Ísafold - 06.06.1908, Side 2
126
IS A F 0 L D
Fullveðja ríki?
Fundarræðurnar í síðasta bl. voru
mikið styttar og samandregnar, svo
sem flestir munu fara nærri um, enda
hvorki timi né rúm til að hafa þær
fyllri. En þá er jafnan nokkur hætta
á því, að eitthvað raskist eða verði
ógleggra en skyldi. Einn ræðum.,
héraðslækni Guðm. Hannesson, hefði
viljað hafa einn kaflann í sinni ræðu
svo orðaðan, sem hér segir — árið-
andi, að þar væri rétt með mál farið
og sæmilega greinilega:
Um hina réttarlegu eða lagalegu hlið
málsins skal eg vera fáorður. Eg er
þar ekki fræðimaður. En ekki er það
að undra, þó það sé dregið i efa, að
landið verði eftir frv. fullveðja ríki,
úr því tillaga Skúla Thoroddsen um
að í lögunum standi: »ísland er írjálst
og fullveðja ríki« var jeld með ollum
atkvæðum gegn einu, og ekki eingöngu
þessi orð, heldur öll orð og ákvæði,
sem nefna þetta blátt áfram.
Dr. Berlin, þessi mikla sending, er
Danir mögnuðu móti nefndarmönn-
um, vitnar oít i próf. G. Jellinek. Eg
fæ ekki betur séð en að samkvæmt
skoðunum hans sé tæplega nokkur
grein í frumv., er eigi sé að einhverju
leyti viðsjálsgripur. Eg skal að eins
nefna fyrirsögnina og fyrstu greinina.
Fyrirsögnin er þannig:
»Uppkast að lögum um ríkisréttar-
samband Danmerkur og íslands«.
G. J. segir: »Ríki getur ekki með
lögum myndað samband við önnur
ríki« (L. v. d. Staatenvert. 198).
Geta skal þess, sem R. Lundborg
bendir á, að á öðrum stað telur G. ].
þess dæmi, að sáttmálar séu gjörðir í
lagaíormi, og svo segja nefndarmenn
að beri að skilja frv. En því þá þessi
feluleikur með rétt og skýr orð?
»Ekki er heldur mögulegt með
samhljóða lögum að mynda virkilegt
ríkjasamband« (sama bók 203).
»Þegar realunion á að vera virki-
legt ríkjasamband getur ekki verið að
tala um rikisréttar-, heldur þjóðréttar-
samband, því það eitt getur komið
til mála milli sjálfstæðra ríkja«.
Þetta er nú fyrirsögnin ein.
í fyrstu greininni er íslandi gefið
nafnið land, en ekki ríki, einmitt sama
orðið sem Dr. Berlín hengir hattinn
á sem sönnun fyrir því, að ríki hafi
landið aldrei verið. Þá er samband-
inu gefið hið tvíræða nafn statsjor-
bindelse, sem síðan er þýtt á íslenzku
með ríkjasamband; og svo kemur að
lokum nafnið á báðum löndunum:
hin danska rikisheild\
G. H.
arfund voru 2 Reykvíkingar og 1
(einn) Hafnfirðingur. Allir önnum
kaftiir við fiskverkun og annað, með
því að veður var einkar-hagstætt, bezti
þerrir.
Af BárulnísfuiKliiium.
Hr. ritstj.! Sá hefir inisskílið eða
mishermt 1 yðar eyru eitt atvik, er
sagt hefir yður af því, er gerðist á
Bárubúðarfundinum stjórnarliðsins 1.
þ. mán.
|>að er framkoma Guðm. Magnús-
sonar skálds.
það er misskilningur, að tillaga hans
hafi átt að vera viðauki við aðaltillög-
una. Henni var, tillögu G. M., ætlað
að koma í hinnar stað, með því
að hún var gætilegri og miuna bind-
andi um svo Iítið rætt mál. Honum
hefir blöskrað sú ofstopa-frekja þeirra
stjórnarliða, að fara að heimta af kjós-
endum ákveðinn úrskurð um annað
eins vandamál, meðan þeir höfðu að eins
heyrt um það e i n a ræðu, og hana
vitanlega mjög svo hlutdræga. Vér
vitum, hve nefndarmönnum þykir öll-
um sinn fugl fagur, frumvarps-ómynd-
in, en engum þó fegri en sjálfum »hús-
bóndanum«. Bn fyrir ofríkis-gjörræði
fundarstjóra í upphafi fuudarins vildu
stjórnarandstæðingar alls ekki taka til
máls á þ e i m fundi, enda gengu marg-
ir af fundi undir eins, þér og aðrir.
Tillaga G. M. var því að réttu lagi
ekkert annað en breytingartillaga, og
átti því að bera hana upp á u n d a n
aðaltillögunni. |>að mundi hver óhlut-
drægur fundarstjóri hafa gert. En að
henni samþyktri var óvíst, að aðaltil-
lagan fengi að standa, og hefði þá
•sigur heimastjórnarmanna« á fundin-
um orðið vafaBamur. |>a® hpfi*- fund-
arstjóri séð og haft snarræði til að af-
stýra þeim háska.
Hr. G. M. hefir því ekki komið fram
í þetta sinn að minsta kosti sem neinn
attaníoss ráðgjafans, heldur þvert
á móti. |>ó að hann kunni vera ann
ars ákveðinn stjórnarsinni, hefir vakað
sama fyrir honum og mörgum stjórn-
arandstæðÍDgum, bæði yður og fleirum,
sem glögt kom fram á fundinum dag-
inn eftir: að nefndarmenn ; ætti þökk
fyrir vasklega framgöngu, o. s. frv.,
þ ó a ð frumvarpið hefði ekki getað
orðið betra en þetta.
Þetta vildi eg hafa tekið fram. þeir
eru sannarlega nógu margir, »attaní-
ossarnir*, þótt ekki sé við þá bætt að
óþörfu.
Virðingarfylst
Fundarmaður.
Reykjavikur-annáll.
Brunabótavirðing s&mþykti bæjarstjórn í
fyrra dag á þessum hÚBeignum i kr.:
Sæmundar Þórðarsonar i Njúlsgötn . blOO
Steingrims Jónssonar (Grettisg. 39) . 2262
Vér vitum ekki, hvernig frum-
varpinu muni verða tekið af þjóðinni,
og vér ætlum ekki að geta neins til
um það. Sumir nefndarmennirnir hafa
látið uppi þá skoðun, að vér þyrftum
ekki á meiri réttindum að halda en
þarna væri fengin. Vér værum ekki
enn svo þroskuð þjóð, að okkur mundi
blessast meira frelsi.
Það er sama sagan, sem hefir ver-
ið sögð svo oft um konur. Þær eigi
ekki að fá fult jafnrétti við karlmenn
fyr en þær standa til jafns við þá að
hæfileikum. Þær séu ekki fyr nógu
þroskaðar(l) til að taka á móti frels-
inu.
Þær eiga að þroskast og dafna i
böndunum !
Nei, nei, nei —, þetta er úttauguð
skammsýni!
Því meira sem vér eigum frelsið,
því meiri eigum vér þroskavonirnar.
Ef algert frelsi, óháð öllum afskiftum
annarra þjóða, stendur ofar þroska vor-
um, þá merkir það ekki annað en að
það sé föt, sem eru við vöxt.
Þjóðin á fyrir sér að vaxa upp í
þau.
Vér skulum taka enn skýrara dæmi:
Frelsisandinn er brúðgumi þjóðar-
innar.
Ef hann stendur ofar þroska henn-
ar, má þá ekki brúðurin taka upp
fyrir sig ?
Má hún ekki vaxa og dafna við
hlið hans dag frá degi ?
Má liann ekki leiða hana að hug-
sjónamarkinu ?
Er of mikil gleði yfir íslenzkri þjóð,
er of mikill þróttur hennar, of mikil
frægð heunar, þó að hún komist ein-
hvern tíma^ þangað, sem aðrar þjóðir
eru komnar fyrir langa-löngu ?
Vér mótmælum nefndarfrumvarp-
inu óbreyttu, af því að vér treystum
þjóðinni. Vér treystum henni til að
þroskast. Og fyrir vorum augum er
engin þroskaleið til önnur en frelsis-
brautin.
Vér neiturn því, af því að vér vilj-
um láta niðja vora sjálfráða. Vér
viljum, að þeir þurfi aldrei að gjalda
þess, sem vér höfum gert.
Vér neitum því, af því, að vér get-
um ekki slitið oss frá þeirri löngun,
að landamæri framtiðarlandsins og
fósturjarðar vorrar — þau liggi saman.'
V7ér neitum því, af þvi að vér
viljum reynast sjálfum oss trúir.
Af því að vér trúum því, að frelsis-
sólin eigi að skína skærast yfir ísland.
K.
Veðrátta
viknna frá 31. mai til 6. júní 1908.
Rv. Bl. Ak. Gr. Sf Þh.
s 6.5 7.3 11.5 10.0 6.0 9.6
M 10.0 6.7 99 9.0 3.5 7.7
Þ 10.8 6.5 12.5 8.6 8.0 7..;
M 10.5 13.0 17.5 11.0 5.7 8.2
F 6.2 6.0 7.9 5.7 5.3 10.7
F 8.0 5.5 6.0 7.0 4.0 8.0
L 6.9 7.8 9.3 2.7 7.6 5.6
Aö eins ráðgjafar-afskifti. Ari
Jónsson ritstjóri tók svo til orða í ræðu
sinni 2. þ. m. nm væntanleg afskifti vor af
utanríkismálnm og hermálum á sínnm tíma,
að ihlutun islenzkra stjórnarvalda yrði þar
eftir Bem áðnr aldrei nein yfirráð, heldur
svipaðs eðlis og afskifti ráðgjafarþinganna
forðnm af stjórnmálum — en ekki: alþingi
ráðgjafarþing eftir sem áður.
Prestkosning i Holti i Önundarfirði
23. f. mán.:
Páll Stephensen ... 55 atkv.
Ásgeir Ásgeirsson . 49 —
Böðvar Bjarnason . 8 —
Af atkvæðum B. B. var eitt ógilt, hafði
verið skakt sett.
Greidd atkvæði eftir þessu 112, af 283
kjósendum alls. Þar af 10 í Kirkjubóls-
sókn, en binir allir i Holtssókn.
Hátiðarmessur. Hvitasunnud. kl. 8
árd. sira J. H. Hádegi dómkirkjupr.
(altarisg.). Síðdegis kl. 5 kand. S. Á. Gr.
Annan á hádegi sira B H. (altarisg.). Sið-
degis ki. 5 kand. Guðm. Einarsson.
Breiðaflóaferðirnar
hefir gufubáturiun Geraldine (skip-
stóri Jón Arnason) tekið að sér í sum-
ar, eftir Reykjavíkina sokknu, og er
faritin vestur þangað fyrir nokkru.
Bæjarstjórnin
nýja í Hafnarfirði héltsinn fyrsta
fund í gærmorgun kl. 10—11 undir
stjórn Páls sýslumanns Einarssonar,
sem er nú á förum þaðan, — laus
frá næstu mánaðamótum, en hefir þar
að auki fengið fararleyfi norður í land
í miðjum þ. m., og er Magnús Sigurðs-
son cand. jur. og yfirréttarmálfærslu-
maður settur sýslumaður frá þeim
tíma þar til er sýslan verður veitt.
Sýslumaður mælti í fundarbyrjun
nokkurum samfagnaðarorðum um, að
kauptúil þetta hefði nú loks fengið
kaupstaðarréttindi, og óskaði hinum
nýja bæ vaxtar og viðgangs og góðra
þrifa á hinni nýju braut.
Fundarefnið var að öðru leyti að
velja bæjarstjóra og gjaldkera.
Bœjarstjóri var kjörinn til bráða-
birgða hinn setti sýslumaður, M. S.,
en frestað fullnaðarkjöri þar til er
sýslan væri veitt, í því skyni að geta
átt kost á hinum nýja sýslumanni í
bæjarstjórnarstöðuna, ef það litist ráð.
Gjaldkeri var kosinn i bráð, til
næstu áramóta, Guðmundur Helga-
son bæjarfulltrúi, með 150—200 kr.
launum þann tíma.
Veizlu skyldi halda um kveldið, í
gærkveldi, til minningar um upphefð
kauptúnsins og líklega skilnaðarveizlu
um leið við sýslumann (P. E.), sem er
og hefir verið alla tíð mjög vel látinn;
hefir verið í þvi embætti rúm 8 ár.
Viðstaddir þenna fyrsta bæjarstjórn-
Bæjarvatnsveitan. Samþykt var á siðasta
bæjarstjórnarfundi eftir tillögu vatnsveitu-
nefndar tilboð Lössls um pipulagning i
grafna skurði utanbæjar 15,370 kr. og iun-
anbæjar 18,036 kr.; samtals 34,406 kr.
Elutning á vatnsveitupipum utanhæjar
höfðu þeír boðist til að taka að sér fyrir
3100 kr., Daniel Daníeisson ljÓBmyndari og
Valentínus Eyólfsson skósmiður, og var það
samþykt.
Dánir. Guðriður Þorsteinsdóttir, háöldr-
nð ekkja í Kaplaskóli, 3. júni.
flalla Guðmundsdóttir prestskona, ung,
4. júni.
Jes Thomsen, f. verzlunarstjóri i Vest-
manneyjum, 67 ára, dó 31. maí.
Fasteignasala Þinglýsingar frá siðasta
bæjarþingi:
Bjarni Þórðarson selur 23. mai Þórði
Bjarnasyni húseign nr. 2 við Bergstaða-
stræti á 5500 kr.
Guðmundur Egilsson trésmiður selur 1.
april Erasmus Gislasyni kaupm. 470 fer-
álna lóð við Grettisgctu á 470 kr.
Guðmundur Jakobsson trésmiður selur
28. maí Erasmus Gislasyni kaupmanni bygg-
ingarlóð við Laugaveg (76) á 1800 kr.
Jóhannes Kr. Jóhannesson og Loftur Sig-
urðsson trésmiðir selja 22. apríl Halldóri
Sigurðssyni trésmið húseign nr. 56 við
Hverfisgötu mað 1725 ferálna lóð á 14,300
kr.
Sígurður Björnsson selur 16. maí Þóroddi
Guðmundssyni og Gisla Guðmundssyni liús-
eign nr. 36 við Grettisgötu með 500 ferálna
lóð á 4U00 kr.
Uppboðsafsal 21. maí fyrir húseign nr.
58 A við Laugaveg til handa Oddi Glsla-
syni yfirréttarmálaflutningsmanni og J. J.
Lambertsen kaupmanni á 6600 kr., og vest-
urhelmingi húseignar nr. 12 við Bankartræti
til handa Jóhannesi Nordal á 4200 kr.
Grjótiand i Eskihlíð leyfði bæjarstj. i
fyrra dag, 2 dagsláttur, þeim Guðjóni
Gamalielssyni 0. fl., til 5 ára, fyrir 50 kr.
eftirgjald á ári.
Hjúskapur." Einar Ingibergur Erlcndsson
trésm. og læknisekkja Sigriður Helgason,
30. maí.
Einar Runólfsson trésm. og ym. Guðlaug
Einarsdóttir, 5. júni.
Jón Guðmundsson verzlm. og ym. Vig-
dis Bjarnadóttir, 2. júni.
Karl Ólafsson Ijósmyndari (i Hafnarfirði)
og Málfriður Björnsdótt.ir, 30. mai.
Sigurgeir Jóhannsson steinsm. og ym.
Bóel Bergsdóttir,’ 30. maí.
Mæling bæjarins gengur seigt og fast i
meira lagi. Þeir gefast app hver á fætur
öðrum, sem hana taka að sér. A. L. Peter-
sen verkfræðingur sagði verkinu upp i byr-
jun þ. mán.
Safnaðarfundar-nefna var haldin hér i gær
i þjóðkirkjusöfnuðinum. Fundarmenn 40
af líklega um 3000 kjósendum í söfnuðin-
um! Fundarstarfið alt var: að kjósa safn-
aðarnefnd. Tveir nefndarmenn voru endur-
kosnir: Sigurður Jónsson kennari (34 atkv.)
og Knud Zimsen verkfræðingur (um 30).
Þar við bætt þessum 3 nýjum: frú Önnu
Thoroddsen, Bjarna Jónssyni kennara og
kand. Sigurbj. Á. Gislasyni, — öllum með
um 20 atkv.
Meðal þeirra, er hafnað var, er Kristján
Þorgrimsson konsúll, sem hefir lengi i safn-
aðnefnd og reynst ötull framkvæmdarmaður.
Nú eru 4 af 5 safnaðarnefndarmönnum
heimatrúboðsfólk. En alls er gizkað á að
heimatrúboðsmeun muni vera í þessum söfn-
uði 40—50 i mesta lagi. Þeim verður þvi
sæmilega vel til valda i 6000 manna söfn-
uði.
Erl. ritsímafréttir
til ísafoldar.
Kh. 5. júni kl. 10 árd.
Persaland.
Persakonungur fiúinn úr landi.
Frá París.
Líkið af Emile Zola fiutt i yasr í
Fantheon.
Dreyfus veitt tilrœði með skoti. Varð
sár í handlegg.
Sambandsmálið.
Nordenstreng ritar í Stockholrns Dag-
blad um sanibandsmalið. Hann álitur
frumvarpið ágætt fyrir ísland, en aö
það veiti þó ekki fullveldi.
Vort Land hamast gegn frumvarpihu.
Alþingi á að fá málið til meðferðar
á undan ríkisþinginu.
* :f.
*
Þjóðhöfðingi Persa, er þar kom til
ríkis fyrir fám niissirum og sumir
kalla keisara en aðrir konnng, befir
átt í brösum við löggjafarþing það, er
faðir hans hafði sett á laggir skömmu
áður en hann féll frá, viljað helzt
senda það norður og niður og hafa
enga ráðgjafa með neinni þingsábyrgð
o. s. frv. Hann varð þó sáttur að
kalla við þingið í vetur, en grunt
mun sú sátt hafa staðið, og banatil-
ræði var honum veitt skömmu síðar.
Nú hefir kárnað enn um svo, að hann
hefir ekki haldist við.
Pantheon er leghöll mestu afreks-
manna þjóðaritinar. Þangað var Emile
Zola, hinu fræga sagnaskáldi og mann-
vini, er lézt fyrir nokkrum missir-
urn, vísað í vetur af meiri hluta
þings, en minni hluta fanst það vera
hin mesta ósvinna, og varð úr mikil
senna innan þings og utan. Eitt
hans mesta afrek var, hve drengilega
og djarfmannlega hann stóð í ístað-
inu með Dreyfus höfuðsmanni, átti
manna rnestan og beztan þátt í því,
að sannaðist sakleysi hans og hann
var leystur úr prísundinni í Púkey.
Þess hefir hann (D.) nú verið látinn
gjalda og á hann ráðist af ofstækis-
fólsku.
Nordenstreng þessi er sænskur
fræðimaður, er hér telur sig kunnug-
an, með því að hann ferðaðist hér
fyrir nokkrutn árurn. Grein hans
skýrir frá, að ekki muni liggja við
að við verðum fullveðja ríki, þótt
ágætt þyki honum frumvarpið. Hon-
um finst iíklegast vera fyr gilt en
valið sé oss til handa.
Aðstoðarlækiiir á Akureyri er skip-
aður kand. Yaldemar Steffensen og á ísa-
firði kand. Eiriknr Kjerúlf.
Bankabókari við Landsbanbann er
8kipaður 29. f. mán. Albert Þórðarson
bankaritari eftir samhljóða tíllögum banka-
stjórnarinnar.
Gaman'Tig alvara.
Vilkjálmur keisari II. var stundum óþekk-
ur móður sinni, þegar hann var barn.
Hann fekst ekkijtil að þvo sér og greiða
áður en hann fór út á morgnana, — sem
ekki er einsdæmi um börn. Móður hans
hugkvæmdist ráð til að venja hann af þvi.
Haun varð fyrir þvi einn fagran morgun,
er hann hafði stolist út óþveginn, að skýl-
isvörðurinn við haliardyrnar lét sem hann
sæi hann ekki, er liann gekk fram, það er að
segja: hann heilsaði houum ekki með byssu
sinni, eins og 6Íður er til við þjóðhöfðingja
og þeirra syni eða skyldmenni.
Sveinninn veitir þvi óðara eftirtekt og
spyr hvatskeytlega, hverju sæti sllk ósvinna.
— Mér hefir verið bannaö að heilsa
óþvegnum og ógreiddum prinzum, svaraði
maðurinn.
Þetta hreif. Piltur hljóp aldrei út eftir
það óþveginn og ógreiddur.
Kenslukona, sem átti að segja Vilhjálmi
keisara til, þegar hann var barn, tók hann
einhverju sinni og flengdi hann fyrir
óhlýðni; það hafði móðir hans sagt henni
að gera, ef því væri að skifta.
Stúlkan hafði þann eftirmála, að sig
tæki alveg eins sárt að þurfa að b e i t a
refsingunni eins og sárt væri að verða
fyrir henni; eg kenni með öðrum orðum
i rauninni engn minna til núna en þér,
prinz, mælti hann.
— Já, en ekki á sama s^að, segir strák-
ur kjökrandi.
Sumum mönnum er svo mismæla gjarnt,
að það er eins og það sé veiki á þeim.
Eftir sama raanni eru t. d. höfð önnur eins
mismæli og þessi, og fleiri þó.
Einu sinni byrjaði hann ræðu um kven-
réttindamálið á þessum orðum:
— Það eru nú liðin nokkur ár síðan eg
fór að fá álniga á kvennamálum.
Annað sinn koni haun i fjós til stór-
bónda:
— Þetta er fjölmennur kúahópur, sagði
hann, þegar hann gekk út.
Einu si mi var hann að segja frá Hinrik
fjórða Þýzkalandskeisara, ferð hans suðnr
á Norður-ítaliu. Þá tók hann svo til orða:
— Hann gisti á Italíu hjá Norður-Matt-
hildi frændkonu sinni.
D a 111 ps k i bsse I s k ap
í l»rándheimi (Trondhjem) ætkir
að senda hingað Gufuskipið
Bchreien.
Það á að leggja á stað frá Þránd-
heitni 16. júi'ií, og kemur vænt-
anlega hingað til Heykjavík-
UP um 28. júní.
Viðskiítabækur
(kontrabækur)
nægar birgðir nýkomnar í bókverzlun
Isifoldarprentsmiðju. Verð: 8, 10, 12,
r 5, 20, 25 og 35 aurar.
Harmoniumskdli
Ernst Stapfs öll 3 heftin, í bókverzl-
un ísafoldarprentsm.
8 K A N i) 1 N A V I 8 K
Exportkuff i-Sur r o g iv t
Kobenhavn. — F- Hjorth & Co.
Sálmabókin
(vasaútgáfan) fæst nú í bókverzlun
ísafoldarprentsm. með þessu verði:
1,80, 2,25 og gylt í sniðum, i hulstri,
350 og 4 kr.
Taubiákka
óefað bezt í bókverzlun ísafoldar.
Okeypis til reynslu.
Reynið
Boxcalí-svertuna Slin; þér brúkið
ekki aðra skósvertu úr því.
Hvarvetna á íslandi hjá kaupmönn-
um.
Buchs litarverksmiðja,
Kaupniannaliöfn.
Kr. Mnudscn.
Sk ihsmæg'lcr.
Befragtning, Kjöb og Salg af Dantp-
og Sejlskibe.
Agentur og Commissioti.
Christianssand, S.
Norge.
Telegr.adresse; Nesdunk.