Ísafold - 21.03.1908, Síða 3
ISAFOLD
47
Áhrif vor a aðra.
Eftir Ólaý ísleifsson.
Erindi flutt á búnaðarnámsskeiði að
Þjórsártúni 22. ján. 1908.
I.
Oft heyrist sagt, þegar menn fara
eitthvað heiman frá eér á mannfundi
eða mannamót, að þeir fari til þess,
sð sýna sig og sjá aðra. |>etta er
vanalega sagt þegar menn þykjast
fara alveg erindislaust eða hafa einkis-
vert erindi að reka.
En það er raunar mikilsvert erindi.
|>að er ekki eins lítilsvert, að koma
á mannfundi, þar sem gefst tækifæri að
sýna sig og sjá aðra, eins og alment er
álitið; því eftir framkomu vorri þar
erum vér dæmdir, svo framarlega sem
oss er nokknr eftirtekt veitt.
Komum vér á mannfundi, þar sem
vér erum öllum ókunnir, þá munu
þeir, sem fyrir eru, geta að miklu leyti
séð, hverir vér erum, jafnvel þótt ætl-
un vor sé alls ekki að vekja eftirtekt
á oss.
Vér getum aldrei farið svo ueitt, að
vér höfum ekki sjálfa oss með oss.
Af framkomu vorri má sjá, hvort
vér erum snyrtimenn, hvort vér erum
ruddalegir, framhleypnir og montnir,
hvort vór erum frá myndarheimilum,
hvort vér höfum fengiö mentun eða
gott uppsldi, og hvort vér erum vanir
að umgangast gott og siðað fólk, og
ýmialegt fleira.
Oss finst oft að vér getum eins og
steypt yfir oss einhverri dularblæju,
'svo að enginn geti neitt í það ráðið,
hverir vér erum.
En sú blæja er einatt svo gagnsæ,
að sjá má glögt gegnum hana vorn
innra mann, því sambandið á milli sál-
ar og líkama er mjög náið. f>að er
því ekki einkisvert, að koma til þaBS
að sýna sig.
Komum vér á mannfundi til þess
að sjá aðra, er það einnig mikilsvert,
bæði að sjá menn og hlusta á þá. Sú
þrá, sem knýr mann til þess að fara að
heiman frá sér langar leiðir til þess
að sjá aðra og hlusta á þá, er mjög
virðingarverð. |>að er sú þrá, sem
dregur alla menn saman, þessi löngun,
sem hreyfir sér í hvers manns brjósti,
að nálgast hver annan.
Sá sem finnur til þess, að hann er
ekki sjálfum sér nógur, finnur til
tómleika hjá sjálfum sór og þörf á fé-
lagsskap við aðra menn — þörf á
nýjum áhrifum frá öðrum, hann á
mikið erindi á þá staði, þar sem hon-
um gefst færi á að hlusta á menn og
verða fyrir nýjum áhrifum.
Sannarlega er sá maður ver kominn,
sem er svo vaxinn inn í sjálfan sig,
að honum finst hann ekki þurfa að
hafa neinn félagsskap við aðra menn
eða verða fyrir neinum nýjum áhrifum
frá öðrum, sem finst hann hafi ekkert
af sinni andlegu eign þegið frá öðrum,
eða þurfi neitt af öðrum að læra.
Enginn er sjálfum sér nógur. Fáir
mundu þola það, að vera algjörlega
útilokaðir frá áhrifum annara, án þess
að bíða andlegt tjón.
Eftír fraœkomu vorri er oss dómur
kveðinn. En oft er því þann veg far-
ið, að vér gerum oss litla grein fyrir,
hvað undir framkomu vorri er komið.
Með henni gefum vér öðrum eftirdæmi,
og það fer varla hjá því, að einhver
dragi dám af oss og það oft ósjálfrátt.
Fáir munu þeir foreldrar vera, sem
hafi ekki mikil áhrif á börn sín, er
þau upp ala.
|>au áhrif, sem menn verða fyrir á
þroakaskeiðinu, markar djúp spor í
meðvitundarlífi þeirra og ræður oft
stefnu manna og framkomu á lffsleið-
inni.
Maðurinn getur oft verið þesa van-
máttugur, að hafna hinum óhollu áhrif-
um og vekja þau betri, því bann get-
ur orðið þeim háður fyr en hann veit af.
f>að virðist líka svo um suma menn,
að þeir séu viðcæmari því sem síður
á við, en hinu, sem betur mætti fara.
Maðurinn á alt af hægra með að
stíga sporið niður fyrir sig en upp á
við.
Maður með veiklaða og hvarflandi
lyndiseinkunn er oft sem strá í vindi
fyrir áhrifum, atvikum og tilhneiging
um.
Innræti og lyndiseinkunnir ráða
miklu um framkomu mannsins. En
þó eru þau ahrif, sem hann verður
fyrir frá öðrum, engu minna um verð.
Einn spekingur hefir sagt:
— Segðu mér, hverja þú umgengst;
þá skal eg segja þér hver þú ert.
Vitanlega eiga ekki allir kost á að
Umgangaat þá menn, sem þeim eru
fremrij eða þá líklegir til að hafa góð
áhríf út frá sér. En menn leggja yfir
leitt of litla rækt við sinn andlega
gróður. Á því hefir hver maður ábyrgð
að láta sór verða eitthvað úr því, sem
honum er lánað, og afleiðingin af slíkri
vanrækslu verður oft tilfinnanleg.
Einhver hin óþarfasta hugsun, sem
ungur maður getur fengið inn í sig, er
sú, að hann sé til einkis nýtur og að
hann geti ekkert Iært og ekkert farið
fram — að honum sé fyrirfram mark-
að svið á hinum dökku reitum mann
lífsins. Ekkert, sem er mikilsvirði,
fæst án fyrirhafnar.
Mann8sálin er lengi að þroskast; en
fltístum tekst að þroska sál sína, sem
löngun hafa tíl þess og hafa viðleitni
á því.
þegar við fáum einhverja hugmynd
frá einhverjum manni, sem er oss áð
ur ókunn, er hún oss í fyrstu óljós og
ekki vort meðfæri; en smámsaman
skýrist hún fyrir oss eftir því sem vór
kynnumst henni og hugsum meir um
hann. (Niðurl:)
Reykjavikur-annáll.
Brunabótavirðing samþykti bæjarstjórn í
fyrra dag á þessum hnseignúm, í kr.:
VerksmiðjunDar Iðunnar .... 85,195
Landssjóðs við Klapparstig . . . 8,135
Páls Guðmundssonar í Njg. . . . 6,864
Dansk Petrol. Aktieselsk. við Amtmst. 5,568
Þórðar Narfasonar, Nýlendug. . . 3,280
Bæjargjaldkerastaðan auglýsist með 2500
kr. launum og 4000 kr. veði. Umsóknar-
frestur til 15. maf.
Hina fráfarandi gjaldkeri fær 1000 kr. f
eftirlaun.
Dánir. Bjarni Guðmundsson unglings-
piltur i Hvg. 27 B, dó 18. þ. mán. úr
mislinga afleiðingum.
Þóranna Helgadóttir ekkja (Brbst. 21),
67 ára, dó 10. marz.
Ertðafestulönd. Bæjarstjórn bafnaði i
fyrra dag forkanpsrétti að Norðurmýrar-
bletti nr. 15, er Ární Guðmundsson selur á
5000 kr., og að Melstaðarbletti, sem Jón
Guðmundsson selur á 3,500 kr.
Fasteignasala. Þinglýsingar frá bæjar-
þingí:
Bjarni Chr. Eyólfsson myndasmiður selur
4. marz Gisla Þorbjarnarsyni búfræðing
húseign nr. 7 við Spitalastig.
Bæjarstjórnin selur 8. marz Einari Bene-
diktssyni sýslum. 4!) feráina lóð við Aust-
urstræti (14) á 735 kr.
Einar Helgason selur 8. marz Sveini Sig-
fússyni kaupmanni húseign nr. 33 við Skóla-
vörðustig með 700 ferálna lóð á 7,500 kr.
Gifli ÞorbjarnarBon búfræðingur og H.
Tborarensen sláturhússtjóri selja 22. janúar
Bjarna Chr. Eyólfssyni myndasmið húseign
nr. 7 við Spitalastig.
Jón Sigmundsson selur 9. marz Sveini
Sigfússyni kaupmanni húseign nr. 38 við
Hverfisgötu með 1250 ferálna lóð á 5,200 kr.
Sigurður Ásbjörnsson trésmiður selur 12.
marz Davið Gstlund trúboða húseign nr.
9 við Spitalastíg.
Simon Sveinbjörhsson skipstjóri selur 12.
marz Jóni Þórarinssyni og Benjamín Jóns-
syni smiðum húseign nr. 43 B við Lauga-
veg ú t 000 kr.
Sveinbjörn Kristjánsson trésmiður selur
10. marz C. L. Lárussyni & Co. húseignir
nr. 17 B og 19 C við Grettisgötu á 16,000
kr.
Sveinn Olafsson selur 14. marz bæjarsjóði
Rvíkur húseign nr. 11 við Smiðjustíg með
1800 ferúlna lóð á 6000 kr.
Þórðnr J. Thoroddsen bankagjaldkeri selur
1. marz Þorsteini Sigurðssyni kaupmanni
húseign nr. 46 við Laugaveg á 30,000 kr.
Hjuskapur. Guðmundur Pálsson frá
Hafnarf. og ym. Katrin Björg Ólafsdóttir
frá Fitjum á Miðnesi, 14. marz.
Hallckór Kristinn Guðmundsson (Lveg 73)
og ym. Olöf Jónsdóttir, 8. d.
Otto Ferdinand Borchorst cand. jur. og
héraðsfullm. frá Rolding og ym. Emma
Johanne Kyörboe, 19. marz.
Sundkensla. Bæjarstjórn fól veganefnd á
síðasta fundi að ráða Pál Erlingsson til
að kenna hér sund i sumar 4 mánuði kl.
12—8 hvern virkan dag fyrir 450 kr. i
kaup. Aðra tíma vinni hann fyrir sjálfan
sig. Sömu nefnd var heimilað að verja alt
að 450 kr. til að láta kenna sund karl-
mönnum hér i bænum minst 3 mánuði, og
150 kr. til að kenna stúlkum. Ennfremur
62 kr. til áhaldakaupa við sundkensluna.
Gufuskipin. Laura (Aasberg) kom
af Vestfjörðum 15. þ. m. og bélt á stað
til útlanda miðvikud. 18. Að vestan flutti
hún meðal annars kaupmennina Sæmund
Halldórsson, Ingólf Jónsson og Jón A. Egils-
son frá Stykkishólmi, er tóku Bér einnig
far með henni út, svo og Einar Markússon
kaupm. frá Ólafsvik, en héðan Thor-Jensen
kaupmaður, Bjarni Jónsson frá Vogi og
Einar Gunnarsson ritstjóri.
Sterling (Em. Nielsen) kom aðfaranótt
miðvikudags (19.) frá Khöfn og Leith með
10 farþega, þar á meðal Jón Þórarinsson
skólastjóra og hans frú, Einar Benedikts-
son f. sýslumann (frá Skotlandi), kaup-
mennina Ben. S. Þórarinsson og Olaf Ás-
bjarnarson, ennfremur Jón Sigurðsson frá
Arnarfirði, Fr. Haakonsson bakara og Björn
Blöndal frá Arnarfirði, m. fl.
Frá útlöndum.
Suður í Marokko gerir ófriður held-
ur að magnast.en réna. Frakka^biðu
í öndverðum f. mán. allmikinn ósig-
ur fyrir þarlendum mönnum, upp-
reistarher Mulai Hafids, hins nýja
soldáns, er landsmenn virðast hafa
yfirleitt gengið á hönd, en undan
bróður hans, Abdul-Aziz, er ráðið hefir
ríkjurn undanfarið í skjóli Frakka.
Nú hafa og Spánverjar skorist í
leik með Frökkum og gert herhlaup
á hafnarborg eina í Marokko, norður
við Miðjarðarhaf.
Hernaður þessi þar suður i Mar-
okko skiftir litlu vorrar álfu þjóðir
annað en það, að margir ugga eld-
kveikju út af honum með sumum
stórveldunum hér, og þá helzt Frökk-
um og Þjóðverjum.
Uppþot nokkurt varð nýlega í ensk-
utn blöðum og jafnvel á þingi út af
bréfi, er Vilhjálmur keisari ritaði flota-
málaráðgjafa Breta, Tweedmouth lá-
varði, og grunur lagðist á að hefði
stefnt að því að eyða ugg Breta út af
fyrirhuguðum herskipastólsviðaukaÞj óð-
verja. Sú rekistefna komst svo langt,
að fyrirspurnir voru gerðar á þingi.
Það sannaðist þá, að bréf ktisara hafði
verið alveg meinlaust kunningjabréf,
að eins minst eitthvað á, að ýmsir
menn misskildu það sem Þjóðverjar
hefðu í ráði að auka herskipastól sinn.
Við það sættu þingmenn sig i báðum
deildum.
Búist er við, að Campbell-Bann-
erman, yfirráðgjafinn brezki, muni
verða að láta af embætti bráðlega sak-
ir heilsubilunar. Hann hefir tvo um
sjötugt. Asquit ráðgjafi er sagður
líklegastur til að taka við af honum.
VoSaslys varð í borg einni í Banda-
ríkjum (N.-Am.) 4. þ. m., Cleveland
í Ohio-ríki. Kviknaði i barnaskóla-
og brunnu inni eða köfnuðu og lim-
lestust 152 börn af 300 alls i skól-
anum.
Leopold Belgíukonungur hefir nú
loks selt af hendi stjórn sína í Convo-
ríki í Afríku, en við tekið ríkisstjórn-
in í Belgíu og löggjafarþingið þar.
Konungur hafði misbeitt svo valdi
sínu, sér til fjárplógs, að hneyksli
vakti um allan mentaðan heim.
Það bar til í Kristjaníu eigi alls fyrir
löngu (10.), að maður skaut 12 marg-
hleypuskotum inn um haliarglugga hjá
Hákoni konungi, þar sem hann átti
að sér að hafast við inni fyrir. En
þau voru hvorugt heima, konungs-
hjónin, og enginn maður í herberg-
junum.
— Hvern þremilinn eigum vér að
gjöra með konung í þessu landi?
sagði maðurinn, er hann var hand-
samaður. Hann var talinn vera ekki
með öllum mjalla. Sumir segja, að
hann hafi verið sænskur.
Fórn Abrahams
íFrh,).
Nokkrir hestar rákust á og byltust
um koll með riddurunum á; aðrir
sóttu fram, yfir hina föllnu og stikl-
uðu á þeim þangað til þeir féllu niður
í miðja þvöguna, þar sem alt iðaði af
fálmandi böndum og fótum. En brátt
var alt hulið þykkum rykmekki. Há-
vaxinn riddari, er fremat hafði BÓtt f
höggorustunni, hrökk úr söðlinum, en
náði ekki fætinum úr íataðinu. Skot
reið af rétt við nasir heatsins, svo að
ha’nn fældist, þaut út yfir Bléttuna
og dró á eftir sér riddarann. Hann
reyndi á allar lundir að losa um sig,
en við það varð heBturinn óðari en
áður. Ymist slengdist riddarinn á
grjótið, eða hann tók hátt á loft, og
þótt alllangt væri f milli, þóttust áhorf-
endurnir á fellinu heyra dynkina, þeg-
ar líkamanum sló niður á mishæðirn
ar. þeir sáu andlitið afskræmt af
kvölum, og þá langaði til að ekjóta
hestinn neyðarskoti. En það var ómögu-
legt að festa skot á honum.
Hesturinn fór með flughraða yfir
sléttuna; hann þaut í ýmsar áttir og
dró á eftir eér mannræfilinn, sem nú
var hættur öllum tilraunum til að losna
og tættist sundur á steinunum ögn
fyrir ögn; og blóðdrefjar, fatatuskur
og heilaslettur mörkuðu ferilinn.
Alt varð í einni svipan. Menn og
hestar féllu ; særðir menn voru troðnir
undir til bana og Iimlestir. Orustu-
liðið dreifðist í allar áttir, og ýmsar
smáskærur voru háðar, áður en lokið
var.
þegar orustan hafði staðið fimm
mínútur, fór aftur að draga af áhlaups-
mönnunum, eins og þeir hefðu oftekið
sig. Riddararnir námu staðar til þess
að átta sig, og tvær tylftir Búa not-
uðu tækifærið og hleyptu á stað frá
þeim svo fljóct, sem hestarnir gátu
farið.
þegar er flokkarnir voru þannig
skildir, var tekið til að skjóta fall-
by8sum úr skarðinu og sprengikúlurn-
ar dundu á Englendingunum. þeir
þrjózkuðust við um stund; en er byssu-
skotin frá fellinu bættust við og ridd-
ararnir fóru að velta úr söðlunum einn
eftir annan, fóru þeir að hypja sig á
brott og héldu í bug austur á við.
flópur særðra manna var eftir á
vígvellinum, og voru nú þeir, sem gátu,
að skríða ýmist niður í gjána eða upp
undir fjallsræturnar. Og enn bar ýmis-
legt eftirtektarvert fyrir þá, sem voru
uppi á fellinu. — |>eir, sem lítilli
stundu áður höfðu borist á banaspjót
um, virtust nú hafa gleymt öllum óvin-
arhug. Enskur riddari gaf Búa einum að
drekka úr dátapela sínum og leit á hann
meðaumkunaraugum, er hann skildi við
hann. A öðrum stað var Búadáti að hjálpa
andstæðingsínum áfætur og fekk honum
byssu sína fyrirhækju. En svo mannúð-
lega fóru ekki allir að ráði sínu, sem ekki
var heldur við að búast um menn, Bem
um langan tíma höfðu verið æstir hver
upp á móti öðrum. Undirforingi einn,
sem orðinn var nærri óður af vígahug,
skaut særðan mann, er lá við hliðina
á honum, og ætlaði að skjóta annan,
en var þá sleginn flatur með byssu-
skefti. Riddari sá, er gefið hafði Búan-
um úr pela sinum, vék sér að til þess
að hjálpa yfirmanni sínum, og nokkr-
ir fleiri riddarar bjuggust til nað veita
honum lið, og um stund leit út fyrir
að alt ætlaði að lenda í uppnámi. En
þeir sáu brátt, hve óviturlegt það var,
að hefja slíkan aðgang þarna rétt hjá
fellinu. Æsingin dofnaði og riddar-
arnir fóru að hypja sig, sumir Bkríð-
andi og sumir hlaupandi, og þeir þökk-
uðu hamingjunni fyrir að komast í
burtu sem skjótast.
Formáli sorgarleiksins var á enda.
Á vígvellinum var ekki annað eftir en
dauðir og hálfdauðir hestar, stynjandi
af kvölum, og hræðilega limlestir
mannabúkar.
þeir fjörutíu Búar, er höfðu orðið
viðskila við félaga sína við þessa skyndi-
legu árás, höfðu riðið til norðvesturs
og voru nú staddir hálfa enska mílu
frá fellinu, en hálfa aðra mílu frá
fjöllunum, sem förinni var heitið til.
f>eir voru króaðir frá meginhernum,
því riddarafylkingin, sem farið hafði
vestur með fjallabrúninni, var nú
komin neðar og í milli þeirra og fjall-
anna. Eftir því sem lengra dró frá
einum óvinahópnum, færðust þeir nær
öðrum, og dauðinn var þeim vís, ef
þeir héldu lengra í sömu átt. Eftir
stundar umhugsun sneru þeir við til
fellsins og sameinuðu sig Dornenborg-
urunum.
Riddarafylkingin hélt enn áfram um
stund, en varð að hörfa undan, er skot-
hríðinni laust á frá Búum, bæði ofan
úr fjöllum, frá fellinu og úr skarðinu.
Van der Nath skipaði þessum óvænta
liðsauka niður meðal manna sinna, og
beið nú eftir að framhald yrði á bar-
daganum. Ekkert tillit hafði enn
verið tekið til flokks hans. En nú
vissu óvinirnir af honum, og að lík-
indum mundu þeir nú láta það verða
sitt fyrsta verk að reka þá burtu frá
fellinu eða neyða þá til að gefast upp.
Van der Nath sá það nú, er hann
leit yfir orustusvæðið, hve skarpskygn
de Vlies hafði verið, er hann valdi
einmitt þessa aðstöðu og setti þetta
fámenna lið til varnar við fellið. þessu
liði var ekki fórnað til ónýtis, ef á
þann hátt væri hægt að draga athygli
óvinanna frá de Vlies sjálfum, og alt
benti á, að Englendingum léki sterk-
ur hugur á fellinu. Skotskýli og skot-
gríðum var ekið fram og Bett upp í
hér um bil þúsund faðma fjarlægð, og
fylking valinna fótgönguliða skildi eft-
ir hesta sína hæfilega langt frá og bjó
sig til áhlaups. Yfirhershöfðinginn
hafði tekið hinum óumflýjanlegu breyt-
ingum með stillingu, enda var hann
orðinn vanur þessum snörpu skærum,
sem hvarvetna urðu í útjöðrum hers-
ins. Hann gerði sínar ráðstafanir ró-
legur og eins og sá, er veit, að hann
hefir ekkert að óttast.
Alt var í glundroða á hinu geysi-
mikla orustusvæði, en komst þó brátt
í sæmilega reglu aftur við nýja fylk-
ingarBkipun. Fótgöuguliðið hélt kyrru
fyrir niðri í gjánni, með því að Búar
þeir, er í skarðinu voru, létu Btórskot-
in dynja niður í norðurhluta gjáarinn-
ar og vörnuðu því á þann hátt, að
veizt yrði að fellinu frá þeirri hlið.
En nokkru austar var búist til áhlaups
á hendur þeim, er í fjöllunum voru,
og á hæðunum vestur undan safnaðist
ógrynni liðs. það var auðsjáanlega
áform hershöfðingjans að láta veita
Búum yfirskinsatlögu alstaðar samtím-
is, meðan verið væri að viuna á
fjalla-flokknum. Hann hugðist vita
allar fyrirætlanir óvina sinna og ákvað
að taka skyldi þegar til starfa, til þess
að þeir fer:gju ekki neinn umhugsunar-
frest. Stórskotaliðinu var gefið rrerki
um að hefja skothríðina og fótgöngu-
liðinu skipað fram.
Skothríðin hóíst, og steinbúarnir
uppi á fellinu hrukku við, því nú voru
það þeir, sem veizt var að. Fyrsta
fallbyssan púaði þunnum reykjarhring
fram úr kjafti sér og leiftri brá fyrir.
Kúlan flaug gegnum loftið með voða-
hvin-----------nokkurra augnablika
æst eftirvænting, og skeytið sprakk
langt fyrir aftan markið------------hið
næsta fyrir framan og svo koll af kolli.
Stórskotaliðið gat unnið þarna í ró og
næði og stilt fallbyssurna hæfilega eftir
fjarlægðinni, sem var meiri en bvo, að
smábyssur Búa gætu komið að liði.
Til þess að menn van der Nath,s
stæðu ekki auðum höndum, skipaði
hann þeim að skjóta á fótgöngulið,
sem færðist óðum nær og var nú kom-
ið nær en á 500 faðma færi. Þeir
höfðu hniprað sig saman bak við
varnargarðinn, er þeir höfðu hrófað upp,
og notuðu nú tækifærið. það er hver-
jum manni ofraun, að sitja fyrir stór-
skotadrífu án þess að geta komið við
nokkurri vörn, og ýmsir voru þeir
meðal manna van der Nath’s, er farn-
ir voru að skima eftir, hvort auðið
mundi verða undankomu, ef á þyrfti
að halda. f>eim var þó nokkur fróun
í því, að fótgönguliðið fekk að koma
á byssuskotum þeirra, og þess vegna
tóku þeir minna eftir kúlum óvinanna,
sem sprungu æ nær og nær þeim.
Á hverri stundu mátti búast við, að
þær leutu inn á milli þeirra, og þá
var þeim vís dauði.
Mdnudaginn 23. þ. m. og fleiri daga
verður selt við opinbert uppboð ýmis-
legur varningur tilheyrandi þrotabúi
Guðmundar Stefánssonar, svo sem:
ógrynni af veggjapappír og mikið af
alls konar finum húsgögnutn, borð-
um, stólum og sófum, fullgjörðum og
hálfgjörðum.
Uppboðið hefst kl. 11 f. h. og fer
fram í húsinu nr. 14 við Bankastræti.
Uppboðsskilmálar verða lagðir fram
og lesnir á undan uppboðinu.
Bæjarfógetinn í Reykjavík,
21. marz 1908.
Halldór Daníeisson.
Klæðskeraverzlunin
Liverpool
hefir enn á ný fengið mikið úrval af
nýtísku
fataefnum,
úrval af nærfatnaði, erfiðisfatnaði mjög
ódýrum og alls konar hálslini, slauf-
um og slifsi.
Alb, Philipsens Patetit axlabönd o.fl.
Ibúð fyrir kyrlátt heimili fæst í
húsi síra Ólafs Ólafssonar 14. maí.
Til leigu 14. maí íbúðin í Þing-
holtsstræti 26.
1 herbergi til leigu frá i4.mai,
með húsgögnum ef óskað er, í Tjarn-
argötu 8.
Blómstur og matjurtafræ
mikið úrval selur Jón Eyvindsson,
Stýrimannastíg 9.
Ibúð til leigu. Efri byggingin
í húsinu nr. 1 við Fischerssund, Krist-
jánshús, er til leigu frá 14. maí. Menn
semji við Kristin Magnússon kaupm.
Búnaðaríélag Mosfellssveitar
vill fá nokkra duglega menn til jarða-
bótavinnu og byrji þeir strax er klaka
leysir í vor. Gott kaup boðið.
Semja ber við Guðmund Magnússon,
Geithálsi.
SKÁNDIN AVISK
B xportkaffi-Surrograt
Kebenhavn. — F- Hjorth & Co.
Fræsölu gegnir eins og að undan-
förnu Ragnheiður Jensdóttir Laufásveg 15,