Ísafold - 20.05.1908, Blaðsíða 2
106
ISAFOLD
Undirtektirnar.
Að svo stöddu er þetta frekast
kunnugt hér um undirtektir undir
tillögur millilandanefndarinnar.
Landvarnarfélagið samþykti í einu
hljóði á f]ölmennum fundi fimtudags-
kveldið 14. þ. m., að frumvarpið sé
alveg óhafandi, og telur skilnað einn
fyrir höndum, ef konungsamband
fæst ekki.
Félagið Frarn (stjórnarliðar) kvað
hafa samþykt í einu hlj. á fundi
sama kveld, heldur fámennum þó, að
nefndin ætti þakkir skilið fyrir frammi-
stöðu sina og að Danir í nefndinni
hefði sýnt sanngirni.
Stúdentaýélaqið samþykti á fundi á
laugardaginn með 20 atkv. gegn 2,
að skilnaður sé æskilegastur, ef ekki
fæst konungssamband eitt. Nokkrir
(7—8) greiddu ekki atkv. vegna þess,
að þeir vildu bíða frekari vitneskju
um málið, er nefndarmenn kæmi
heim, og sama hafði öðrum mót-
mælandanna tveggja gengið til; hinn er
formaður í Fram.
Sunnudagskveldið 17. þ. m. sam-
þykti félagið Skjaldborg á Akureyri í
einu hlj. á fjölmennum fundi svo-
felda ályktun:
Fundurinn telur frumvarp milli-
landanefndarinnar bygt á alt öðrum
grundvelli en kröfur Þingvallafundar.
Fáist þeim ekki framgengt, telur fund-
urinn ekki annað fyrir höndum en
skilnað.
Þjóðólfur telur (15. þ. m.) »athuga-
verðasta í frv. hina óuppsegjanlegu
skuldbinding eða játun um aldur og
æfi undir vald Dana í hermálum og
utanrikismálum. Með löglegri sam-
þykt á sliku ákvæði (t. d. á þjóðfundi)
viðurkennum vér fullkomið drottin-
vald Dana og höfum enga heimild
til að rifta þvi síðar. Og það munu
margir kalla innlimun. Því fer og
harla fjarri, að landið sé fullveðja,
óháð ríki eftir frumvarpinu.-------—
Skyldi annars vera óhugsandi, að
Danir féllist á verulegar breytingar
og lagfæringar á frumvarpinu (þ. e. á
þjóðfundi), t. d. ef þeir sæju skilnað-
ar•alv'óruna á bak við hjá islenzku
þjóðinni? Jafngott þótt reynd væri
i þeim þolrifin til þrautar«.
Ingóljur 17. þ. mán. kemst svo að
orði um að ganga að frv. nefndarinn-
ar, er hann minnist á fundinn í
Landvörn 14. þ. m.: »Það óhappa-
verk vildi enginn maður verða til að
vinna, að binda þann fjötur afkom-
endum sínum, og því kusu allir held-
ur skilnaðinn hiklaust og orðalaust*.
Talskeyti frá Seyðisfirði í gær seg-
ir svo:
»Allur Austjirðingajjórðungur móti
frumvarpi millilandanefndarinnar, það
er til hefir spurst, þar á meðal Austri
eindreginn. Ókunnugt enn um Eski-
fjarðarblaðið. Jón i Múla er og ein-
dreginn móti gjörðum nefndarinnar*.
Önnur blöð íslenzk hafa ekki látið
til sin heyra enn, svo kunnugt sé.
Lióðir í kaupstoðum.
Þær eru einn skattstofninn hjá skatta-
málanefndinni, bygðar lóðir og óbygð-
ar. Þess vegna hefir hún safnað
skýrslum um stærð þeirra. Sú skýrsla
er á þessa leið:
Bygð 1. Óbygð 1.
í Reykjav. 292,607 1,227,457 feráln.
Á ísafirði 46,748 255,508 —
- Akureyri 65,862 1,426,545 —
- Seyðisf. 51,471 161,769 —
Verð lóðanna má ætla í Reykjavík
1 kr. fyrir feralin hverja upp og niður í
bygðri lóð og óbygðri, segir nefndin, og
skal það um leið tekið fram, að kunn-
ugir menn telja þessa áætlun helzti
lága, svo að 1 kr. 50 au. fyrir alin
mundi nær sanni. í hinum kaupstöð-
unum má áætla verð lóðanna 50 aura
feralin í bygðri lóð og 10 aura í
óbygðum lóðum. Sé nú reiknað eft-
ir þessum mælikvarða, þá er verð
löðanna hér um bil þetta:
í Reykjavik . . . kr. 1,520,064
Á ísafirði .... — 48,924
- Akureyri .... — I7S,S8S
- Seyðisfirði . . . — 4L911
Samtals kr. 1,786,484
Auk þess eru hér ótalin erfðafestu-
lönd, sérstaklega í Reykjavík, og
verzlunarlóðir í öðrum kauptúnum
landsins; og getur enginn skynsam-
legur vafi verið á þvi, að þær eignir
nemi meira en til vantar til þess, að
lóðirnar nemi samlals 2 milj. kr., —
segir nefndin.
Nýmæli um jarðamat.
Allar jarðir á landinu skal meta til
peninga 10. hvert ár, fyrsta sinn ár-
ið 1911, og síðan hvert ár, er ártal-
ið endar á o.
Þessi er upphafsmálsgreinin i jarða-
matsfrv. skattamálanefndarinnar. En
það er í 11 greinum alls.
Stórskemdir veita eiganda jarðartil-
kall til endurmats milli 10 ára frests,
og landssjóði slikt hið sama, ef jarðir
hækka stórkostlega í verði án tilkostn-
aðar af hálfu eiganda.
Hverja jörð skal meta eins og hún
mundi vera sanngjarnlega seld, í full-
um hundruðum króna, með hliðsjón á
tekjum af jörðinni, hæfilegum leigu-
mála, söluverði á siðustu 10 árum,
og virðingu til lántöku og veðsetn-
ingar.
Meta skal hverja jörð út af fyrir
sig, sem er séreign, hefir sérstök
bæjarhús og afskift tún og engi með
ákveðnum merkjum, hvort sem talist
hefir áður lögbýlí eða hjáleiga.
Með hverri jörð skal meta hús þau,
er henni fylgja og höfð eru til ábúð-
arnota, svo og alls konar hlunnindi
og ítök í annarra lönd, en ekki inn-
stæðukúgildi, eða annað lausafé, er
henni kann að fylgja.
Eigi skal meta sér sameignarafrétt-
ar lönd, sem notuð eru eingöngu til
uppreksturs, en taka upprekstrarrétt
til greina i mati jarða þeirra, erhann
eiga. Þrætulöndum skal skifa í móti
jafnt milli jarða þeirra, er löndin eigna
sér.
Skattanefndir leggja mat á jarðir, í
júnimán., að viðstöddum eigendum
eða umráðamönnum, ef vilja. Næsta
mánuð allan liggur matið til sýnis á
þingstað hrepps eða öðrum hentug-
um stað, og sendist eftir það for-
manni yfirskattanefndar, svo og bréf-
legar kærur yfir matinu, til fullnaðar-
úrslita.
Yfirskattanefnd yfirskoðar mat allra
jarðeigna í umdæmi sínu, heimtar nán
ari skýringar, ef eitthvað virðist vera
óljóst eða rangt, og lagfærir því næst
jarðamatið eftir því sem henni þykir
rétt vera, sendir síðan fyrir septem-
bermánaðarlok landsstjórninni alt sam-
an, en lætur skrásetja eftir þvi jarða-
bók fyrir land alt, er sé gjaldstofn
fasteignarskatts 10 ár hin næstu.
Landssjóð^iítgjöld.
Skattamálanefndin gerir ráð fyrir
þessum útgjöldum á landssjóði um
árið upp og niður 10—20 árin næstu,
í kr.
1. Kostnaður til æðstu
stjórnar landsins á ári
2. Alþingiskostnaður og yfirskoðun 66 þús. kr. á fjárhagstímabili, eða
á áíi til jafnaðar . . 33
T Dómgæzla og valdstj. 110
4- Læknaskipun og heil-
brigðismál .... 140
5- Póstmál 100
6. Vegabætur .... 160
7- Gufuskipaferðir . . 70
8. Ritsími og talsími 160
9- Vitar og sjómerki 30
10. Kirkja og andleg stétt 30
11. Æðri skólar . . . 65
12. Alþýðufræðsla . 120
n- Vísindi og bókmentir 60
i4. Verkleg fyrirtæki . . 170
15- Skyndilán til embætt- ismanna, eftirlaun og
styrktarfé .... 70
16. Til óvissra útgjalda . 5
= 1373 þús.
Þá eru eftir 27 þús. upp í 1400
þús. krónurnar, jafnaðartölu nefndar-
innar. Það er þá varatala, fyrir tekju-
vanhöldum eða ófyrirséðum kostnaði.
Nefndin gerir ráð fyrir flestum út-
gjaldaliðunum hærri nokkuð en nú
eru þeir, eftir því sem hér greinir
nánara.
Stjórnarkostnaðinn (1. tölul.) lætur
hún þó standa í stað og mun
vera mjög hæpið að það lánist.
Alþingiskostnaði gerir hún ráð fyr-
ir 8 þús. kr. hærri um árið (16 þús.
á hvert þing) en nú er áætlað. Býst
við 10—-11 vikna þingi í stað 8—9.
Svo munar og um ljós og 'nita, er
þing er haldið um vetur. Hún hugs-
ar ekki til neins sparnaðar, t. d. ekki
þess, að hætta að prenta þingræðurnar, að
dæmi flestra þjóða annarra, bók, sem
allir eru hættir að lesa — hafa nóg
annað —, og er vitanlega nauðalitils
virði, með því að þar er þrásinnis
prentað ekki það sem þingmenn töl-
uðu og ekki það sem þeir ætluða að
segja, heldur það sem þeir vildu eftir
á helzt hafa sagt, en sögðu aldrei —,
eftir á: þ. e. þegar búið er að reka
þá í vörðurnar og þeir sjá að þeir
höfðu farið með bull.
Kostnað til dómgæzlu og lögreglu-
stjórnar lætur nefndin standa því nær
í stað, en hækkar dálítið kostnað til
læknaskipunar, úr 135 þús. í 140 þús.
Póstmálum ætlar hún 100 þús., í
stað 90 nú.
Vegabótafé hækkar hún um nál.
10 þús., en lætnr gufuskipaferðastyrk
haldast nær óbreyttan.
Ritsimum og talsimum ætlar hún
160 þús. um árið. Svo mikið gerir
hún ráð fyrir að muni á bresta að
þeir »beri sig«.
Alþýðufræðslukostnaður býst hún
við að muni hækka um eitthvað 30
þús. á ári; styrkur til vísinda og bók-
menta lætur nærri því sem verið hef-
ir, og verkleg fyrirtæki þarfnast lítils
eins meira.
Stýrimannaskólinn.
Hinu minna stýrimannspróji luku
þessir nemendur stýrimannaskólans
14. f. m.: Stig
1. Egill Þórðarson, Ráðagerði . 59
2. Gísli Jónsson, Patreksfirði . 59
3. Ari Helgason, Patreksfirði . 53
4. Hermann Stefánss., Akureyri 53
5. Halldór Jónsson, Ráðagerði . 52
6. Sigurður A. Guðmundsson
Patreksfirði....................52
7. Sigurður Ólafsson, Rvík. . 52
8. Sigurður Mósesson, Dýraf. . 49
9. Jón Kristófersson, Rvík . . 47
10. Kristján Kjartanss., Önundarf. 47
11. Bjarni Jónsson, Berufirði, . 46
12. Þorsteinn Jónsson, Rvík . 30
Tveimur var vísað frá prófi.
í gær, 15. maí, útskrifuðust þessir
— tóku hið meira stýrimannsprój:
Stig
1. Ólafur Þórðarson, Arnarf. . 96
2. Gísli Jónsson, Patreksf. . . 91
3. Hermann Stefánss., Akureyri 88
4. Jón Erlendsson, Rvik . . 88
5. lón Kristófersson, Rvik . . 86
6. Bjarni Þorkelss., Seltjarnarn. 82
7. Sig. A. Guðmundss. Patreksf. 80
8. Sig. G. Guðnason, Keflavik 78
9. Sigurður Mósesson, Dýraf. . 65
Einn stóðst eigi prófið.
Prófdómendur voru við bæði próf-
in með skólastjóra (P. H.) þeir Eirík-
ur Briem prestaskólakennari og Hann-
es Hafliðason skipstjóri, og ennfrem-
ur í tungumálum og sjórétti cand.
jur. assistent Magnús Guðmundsson.
Það er nýlunda og mikil framför,
að nú hafa 9 nemendur í einu lagi
leyst af hendi hið meira prófið. Þeir
einir mega fara með skip milli landa.
Því prófi hafa lokið alls 6 stýrimenn
áður við þennan íslenzka skóla, á
samtals 10—20 árum, og eru nú
flestir dánir. Þetta er því þörf við-
koma.
Sambattdsnefndin.
f>eir ætluðu af Btað i gær frá Khöfn
hingað á leið á s/a Laura, millilanda-
nefndarmennirnir, og koma a 11 i r hing-
að, eins binir norðlenzku og austfírzku.
Eru því væntanlegir hingað seint i
næstu viku.
Aflabrögð nndir Jökli sunnan.
Óminnilegur landburður.
Eftirfarandi kafli úr bréfi Kjartans
kaupmanns þorkelssonar á Arnarstapa,
ritaður 5. þ. m., sýnir að engu siður
fær blessan drottins fallið atorkumönn-
um og framkvæmdar í skaut undir
Jökli en annarstaðar á landi voru.
Færi vel að þeir menn, sem það hafa
látið sér um munn fara, að engin skil-
yrði væri þar til annars en auðnar
einnar, hvorki frá hendi uáttúrunnar
eða búandmanua þar, mættu nokkurn
lærdóm taka af bréfkafla þessum, er
hljóðar svo:
.......»Mestu og beztu fréttirnar eru
það, að hér er kominn ómunagóður
fískafli síðan á páskum. Fiskurinn er
hér upp f þurru landi. Sjórinn úir og
grúir af lífi: fiskurinn og sílið neðan-
sjávar og fuglinn ofansjávar. Við höf-
um tvíróið á hverjum degi og aldrei
fengið minna en 70 í hlut á dag og
oft upp að og um 100. Höfum við
því þenna stutta tíma síðan á pásk-
um fengið þann ágætisafla, að slíkur
hefir ekki sést á Stapa í tíð þeirra
manna, er nú lifa. Fiskurinn er stríð-
feitur og nær allur roskinu. Við höf-
um ekki einu sinni getað komið vél-
arbátnum við vegna þess, að fiskurinn
er alveg upp við lendingu, og höfum
við því róið tveimur smábáoum, og þá
höfum við auBÍð fulla af fiski á svip-
stundu.
......þessa uudanfarna daga hefir
sjórinn verið eitt fiskkrap, því alveg
hefir verið sama hvar öngli hefir ver-
ið rent ofan úr Bjómáli og niður í botn;
því alstaðar hefir fiskurinn verið jafn-
mikill, en allravænstur er hann þó í
miðjum sjó. Mönnum sýnist helzt sem
komið hafi þrennar fiskgöngur, hver of-
an á aðra, fyrst smá-fiskur, svo roskinn
fiskur og síðast mjög vænn styttingur.
Stapi er því nú í augum okkar gull-
náma. Mig vantar að eins nógu marg-
ar hendur til þess, að handsama gull-
ið við landsteinana hérna. Eg get
ekki dregið dul á þá skoðun mína við
þig, að ólíku meiri framtfðarheill hlyti
að fylgja þvi, að eitthvað af því mikla
fé, sem bankarnir hafa lánað til húsa-
gerðar í Reykjavík, væri nú komið
hér i báta og vinnuafl. Eg á bágt
með að trúa þvi, að þeir menn breyttu
ekki Bkoðun sinni, ef staddir væru bér
þessa dagana, sem látið hafa það uppi,
að hús hér járnvarin, vátrygð og gerð
að öllu leyti með sama hætti og hús
í Reykjavík, yrðu ekki metin til verðs,
nema í eldinn. Og ekki get eg
trúað því, að slíkur framkvæmda- og
framfaramaður sem Tryggvi bankastjóri
Gunnarsson gæti látið um sig spyrjast,
að hafa þvílíka óvitaskoðun, ef haun
sæi sjálfur þorskkasirnar hjá okkur
daglega, sæi túnabreiðurnar, sem við
erum búnir að girða, vantar að eins
fé til að rækta til fullrar hlítar, og
loks, ef hann virti fyrir sér höfnina
hér. Eg þori að segja, að hann hyrfi
sem skjótast frá eldiviðarhugleiðing-
unni, áliti að hér ætti að húsa mikiu
meira, þvi hér væri framtíðarstaður.
þá mundi honum ekki vaxa í augum
að gera hcr með tiltölulega litlum
kostnaði örugga bátakvf, svo ekki sé
stærra nefnt.
......ísland á tvo g u 11 b a n k a:
frjóan jarðveg og fiskisælt haf um
hverfis sig, — bara að seðlabank-
arnir í Reykjavfk bindi ekki á okk-
ur hendurnar svo, að við getum ekki
notað gullbankana................<
— Kafli þessi er úr bréfi til manns
hér í bænum.
Bárður.
Breiðafjurðarbáturinn.
Reykjavíkur strandið um daginn gerði
ferðirnar þær endasleppar að sinni.
Bigendur Reykjavíkur, þeir Frederik-
sem & Co. í Mandal, eru þar lausir
allra rnála. |>eir höfðu ekki viljað
taka að sér, er samningur var gerður í
vor, að halda uppi ferðunum, ef eitt-
hvað yrði að Reykjavíkinni nú.
Brent barn forðast eldinn.
— f>að er í orði, að reynt muni
að fá G e r a 1 d i n e, Faxaflóabátinn
frá í vetur í millibili, til þess að taka
að sér Breiðafjarðarferðirnar. f>að er
nú verið að hreinsa hana hér við
dráttarbrautina.
Gufuskipin. Thoreskip Mjölnir kom
ngað af Vestfjörðnm sunnudagsmorguninn
. þ. m. með nokkra farþega, þar á með-
Sighvat Bjarnason bankastjóra. Til út-
nda hélt það héðan i fyrra kveld.
Helgi kongur er væntanlegur um þessar
undir frá útlöndum.
Toll-lagabreyting.
Svona vill skattamálanefndin láta
tollana vera á hverjum potti:
af alls konar öli og gosdrykkjum 8 a.
alt að 8° brennivíni............ 70 -
- 8—12° brennivíni..............110 -
- sterkara brennivíni en 120 . . 150-
öðrum brendum drykkjum
alt að 8°....................100 -
- öðrum br. dr. 8—120 ... 130 -
— sterkari en 120 ... 200 -
- rauðvíni og örðum borðvín-
um samskonar................. 30 -
- öllum öðrum víuföngum . . 100 -
- bittersamsetningum, sem eru
ætlaðir til drykkjar óblandaðir 100 -
- hverjum pela í öðrum bitter-
tegundum.....................100 -
Þar næst af hverju pundi í þessum
aðfluttum vörum:
tóbaki abs konar............. 75 a.
vindlum......................300 -
vindlingum................150-
kaffi og kaffibæti allskonar 14 -
sykri og sírópi'.............. 6 -
tegrasi...................... 50 -
súkkulaði og kakaó........... 20 -
öllum brjóstsykri og kon-
fekttegundum................. 50 -
Engan toll skal greiða af 160 vín-
anda, sem er ætlaður til eldsneytis
eða iðnaðar og gerður óhæfur til
drykkjar undir yfirvalds umsjón, né af
tóbaksblöðum, sem flytjast hingað
undir yfirvalds umsjón og eru notuð
til fjárböðunar, né af vistum, sem eru
ætlaðar skipverjum eða farþegum á
aðflutningsskipum, sé skipsforðinn
ekki meiri en ætla má að nægi, eftir
því sem tíðkast hefir.
---------------------
X
Frétta-hraði.
Fátt hefir meiri breytingum tekið f
heimioum á sfðari tín>um en frétta-
burðarhraðinn, aðallega þó síðari hlut •
aldarinnar Bem leið.
Fyrsta frétt af landskjálftanum
mikla í Lissabon 1. nóv. 1755 birtist
í enskum blöðum réttum 4 vikum síð-
ar, eða 28. nóvbr., og í Berlínarblöð-
unum 2. desbr.
Nú flytja blöð að morgni dags flest
sem við befir borið fréttnæmt um nótt-
ina hvar aem er um siðaðan heim,
hvað þá heldur eldri tíðindi, frá deg-
inum áðúr eða þar á undan. Blöð
keppa mjög um það í stórborgum
heims einkanlega, að verða fyrst með
fréttir.
Eitt hið mesta flýtis-þrekvirki vann
fyrir fám árum Lundúnablað eitt, er
nefnist Daily Mail.
Chamberlain ráðgjafi var þá í sem
mestu gengi enskra stjórnmálamanna.
Hann ætlaði að flytja mikils háttar
ræðu fyrír kjósendum sínum í Birming-
ham. það er nær 5 þingmannaleiðir
frá Lundúnum.
Blaðið hafði látið setja upp á hent-
ugum stað í fundaraainum hljóðgeymi,
er hirti hvert orð af vörum ráðgjafans
jafnóðum og sendi jafnharðan með
rafmagnstóli suður til Lundúna eftir
ritsímanum þangað. þar voru hraðrit-
arar viðlátnir með heyrnartól við eyra
sér. þeir lögðu við hlustirnar 2 mín-
útur hver í senn og hreinrituðu því
næst hver sinn kafla til prentunar.
Chamberlain hóf ræðu sfna kl. 8,10.
Fyrsti hraðritarinn tók tii að brein-
rita sinn kafla kl. 8,12, en kl. 8,12 fór
fyrsti setjarinn að setja (letra) ræðuna.
Ræðan stóð réttar 2 stundir hjá
Chamberlain; hann lauk við hana kl.
IOjio-
Kl. 10,30 var tekið til að prenta
hana og kl. 10,33 var farið að selja
blaðið, sem ræðuna flutti alla frá upp-
hafl til enda.
Almenni ritsfminn tók ekki til að
síma ræðuna til Lundúna fyrr en kl.
923 og var ekki búinn að þvf fyr en
kl. 11,87, meira en heilli klukkustund
eftir það er hún var komin öll á
prent í Daily Mail!
■--------------------
Óskilaklndarauglýsing. »Ritkorn-
i» um réttarstöðu íslands*, sem »mikli
maðurinD* var að láta tól sitt hér geippa
um að hann (Hann Sjálfur) hefði samið
og lagt fram i nefndinni, segir Norðurland
(,s/4) að heyrst hafi að sé álika langt og
meðal sendibréf og sé reyndar samið af öll-
um nefndarmönnum.
Hér getur enginn frætt »fólkið« um neitt
ritverk eftir Hann Sjálfan. Það veitir lik-
lega ekki af að lýsa eftir þvi eijAog óskila-
kind. Ekki mun vera hætt vj(£ að markið
þekkist ekki, ef einhver sfeýldi rekast á
gemlinginn.