Ísafold - 14.03.1908, Qupperneq 3
ISAFOLD
48
Samanburður.
Alexandra Bretadrotning er tíður
gestur á myndasýningum. Er það eigi
að eina sakir þess, að hún aun pent-
listinni, heldur og sakir hins, að hún
veit, hve mikilsverð heimsókn hennar
er fyrir listamanninn sjálfan.
Oft hefir verið tekið eftir því, að
hún kýs fremur að koma þangað, sem
sýndar eru myndir ungra íþróttamanna,
er hafa ekki blotið enn almenna viður-
kenningu, heldur en hinna, er orðnir
eru fastir f sessi.
Eitt sinn var eg við, segir sá er
þetta ritar, < West End í Lundúnum,
er drotning kom til að líta á myndir.
Hún gekk við hlið málarans um allan
sýningarsalinn, athugaði myndirnar
vandlega, og keypti eina sjálf.
Geta má nærri, hve mikið happ þetta
var fyrir málarann.
Heldri mennirnir fetuðu hver á fæt
ur öðrum í fótspor drotningar, og
keyptu allar myndirnar.
Málarinn var um þetta skeið lasinn
til heilsu, og herti það enn meir á
drotningu að gera sér það ómak, að
skoða myndasafn hans (Rev.of Reviews)
En hvað þetta er líkt aðferð höfð
ingja vorra f sumar sem leið, er kon-
ungur vor og föruneyti hans var hér
á ferðinni.
Yér eigum nú, aldrei þessu vant,
ungan, efnilegan, en bláfátækau mál
&ra — og þó raunar tvo Hann hafði
myndir sínar til sýnis á auglýstum
stað í höfuðborginni.
Tækifærið var hér óvanalega gott
fyrir höfðingja vora, til þess, frekara en
orðið var, að styðja þenna álitlega
vísi til innlendrar pentlistar, með þvi
að sýna stórmennum Dana inn í Byn-
ingarstofu Ásgrfms svo sem hálfa stund.
Lítils háttar ómak hefði það koBtað,
auðvitað. En höfðingjar vorir voru
ekki að ómaka sig. |>að var annað en
hin unga, innlenda pentlist, er ráð-
gjafa vorum og gæðingum hans lá þá
ríkast á hjatta. Krossmörkin á h i n
tryggu brjóstin, með litunura
hennar dönsku mömmu við Eyrarsund,
— það voru djásnin sem þá dreymdi
um, vakandi og sofandi.
það var einhver annar og hugþekk-
ari blær yfir þeim, en myndunum land
aus, unga og fátæka ! ! Hjá honum
var blærinn ramm-fslenzkur, alt ramm
ísleczkt út í æsftr.
Voru þeir hræddir um, að í s 1 e n z k-
a n í myndum Ásgríms mundi styggja
konunginn og beztu menn hans ?
Hvernig fór um drápu forsteins Er-
lingssonar ?
Vox patrue.
Vol er sagan borin
landinu af vestanmanni einum, sem
hér var á ferð í sumar, í Lögbergi
nýlega. Hann heitir Ásmundur P.
Jóhannssou, trésmiður, og er gamall
Miðfirðingur; á nú heima f Winnipeg.
Hann ferðaðist upp um Borgarfjörð
og norður í Húnavatnssýslu, dvaldist
hér á þriðja mánuð. Hann segir (Lögb.
19. des.) sér hafa yfirleitt litist svo
vel á sig, sem hann hafði getað gert
sér frekast hugmynd um. Hér mætti
ejá framfarir í hvívotna, bæði í stærri
og smærri stíl. Séretaklega þótti hon-
um orðin mikil og hagkvæm breyting
á verzlunarfyrirkomulagin: peninga-
verzlun orðin almenn, vörur seidar og
keyptar fyrir peninga. Sömuleiðis
miklar framfarir í húsagerð. Enn-
fremur jarðabætur drjúgum að aukast
og ýmsar aðrar umbætur í búnaði all-
miklar, svo sem túngirðingar og jafn-
vel engjagirðingar sumstaðar. Sjávar-
útvegur hefði og eflst mikið sfðari árin.
Kaupgjald verkafólks hækkað mikið,
orðið nær tvöfalt á við það sem verið
hefði fyrir 8—10 árum. Yinnufólk
torfengið og fólksekla mikil. En vinnu-
kraftur betur notaður en áður, af meiri
fyrirhyggju. Nú mundu á mörgu
bændabýli 2 verkamenn afkasta því sem
áður þurfti til ekki færri en 3. Enda
tekið að færast í vöxt, að nota ýmis
konar jarðyrkjuverkfæri. Bændur stæð-
ust hið háa kaupgjald fyrir það, að
innlenda varan væri komin í svo hátt
verð, bæði landvara og einkum þó
Baltfiskurinn. Búskaparlag mjög að
breytast til sveita, meðal annars víða
hætt að færa frá ám, heldur væri þær
látnar ganga með dilk. Smjörgerð þó
naumast minkað, með því að naut-
peningsrækt færi vaxandi og smjörbú
um að fjölga, enda smjör komið í
í miklu hærra verð en áður, alt að
80—100 a. pundið.
Amerfbuhugur hefði honum virzt
lítill orðinn í fólki og margt benda í
þá átt, að meira færi að verða um
vestanfiutninga en vesturferðir, enda
viðurk væmilegt, að þeir, er væru svo orðn-
ir efnum búnir vestra, að vel sæju sér
fyrir það farborða heima á íslandi,
flyttust þangað með efni sín og reynslu
og létu fósturjörð sína njóta góðs af
hvorutveggja. —
Hann er óvenju-bjartsýnni, þ6S8
landi vor, og ber oss það sízt að lasta.
Nóg er af hinu að jafnaði.
Hann segir sór hafi verið tekið hér
hvarvetna forkunnarvel, enda haft
mikla ánægju af ferðinni. Biður að
flytja kunningjum sínum austan hafs
alúðark veöju og þakkir fyrir víðtökurnar.
Maunalát.
Nýlega er dáin í Khöfn (31. jan.)
ein af 4 góðkunnum systrum fslenzk-
um, Jacobsenssystrum, er
þar hafa dvalist langan aldur, aldrei
gifzt og alla tíð búið saman, dætur
Kristjáns Jakobssouar, er var kaup-
maður hér í Reykjavík fyrir miðja öld-
ina sem leið (f 1851) og konu hans
puríðar Onnu Margrétar Melbye
(t 1846). þessi sem dáin er, hót I n g i
rfður J a c o b b e n, cær sjötug að
aldri, f. 21. maí 1839. Hinar þrjár
heita Sigriður, Kristjana og Anna.
Jungírú Ingiríður sál. fæddist upp
með þeim þjóðkunnu sæmdarhjónum
Guðm. heit. Thorgrimsen kaupmanni
á Eyrarbakka og konu hans frú Sylvíu
Thorgrimsen, — faðir hennar homhenni
þar fyrir, er hún misti móður sína;
hún var þá á 8. ári. Rúmlega tvítug
fluttist hún til Khafnar með fósturfor-
eldrum sfnum (er munu þá hafa átt
þar vetrarsetu), komst þar í meiri
háttar gistihús, hotel Phönix, til þess
að fullkomnast í matreiðslulist. Eftir
það gerði hún sór að atvinnu að halda
mönnum borð, í fólagi við systur sínar,
og veita þeím húsnæði. j?að voru að
allega heldri menn danskir, þeirra á
meðal Schulin lénsgreifi, meðan hann
var ókvæntur, ásamt bræðrum sfnum.
Hún hafði notið bezta uppeldis hjá
fósturforeldrum sínum, hins sama eins
og börn þeirra sjálfra. Schulin greifi
hélt í hönd með þeim systrum síðan,
veitti þeim meðmæli við kunningja sína.
þær hættu atvinnu sinni fyrir nokkr
um árum, er ellin færðist yfir þær, og
munu gamlir borðmenn þeirra hafa þá
styrkt þær til sómasamlegs framfæris,
og kváðu hftfa fyrir skömmu útvegað
þeira dálítið legat; og er það ljós vott-
ur þeirrar hinnar miklu velvildar og
virðingar, er þær systur nutu alla tíð
hjá þeim sem öðrum, er kynni höfðu
af þeim, hvort heldur voru samlandar
þeirra eða útlendir menn. j?ær voru
orðlagðar fyrir góðvild og kurteisi, og
staka gestrisni við landa sína, eftir því
sem efni leyfðu framast. S.
Hinn 23 f. mán. lézt að heimili sínu
Sigurður Magnússon bóndi á
Skerðingsstöðum f Dölum, eftir langa
legu, nær fimtugur að aldri; f. 1858 á
Krossi á Skarðströnd, sonur Magnúsar
Jónssonar, er Iengi bjó í Glerárskóg-
um og Hólmfrfðar Sigurðardóttur fyrstu
konu hans. — Sigurður sál. var með
föður sfnum þar til er hann fór að búa
vorið 1883. Hann var tvíkvæntur, átti
fyrst (1883) Sigríði Ásgeirsdóttur bónda
< Ásgarði, en misti hana 1893 frá 4
börnum í ómegð. Síðari konu BÍna,
Helgu Ásgeirsdóttir, systur fyrri kon-
unnar, gekk hann að eiga 1896. Hún
lifir mann sinn ásamt 2 börnum þeirra
1 ómegð. Sigurður heitinn bjó fyrst 4
ár í Asgerði, síðan 20 árí Sælingsdal,
en fluttist þaðan í vor sem leið að
Skerðingsstöðum. Hann bjó alla tíð
við lítil efni, enda lengst á harðinda-
jörð, — var þar leiguliði. Hann hirti
ábýlisjarðir sínar mjög vel og var snyrti-
maður við búskap, hagsýnn og hygg-
inn. Hann lét lítið á sér bera út á við,
en var þó vel metinn og virtur fyrir
vandað framferði f hvívetna. Heimil-
isfaðir var hann hinn umhyggjusam-
asti og ftlúðlegasti. Hann var maður
tryggur og vinfastur, hjálpsamur og
greiðvikinn, og gestrisinn við hvern
mann sem að garði bar. X.
Reykjavíkur-annáll.
Dánir. Guðrún Júnsdóttir lausakona i
Bergs.str. 40, dó 8. þ. m.
Margrét Jónsdóttir ekkja i Norðurbæ i
Hliðarhúsum, dó 3. marz, 81 árs.
Fasteignasala. Pinglýsingar frá síðasta
bæjarþingi:
Guðríður Einarsdóttir selur 9. marz Olafi
ísleifssyni ‘/4 af húseign nr. 21 við Ný-
lendugötu á 1500 kr.
Jóhann Hafliðason selur Sæmundi Þórð-
arsyni 450 ferálna lóð við Njálbgötu á
650 kr.
Jónas Jónsson steinsmiður selur 6. marz
Þorsteini Ásbjörnssyni húseign nr. 3 við
Klapparstig á 5500 kr.
Þorsteinn Ásbjörnsson selur 9. marz hluta-
félaginu Yölundi húseign nr. 3 við Klapp-
arstig á 5074 kr.
Hjúskapur. Jóhann Hafsteinn Jónssontré-
smiður og ym. Guðlaug Árnadóttir, 7. marz.
Þórður Þórðarson skipstjóri (Vesturg. 56)
og ekkja Borghildur Oddsdóttir, s. d.
María Jóhannsdóttir heitir ein yngsta
skáldkona vor, frá Viðidalsá i Strandasýslu,
bóndadóttir þaðan.
Hún befir lesið hér fyrir almenningi i
bænum tvisvar i vikunni kafla úr skáldsögu
eftir sjálfa sig (Sýsturnar frá Grænadal).
S. gan er efnislítil og orðmörg. En höfund-
uiinn les laglega; af engri snild, en lát-
laust og einstaklega skýrt, svo að heyra
má hvert orð. Það er meira en sagt verð-
ur um þá alla hér i bæ, sem við það eru
að fást.
Hljómleikar,
lijóðfæraleikar, sanisöngur.
Lagfæring.
Mönnum finst, að þeir geti ekki nefnt
þá athöfn sam-sönjf, að leikið er á fleiri
en eitt hljóðfæri i senn og ekkert sungið.
Maðurinn, er fyrstur hafði orðið til þess
að nefna stuðlað mál, sem nú er komið á
bvers manns varir, hann hjó og þá til þetta
orð: hljómleikar.
Það var fyrir tveimur árnm.
Hann sagði, að vér ættnm að venja oss
á að segjast ganga til leika i stað þess
að fara d söng.
Þvi var það, að hann vildi nefna hljóm-
leika hverB konar concert sem væri.
Nú er farið að nota þetta orð.
Það var haft fyrsta skifti sem stofnað
var til hljómleika án söngs hér í bæ.
En nafnið er rangt, eins og það var þá
auglýst i blöðunum.
Hljómleikar er fleirtölnorð (án eint.); en
hljómleikur, eintöluorð (án flt.), merkir alt
annað (= musik).
Hljóðfœraleikur virðist mér sjálfsagt
nafn á útlenda orðinu instrumental-musik.
Samsöngur er ágæt þýðing á orðinu
kór, þegar átt er við raddirnar, en söng-
sveit, þegar átt er við mennina. t.
Laust prestakall. Staður i Stein-
grimsfirði, sem anglýstur var 12. nóvbr. f. á.,
auglýsist af nýju til nmsóknar, roeð þvi að
hin framkomna' umsókn hefir verið aftur-
kölluð af sækjanda. — Veitist frá næstu
fardögum, með launakjörum eftir nýju presta-
launalögunum.
TJmsókuarfrestur til 28. april.
Verðlatrskrár 1908—1909. Þessi
er meðalalin í sýslufélögum landsins m. m.
næsta kvossmessuár, i aurnm:
Norðurmúlasýsla og Seyðisfjörður . . 67
Suðurmúlasýsla.......................64
Austurskaftafells....................54
Vestuiskaftafells....................52
Vestmanneyja.........................47
Rangárvalla..........................53
Arnessýsla...........................63
Gullbr. og Kjósars. með Reykjavik . 62
Borgarfjarðars.......................52
Mýrarsýsla......................• . 66
Snæfellsnes- og Hnappad..............58
Dalasýsla............................58
Barðastrandars.......................63
Isafjarðars. með kaupst..............63
Strandasýsla.........................56
Húnavatns............................55
Skagafjarðar.........................65
Eyjafjarðars. og Akureyrarkaupst. . . 58
Þingeyjarsýsla.......................58
Um Reykholt sækja 2 prestar og 2
prestsefni: sira Einar Pálsson i Gaulverja-
bæ, síra Gisli Einarsson i Hvammi, háskóla-
kand. Guðmnndur Einarsson (frá Fiekku-
dal i Kjós) og prestaskólakand. Þorsteinn
Björnsson frá Bæ. — Sira Brynjólfur Jóns-
son á Olafsvöllum sótti, en tók aftur nm-
sóknina.
Snæfellsnesi 15. febr. Héðan af nes-
inu er að frétta heldur góða liðan fólks
yfir höfuð.
Almenn heilbrigði siðan mislingarnir
fóru að minka. Þeir mnnn nú vera um
það búnir.
Það sem af er vetrinum, hefir verið bezta
veðrátta, og skepnulvöld góð.
Ekkert orðið vart við kláða i fé og
engin bráðapest.
Afli fyrirtaksgóður fyrir jólin i Olafsvík.
Fjdrverð var mjög bátt í haust; og
ættu þvi skuldir að vera litlar nú. En svo
mun þó ekki vera. Því er nú miður. Ekki
er hægt að segja með vissu, hvort það er
að kenna afturför í búnaði eða öðrum or-
sökum. Liklegt er, að þær hafi aukist nokk-
uð af húsabyggingum og bæja, vélarbáta-
kaupum og háu kaupgjaldi verkafólks.
Aftnrför verður að telja það í búnaði,
að bændur eru að flytja sig í kaupstaðina.
Til framfara i búnaði mætti telja það,
að i sumar kom fyrsta skifti sláttuvél hing-
að 1 sýsln. En hefir orðið litið notuð enn.
V.-Sbaftafellssýsla (Mýrdalnum) 29.
fehr.: Héðan úr Mýrdal verður ekkert
orð skrifað þennan dag, þ. e. 29. febr.,
fyr en 1912, hver sem lifir þá. Nota eg
þvi siðustu mínútur þesBa sjaldgæfa dags
til þess að skrifa Isafold örfáar línur.
Siðan um nýár hefir veturinn alt af
smátt og smátt verið að ýfast og espast i
lund. Siðustu 4 dagana i röð hefir verið
grejjandi norðanbylur.
En i dag hofir verið fagurt veður og
hlýtt, og hafa Vikurmenn og Reynishverf-
ingar róið, fyrsta sinn á vetrinum, en urðn
ekki fiskvarir.
Mislingar stinga sér niður á stöku stað;
reyndar ekki vist, hvort þeir eru annarstað-
ar en í Vik, nú sem stendur. Héraðslækn-
ir okkar, Stefán Gislason, hefir gengið mjög
vel fram í þvi að verja sveitina, og hefir
þegar sýnt mörgum >vantrúuðum,« að sótt-
varnir eru mögnlegar og sannfœrt þá um
það.
Nú halda menn, að það ætli að fara að
»koma fram, sem Krukkur spáði.« I dag
mátti ganga þurrum fótum fyrir framan
Dyrhólaey; það þykir tlðindum sæta. Eft-
ir er að vita, hvort ægir kyssir tærnar á
Reynisfelli enn.
Ef svo er eigi, þá get eg búist við að
ekki líði á löngu, áður en eg eða aðrir
segja frá þeim merkisatburði, að pósturinn
hafi farið fyrir sunnan Dyrhólaey og
Reynisfjall með alla kofforta-hestana. Þó
er ekki vist að þetta verði fyr en næsta
hlaupársdag. St. H.
Stjórnarvaldaaugl. (ágrip)
Nauðungaruppboð á
Húseign Guðmundar skipstjóra Magnús-
sonar i Olafsvik 29. april.
Húseign Gnðna söðlasmiðs Gíslasonar i
Stykkishólmi 6. mai.
Um bókarastöðuna við Landsbankann sé
BÓtt fyrir 10. mai. Veitist frá 1. júni. Árs-
laun 3500 kr.
Nýtt rjómabússmjör fæst í
Bernhöfts bakaríi í 5 og 10 pd. stk.
Stofa til leigu nú þegar í mat-
söluhúsinu við Hverfisgötu nr. 10 C.
Augl. Hinn 7. þ. mán. var í
Breiðholti hirtur og tekinn á gjöf blá-
grár óskilahestur með marki: standfj.
fr. á báðum eyrum. Hesturinn er
kliptur og skaflajárnaður. Eigandi
vitji hans sem fyrst og borgi auglýs-
ing þessa og áfallin kostnað.
Guðni Símonarson.
Peningabudda
með peningum, lotteríseðlum minnis-
pening og fleiru í, tapaðist í leikhúsinu
1. marz, óskast skilað í afgreiðslu ísa-
foldar, mót góðum fundarlaunum.
U ppboðsaugl ýsi nsr.
Föatudaginn 20. þ. m. verður selt
við opinbert uppboð það sem eftir 6r af
búðarvarning, tilheyraudi þrotabúi
Benóný Benónýssonar. Uppboðið verð-
ur baldið í húsi búsins nr. 58 A. við
Laugaveg og hefst kl. 11 f. h.
Söluskilmálar verða lagðir frarn við
uppboðið.
Bæjarfógetinn í Rvfk 14. marz 1908.
Halldór Daníelsson.
Uppboðsauglýsing.
Fimtudaginn 19. þ. m. verða seldir
við opinbert uppboð eftirlátnir lausa-
fjármuuir Páls Vídalfns. Meðal ann-
ars sem selt verður má nefua: Laga-
safn alþýðu, 5 hefti af lðunni, Kon-
ráðs orðabók, sönghefti Jónasar Helga-
sonar o. fl. bækur. Innanstokksmunir
af öllu tagi; þar á meðal stofuklukka,
Bkrifborð, orgel; ennfremur hnakkur,
söðull, beizli, sængurföt og fverufatn
aður.
Uppboðið fer fram í húsi Páls heit.,
nr. 32 B við Laugaveg og hefst kl.
11 f. h.
Söluskilmálar verða lagðir fram við
uppboðið.
Bæjarfógetinn f Reykjavík 14. marz.
1908.
Halldór Daníelsson
P. Schannong K.m.höfn
selur fegursta og ódýrasta
legsteina.
Umboðsm. er Einar Finnsson,
Klapparstíg 13 A, Rvík, sem gefur
allar upplýsingar um útlit og verð.
Trælast.
Svensk Trælast i hele Skibsladninger
og billige svenske Möbler og Stole
faas hos Undertegnede, der gerne staar
til Tjeneste med Priser og Kataloger.
Erust Wickström,
Köbenhava.
45, Sortedams Dossering.
Kr. Knudsen.
kib smægler.
Befragtning, Kjöb og Salg af Damp-
og Sejlskibe.
Agentur og Commission.
Christianssand, S.
Norge.
Telegr.adresse : Nesdunk.
Til aiineuiiitigs.
Eins og kunnugt er, voru á síðasta
alþingi samþykt lagaákvæði um það,
að greiða skuli skatt, er samsvari a/3
af aðfluttningsgjaldinu, af Kína-
líls-elixír mínum, sem hvarvetna
hefir þótt hollur og ómissandi.
Sökum þessa afarháa og óvænta
gjalds og af því að öll efni hafa hækk-
að mjög í verði, sé eg mér því mið-
ur eigi annað fært, en að hækka
verð hverrar flösku af Kna-Iifs-
elixir i 3 kr. frá þeim degi, er
nefnd lög öðlast gildi. — Eg vil því
ráða öllum neytendum Kína-lífs-elixirs-
ins til þess að afla sér sem fyrst
birgða til lengri tíma af elixírnum
áður en hann hækkar í verði. Það
er þeim sjálfum fyrir beztu.
Valdemar Petersen.
Nyvej 16
Köbenhavn V.
Kveldskemtun
til styrktar fátækri, blindri stúlku
verður haldin x
Iönaðarmannahúsinu
fimtudaginn 19. þ. m.
Nánara á götuauglýsingum.
Piltur
sem hefir löngun til að nemaskradd-
araiðn getur strax feugið atvinnu.
Reinhold ^Andersson
skraddari
Liverpool.
REYKIÐ
aðeins vindla og tóbak
frá B. D. Krnsemann
tóbakskonungi
í Amsterdam (Holland).
Fallegust, bezt og ödyrust
fataefni
og urval af
Mlslíni
selur klædskeradeildin
Liverpool.
Ef þér viljið fá yður verulega gott
léreft í kvenlín, karlmannsskyrtur eða
því um líkt, þá kaupið
nr. 1 á 22 a. al.
í Th. Th.orsteinsson’s
vefnaðarvöruverzlun
að I n g ó 1 f s hvoli.
Úrval af
reyktu
kinda-, svína-, nauta- og hestakjöti
selur Liverpool.
Stúlka, sem skrifar laglega rithönd,
er fær um að skrifa dönsku og íslenzku
og getur tekið að sér bókfærslu með
tilsögn, getur nú þegar fengið atvinnu
hér í bænum. Tilboð merkt Bókfarsla
sendist afgreiðslu ísafoldar.
OSTAR - PYLSUR
mest úrval í
LIVERPOOL-
Hérmeð tilkynníst, að móðir min, Þórunn
Helgadóttir. andaðist 10. þ. mán. að heimili
minu, 21 við Bræðraborgarstig. , Jarðarfðrin
er ákveðið að fari fram að Útskílum, en
huskveðjan hefst þríðjudaginn 17. þ. m. kl. 4,
á heimili mínu.
Reykjavik, 14. marz 1908.
Kristján Jónsson.
Allskonar
kál <* ávexti
selur Liverpool, tals. 43.
í bakaríi B. Símonarsonar er
aðfiutt nýmjólk nú seld á 16 a. pt.,
en bæjar-nýmjólk á 18 aura.
Stofa til leigu 14. maí með for-
stofuinngangi og nálægt miðbænum.
Ritstjóri vísar á.
Fundist hefir úrkeðja við Báru-
búð. Vitjist í Aðalstræti 12.
Blómsturíræ og matjurta fæst
hjá Maríu Hansen, Kirkjustræti 8.
Einnig seinar rósaplöntur og blaða-
plöntur.
Til leigu gott herbergi við Stýri-
mannastíg frá 14. maí næstk. Ritstj.
vísar á.
Efri íbúðin í húsinu Bakki við
Bakkastig jœst leigð jrá 14. mal.
Oddar Oíslasou,
Fræsölu gegnir eins og að undan-
förnu Ragnlieiður Jensdóttir Laufásveg 13.