Ísafold - 30.09.1908, Blaðsíða 1

Ísafold - 30.09.1908, Blaðsíða 1
Kemur út ýmist einu sinni eða tvisTar i viku. Verð Arg. (80 arkir minst) 4 kr., er- lendis 5 kr. eda 1 */* dollar; borgist fyrir mibjan júli (erlendis fyrir fram). ISAFOLD Uppsögn (skrifleg) bundin viö Aramót. er óffild nema komin só til útgefanda fyrir 1. okt. og kaupandi skuldlaas viö blaöiö. Afgreibsla: Austurstræti 8. XXXV. árg. Reykjavík miðvikudaginn 30. sept. 1908. 61. tölublað i. o. o. f. 891028y2.__________________ Augnlækning ók. 1. og 3. þrd. kl. 2—8 i spítal Korngripasafn opib A mvd. og ld. 11—12. Illutabankinn opinn 10—21/* og 51/*—7. K. F. U. M. Lestrar- og skriístofa frá 8 Ard. til 10 sibd. Alm. fundir fsd. og sd. 8 l/« síöd. Landakotakirkja. Gubsþi.91/* og 6 A helgidögum. Landakotsspitali f. sjúkravitj. 101/*—12 og 4—6. Landsbankinn 101/*—21/*. P-c.kastjórn við 12—1. Landsbókasafn 12—3 og 2 -eJ. Landsskjalasafnið A þi a., fmd. og Id. 12—1. Lækning ók. I læknask. þrd. og fsd. 11—12. NAttúragnpaaaui A sd. 2—3. Tannlrekning ók. i rósthúsatr. 14. l.og3.md. 11- Faxaflöabáturinn íngölfur fer til Borgarness okt. 2., 9. Keflavíkur okt. 12., 26. Garðs okt. 12., 26. Ógoldin orgelgjöld til dóm- kirkjunnar fyrir árið 1907 verða tekin lö£[taki, ef þau eru ekki greidd til Kristjáns Þorgrímssonar, innheimtu- manns þeirra, innan 14 daga. Fyrir hönd sóknarnefndar K. Zimsen. á Kjalarnesi fæst til kaups eða ábúðar. Semja skal við und- irritaðan. Reykjavík 24. sept. 190S. Björn Kristjánsson. Alberti- hneykslið. Mesti stórþjófur Danaveldis æðsti vörður danskrar réttvisi sjö ár. Margt stórmenni annað fær skell, jafnvel Friðrik konungur? Yfirráðgj., J. C. Christensen, vill hanga í emhætti áfram, en fær ekki. Tíðindin kastað mikilli rýrð á Dani um allan heim. Kaupmannahöfn 19. sept. I. Alberti selur sig í hendur réttvisinni. Fyrir ellefu dögum, 8. þ. mán., gerð- ust þau tíðindi hér í bæ, er lengi munu í minnum höfð, tíðindi, er annálar Danmerkur munu skipa á bekk með Strúense-hneykslinu og öðrum stórhneykslum sögunnar. Að aflíðandi hádegi þann dag streymdi múgur og margmenni niður að Tollbúð. Þangað var von tveggja hátigna, Alexöndru Bretadrotningar og Dagmarar keisarafrúar hinnar rúss- nesku. Stórhöfðingjar landsins, ráð- gjafar og aðrir hinir helztu menn þjóð- kunnir fóru og til að fagna þeirn tignu gestum. Eins var þó vant í þann hóp, sem átti ekki að sér að draga sig í hlé, er svo bar undir. Það var Alberti geheimekonferenz- ráð. En allir hlutir eiga sér sín tildrög, og svo var og um fjarvist hans. Um sama leyti, sem embættisbræð- ur hans þustu til viðtöknfagnaðarins við Tollbúðina, beindi Alberti göngu sinni frá híbýlum Bændasparisjóðsins sjálenzka upp til dómhallar borgar- innar og gerði boð fyrir lögreglustjóra. Lögreglustjóri var vant við látinn. En einhver skrifstofumaður hans tók á móti Alberti, með mikilli lotningu og virktum, bauð honum inn í skrifstofu sína og bað hann setjast. Þá gerðist það, óðara en hurðinni var lokað, að Alberti mælti við lög- reglumann þessum orðum: Erindi mitt er að kæra sjálfan mig fyrir skjalafölsun og f jársvik, er nema allmörgum miljóaum. Gerið svo vel að skrifa það, sem eg hefi að segja. Gerið svo vel að leggja á mig gæzlu- varðhald. Þessi orð mælti hann með frábærri rósemi og stillingu, eins og ekkert væri um að vera. En lögreglumanni brá svo við, að hann mátti eigi pennanum h.ilda. Hann rauk þegar til og bað lögreglu- stjóra að koma sem skjótast sér til fulltingis. Lögreglustjóri kom, og hafði þá Alberti upp aftur sömu orðin. Var hann þá tekinn og farið með hann i gæzluvarðhald. Hér voru orðin skjót umskifti. Upp til dómhallarinnar gekk fyr- verandi dómsmálaráðgjafi Dana um 7 ára skeið, Islandsráðgjafinn fyrverandi, geheimekonferenzráðið, hinn hágöfgi herra (excellense), kommandör af dannebrog, stórkross Olafsorðunnar, stórkross lausnaraorðunnar (grísku), Pétur Adler Alberti; en út úr dóm- höllinni var leiddur og yfir í fangelsið stórþjófurinn, féglæframaðurinn, svik- arinn og falsarinn Alberti. Valdasólin Alberti var gengin til viðar, en upp risinn í hennar stað stórglæpamaðurinn Alberti. Þetta var á hádegi. Tveim stundutu síðar gaus fyrsti kvitturinn upp úti í borginni — og svo flaug sagan eins og eldur í sinu á örstuttum tima um gervalla borg- ina og land alt. Enda þótt það væri alþjóð kunnugt, aðAlberti væri enginn engill, átti marg- ur maður örðugt að kyngja þessum ósköpum. Fljótlega var þó gengið úr skugga um, að sönn væri sagan. Blöð öll ristu hana gleiðu letri í glugga sína og fregnmiðarnir tóku til að þeytast eins og fjaðrafok út um stræti og gatnamót. Þegar eg kom iun i bæinn var sami bragnr á strætum og torgum sem daginn þann fyrir nokkrum árum, er spurðist andlát Kristjáns 9. Sömu sýn bar alstaðar fyrir. Stórhópar af fólki fyrir utan alla blaðaglugga. Allir blaðasalar umsetnir af þéttum mann- múg. Þeir hrundu hver öðrum, bit- ust og börðust til þess að festa hönd á blaðsnepli, er satt gæti forvitnina og staðfest kvittinn. Og er þeir höfðu lesið tíðindin, urðu þeir agndofa á svip. Þeir litu hver framan í annan. Er þetta ekki lygi? Er þetta ekki draumur? — Hvílík ógn og skelfing! Æðsti vörður réttvísinnar og hið vold- ugastastórmenniDanaveldis um margra ára skeið, sú hin mikla valdasól, er allir lutu, skriðu á hnjánum fyrir og smjöðruðu við á alla lund — hann er í einu vetfi.ngi orðinn einhver hinn mesti stórglæpamaður, er sögur fara af. — Nei, ekki orðinn, hann hafði v e r i ð það alla þá tíð, er hann hafði verið yfirgæzlumaður réttvísinnar í landinu, og miklu lengur þó. Öll þau ár hafði æðsti verndari réttvisinnar og aðalafbrotamaður við hana verið einn og sami maðurinn. Þetta hér um bil mátti lesa á hvers manns ándliti. Breytileg eru mannanna kjör I Fám dögum áður, 4. september, sat Alberti veizlu (á Skydebanen) innan um lands- ins mestu stórmenni — sat á hægri hönd konungi, alþakinn orðum og titl- um hlaðinn, tignaður cins og skurð- goð! Hinn 8. s. mán. var hann orð- inn ærulaus stórglæpamaður, þjófur og falsari. — Mikil hlýtur að vera spillingin í því þjóðfélagi, þar sem slíkt getur gerst, sagði einn ónefndur íslending- ur, er eg mætti á götunni þenna dag. Sama skoðun kveður við í öllum blöðum heims, og ekki að raunarlausu. II. Svik Albertis. Alberti var formaður fyrir Bænda- sparisjóðnum sjálcnzkra, mikils háttar stofnun, með nærri 40 miljóna inn- lögum. Auk þess var hann formaður í smjör- útflutningsfélagi, er rekur all-víðtæka verzlun við Breta. Báðar þessar stoftianir féfletti hann, svo fádæmum sætir, smjörútflutnings- félagið um hér um bil 4 miljónir króna, en sparisjóðinn um rúmar 10 miljónir. Reikningum þessara stofnana vöðl- aði hann saman — jafnaði reikninga annarar stofnunarinnar með því að stela frá hinni. Þegar reikningsskil skyldi gera í sparisjóðnum lét hann greipar sópa um fjármuni smjörflutningafélagsins — sagði það vera eign sparisjóðsins. Með sama hætti »flutti« hann það, sem sparisjóðurinn átti, yfir í reikning smjörflutningsfélagsins, er hann þurfti á þvi að halda. En þetta var ekki einhlítt til þess að hylja fjársvikin í sparisjóðnum. Svo miklu námu svikafjárhæðirnar þar. Til þcss að klóra yfir þau svik greip hann til þess úrræðis, að ljúga því, að í Privaibankanum vceru geymd skulda- bréj, sem nærnu 9 miljónum króna og ekkert væri lánað út á. Til sönnunar því, að svo væri, sýndi Alberti endurskoðendum og stjórn sjóðsinsyfirlýsingarskjal frá stjórn bank- ans, um að bankinn hefði skjöl þessi óveðsett í sínum vörzlum. En petta skjal hajði Alberti falsað jrá upphaji til enda. Fölsunin kvað þó vera með aíbrigð- um illa af hendi leyst, — ekki einu sinni gerð tilraun til að stæla rithönd bankastjóranna. Hefir Alberti í þessu sem öðru treyst á það, að enginn léti sér detta í hug að gruna hann, sjálfan dóms- málaráðgjafann. Þetta skjal kom raunar til umræðu> á síðasta aðalfundi sparisjóðsins. Endurskoðandinn annar gat þess þar út af árásum, er þar voru gerðar á stjórn sjóðsins, og dylgjum er komu fram um það, að eigi mundu allar eignir sjóðsins óhultar, að formaður sjóðsins (Alberti) hefði sýnt sér umrætt skjal. Frá þessu varð skýrt í blöðunum. Stjórn Privatbankans varð hvumsa við, er hún las þetta, kannaðist illa við slikt skjal og bað Ablberti skýr- ingar. Hann svaraði því einu, að endur- skoðandi þessi væri svo mikill klaufi að tala, að alt kæmi hjá honum á aft- uríótunum I Þar við bættist svo al- kunnur misskilningur blaðanna! Þetta væri eina skýringin á, að svo ægileg vitleysa væri á borð borin. Eins og stjórnin vissi, væri engin skuldabréf geymd í bankanum I Þetta svar lét stjórn Privatbankans sér lynda. Hugsunin sú hjá henni sem öllum öðrum: Hér á hlut sjálfur dómsmála- ráðgjafinn. Honum verðum við þó að trúa I Á þessu falsaða skjali gat Alberti flotið fram yfir aðalfund sparisjóðsins, sem var í lok maímánaðar, en lengur ekki. Ellefti júní er annar aðalskuldadag- ur á árinu, eins og kunnugt er. Þá þurfti Alberti en að halda á 1 l/t miljón. Hann fór þá og fann vin sinn og embættisbróður J. C. Christensen yfir- ráðgjafa, er um það leyti gegndi einn fjármálaráðgjafaembættinu, og bað hann fyrir sparisjóðsins hönd um háljrar annarar miljónar króna lán úr ríkissjóði. Hann barði því við, að bankarnir væru svo illa staddir, (að þeir gætu eigi stutt sparisjóðinn eins vel og ella. Engin fyrirstaða hjá J. C. Christen- sen. Hann veitti lánið með orðinu, enda þótt Alherti hefði lýst þvi yfir fyrir fáum dögum, að í Privatbankan- um lægju 9 miljónir óveðbundnar í skuldabréfum. Enda sá hver hálfviti, að út á þessi skuldabréf hefði t. d. Þjóðbankinn óðara lánað margar milj- ónir. Enn hætti Christensen gráu ofan á svart, með því að verða við bón Albertis um að halda láni þessu leyndu. Af þessari greiðvikni sinni meðal annars hefir J. C. Christensen nú fengið að súpa seyðið, eins og síðar mun verða á vikið. Fyrir þessa hjálpsemi Christensens tókst Alberti nú að klóra i bakkann um sinn. En svo varð Neergaard fjármálaráðgjafi. Hann kunni illa þessu óvanalega láni úr ríkissjóði og krafð- ist þess, að það yrði endurgoldið nú i haust. Þvi hafði Alberti eigi gert ráð fyrir. Jafnframt tóku árásirnar á hann að magnast, einkum á sparisjóðsstjórn hans, er á leið sumarið. Politiken gerði hverja atlöguna annarri skæðari. Hún bar honum ótvírætt á brýn röng reikningsskil og hélt þvi hiklaust á lofti, að hér mundi vera um fölsuð skjöl að tefla í sparisjóðnum. Hún fór fram á, að eftirlitsmaður spari- sjóðanna (af ríkisins hálfu) væru látinn rannsaka þær ritningar. Hér var komið í öndverðum sept- ember. Um 10. september átti eftirlitsmað- urinn að fá skýrslu u:r. hag spari- sjóðsins, og um miðjan mánuð átti að greiða ríkissjóðslánið. Þá hefir Alberti séð, að fokið var i öll skjól, og vitað, að nú mundi hver snefill í allri hans reikningsfierslu verða rannsakaður, — það var áform eftirlits- mannsins, — og ioks hefir hann eng in ráð séð til þess að greiða ríkis- sjóðslánið, nema upp kæmust svikin um leið. Þá hefir hann kosið held- ur að selja sig sjálfur í hendur rétt- vísinni en að láta aðra gera það. Fjársvik Albertis hófust, að sjálfs hans sögn, 1891, um það leyti, er hann fór að gefa sig verulega við stjórnmálum. Það ætla menn, að stórkostlegar mútur við kjósendur og gej'sikostn- aður við blað hans Dant.ebrog hafi í upphafi komið Alberti á glapstigu, — en auðvitað ekki gleypt öll þessi ó- grynni fjár. Hann var allmikill sæl- lífismaður, en þó eigi svo, að eigi mundi honum nægja venjulegar árs- tekjur hans til lífsviðurværis; þær voru um 90,000 kr. Það sem mestu munaði og mest fór í aí hinu stolna fé, var gróðabrall hans erlendis, einkum i amerískum gullnámufélög- um. Hann skýrði svo sjálfur frá við fyrstu prófin, að hann hefði með þessu gróðabralii ætlað sér að ábatast svo, að hann fengi goldið aftur það, sem hann hafði stolið. En á því gróða- bralli tapaði hann sí og æ stórfé, — hætti því meira til, sem tap hans óx. En hamingjudísin brosti aldrei við honurn. Er ekki ólíklegt, að eitt- hvert stórtjónið hafi yfir hann dunið í sumar, og meðal annars flýtt fyrir falli hans. Ein fjögur réttarpróf hafa haldin verið til þessa yfir Alberti, en lítið verið á þeim að græða. Hann verst nær allra frétta, ber við minnisleysi. Er því ekki annað sýnna en að dóm- arinn verði að hlíta eingöngu sjálfs sín rannsókn — verði að pæla í gegn um alla bréfa og reikningaþvögu Albertis. En þar var alt í óreiðu og sukki, engar bækur haldnar, engin yfirlit gerð. Má því búast við, að langur tími líði áður en rannsókninni lýkur. Alberti kvað vera jafn-uppþembdur eins og áður, þóttalegur og óskamm- feilinn við prófin. Ýmsar hviksögur hafa gosið upp um menn, er hafi átt að eiga einhver skifti við Alberti. T. d. á konungur- inn að hafa lánað honum stórfé. Sömu- leiðis Heide hinn auðgi Privatbanka- stjóri. Það var i almæli einn daginn, að Heide hefði skotið sig. Þá er og sagt, að Raben-Levetzau greifi, utan- ríkisráðgjafi, einn með meiri háttar stóreignamönnum Dana, sé að komast á vonarvöl fyrir hjálpsemi við Alberti. En á sögum þessum er auðvitað litlar eða engar reiður að henda. III. Fall ráðuneytisins. Þegar er uppvíst varð um glæpi Albertis, bentu dönsku blöðin á það, fyrst og fremst Politiken, að eigi mætti við það hlita, að ráðuneyti Christen- sens héldi völdum. Það hafði í allan vetur haldið hlífi- skildi yfir Alberti. Christensen svar- aði svo öllum árásunum á hann á ríkisþinginu, og engu öðru, að engar sannanir væru fram komnar um nokk- urt misferli, og að hann bæri fult traust til Albertis. Þvi sama lýsti Anders Nielsen yfir, formaður stjórn- arflokksins þá, en síðan landbúnaðar- ráðgjafi, — lýsti því yfir fyrir fiokks- ins hönd. Bæði flokkurinn og ráðu- neytið höfðu tekist á hendur stjórn- arfarslega og siðferðislega ábyrgð á Alberti. Ofan á þetta bættist síðan lán það, er Christensen veitti Alberti í vor úr ríkissjóði. Töldu blöðin óhjákvæmi- legt, að ráðuneytið slepti völdum, — þótt ekki væri annars vegna en að bjarga við sæmd Danmerkur í augum annarra þjóða. En ekki var J. C. Christensen um það gefið. Ráðgjafarnir áttu fund með sér daginn eftir fall Albertis. Þar var það afráðið, að ráðuneytið skyldi sitja sem fastast, svo sem ekkert hefði i skorist. En þá var landslýð nóg boðið. Dundu þá raddir við hvaðanæfa, úr öllum flokkum um land alt, líkasjálf- um stjórnarflokknum, um að ráðuneytið yrði að fara frá. Gekk svo nokkra daga. Gremjurokur og reiðistormar skullu jafnt og þétt á stjórninni, unz utanríkisráðgjafi Raben-Levetzau greifi stóðst eigi mátið lengur, heldur gekk á fund konungs og tjáði honum, að hann teldi sig eigi mega lengur gegna embætti sóma sins vegna, og beiddist laustiar. Þá var Christensen kvaddur á konungs fund. Þeir töluðust við skamma stund, og þegar eftir þá sam- ræðu baðst Christensen lausnar fyrir a 11 ráðuneytið. En ráðuneytið gegnir daglegum störfum unz rikisþingið kemur saman í lok þ. mán. Eigi er hægt að leiða neinar get- ur um, hver verður til að koma saman nýju ráðuneyti. Margir eru tilnefndir, t. d. Neergaard fjármála- ráðgjafi, aðalmaður miðlunarmanna, Frijs greifi, Hansen konferenzráð o. s. frv. Þykir Dönum mest undir því komið, að hinir nýju ráðgjafar verði fyllilega heiðvirðir menu. Þeir eru búnir að fá nóg af hinu. Alberti- hneykslið hefir hvarvetna í heiminum hnekt svo áliti dönsku þjóðarinnar, að hún býður þess varla bætur um langan aldur. Auk J. C. Christensens og ráðu- neytis hans hefir Alberti dregið niður í fenið með sér Ole Hansen, er áður mörg ár var varaformaður Bændaspari- sjóðsins sjálenzka, unz hann var gerð- ur í sumar Þjóðbankastjóri. Það þótti ekki vel ráðið, að maður, sem enga hugmynd hafði haft um stórsvik Albertis við sparisjóðinn, þrátt fyrir daglega samvinnu og eftirlit, hefði nú með höndum stjórn á aðalpeningastofn- un ríkisins. Hann varð því að láta af bankastjóraembættinu, þótt nauðugt væri; árslaun eru þar 16,000 kr. Enn eru ekki fleiri ofan komnir með Alberti, en enginn vafi á, að fleiri muni þeir verða.

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.