Ísafold - 05.01.1907, Blaðsíða 3
ISAFOLD
8
I
Endurtekin gamlársskemtun.
Eitthvað af Eram- og aftur-liðinu hafði
ætlað að itreka gamlárskvelds-götuskemtun
þá »fyrir fólkiðc, er það kom á gang j
fyrra, en tókst enn ófimlegar en þá. Allur
fór undirhúningur undir það i pukri, cins
og þá. Eitthvað kvisaðist þó, og olli því,
að fólk liafði farið að þyrpast að Ingólfs-
Harðindi nyrðra.
Símskeyti frá Sauðárkrók laugard.
var (29. des.) sogir svo: Norðanhríð
og frosthörkur um jólin. Jarðlaust.
Hross nú þegar í lélegum vorholdum.
ískyggilegar horfur, haldist ótíðin.
Símslitum
Islands banki
ávaxtar fé með innlánskjörum og gefur fyrst um sinn, frá i. janúar 1907 að
reikna, alt að 4V2°/o (fjórar krónur 50 aura af hundraði) í ársvexti.
hvolshorninu undir miðnættið. f>vl hafði
og verið sagt, að þar mundi verða sýndir
fiugeldar — til að laða það að. Fyrir-
huguð skrnðganga niður Pósthússtræti hepn-
aðist ekki betur en það, að .móðurhróðir-
inn« sást rangla við tianda mann eða tólfta
eitthvað niður eftir þá leið frá kirkjanni.
Þvi næst kyrjuðu einhverir upp ný-
prentað sálmvers átthent til »húshóndans«,
að eins eitt, eftir þann drottins þjón »sann-
söglÍ8«-ritstjórann, að mælt er, og segir þar,
að | þjóð og þing hafi falið honum íslands-
mál | og konungur valið hann til að vera
landsins sál 1! | Eftir það hóf áminstur guðs-
maður upp rödd sina (eins og i fyrra), liása
nokkuð þó, utarlega í mannþyrpingu, með
eitthvert lofgjörðar-kvak, sem fáir heyrðu.
Að þeirri bæn araenaðri hirtist húsbóndinn
sjálfnr á svölum uppi við Ingólfshvolshorn-
ið og ávarpaði lýðinn nokkrum vel völd-
um áminningarorðum um að gefa þeim ekki
gaum, sem skreyttu sig með gullnum fjöðr-
um (hann mun hafa verið sjálfur ógullfjall-
aður þá !) og hefði hátt um sig, og að láta
ekki fara fyrir sér eins og manninum, sem
slepti sleða með góðu veiðifangi til að elta
íkorna, en varð af hvorutveggja. — Heyr!
hrópuðu þeir, sem ekki heyrðu, en hinir
voru flestir hljóðir. En ört tóku þeir und-
ir að láta ísland lengi lifa og sungu glatt
Eldgamla ísafold.
Reykjavikur-annáll.
Brunabótavirðing samþykti bæjarstjórn i
fyrra dag á þessum húseignum i kr.:
Björns Ólafss. augnl. við Tjarnarg. 19,193
Ellss Péturssonar við Njálsgötu . 6,685
Dánir: i gœr OlafurÞórðarson bókari (Yg.
21), bróðir Þorgríms læknis i Keflavík,
nál. fimtugsaldri; og í nótt Gunnlaugur
SigurÖBson múrari, úr taugaveiki.
Fasteignasala. Þinglýsingar frá í fyrra
dag:
Fr. Hansen og Oddur Guðmundsson
selja Brynjólfi Bjarnasyni i Engey húseign
nr. 18 við Barónsstíg með 900 ferálna lóð
á 9500 kr.
Hallgr. Jónsson kennari selur Jóh. kaupm.
Jóhannessyni húseign nr. 11 A við Bergst-
stræti á 10,000 kr.
Hjálpræðisherinn. William Booth general
selur Frelsens Hærs Bygnings- og Forret-
nings Aktieselskab (i Khöfn?) húseign nr.
2 við Kirkjustræti með tilh. lóð og öðru á
10,000 kr.
Jóh. Jóhannesson kaupm. selur Hallgr.
kennaia Jónssyni húseign nr. 7 við Spítala-
stíg á 7,000 kr.
Heilsufar. Hægt fer rénun tangaveikinn-
ar. Um jólin hafa 9—10 fengið hana, að-
allega í vesturbænum.
Hjúskapur. Einar Runólfsson trésmiður
og yngism. Kristín Traustadóttir (Njg. 44),
30. des.
Heiniich M. Glismann sykurverksmiðju-
stjóri og ekkja Thyra Caroline Amalie f.
Lindskov, 29. des.
Þórður Jónsson verzlm. og yngism. Þóra
Jónsdóttir (Bankastræti 10) 3. jan.
Samein. félag. S/s Vesta komst loks á
stað nýársdag snemma. Fátt eitt af far-
þegum. Símskeyti frá Seydisfirði í gær
segir hana hafa komist á stað þaðan þá
kl. 3, beint til Skotlands.
Skólanofnd. Tveir bæjarfulltrúar voru
kosnir i fyrra dag i viðbót i skólanefnd:
Halldór Jónsson og Jón Þorláksson.
Veðrátta. Fannkoma ákaflega mikil þessa
viku, einkum í fyrra dag með hægum aust-
anlandsynningi. En frostlítið mjög frá þvi
fyrir helgi; og hláka i gær og i dag.
Vegabætur og holræsi, Bæjarstjórn sam-
þykti á fundi sinum í fyrra dag ýmsar
vegabætur og holræsagröft, á þessu ári,
ýmist fyrir áætlað vegafé (16000) eða með
lánnm (alt að 20000).
Holræsi á að gera meðal annars uiður
Smiðjustlg og vestur Lindargötu og norður
Arnarhólstún til sjávar fyrir 2700 kr. og
eftir Kirkjustræti og Pósthússtræti m. m.
525 álna langt fyrir 3850 kr. Enn fremur
i Þingholtsstræti fyrir 1350 kr., i kafla af
Laugavegi fyrir 950 kr. og í kafla af
Amtmannsstlg fyrir 1200 kr.
Hverfisgötu á að púkkleggja frá Smiðju-
etig niður að læk.
Gera á nýja götu milli Skólavörðustígs
°g Spitalastlgs m. m. fyrir 1500 kr.; hún
é að heita Oðinsgata.
Gert er ráð fyrir, að lóðareigendur við
þær götur, sem holræsi er lagt í, leggi til
frá sér alt að 2000 kr.
hefir ekki borið á innanlauds þessa
viku. En fyrir millílandaskeyti tók
á gamlárskveld og hélzt það nýársdag
allan. Miðvikudagsmorguninn, 2. jan.,
komst lag á aftur um stund, en tók
brátt fyrir á nýjan leik, og hefir svo
staðið þangað til í dag, að sagt er að
fengið sé samband við Khöfn. fóhefir
Blaðskeytabandalagið ekki fengið enn
fréttaskeyti það frá Khöfn, sem það
átti von á í fyrra kveld. — Bilunin
kvað hafa orðið á Hjaltlandi eða Skot-
landi. En sæsíminn heill til þessa.
Bæjarstdórnarkosning
á Abureyri. — Símskeyti þaðan í
dag segir þessa hafa verið kosna þar
í bæjarstjórn: Friðrik Kristjánsson
bankastjóra, Jón Kristjánsson öku-
mann, Sigurð Hjörleifsson ritstjóra og
Svein Sigurjónsson prentara.
Ing-a-strandlð.
Símritað frá Akureyri í dag: Perwie
er f dag með strandmennina.
Sigurður fangavörður Jónsson
hefir fengið lausn frá sinu starfi, hér við
Hegningarhúsið, frá 1. sept. þ. á., eftir 33
ára þjónustu.
Messur. Sira Friðrik Friðriksson á
morgnn í dómkirkjunni á hádegi, og síra
J. H. siðdegis kl. 5.
Þá verða guðsþjónustusamkomur í dóm-
kirkjunni á hverju kveldi næstu viku kl. 6‘/2
Bænavikuna
6. tii 13. þ. m. verða bænasani-
komnr á Skólavörðustíg 5 báða
sunnudagana kl. 7 e. m., en í litla
sal templarahússins hvern virkan dag
kl. 7^/2, (strax á eftir guðsþjónustunni
í kirkjunni).
Ymsir ræðumenn. Allir velkomnir.
S. A. Gíslason.
Uryal af ailskonar
kexi og birauði
í Liverj)ool.
1. mai n. k. verður til leigu á Sigríðar-
stöðum stórt herborgl án húsgagna.
Ritstj. visar á semjanda.
Atvinnu
við flskverknn geta nokkrar dug-
legar stúlkur fengið næstkomandi vor
og sumar frá 1. maí til 30. sept.
Nánari upplýsingar gefur
I»orst. Guðmundsson,
Þingholtsstræti 13.
Tvö horhergi til leign i Túngötu 4.
Bezta minning um
Jón Sigurðsson
eru lmífarnir hjá .Tes Zimsen-
SKANDINAVISK
Exportkaffi-Suriognt
Kobeuhftvn. — F. Hjorth & Co
I mrn Sii. Sfeiissoiar
Lindargötu 7
f æ s t:
Islenzkt smjör. Epli. Kæfa. Appelsínur.
Tólg. Vínber. Sauðskinn. Ostur.
íslenzkt skóleður. Margarine.
Saltfiskur. Kartöflur.
Skófatnaður.
Bútasirts og- ágætar Regnkápur komu með s/s Vesta,
o. fl., o. fl.
Mjög gott verð á öllu.
Til skipa:
Hliðarljós — akkerisljós — lestarluktir — smá-hliðarljós, hentug á báta.
Þokulúðrar frá 45 kr. til 1,50 — logglös — vatnsmál —
melspíkarar, stórir og smáir — seglhanzkar,
mjög góðir — seglnálar — kóssir, stórar og smáar, galv. og látúns —
spidskóssir — löjertur — takkelhaka — dyvelsklær — schacklar —
bátshaka — tollar — askárar — taljur — blakkir —
blakkarskífur úr tye og járni — mastursbönd —
fríholt og margt fleira.
Munið eftir að þetta fæst hjá
Jes Zimsen.
afslátt
gef eg af nokkrum kjólatauum, bleiktu
og óbleiktu lérefti, sirzi, vetrargardínu-
efni, flónelli, rekkjuvoðum, vetrar-sjöl-
um, tvisttauum, tilbúuum drengjaföt-
um. Iíaupið eigi anuarsstaðar fyr en
þér hafið séð þessar ótrúlega ódýru
vörur hjá
Egli Jacobsen.
JuaiRfálag ^jtviRur:
verður leikin sunnudag 6.
þ. m. kl. 8 síðdegis.
Segldúkur
E c 1 i p s e
mjög ódýr; einnig saumgarn
í Livcrjjool.
Hér með tilkynnist vinum og vandamönn-
um, að sonur okkar, Karl, andaðist 31 des.
siðastl. Jarðarförin fer fram að forfalla-
lausu miðvikudag 9. jan. n.k. Húskveðjan
liefst kl. 111 /2 á heimili okkar, Grettisg. 63.
Jensiua Jensdóttir,
Guðbjörn GuObrandsson.
Ritstjóri Björn Jónsson.
Ostar
beztir og ódýrastir í
Liverpool.
250 kr.
í leigu nm mánuðinn eru boðnar
fyrir 6 mánnðina frá 1. eða 14. maí
næstkomandi fyrir rúmgott húsnæði,
helzt sérstakt hús, vel útbúið að hús-
gögnum. Frekari upplýsingar hjá Ás-
geiri Sigurðssyni kaupm. í Edinborg.
A1 dan.
Aðalfundur næstkomandi miðviku-
dagá vanalegum stað og tíma. Á fundin-
um verða bornar upp tillögur um breyt-
ingu á 11. gr. í lögum félagsins og
3. gr. í skipulagskrá styrktarsjóðs
sk;pstjóra og stýrimanna við Faxaflóa.
Úrskurðaðir reikningar félagsins fyrir
umliðið ár, kosin ný stjórn, o. fl,
Áríðandi að félagsmenn mæti.
Stjórnin.
Karlniannsúi' fanst a nýárskvöld við
Hotel Island. Eigandi helgi sér i skrif-
stofu ísafoldar og borgi auglýsingu þessft
og fundarlaun.
Jarðarför míns hjartkæri eiginmanns Árna
Sæmundssonar snikkara, fer fram miðviku-
daginn 9. janúar n. k. Húskveðjan hefst kl.
II1/, að heimili hins látna, Grettisgötu 57.
Sigrún Ólafsdóttir.
Isafo'dtrprentsmiðjft.