Ísafold - 29.08.1908, Blaðsíða 3
ISAFOLD
215
U ndir tektirnar.
Þingmálafundum í Gullbringu- og
Kjósarsýslu verður nú lokið á morg-
un. Þá á síðasti fundurinn að verða
á Reynivöllum í Kjós. Einn er í
kvöld á Hofi á Kjalarnesi, annar var
í gærkveldi á Lágafelli. En engar
fregnir komnar af honum enn.
Uppkastið heíir farið hraklegustu
ófarir á öllum þessum fundum. At-
kvæðagreiðsla ekki nema á einum
fundi, með því að hún er tilgangslítil
úr þessu. En illur kurr gerður að liðs-
mönnumUppkastsins áfundunum,þing-
mannaefnum stjórnarinnar. Stórfurða
að þeir skuli vera að streitast við að
afla sér fylgis, og vita það fyrirfram,
að engir vilja neitt liðsinna þeim. En
þeir kveðast kunna betur við, að sagt
er, að falla með sæmd!
Fjölmennasti fundurinn var í Hajn-
arfirði 26. þ. m. Eindregið fundar-
hljóð móti Uppkastinu.
Annað þingmannsefni Sjálfstæðis-
manna, B. Kr., bar upp þá tillögu,
að þingmannaefni tæki fyrst til máls,
þá Hafnfirðingar, þá utanhéraðsmenn;
og var samþykt með öllum atkvæð-
um.
Ofan í þá samþykt bar annað þing-
mannsefni stjórnarinnar fratn þátillögu,
að ráðgjafinn, sem staddur var á fund-
inum og ekki síður utanhéraðsmaður
en aðrir Reykvíkingar þar, fengi að
tala næstur á eftir þingmannaefnun-
um. Það var vitanlega felt í einu
hljóði. Hann varð að bíða rólegur
meðan Hafnfirðingar töluðu, og tók
þá til máls næstur á eftir; talaði fulla
klukkustund. En enginn rómur gerð-
ur að máli hans. B. Kr. svaraði
ræðu hans, hrakti fjarstæðurnar ræki-
lega, og í ræðulok kvað við dynjandi
lófaklapp um allan salinn.
Reykjavíkur-annáll.
Brunabótavirðingar samþykti beejarBtjórn-
in 20. þ. m. á hnseign Gunnars kaupmanns
Þorbjarnarsonar í Veltusundi 49,283 kr.;
á húseign Slátrunarfélags Suiturlands á
Rrostastaðalóð 27903 kr. og á skúr Gisla
Eyólfssonar við Vitastig 15, 925 kr.
Dánir. Gísli Jónsson, sjúklingur i Laug-
arnesspítala, 33 ára, dó 24. águst.
Guðrún Ólafsdóttir bústýra, Laugavegi
51, 39 ára, dó 19. ágúst.
Haraldur Bergþór Jóhannesson, meiddist
á skipinu Victory og beið bana af, 21 árs,
dó 20. ágúst.
Helgi Sigurðsson bóndi frá Rauðsgili i
Hálsasveit, 58 ára, dó 21. ágúst.
Ragnhildur Þorsteinsdóttir Hognahúsi við
Grundarstig, gift, 75 ára, dó 17. ágúst.
Soffía Jónsdóttir, Þingholtsstræti 7, ekkja,
74 ára, dó 22. ágúst.
Þorsteinn Jóneson læknir frá Vestmann-
eyjnm, 67 ára, dó 13. ágúst.
Fasteignasala. Þinglýsingar frá síðasta
bæjarþingi;
Eyólfur Ófeigsson selur 20. þ. m. Guð-
nýju Aradóttur húseign við Hverfisgötu
með tilheyrandi lóð (*7‘/s-)-
Guðmundur Guðmundsson afsalar 4. júlí
þ. á. lóð við Grettisgötu 34 i hendur
Magnúsi Magnússyni (20’/s-)-
Jón Jónsson selur 22. þ. mán. Ásbirni
GuðmundBsyni húseignina nr. 33 A við
Njálsgötu með tilheyr. lóð fyrir 3200 kr.
Mattbias Matthiasson kpm. selur 15. júní
d. á. Gunnari Gunnarssyni 520 ferh. ál.
af Efraholtsbletti (20'/8.).
Hjúskapur. Guðmundur Björnsson land-
læknir og jfr. Margrét Stephensen (lands-
höfðingja), 14. ágúst.
Magnús Jónsson sýslumaður i Vestmann-
eyjum og jfr. Guðrún Sigríður Oddgeirs-
dóttir s. st., 21. ágúst.
Kjördeildir við alþingiskosninguna 10.
sept. kaus bæjarstjórnin 12. þ. m. þannig:
l. deild: K. Zimsen, Eggert Claessen og
Sigurður Briern; 2. deild: Þórður J. Thor-
oddsen, Hannes Thorsteinsson og Morten
Hansen; 3. deild: Kristján Þorgrimsson,
Ásgeir Sigurðsson og Oddur Gislason.
Meðal farþega á Sterling héðan til útl.
21. þ. m. var Guðjón Samúelsson trésm.,
ekki talinn siðast.
Slátrunarleyfi synjaði bæjarstjórnin 30. þ.
m. Ámunda kaupmanni Árnasyni um, með
þvi að það kæmi í bága við 38. gr. heil-
brigðissam þyktarinnar.
Vatnsveitumálið. Vatnsveitunefndinni 12.
þ. mán. falið að láta vinna að greftri
fyrir pipum innsnbæjar fyrir reikning bæjar-
sjóðs, þó svo, að þeir kaflar séu unnir eftir
samningi, sem hæfilegt tilboð fæst á.
Ákveðið að bjóða út pípur, krana o. fl.
til innlagningar i hús og reisa skúr á
stakkstæði við Hafnarstræti til geymslu á
pipum o. fl. tilheyrandi vatnsveitunni.
Veizluhald. Bæjarstjóru samþykti 12. þ.
m. með 6 samhlj. atkv. að ávisa 320 kr. úr
bæjarsjóði til veizluhalds fyrir liðsforingja
og liðsforingjaefni af æfingaskipinu Heim-
dalli og Fálkanum.
Til heimalitunar viljum vér
sérstaklega ráða mönnum til að nota
vora pakkaliti, er hlotið hafa verðlaun,
enda taka þeir öllum öðrum litum
fram, bæði að gæðum og litarfegurð.
Sérhver, sem notar vora iiti má ör-
uggur treysta því að vel muni gefast.
— í stað hellulits viljum vér ráða
mönnum til að nota heldur vort svo
nefna Castorsvart, því þessi litur er
miklu fegurri og haldbetri en nokk-
ur annar svattur lítur. Leiðarvísir á
íslenzku fylgir hverjum pakka. — Lit-
irnir fást hjá kaupmönnum alstaðar á
íslandi.
Buclis Farvefabrik.
Sálmabókin
(vasaútgáfan) fæst nú i bókverzlun
ísafoldarprentsm. með þessu verði:
t,8o, 2,2S og gylt i sniðum, i hulstri.
15° og 4 kr.
Viðskiítabækur
(kontrabækur)
nægar birgðir nýkomnar i bókverzlun
Isafoldarprentsmiðju. Verð: 8, io, 12,
1S, 2o, 25 og 35 aurar.
Kr. Knudseii.
Skibsmægler.
Befragtning, Kjöb og Salg af Damp-
og Sejlskibe.
Agentur og Commission.
Christianssand, S.
Norge.
Telegr.adresse: Nesdunk.
Hotel Dannevirke
i Grundtvigs Hus
Studiestræde 38 ved Raadhuspladsen, Köben-
havn. — 80 lierbergi með 180 rumum á 1 kr. BO
a. til 2 kr. fyrir riimið með l,jósi og hita. Lyfti-
vól. rafmagnslýsing, miðstöðvarhitun, bað, góður
matur. Talsimi H 960. Virðingarfylst
Peter Peiter.
Reynið
Boxcalf-svertuna Sun; þér brúkið
ekki aðra skósvertu úr því.
Hvarvetna á íslandi hjá kaupmönn- þarf að fá ekið 12000 — tólf þúsund — tunnum af hreinum steypusandi og
um- smámöl úr sandnámunni við upptök Arnarneslækjar heim að hússtæðinu.
Buclis litarverksmiðja,
Kaupmannahöfn.
Paa Grund af Pengemangei
sælges for l/2 Pris: finulds, elegante
Herrestoffer for kun 2 Kr. 89 0re Al.,
2 4/4 br. Skriv efter 5 Al. til en Herre-
dædning, opgiv Farven, sort, en blaa
eller mörkegraamönstret.
Adr.: KLedevœveriet Viborg.
NB. Damekjoleklæde i alle Farver,
kun 89 0. Al. dob.br. Hel eller dels-
vis modtages i Bytte Uld á 65 0.pr.
Pd., strikkede Klude 25 0. pr. Pd.
Saltet Lax
Ennfremur þarf hælið að fá 14000 — fjórtán þúsund — tunnur af góð-
um mulningi eða hreinni sjávarmöl.
Skrifleg tilboð um þetta hvorttveggja séu komin til undirritaðs fyrir næsta
fimtudagskveld 3. sept.
Þeir sem gera vilja tilboð um grunngröft á Vífilsstöðum gefi sig fram
við undirritaðan fyrir miðjan næsta mánuð.
Nánari upplýsingar gefur undirritaður og Guðjón múrari Gamalí-
elsson.
Reykjavík 29. ágúst 1908.
♦
%3lögnval&ur (Bíqfsson.
og andre Fiskevarer kjöbes i fast
Regning og modtages til Forhandlingaf
C. Isachsen,
Christiania. Norge.
Telegramadr.: Isach.
S.EYKIÐ
iðeins vindla og tóbak
frá B. D. Kríisemann
tóbakskonungi
i Amsterdam (Holland).
Kemisk hreinsun.
►T3
Oo.
er
-=a
EL
£2,
OJ
Undirrituð tekur að sér að hreinsa ull, silki, skinn, baldýring o. fl. Einnig
tek eg að mér að sterkja hálslín.
Sigrún Kjartansdóttir, Aðalstræti 9.
DANSK-ISLENZKT VERZLUNARFÉLAG
INN- OG ÚTFLUTNINGUR. UMBOÐSVERZLUN.
Vér sendum hverjum, sem þess æskir, verðskrá yfir alls konar vörur,
eftir því, sem um er beðið, og allar skýringar. Allar íslenzkar afurðir teknar
umboðssölu. Fyrirframgreiðsla. Fljót reikningsskil. Séð um vátrygging á sjó.
Albert B. Cohn og Carl G. Moritz.
Telegramadresse: St. Annæplads 10.
Vincohn. Köbenhavn.
Hver sá er borða vill gott
Margar íne
fær það langbezt og
odýrast eftir gæðum hjá
Guðm. Olsen.
Telefon nr. 146.
Hið bezta Chocolade er frá
sjókólaðeverksmiðjunni Sirius í Khöfn.
Það er hið drýgsta og næringarmesta
og inniheldur mest Cacao af öllum
sjókólaðetegundum, sem hægt er að fá.
Barnaskólanum i Bergstaðastr. 3,
verður haldið áfram með sama fyrir-
komulagi og að undanförnu. — Skól-
inn verður settur 1. október.
— 011 börn velkomin frá 6 —
14 ara, meðan rúm leyfir. —
Fermdir unglingar geta átt kost á að
taka þátt í sérstökum námsgreinum
fyrir afarlágt gjald. — Menn,
sem ætla að nota nefndan skóla, eru
vinsamlega beðnir að gefa sig fram
sem alíra fyrst áður rúm
þrýtur. — Sex til átta ára börn-
um verður byrjað að segja til 1. sept.
Rvík 26. ágúst 1908
Asgr. Magnússon.
BKANDINAVI8K
Exportkaff 1-Snrrogat
Kobenhavn. — F' Hjorth & Co
Toiletpappír
hvergi ódýrari eu . bókverzlun ísa-
foldarprentsmiðju.
Yelverkuð saltskata
°g
saltað heilagfiski
með góðu verði i
serzlun G. Zoega.
Vel verkuð saltskata og ís-
leuzkar kartöflur fást í verzlun
Jóns Þórðarsonar.
3—5 herbergi með eldhúsi,
búri, þvottahúsi og luktum svölum
(veranda) fást til íbúðar frá 1. okt.
í ágætu húsi á hentugum stað i bæn-
um. — Ritsj. vísar á.
Frá 15. sept. eða 1. október
getur ung stúlka fengið vist sem
barnastúlka í Reykjavikur apóteki.
220
náði hún aftur tökum á honum, hræðsl-
an ógurlega.
Hanu s á ekki framar; bræðslan
tók allar sýnir. Bn þá tóku við radd-
ir. þær æptu og görguðu alt í kring
um hann. jþær hlógu og gerðu gys að
honum; hæðnishaglkornin dundu á
honum, dundu miskunarlauet. Hróp-
unum og aköllunum linti ekki. Napr-
ast og hæst garga hvellar barnaradd-
ir. ]?að er eitt orð, eitt nafn, sem
alt af er á takteinum. Baddirnar segja
það gargandi, skrækjandi, hvíslandi,
hvæsandi upp í eyrun á honum : »Haf-
urinn, Hafurinn 1«
Og allir áttu við hann, Gunnar
Hede. Við þetta hafði hann búið.
Hann fann nú með fullu ráði til hinn-
ar sömu óumræðilegu hræðslu, sem
lagst hafði á hann vitstola. En nú
var hann ekki hræddur við hið sama
og áður; nú var hann hræddur við
sjálfan sig.
— jjað er eg. Eg hefi verið það,
sagði hann og sló saman höndum af
harmi. Og hann lagðist á hnén við
lítinn bekk, sem var þar; höfuðið Beig
qiður, og hanu grót eins og barn------
221
— j?að var eg. Hann barst lítt af.
— j?að var eg.
Gat hann borið af þessa hugsun ? Að
hafa verið fábjáni, sem allir höfðu
hæðat og hlegið að. — Æ, æ, eg vil verða
vitlaus aftur, sagði hann og sló f bekk-
inn. — þetta er of mikið lagt á einn
mann.
Hann hólt niðri í aér andanum
stundarkorn. Myrkrið kom á móti
honum eins og engill, sem hann hafði
ákallað. jþað leið fram á móti hon-
um eins og þoka. Bros lék um varir
hans. Nú fann hann andlitsdrættina
linast og deyfast, fann að hann var
að fá vitfirrings-augnaráð aftur.
En það var betra. Hitt var ofraun
að standast. Vera bent á hann, hleg-
ið að honum, hæddur, brjálaður ! Nei,
þá var betra að verða það aftur og
vita okki af því. Hvað átti hann að
gera aftur til lífsina? Allir höfðu óbeit
á honurn.
Fyrstu, léttu, hviku þokuslæður
hins mikla myrkurs grúfðu sig yfir
hann.
lngiríður stóð fyrir framan hann
og sá og heyrði á alla neyð hans;
224
hvernig á eg að bera það af, þegar eg
veit, að hvert mannsbarn, sem mig
sér, hugsar sem svo: Sko, hann hefir
verið vitlaus; hann hefir hneigt sig
bæði fyrir hundum og köttum.
Og nú slepti hann sér aftur. Hann
grúfði sig niður og grét.
— jþað er betra að missa vitið aft-
ur. Eg heyri þá æpa á eftir mér; og
eg sé sjálfan mig. Og það er hræðsl-
an, hræðslan, hræðslan ....
Nú var þolinmæði Ingiríðar allri
lokið.
— Já, það er alveg rétt, Bagði hún,
þú skalt bara verða brjálaður aftur.
það má nú kalla karlmannlegt, að
vilja verða vitstola til þess að losna
við dálitla hræðslu!
Hún beit á vörina og átti ilt með
að verjast gráti, og þegar hún kom
ekki orðunum nógu fljótt fram, þá
þreif hún í öxlina á honum og hristi
hann.
Hún var hamslaus af gremju, svo
mikið sárnaði henni að hann vildi
enn af nýju draga sig í hlé undan for-
tölum hennar, að hann skyldi ekki
hafa þrek til að berjast.
217
Hún mamma þín heflr gefið mér þessa
brjóstnælu. |>ú heflr vist séð hana
hjá- henni?
Nú lagði Gunnar af sér fiðluna og
gekk til Ingiríðar. Honum var mikið
niðri fyrir:
— Hvernig stendur á þessu, hvern-
ig stendur á þú ert með hennar brjóst-
nælu? Hvernig stendur á að eg hefi
ekki hugmyud um þú þekkir móður
mína?
Ingiríði varð felmt við, hún varð
náföl af hræðslu. Hún vissi hvers
hann mundi spyrja næst.
— Eg veit ekkert, Ingiríður. Eg
veit ekki af hverju eg er hér nú. Eg
veit ekki af hverju þú ert hór. Hvers
vegna veit eg það ekki?
— Æ, spurðu mig ekki að því. Hún
hröklaðist undau, og bandaði frá sér
hendinni.
— Viltu ekki segja mér það?
— Spurðu mig ekki, spurðu mig
ekki að þvi.
Hann greip fast um úlfliðinn á henni
til þess að þröngva henni tii að segja
eins og væri. >
— Segðu það bara. Hvers vegna