Ísafold


Ísafold - 16.11.1907, Qupperneq 1

Ísafold - 16.11.1907, Qupperneq 1
5Senmr it ýmist einn sinni efia visv. í vikn. YerÖ árg, (80 ark. minnst) 4 kr., erlendis 5 kr. eöa l‘/» doll.; borgist fyrir miOjan júli (erlendis fyrir fram). ISAFOLD. Oppsögn (skrifleg) bandin v.B iramót, ógild nema komis sé til átgefanda fyrir 1. október og kaaj - andi sknldlans við blaðiö. Afgreiðsla Austurstrœti 8, XXXIV. arg. U Reyk,javík laugardaginu 16. nóv. 1907. 72. tölublað Jónas Hallg’rímsson. 1807—1907. Hér fekk okkar glæstasta gigja sinn hljóm og gullið í strengina, sína; og sæll ertu, Jónas, því sólskin og blóm þú söngst inn í dalina þína, og þjóðin þín fátæka fegin sig býr og frægir með gimsteinum þínurn, og málið þitt góða í faðminn þinn flýr með flekkina’ á skrúðanum sínum. Og heiðraðu, móðurjörð, hörpuna þá, þvi hann varð oss kærastur bróðir, sem söng við oss börnin, og benti’ okkur á, að blessa og elska þig, móðir, sem ástvana sjálfur og einmana dó og andaður fekk ekki leiði, sem söng þegar geislarnir sendu’ honum fró og svolítill blettur í heiði. En sárt var að kenna þá svipinn hans fyrst, er sólin var. slökt undir bránum, og minnast þá barnsins, hve brjóstið var þyrst, og bjóða’ honum armana dánum. En látum sem fæst yflr högunum hans og hinna, sem frægðir oss vinna, svo móðirin gangi’ ekki döpur í dans í dulunum barnanna sinna. Hann Jónas sá morguninn brosa við brún; en bágt á hér gróðurinn veiki, þvi lágur er geislinn, sem teygist í tún og tröllskuggar smámenna’ á reiki; og þyki þér hægfara sól yflr sveit, þá seztu’ ekki niður að kvíða, en minstu þá dagsins, sem meistarinn leit og myndin hans ætlar að bíða. Og gaktu’ honum aldrei í gáleysi hjá: hann gleymdi’ ekki landi né tungu, og æfinni sleit hann við ómana þá, sem yfir þig vorhimin sungu. Hér biður hann dagsins sem ljósvættur lands og lítur til blómanna sinna: þess fegursta’ í ættjarðarhlíðunum hans og hjörtunum barnanna þinna. ÞaS er í dag 100 ára aftnœli »listaskáldsins góða«. Og verður i þess minn- ingu afhjúpuö hér standmynd sú af honum, er gert hefir Einar Jónsson. Hún hefir sett verið til bráðabirgða i tún Guðm. landlæknis Björnssonar neöan til, skamt upp frá lækjarbarminum. Bjarni Jónsson frá Vogi flytur afhjúpunarræðu. Þá verður og sungið kvæði það hið fagra, er hér er prentað, eftir Þorstein Er- lingsson, við nýtt lag eftir Sigfús Einarsson. Margt verður og gert annað til við- hafnar og minningar um hinn mikla meistara, er þjóðin hans ann því heitara, sem lengra líður frá því er hún átti honum á bak að sjá, helzti ungum. Af Akureyri er símað í gær: Jónasarhátíð á morgun í Good-templarahúsinu með ræðum og söng; Marconiskeyti um Atlanzhaf. Stórtíðindi í hraðskeytaflutningi. 17. október 1907. Þann dag, 17. f. mán., hafa orðið stórtíðindi í heimi hraðskeytalistar- innar, ef svo mætti að orði kveða. Þá hefir Marconi tekist að koma ótakmörkuðum orðafjölda reglulega og viðstöðulaust um þvert Atlanzhaf, milli Nýja-Skotlands og írlands, 1940 mílur enskar, sama sem hér um bil 415 vikur sjávar eða danskar mílur. Það er meiri vegarlengd en 6 sinn- um alt ísland af enda og á. Marconi var sjálfur á nýreistri loftskeytastöð í Nýja-Skotlandi, þar sem heitir Glace Bay, og sendi það- an 30 orð til viðtökustöðvar þeirrar, er hann hefir reisa látið á írlandi vestast, í Clifden í Connemarahéraði. Skeytið barst alla leið á 2 tæpum mínútum. Það var kveðja til blaðs í Dýflinni, Dublin Evening Mail, fyrsta blaðsins, sem hagnýtti þráðlaus skeyti, fyrir 9 árum, segir þar. Þetta var snemma morguns, og var siðan haldið áfram loftrituninni milli fyrnefndra stöðva um daginn, send 40—50 orð á mínútu. Um miðjan dag fekk eitt meðal helztu blaða í Lundúnum, Dnily Mail, samfagnaðarskeyti frá blaðinu Times í New-York, loftleið til írlands og þaðan með ritsíma. Fáeinir stórhöfðingjar fengu að loft- rita hjá þeim Marconi þann dag. En almenningi ekki ætlað að komast að fyr en eftir 8—10 daga. Stórtiðindi þessi flutti enskur botn- vörpungur hingað i gær, í Lundúna- blaði frá 18. og 19. f. m., The Daily Mirror, er ísafold hefir fengið í hend- ur fyrir góðvild Mr. Newmans Marconistöðvar-varðar hér. Ritsíma- skrifstofunni dönsku, Ritzaus Bureau, hefir ekki þótt þau frásagnar verð I Hálfa leið um Atlanzhaf tókst fyr- ir nokkrum missirum að koma loft- skeytum reglulega og að staðaldri, en ella ekki nema orði og orði, er vel stóð á, fyr en nú. Þeir hafa, Mar- coni og hans félagar, verið að berjast við það alla tíð síðan, að koma á greiðum, reglulegum og áreiðanlegum skeytasendingum þá leið alla. Vald. Poulsen hinn danski kom með í fyrra sína nýju umbót á loftrituninni og hugðist mundu skjóta Marconi langt aftur fyrir sig. * En svo hefir ekki orðið. Þetta gerir stórkostlega byltingu í öllum þeim hinum mikla ritsímaat- vinnurekstri og bakar sjálfsagt öllum ritsimafélögum i heimi geysitjón. Er því meira er skiljanlegt, að þeim sé ekki vel við þessa nýjung. Enda tek- ur Marconi eða hans félag ekki nema 38 aura (5 d.) á orðið, en ritsimafé- lögin 90 a. (1 sh.) milli Englands og Ameríku. Hlutabréf Maconífélagsins gerðu meira en tífaldast í verði fyrsta sólarhringinn, sem haldið var uppi loftritun um þvert Atlanzhaf. Stöð- varnar sendust þá á 14,000 orðum. Næsta þrekvirkið þessu er það, er Marconi tók að senda hingað að stað- aldri og reglulega skeyti með ótak- mörkuðum orðafjölda snemma sum- ars 1905, fráPoldhu á Englandi syðst, 1120 mílur enskar, sem hann heldur enn áfram, og fær stöðvarvörður hans hér löng skeyti þaðan daglega, en má ekki láta nokkurn mann af þeim vita, vegna einkaréttar Ritsímafélags- ins norræna! Reykjavíkur-annáll. Fasteignasala. Þinglýsingar frá siðasta bæjarþingi: Árni Jósefsson selur 9. nóvbr. Eiríki Bjbrnssyni húseign nr. 42 B við Grrettisgötn með 625 ferálna lóð á 5500 kr. Björn Simonarson kaupmaður selur 15. ágÚ8t Þórarni Guðmundssyni skipstjóra hús- eignina Ánanaust með 2500 ferálna lóð (í skiftum fyrir hálft skip m. m.). Bæjarstjórnin selur 11. nóvbr. Jóni Guð- mundssyni trésmið 1428 ferálna lóð fyrir sunnan Birtingabolt fyrir jafnstóra lóð (til vegar) í Bráðræðisbolti. Grisli Magnúseon steinsmiður selur 13, nóvbr. Einari M. Jónassyni cand. juris hús- eignina Hlið við Skólavörðustíg með 1225 ferálna lóð á 3200 kr. Hjörtur Rjartarson trésmiður selur 6. nóvbr. Guðmundi Pálssyni 500 ferálna lóð í Bráðræðisholti á 500 kr. . Ólafur Theódórsson trésmiður selur 7. nóvbr. Einari M. Jónassyni cand. juris ý8 af Nýjatúni (Akurgerði) á 6000 kr. Sigvaldi Bjarnason trésmiður selur 6. nóvbr. Hirti Hjartarsyni trésmið 840 fer- álna lóð við Miðstræti á 420 kr. Torfi Þórðarson selur 26. septbr. Pétri Jónssyni pjátrara 748 ferálna lóð við Ný- lendugötu á 1496 kr. Þorsteinn Gunnarsson selur 25. septbr. Oddi Ögmundssyni húseign nV. 54 B við Laugaveg með 500 ferálna lóð á 2700 kr. Hjúskapur. Björn Bogason bókbind. og ym. Elin Klemensd. 14. nóv. Eiríkur Olafsson bakari og ym. Sigriður Pálsdóttir, bæði frá Hafnarf., 9. nóv. Guðmundur Gíslason frá Yestm. og ym. Elín Jónsd. Guðm. Helgi Jakobson (Klapparstig 10) og ym. GuðlaugHelga Klemensdóttir, ll.nóv. Jón Gunnlaugsson i Bassabæ og ym. Margrét Vigfúsdóttir, 9. nóv. Jón Jóhannesson Zoéga og ym. Hanna Petrea Sveinný Sveinsdóttir, s. d. Lárus Jónsson (Lindarg. 12) og ym. Guð- riður Pálsdóttir, s. d. Þórarinn Gislason verzlm. og ym. Matt- hildur Þorsteinsdóttir, bæði frá V.estm., 12. nóv.

x

Ísafold

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.