Ísafold - 07.03.1908, Page 3
ISAFOLD
39
Nýtt kvæðakver.
Helgi Valtýsson:
Blýantísmyndir. VÍBur
og ljóð. — 66 bls. 8vo.
Hafnarfirði 1907. —
Verð kr. 0,75.
Höfundurinn er þjóðkunnur orðinn
af ritstörfum sínnm, bæði í stuðluðu
máli og óstuðluðu. Hann er einnig
góðkunnur, einkum æskulýðnum. — Alt
sem hann ritar ber vott um brenn-
andi áhuga á því, að verða að liði,
landi og lýð. Hn sérstaka alúð leggur
hann á að vekja æskulýðinn og hvetja
til dáða.
Blýantsmyndir þéssar kveðst hann
hafa rissað »á ferð og flugi«, er ein-
hver hugsun liafi hrifið sig, — eins
°g þegar ferðamaðurinn krotar með
blýant í vasabók sina myndir af þvi,
sem fyrir augun ber. Segist hann
einatt hafa ætlað að gera úr þeim
heilar myndir við betra tækiíæri; —
en tækifærið hafi aldrei kon.ið.
Það er auðfundið að hugsanirnar
hafa hrifið hann — meira en stuðla-
föll og rim. Tömustu viðfangsefnin
eru draumsjónir æskunnar og tígu-
leiki íslenzkrar náttúru. Þessu ann
hann hvorutveggja af heilum huga.
Hann tileinkar kverið æskulýðnum,
enda er mikill hluti þess til hans
kveðinn. Hann sér áhrif ungmenna-
félaganna á tápmeiri æskulýð framtíð-
arinnar:
Hlær mér hugur glaður,
hraust’r er sérhver drengur
frískur, frækinn, hraður
fram í lífið gengur.
Brennur æska í barmi,
bálar fjör í augnm;
spriklar afl í armi,
ærslast líf í tauguni.
Ber er hver að baki,
bróður nema eigi;
nái tíu taki,
tekst þeim margt á degi.
fíritidum svefni af hvarmi !
Hratt að verki sujallir!
Hrekjum hræðslu’ úr barmi!
höldum saman — allir !
Ollum skíðamönnum verður skiða-
drápan kær. Þeir minnast þess, að
sú íþrótt átti vel við »okkar unga blóð,
°g af þvi var kinn vor svo heit og
rjóð«.
Káttútumyndir höfundarins eru oft
skýrar og fallegar, þótt með blýant
séu gerðar. Svo er t. d. myndin af
Smjörvatnsheiði og útsýn þaðan (bls. 34).
Ættjarðarástar kennir i þessu kveri
ekki síður en í syrpum stórskáldanna.
»Eg er hluti af þér, eins og steinn eða
strá«, segir höf.; og í barrni hans bær-
ist sama aflið, sem vekur náttúruna úr
vetrardvalanum. — Hann liggur í
hraunmosanum á Þingvöllum um lág-
nættiskeið, hlustar á andvökuóð Öxar-
árfossins og spyr:
Hefir þú séð þenna sagnheiga stað
og sál þína laugað í fornminnitiga straumi?
f»ar eigum vér hið andlega þjóðernisbað,
sem þarf til þess að rífa’ oss úr hutidrað
ára draumi.
Og um storminn kveður hann:
Otgar í gjótu, öskrar í gjá,
ýlfrar og veinar og beljar og dryuur,
klaufir og spruugur kallast á,
kiettaborgin öll nötrar og stynur.
Fyrsta kvæðið: Til min Hustru og
seinustu kvæðin fimm eru á nýnorsku,
°8 fylgja þeim nokkrar framburðar-
taknanir og orðskýringar.
Fremst í kverinu er góð mynd af
höfnndinum.
Frágangur allur á kverinu er góður
°g það eigulegt. Og væntanlega fest-
ast myndir höf. í minni lesendanna,
þótt ekki sé á þeirn litskrúð eða olíu-
gljái.
Höf. hefir jafnframt gefið kverið út
3 nýnorsku, með þýðingum af nokkr-
11111 isl. kvæðurn, alls um 6 arkir.
__________A. J.
Hússtjj órnar skólinn.
Forstöðukona hans, frk. Hólmfriður
Gísladóttir, hefir nú tekið við honum
til fullra umráða frá byrjun þ. á., með
þvi sem honum fylgir, skyldum og
réttindum. pjún hafði skuldbundið sig
til að halda honum uppi eftirleiðis 2
ar fyrir hverjar 1000 kr., er hann
ætti skuldlaust eftir mati; en það
ejndist nú vera 1800 kr. Nær þá
' uldbindingin til 3 «/B árs. Þetta er
Sll 11 e^tlr úlyktun búnaðarþingsins í
sj fyar’ °g er skólinn þar með úr um-
n °g ábyrgð Landsbúnaðarfélagsins.
Seld 1 miljon bankaYaxtabréfa.
Það má kalla gleðifrétt, í pemnga-
vandræðunum, sem nú ganga yfir, að
bankastjóra Em. Schou hefir tekist
að koma út í Khöfn, áður en hann
lagði á stað heimleiðis, 1 miljón í
vaxtabréfum Islands banka.
Það er nokkur hjálp, í bráðina, og
um allar vonir fram, 'eins og nú
stendur.
En hins munu vera litlar líkur að
svo stöddu, að lagaheimildin til hluta-
bréfaviðauka beri nokkurn ávöxt fyrst
um sinn. Það verður fráleitt fyr en
til muna glaðnar til um^peningaveltu
erlendis En þess getur verið langt
að bíða enn.
Ekki er þó sögð nein hætta á því,
að bankar þeir erlendis, sem íslenzku
bankarnir hafa við skuldaskifti, fari
að ganga venju fremur ríkt eftir því,
sem þeir eiga hjá þeim. Þá dregur
lítið um það. Enda vita sem er að
það getur orðið hæpinn hagnaður til
frambúðar.
íslands banki kvað og skulda frem-
ur lítið sínum lánardrotni í Khöfn,
Privat bankanum, en meira í Norvegi.
Hann stendur að því leyti til betur
að vígi en ella mundi.
Smjörsala. Smjör er í óvenju-
háu verði á Englandi um þessar mundir
og fer heldur hækkandi áfram. Síð-
asta frétt um sölu á íslenzku smjöri
segir það haía selzt á 1 kr 17 a. pd.
brutto, en 1 kr. 10. a. netto. Það
er Faber konsúll í Newcastle, sem
þetta verð hefir fengið fyrir 4 ílát, er
send voru með síðustu ferð Láru í
f. mán. frá Hvítárvöllum. Með sörnu
ferð var G. Davidsen í Leith sent
viðlíka mikið frá sama bæ. Hann
seldi á i kr. 10 a. brto, sama sem
1 kr. 2^/2 nto.
Það er mikil eftirsjá í því, er svona
vel árar á smjörmarkaðinum erlendis,
að rjómabúin íslenzku geta ekki starf-
að að vetrinum.
Bankastjóri Einil Schou er
heim kominn aftur úr heilsuhælisvist
sinni á Jótlandi í vetur, ásamt konu
sinni og börnurn, nokkurn veginn al
bata, og er tekinn til starfa aftur i
bankanum. Hefir þó verið bannað
að reyna á sig að mun fyrst um sinn.
Gufuskipin. Pústgufuskip Laura(Aas
berg) kom 4. þ. m. frá Khöfn og Leith.
Meðal farþega voru (auk bankastjóra E.
Sch.), verzlunarm. Chr. Zimsen, frk. Sigrið-
ur M. Blöndahl, Gruðm. E. Guðmundsson
likkistusraiður og ýmsir verzlunarerindrekar.
Fórn Abrahams
(Frh.I.
— Annaðhvort er hann 7it8kertur
eða þá afar-viðsjáll, að honum skuli
boma til hugar, að hermenn séu að
brjóta heilann um það, sem í biflíunni
etendur. Bn hvað sem því líður, þá
vildi eg helzt, að hann væri farinn
héðan. Eg veit ekki, hverju eg á að
trúa um hann? —
— þú veizt það vist, Abraham, að
du Wallou er dauður?
—- Vertu ekki að einblína á ridd-
arana þarna ; það eru tíu mínútur enn
þangað til þeir koma í skotfæri.
— Já, du Wallon er dauður og
grafinn. Eg s4 þegar kúlan sprakk
og reif undan monum annan fótinn.
Samstundis urðum við að hverfa frá
og skilja hann eftir hjélparlausan. En
einn liðsmaðurinn, sem var hertekinn
ésamt honum, en komst undan Beinna,
hefir sagt mér, hvað gerðist, þegar
rauðálfarnir fundu hann. Hann bað
þá kurteislega að miavirða það ekki
við sig, þótt hann gæti ekki tekið ofan
fyrir þeim. Hanu kvaðst vera mátt-
farinn og sig vanhagaði um ýmislegt,
til þess að sér gæti liðið vel. En
hann vonaði að þeir gestir, sem kæmu
til hans heim á fósturjörð hans, tækju
ekki hart á sér fyrir það, þótt hann
gæti ekki tekið öðruvísi á móti þeim.
Síðan skrafaði hann við fyrirliðana
um alla heima og geima. En þegar
ieir létu prest koma til hans, til þess að
skilnaður sálarinnar og líkamans gæti
orðið með kristilegum hætti, bað hann
klerk að fara heldur og vitja um vesl
ings dáta einn, sem hafði varið skot-
inn tveim kúlum gegnum lungun, og
stæði nú á öndinni. En er honum
var sagt, að dátinn væri skilinn við,
fór hann að bölva og ragna, og skipaði
prestinum að fara til fjandans. Prest-
inum þótti sér víst vera misboðið, því
hann fór sína leið, eftir því sem flótta-
maðurinn sagði frá. f>á vildu fyrir-
liðarnir senda lækni til hans ; en hann
sagði að það tæki því ekki að vera að
gera nokkurt umstang BÍn vegna;
hann vissi bezt sjálfur, hvað sér liði,
og að hann væri þegar farinn.
— Eg hefi dálítið kynt mér eðli og
skapnað líkamans, herrar mínir, sagði
hann, — þótt mig grunaði aldrei, að
eg fengi tækifæri til þess að reyna
þé kunháttu rnína á sjálfum mér.
Já, það var úti um hann; að
hálfri stundu liðinni dó hann. Og í
andlátinu sagði hann við þá, er hjá
honum voru:
— Nú tek eg ofan, herrar mínir;
þjóðveldið Iifi !
Slík urðu æfilok þessa hraustmennis
Gamli Jau hristi höfuðið og var
raunalegur á svipinn; en svo ýtti hann
við van der Nath með olnboganum
og sagði lágt:
— Verum viðbúnir!
Riddarasveitirnar tvær voru nú
komnar svo nærri, að greina mátti
einkennisbúningana og þeir sáu, að
það var léttvopnalið. Riddararnir höfðu
hægt á sér, og alt í einu hóf fyrir-
liðinn upp sverð sitt, til merkis um,
Húsgagnavinnustofan
Vonarstræti 2
srníðar alls konar húsgögn, póleruð og máluð, eftir nýjustu tízku; gjört við
gömul húsgögn. Myndir settar í umgjörð. Alt fljótt og vel af hendi leyst.
Kolbeinn Þorsteinsson.
Laust brauð. Holt í Önundarfirði.
Nú matið kr. 1525,24. En veitist eftir nýju
lögunum, frá fard. þ. á. Við legst Sæhóls-
sókn á Ingjaldssandi, þegar Dýrafjarðar-
þing losna. Augl. 3. marz, umsóknarfr. til
23 april.
Um Skaftafellssýslu sækja þessir
lögfræðiskandidatar: Bjarni Jónsson (frá
TJnnarholti), Halldór Júlíusson, Karl Einars-
son og Sigurður Eggerz.
Fjörutíu daga útivlst hafði islenzk
fiskiskúta nýlega á leið frá Haugasundi
i Norvegi hingað til Reykjavíkur. Kom
liúr i miðri viku. Heitir Hildur, eign
Jóns Laxdals á ísafirði. Kom við á Hjalt-
landi. Var orðin vistatæp mjög. Það
happ varð helzt til hjargar, að hún rendi
færi og fekk i soðið, 60—70 fiska, skamt
nndan Vestmanneyjum 9—10 dögnm áðnr
en hingað komst. Þá hrakti hana nndan
aftur suður á móts við Eæreyjar.
Frá Rússlandi. Málinu gegn
Stössel hershöfðingja, er vörninni stýrði
í Port Arthur, var lokið 2o. f. mán
og hann dætndur til dauða fyrir upp
gjöf kastalans áður en þrotin var öl
vörn. Ymsar sakir aðrar voru á hann
bornar, en sú lang-þyngst. Herdóm
urinn, er málið dæmdi, lagði til, að
keisari þyrmdi lífi hans og léti koma
þar fyrir io ára fangelsisvist, og var
að því gengið vísu, að það mundi
hann gera.
— Svo mun vera, svaraði van der
Nath, sem nú mintist þess, að hann
hafði ekki séð afturliðsflokk du Vlies,
eitt hundrað manna, fara yfir sléttuna
- Hvað gátu mennirnir verið að
gera þarna niður frá?
Hanu var viss um, að eitthvað óvænt
hlaut að hafa komið fyrir þennan fá
menna hóp, og að uú væri hann í
hættu staddur. Gat verið, að þeir
hefðu af veglyndi ætlað að fórna sjálf
um sér, til þess að hinu liðinu yrði
síður náð á flóttanum, eða þeir hefðu
talið róttast að leynast í gjánui, til
þess að geta unnið óvinunum tjón
þaðan? Um þetta var ekki hægt að
dæma, því að þeir, sem voru uppi á
fellinu, gátu ekki sóð niður í gjána.
|>að eitt var víst, að þeirra hafði orð-
ið vart og að fótgönguliðið og riddar-
arnir mundu veita þeim atlögu og
ganga af þeim dauðum, með því að
liðsmunur var afarmikill.
Hér varð enn einn af þeim viðburð-
um, er einkeuna manndrápsstyrjaldir
á vorum dögum og sérhver hermaður
fær sig fullreyndan af. |>e381 afskekta
viðureign hófst og henni l*auk svo, að
hvorki sáu til vinir né óvinir.
Hávaðinn, skothríðin og rykmökk-
urinn gekk fjöllunum hærra. Dornen-
borgarar, sem nær voru staddir en
nokkurir aðrir, fóru á kreik og reyndu
að skygnast ofan 1 gjána, en sáu ekk-
ert; rykbólsturinn varð æ þykkari og
svartari og færðist norður á bóginn,
eftir því sem riddararnir sóttu fram.
Svo linti skothríðinni annars vegar;
fótgöuguliðið enska hafði að líkindum
orðið að hætta við að skjóta, til þess
að þyrma félögum sínum, er komnir
voru í milli þess og óvinanna. En
smám saman dró einnig af skotum
Búa, og loks létti þeim alveg að fullu;
en húrraópin, ærslin og hestasparkið
hélt áfram.
|>eir, sem uppi á fellinu voru og
sjálfir höfðu verið með f mörgum hild-
arleik, gátu vel getið þess til, hvað á
gekk: Landar þeirra flýðu alt hvað
af tók, en léttvopnaliðið sótti á eftir
þeim.
Eftir fimm ömurlega langar mínút-
ur komu nokkrir Búadátar upp á slétt-
una bak við fellið. f>elr grúfðu sig fram
á hestmakkana og Iömdu í ákefð með
sporunum. Fleiri komo á eftir, og
brátt vall þar upp heil þvaga af ridd-
urum með barðastóra hatta og lótt-
væpningum, sem reiddu sverð sfn og
hjuggu í sífellu. Þvögunni hafði Bkotið
upp úr gjénni jafnBnögt og óvænt, eins
og riddarasveitirnai; hurfu ofan í hana
stundu áður; og þessi bamslausi hrika-
Allir sjömenn
ættu að muna eftir að
bómullarteppi
ullarteppi
lök
rekkjuvoðir
nærfct
sængurfiður
hálsklútar
er bezt og ódýrast í vefnaðarvöruverzl.
Th. Thorsteinssons
í Ingólfshvoli.
Alt selst með 5°/o afslætti.
Samsöngur
(hljómleikur)
verður haldinn í Bárubúö á
sunnudaginn 8. þ mán. ki. 6 síðd.
Nánara augiýst á götunuin.
Ritstörí.
Stúlka, sem skrifar laglega rithönd,
er fær um að skrifa dönsku og íslenzku
og getur tekið að sér bókfærslu með
tilsögn, getur nú þegar fengið atvinnu
íér í bænum. Tilboð merkt Bókfarsla
sendist atgreiðslu ísafoldar.
leikur barst norðúr á við, miðja vegu
að þar skyldi nema staðar. f>að fór I í milli meginherflokkanna. f>að glamp
a A ín vn 77 7Y7 L) A*<n Ln vn u n V\ km v I X * 7 ____ \:_ 1 _ > I_1 _/_I__ I__.11_
að fara um Dornenborgarana, því þeir
héldu að óvinirnir hefðu orðið sín var-
ir; en svo héldu sveitirnar á stað aftur.
— Þtj11 bundruð faðmar! sagði van
der Nath í þungum róm.
Menn hans skildu skipunina. f>0ir
færðu skotmátana á 300 faðma fjar-
lægðarmarkið og hófu síðan byssurnar
til skots. Og eftir þennan litla byssu-
gný varð alt hljótt aftur, mennirnir
biðu og héldu niðri í sér andanum.
Nú var að eins örstutt stund þangað
til riddararnir væru komnir í skotfæri.
En alt í einu gerðu þeir lykkju á
leið sína. Sú sveitin, er nær var,
beygði til hægri handar og sneri baki við
Dornenborgurum, og í sama bili drundi
ógreinileg skipunarrödd. Riddararnir
tóku skipuninui með fagnaðarópi og
þeystu með brugðnum sverðum niður
brekkurnar og hurfu ofan í dalkvosina.
f>etta bar svo bráðan að, að óvin-
irnir voru horfnir áður en launsáturs-
liðið fengi tíma til þess að hugsa um
að skjóta á þá. Engin sáust merki
þess, að þeir hefðu orðið varir við
launsátina. f>eir voru ekki að forða
sér undan skotum þaðan, heldur að
búast til áhlaups á herleifar, er enn
voru þar niður frá. f>að fór heldur
að ókyrrast um Dornenborgara. f>eir
ri8u upp úr fylgsnunum og spurðu hver
annan, hvað valda mundi þessu hátta-
lagi. Gat það verið, að flóttamenn
væri enn eftir niðri í gjánni, — eða
hvers vegna var svo reglulegt riddara-
áhlaup gert þarna, rétt fyrir augum
þeirra?
En úrlausnarinnar var ekki langt
að bíða. Drynjandi skothríðin heyrð-
ist að neðan úr tveim áttum og húrra-
óp riddaraliðsins fóru vaxandi
— Eylgdarlið, sagði Jan van Gracht,
og var Btuttur í spuna
aði á sverðin í BÓlskíninu, handbyssu-
skotin hvinu og rykið þyrlaðist upp,
svo að ekki sást nema stöku sinnum,
hverju fram fór. Ef stórskoti var
hleypt af í þessum ærslum, mátti eins
búast við að fyrir því yrðu vinir sem
óvinir. f>e88 vegna kom engum slíkt
til hugar, Eltingaleikurinn barst frá
suðvestri til norðausturs, eftir lands-
laginu. Við það ^komst glundroði á
hægri fylkingararm Búa og hún riðl-
aðist gersamlega, en að öðru leyti var
sæmileg regla á hernum. Rúmurhelm
ingur Búaflokksins féll fyrir sverðum
óvinanna eða var fótum troðinn af
hestum þeirra, en hinír komust und
an vestur á bóginn.
Neyðarvein og fagnaðaróp, skotdun-
ur og skarkali af ótal ósamkynja hlut
um, sem þeytt var saman, heyrðist
greinilega upp að fellinu. Og frá báð
um hliðum var hiu snarpa viður-
eign vandlega athuguð í sjónpípum
Van der Nath og menn hans gátu vel
greint ýmsa atburði í viðureigninni,
sem var háð örskamt frá þeim, en
þeir fengu með engu móti veitt félög
um sínum nokkura hjálp.
f>eir sáu meðal annars, hvar ungur
og tígulegur foringi skaut þrjá Búa,
hvern eftir annan, en féll síðan sjálf
ur, án þess að greint yrði, hvað hon
um varð að falli. Hestur steig ofan
á andlit honum, marði það sundur og
klemdi höfuðið niður i milli jarðfastra
steina; og þarna lá hann svo hljóð
andi og spriklandi.
Grand Hotel Nilson
Köbenhavn
mælir með herbergjum’ sínum, með
eða án fæðis, fyrir mjög væga borgun
NB. íslendingar fásérstaka ívilnun
Tiáuf- og kolaverzl.
selur kol frá þessum degi á 4 kr.
skippundiö á staönum.
Nýkomið
til H, Andersen & Sön
hinar eftirspurðu misl. manchettskyrtur,
hvítir og misl. silkihálsklútar o. fl. o. fl.
nýkomnar til
Jes Zimsen.
Fyrirlestur
um »Dýrið« og »merki dýrsins«
(Op. 13. kap.) verður haldinn í »Betel«
sd.kvöld kl. G* l * 3/2.
Frönsk sjöl
mjög falleg, eiu nýkomin í verzlun
Augustu Svendsen í Aðalstræti 12.
Verð 21—70 kr.
þær hinar heiðruðu
dömur bæjarins,
sem vilja fá sér góð og falleg tau í
vor- og sumarbúning, ættu að líta á
sýnishorn þau, sem við höfum frá
góðu verzlunarhúsi í Berlin, áður en
s/s Laura fer þ. 18. þ. m.
H. Andersen & Sön.
Stjórnarvaldaaugl. (ágrip)
Skuldum skal lýsa
i þrbú Guðm. Stefánssonar húsgagnasmiðs
Laugaveg 11 Rvík 6 mán. frá 20. marz
(Rvík);
dbú Julíusar Jörgensens Rvík 6 mán. frá
20. marz (Rvib).
Nauðungaruppbod á
Vetrarbæjarlóð við Garðastræti i Rvik
8. apríl.
Snðnrhluta húseignar nr. 8 við Suður-
götu i Rvik 8. apríl.
Húseign nr. 2 við Stýrimannastig i Rvík
14. april.
Húseigu nr. 27 við Skólavörðustig i
Rvik 11. april.
Húseign nr. 58 A við Laugaveg I Rvik
11. april.
Húseign Hjörleifs trésmiðs Þórðarsonar
við Holtsgötu i Rvik 14. april.
Afturkallað uppboð á húseign Unu
Gisladóttur við Garðastræti og húseign nr.
3 við Laufásveg.