sjónarmiði Landvarnarmanna. Langar og fjörugar umræður á eftir. P o 1 i t i k e n átti síðan tal við Einar Benediktsson. Hann fann mikið að stjórn- arskrárfrumvarpi Alberti (1903). Lárus Bjarnason ritar stiarplega á móti honum í Dannebrog. Valurinn. Islands Falk verður ferðbúinn 8. jan, Persakonungfur liggur fyrir dauðanum. Ingi kongur strandaöur. Ritsímafrétt frá Akureyri 27. des. : Kong Inge strandaði við Flatey á Skjálf-

x

Ísafold

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.