Ísafold - 10.10.1908, Page 2
254
ISAFOLD
*
samvinnu við íslendinga. Vér eigum
hægast með að læra gamla, norræna
málið, vér munum fljótast venjast líf-
inu; það verður hægast að kveikja
með oss löngun til að flytjast af nýju
til hinnar víðlendu og að mestu leyti
ónotuðu eyjar, er áður dró til sín svo
fríðan og tiginn skara vorra mestu
manna, þeirra, er Islendingar eru af
komnir. Norðmenn munu eiga hæg-
ast með að ílendast á íslandi. —- —
Það er ekki rúm hér til að sýna
fram á, hve stórkostlega gagnsamlegt
það mundi vera menningu vorri, að
geta leitað til íslands að áhrifum af
voru fyrri alda andlegu lífi, því er
bræðraþjóð vor, sú hin fornfræga, hefir
geymt svo trúlega í forntungu vorri og
sögu.
Hér er að eins rætt um atvinnu-sam-
band milli landanna. — —
Norðmanna-ferðirnar til kaldra og
ófrjósamra héraða í Vesturheimi, sem
er nú annars tekið nokkuð að draga
úr aftur, þær ættu eins að geta beint
stefnu sinni til íslands — og hver-
jum mun mundi það ekki valda á
þróun hinnar norsku þjóðar, sem nú
telur sér útfletjendurna tapaða ?
Nægan efnivið gæti ísland fengið
úr norskum skógum, og sér hentug-
an. Ogsvo sem farmannaþjóð ein með
hinum fremstu gætum vér lagt góð-
an skerf til siglingaframfara landsins,
en landsmenn sjálfir eignast verzlun-
arflotann. Verkfræðingar vorir eru
vanir slíkum erfiðleikum, sem á ís-
landi er við að fást, og að hafa lík
verkefni með höndum sem þar þarf,
námurekstur, fossiðnað, vegagerð,
hafnagerð og járnbrautir.
Og ekki mundu íslendingar geta
ákosið sér samhentari menn við fiski-
veiða heldur en Norðmenn.
Og allra-sízt megum vér gleyma
því, að hér í Noregi eru þúsundir
manna með sömu eðliseinkunn og
íslendingar, fæddir upp við miklu
óblíðari náttúru heldur en er á ís-
landi, — sem mundu leita til íslands
hvorri tveggja þjóðinni til gagnsemd-
ar, bæta úr fólksskortinum þar, renna
smátt og smátt saman við þjóð þess
lands og byggja þann veg ísland af
nýju.
Ein athugasemd að lokum. Það
má ekki rugla neinum stjórnmálum
inn í þetta mál. Danmörk og ísland
um þau.
En um hitt munum vér ekki fara
að neinna ráðum, að láta hefta ýrjálst
verzlunar- og atvinnusamband vort við
ísland. Landið er að þessu leyti al-
frjálst, og það frelsi er skylt að virða
í framkvæmdinni.
Spegillinn hans Rikharðs.
Reykvíkingar eiga von á skrítinni
skemtun á sunnudaginn kemur og eftir-
farandi daga. Þá verður s/ndur hér
(kl. 12—3) spegillinn hans Rík-
h a r ð s.
Spegillinn er að sjálfsögðu »fáránleg-
ur«, engu síður en spegillinn vondu drotn-
ingarinnar < Mjallhvít. Ekki veit eg,
hvort hann talar eins og sá spegill
eða segir ungu stúlkunum sem í hann
líta »hver fegurst er á landi hér« —
þó eg gæti bezt trúað því —; en hitt
er víst, að þessi nýi spegill ber af öllum
landsins speglum að fríðleik og listfengi
eins og gull af eiri, eins og Mjallhvít
af hiuni vondu drotningu.
Fáeina aura kostar að sjá furðu
verkið, en marga að kaupa það. þeim
25 aurum er áreiðanlega vel varið, sem
ganga til þess að sjá spegilinn, og jafn-
vel þó króna væri. Þeir ganga ekki
með smærri skildinga í vösunum, ríku
mennirnir.
Alt hefir sína sögu og spegillinn ekki
síður. Ríkharður bjó hann til sem full-
numasmíð í tróskurði, án þess að detta
það í hug, að hann yrði slíkt umtalsefni,
svo við sjálft lægi að hann ærði allan
höfuðstaðinn og tæmdi flesta 25 aura úr
vösum manna. En Ríkharður er piltur
austau af landi, sem lært hefir tréskurð
og tálgulist hjá Stefáni Eiríkssyni. Er
hann fyrsti maðurinn, sem lært hefir list-
ina hér á landi, svo að fullnuma væri
talinn. Hann er dugandi uiaður, reglu-
samur og listfengur. I haust fór hann
utan, með lítil fararefni til þess að
framast í iðn sinni. Hve vel honum
gengur það og hve víða hann getur
farið — það er að nokkuru leyti komið
undir því, hve margir koma að sjá speg-
ilinn eða hvort einhver kaupir hann.
Fæstir gera sór Ijóst, hve mikil vinna
og fyrirhöfn fer til þess að smíða slíkan
grip. í fyrra vetur sat Ríkharður löng-
um tímum saman að gjöra uppdrátt af
speglinum, fyrst dálitla frummynd, sem
hann hugsaði upp sjálfur, og síðan ná-
kvæma fullnaðarmynd á sömu stærð og
gripurinn er. Myndin afspeglinum var út
af fyrir sig sómi fyrir iðnaðarstótt bæj-
arins. Svo var að afla efnis — þykkra
mahóníplanka —; þá að tálga út úr
þeim alt þetta fáránlega víravirki, sem
er spegilumgjörðin, alls konar kynja-
blóm og undraverur, stúlkm-, sem verða
að jurtaflækju og hafa dyrsfætur, jurtir
sem verða að villidýrum. í stuttu máli:
það ægir öllu saman í speglinum, bæði
því sem er til og ekki er til.
En glerið kunni Ríkharður ekki að
smíða. Það var smíðað einhverstaðar
suður í heimi með göldrum.
G. H.
NB- Spegillinn er til sýnis i skrif-
stofu I n g ó 1 f s i HverfÍ8götu.
Rótta svarið.
Rétta svarið við Uppkasts-farganinu,
bæði því sjálfu,frumvarpinu,ogólmand-
anum og hamförunum ráðgjafans og
hans manna í alt sumar að afla þvi
fylgis, — rétta svarið var það, að fella
þá alla frá kosningu, nefndarmennina,
sem uppkastið höfðu samþykt.
Enda má telja nokkurn veginn vist,
að legið hafi annarlegar orsakir að
þvi, að ekki féllu nema nokkrir þeirra.
Það var vissulega ekki fylgi við
frumvarpið, sem hinir flutu á inn á
þing.
Þjóðin hefði átt meira að segja að
skirpa þeim öllum út af sinum vör-
um, er gerast vildu fulltrúar hennar
í þeim erindum, að játast undir rétt-
leysiskenning talsmanna Dana og sam-
þykkja innlimun þá, er Uppkastið leynir
í sér. Þeir hefðu ekki átt að komast
að í neinu i kjördæmi landsins.
Það svar hefði verið samboðið þeirri
þjóð, er hefir ella aldrei til þessa mátt
heyra nefnda þá ósvinnu, að hún af-
sali sér landsréttindum sínum, heldur
haldið i þau dauðahaldi gegnum alt
það andstreymi, er yfir hana hefir
gengið.
Það gerði hún ekki; því er nú mið-
ur. En hún var þó enn nær þvi í
raun réttri en flokkaskiftingin meðal
hinna nýkjörnu þingmanna bendir til.
Munurinn er mikill, geysimikill: 23
móti 9.
En meira hefði verið 30 móti 4.
Og það var handvömm og slysni,
að svo varð ekki.
Sjálfstæðismenn i Suðurmúlasýslu
urðu undir fyrir það eitt, að þá brast
fyrirhyggju til að sjá sér fyrir byrvæn-
legum þingmannaefnum i tæka tíð,
og lentu fyrir það i síðustu forvöðum
á mönnum, sem það voru ekki, eftir
atvikum. Annar gerði það sem hann
gat til þess að spilla sjálfur fyrir kosn-
ingu sinni með því að láta það berast
út, að hann vildi helzt ekki vera kos-
inn, sakir óðum vaxandi heilsubilunar
þá, og hinn hafði svo lagaða sérstöðu
í innanhéraðs-kappsmáli, hvalamálinu,
að hún reið honum að falli. Það er
enginn vafi á þvi, að í kjördæminu
því var sem viðast annarsstaðar greini-
legur meiri hluti móti innlimunarfrum-
varpinu.
Það er kunnugra manna mál í því
kjördæmi, að hefði þar verið á boð-
stólum sæmilegir menn, utan héraðs
eða innan, sem lausir væri við alveg
sérstaklega hnekkjandi agnúa, mundu
kosningaúrslit hafa orðið öll önnur
þar.
Likt var um Rangárvallasýslu. Þar
var full vissa fyrir öruggum meiri
hluta móti frumvarpinu síðustu daga
á undan kosningu, — svo mikil vissa,
að frumvarpsandstæðingar ugðu of lítið
að sér. Fyrir það lánaðist hinum að
fá töluverðan hóp kjósenda í 2 hrepp-
um sýslunnar til að sitja heima, menn,
sem voru annars eindregið fylg-
jandi þingmannaefnum frumvarpsand-
stæðinga. Það reið baggamuninn.
Það voru hin síðustu óyndisúrræði
stjórnarliða i ýmsum kjördæmum, að
tæla kjósendur til að sækja ekki kjör-
fundi, þá er þeir fengu ekki við ráðið
annan veg. Almenningur veit ógjörla
um öll þau brögð, er kjósendur hafa
verið beittir i því skyni. Grunurligg-
ur á, að þau hafi ekki verið öll sem
fegurst eða löglegust. En um það
tjáir ekki að fást. Hitt er aðalatriðið,
úr þvf sem komið er, að kjósendur
láti sér ekki á verða sama yfirsjón
annað sinn, — að þeir öðlist sem
skjótast allir þann stjórnmálaþroska,
að þeir skilji það, að forfallalaus van-
ræksla að neyta atkvæðis síns til stuðn-
ings réttum málstað og þjóðinni heilla.
vænlegum er þrásinnis alveg eins vita-
verð ávirðing og alveg eins hættuleg,
eins og að neyta atkvæðis síns beint
til stuðnings röngum málstað.
Viðskiftasamband
milli
íslands og Noregs.
í einu meiri háttar Kristjaníublaði,
Norske Intelligentssedler, er löng og
rækileg grein (2. og 3. sept.) um
væntanlegt viðskiftasamband milli
Noregs og íslands, einkum í atvinnu-
málum, eftir einhvern sem kallar sig
»fésýslumann« ; og er hér lauslegt
ágrip af henni.
Það er mikið rætt um Island um
þessar mundir. Ekki eingöngu út af
þvi, að eftir nokkra daga verður land-
inu að miklu leyti sköpuð og skorin
sin stjórnarfarsleg forlög um ókomn-
ar aldir. Nei, það er fleira en stjórn-
arlög landsins eða samband þess við
Danmörku, er veldur svo almennri
eftirtekt á sögu-eynni frægu og frænd-
um vorum þar.
Það vakir sennilega enn ljósara
fyrir vitund manna, að hér ræðir um
land, sem er að vakna til þróttmikils
atvinnulífs. Geysi-víðáttumikið land,
umhorfið hinum aflasælustu fiskimið-
um í Norðurálfu, með ótæmandi auðs-
uppsprettum, ýmsum námulöndum,
fossafli, laxám, skínandi heilsu-lofts-
lagi og einkum fyrirtaks-skilyrðum
til útflutnings á landsafurðum á mark-
aði bæði á Englandi og öllum Norð-
urlöndum.
Alt þetta hefir verið hulið augum
almennings þar til nú fyrir skömmu,
ekki að eins utan íslands, heldur líka
sjálfum landsmönnum, eða svo virð-
ist vera. Svo fast hefir féflettingar-
mara verzlunar-einokunarinnar þrýst
oki dauðans á anda og hugsanir lands-
manna, að hér virðast menn jafnvel
hafa mist um margar aldir trúna á
sjálfar sönnur fornsagnanna, að ísland
sé gott land, þar sem búskapur geti
auðgað hvern bónda og verzlun og
samgöngur auðveldar við nágranna-
löndin.
Þeim verður ekki neitað, hinum sorg-
legu sannreyndum um hnignun ís-
lenzkrar atorku og trausts á sjálfum
sér, þegar litið er á vaxtarleysi fólks-
fjöldans, algerðan skort á verzlunar-
fleytum landsmanna, sem þeir sjálfir
eigi eignarrétt á, skeytingarleysið, sem
verið hefir til þessa um landsins mesta
velferðarmál inn á við, skógamálið,
hið hlægilega lága verð á jarðeignum,
fágætan skort á allri samvinnu-fram-
takssemi í landinu sjálfu, o. s. frv.
En alt þetta verður skiljanlegt, þegar
vér lesum verzlunarsögu landsins.
Þ á furðar oss fremur á því í raun
og veru, að þessi litla þjóð skuli ekki
hafa gersamlega uppræzt undir oki
algers viðskiftabanns við aðra heldur
en einka-verzlunina í Kaupmannahöfn
En það er tekið að birta upp af
nýju fyrir hinni þrautseigu, frægu
söguþjóð.
Það hefir af tilviljun fundist gull
við vatnsboranir í nánd við Reykjavík,
og nýlega stórt kolalag á Vesturlandi.
Og nú fyrst verða gerðar vísindaleg-
ar rannsóknir á málmaríki landsins,
þar sem reist hefir verið í Reykja-
vík efnafræðis-rannsóknarstofa.
Hvort landið geti fleytt fram meiri
fölksfjölda? Látum hagfræðina svara.
íbúatala höfuðstaðarins, Reykjavíkur,
hefir margfaldast á hér um bil 20 árum.
Kaup hefir hækkað svo geysilega síð-
ustu ár, að nú verður að gjalda meðal-
vinnumanni jafnhátt og hærra kaup
en í Noregi og Danmörku. Alt land-
ið hrópar á meiri vinnukraft.
• Þróunin gengur áfram með stór-
feldum hraða.---------—
En það er enginn vafi á því, að
íslendingar verða að leita til útlanda
um arðfé, vinnukraft og verklega
kunnáttu.
En einmitt það, sem lengst mun
aftra íslendingum frá að leyfa útlend-
ingum algert atvinnufrelsi í landinu,
sem sé fámennið og óttinn við, að
útlent þjóðerni og menningaráhrif
verði þjóðinni að ofjarli, mun að lik-
indum fremur en nokkuð annað verða
til að nota sér það, hvað N o r ð -
m e n n eru ágætlega vel fallnir til
Gagnfræðaskólinn
á Akureyri. Þar hefir verið skip-
aður skólastjóri 10. f. mán. Steján
Stejánsson kennari. — Símfrétt að norð-
an í gær segir hann hafa legið nú um
tima í botnlangabólgu, en vera heldur
í afturbata.
Landsbókasafnið.
Halldór Briem uppgjafakennari frá
Akureyri hefir verið skipaður síðari
eða óæðri aðstoðarbókavörður við það
safn (laun 1000 kr.).
Bæjarbruni.
Símað er í dag af Sauðárkrók: Bær
brann nýlega á f>rasa8tö(5tim < Fljót-
um til kaldra kola. Alt óvátrygt.
Druknun.
Unglingspiltur, Sveinn Stefánsson,
frá Hrólfsstöðum í Blönduhlíð, drukn-
aði í Héraðsvötnum við fyrirdrátt. —
Þetta er símað í dag af Sauðárkrók.
í arin að átta sig?
Nú þykir stjórnarblöðunum það bæði
ódrengskapur og óþjóðrækni, að vilja
ekki breyta frumvarpinu. Þau segja
það hljóti einhverju að vera skrökvað
upp á hann Finn i simskeytinu um
daginn, þessu sem greindi, að hann
réði Dönum frá breytingum. »Öðru
munu þeir eiga bágt með að trúa,
sem þekkja drengskap og pjóðrœkni dr.
Finns«, bæta þau við.
Veðratta
viknna frá 4.—10. okt. 1908.
Tvímessað á morgnn i dómkirkjnnni,
á hádegi og kl. 5 siðd. Kand. Signrbjörn
A. Gislason stigur i stól i hádegismessunni.
Þá er ferming. Siðdegis síra Bjarni Hjalte-
sted.
Oufusbipln. Laura kom i gær af
Vestfjörðum. Meðal farþega var Magnús
Torfason sýslumaður og bæjarfógeti á ísa-
firði. Ferð skipsins út er frestað til mánu-
dags (12.).
Thoreskip Sterling fór frá Leith i
gær á hádegi hingað á leið, og H e 1 g i
K o n g u r i morgun þaðan áleiðis til Aust-
fjarða, Reykjavíkur og Vestfjarða.
Biskupaskiftin.
Þriðji maður í nefnd þeirri, er færði
herra Hallgrími biskupi k v e ð j u
presta 5. þ. m., í ljóðum eftir
síra Vald. Briem, var præp. hon. Jó-
hann Þorkelsson dómkirkjuprestur, en
ekki síra Jón próf. Sveinsson.
Skrifstofu hefir hinn nýi biskup
fyrst um sinn á sama stað og áður
(í húsi Hallgr. biskups).
Maunslát.
Hér andaðist í fyrra kveld eftir
nokkra vanheilsu f. franskur konsúll
og kaupm. Christian Zimsén,
hátt á sjötugsaldri, f. 26. febr. 1841
í Khöfn, sonur Chr. Zimsens þess, er
hér var lengi faktor við N. Havsteens
verzlun, þá er J. P. T. Bryde keypti
síðan, en bróðir Nielj. Zimsens kaup-
manns hér, er dáinn er fyrir 17—18
árum, og frú L. Finnbogason, ekkju
Guðbr. konsúls Finnbogasons. Hann
kom hingað til lands 14 ára gamall
með föður sínum og var með honum
þar til er hann fluttist til Hafnarfjarðar
fyrir nálægt 40 árum; var hann þar
lengi verzlunarstjóri fyrír P. C. Knud-
zons verzlun og síðan kaupmaður,
þar til er hann fluttist hingað eftir
lát fyrnefnds bróður síns og tók við
hans verzlun, er hann seldi síðan í
hendur syni sínum, konsúl Jes Zimsen,
fyrir nokkrum árum. Jafnframt verzl-
un sinni og siðan eftir það hafði hann
á hendi afgreiðslu Sameinaða gufu*-
skipafélagsins. Kona hans var Anna
Cathinca Jiirgensen, fósturdóttir Chri-
stensens heit. kaupmanns í Hafnar-
firði, og lifir hún mann sinn ásamt
7 börnum þeirra hjóna, 3 sonum og
4 dætrum. Þrjú börn mistu þau
ung. Elztur sona hans er Knud
Zimsen verkfræðingur, þá fyrnefndur
Jes konsúll, og yngstur Christen kaup-
maður. Ein dóttirin, Cathinca, er
gift Jóhannesi Sigfússyni kennara við
mentaskólann. Önnur er gift í Dan-
mörku, og 2 ógiftar.
C. Zimsen var valinkunnur og vel
metinn sæmdarmaður í hvívetna, stakur
reglumaður um alt, yfirlætislaust lipur-
menni, frábærlega vel að sér í sinnar
stéttar mentum, viðbrugðið fyrir vand-
aða reikningsfærslu, enda gegndi hverju
starfi með mestu alúð og vandvirkni.
Var og mjög á hann hlaðið trúnaðar-
störfum, er lutu að fjárgæzlu og reikn-
ingsmensku.
-------------
Báðgjafaskifti
segir nú stjórnarblaðið annað (L.)
að hægt sé að láta fram fara með rit-
símaskeytum milli Khafnar og Reykja-
víkur. Ber það fyrir því til styrkingar,
að ekkert óhagræði eða tímatöf fyrir
þingið þurfi að fylgja því, þótt þau
gerist ekki fyr en þing er byrjað.
Þetta væri vænt að heyra, ef treysta
mætti því, að það væri nokkurn skap-
aðan hlut að marka; enda er miklu lík-
legra, að það sé sagt beint út í bláinn,
til þess að ekki sé verið að halda því
lengur að »húsbóndanum«, að hann
eigi að fara frá fyrir þing,
Það mun naumast vera nokkurtdæmi
þess, að þjóðhöfðingi geri sér að góðu
að vera látinn fela ráðgjafaembætti ein-
hverjum þeim manni, sem hann hefir
ef til vill aldrei séð né heyrt og á því
síður kost á að ræða við um stjórnmála-
skoðanir hans áður en hann tekur við
embætti.
Fæði
æst á Hverfisg. 19.
Kenslubœkur
þessar hefir
Bókverzlun ísafoldar
til sölu fyrir sjálfa sig, allar i bandi:
Kr.
Balslevs Biblíusögur..........0,75
Barnalærdóm H. H..............0,65
Danska lestrarbók Þorl. Bjarnas.
og Bjarna Jónssonar.......2,00
Danska orðabók nýja (J. J.) . . 6,00
Ensku kenslubók H. Br.........i,oo
Hugsunarfr. Eir. Briem........0,50
Kirkjusögu H. Hálfd...........4,00
Kristin fræði (Gust. Jens.) . . . 1,50
Lesbók handa börnum ogungl. I. 1,00
— — — — II. 1,00
Mannkynssögu P. M..............3,00
Reikningsbók Ögm. Sig. . . . 0,73
Ritreglur Vald. Asm............0,60
Siðfræði H. Hálfd..............3,00
Stafsetningarorðbók B. J.......i,oo
Túsk,
svart, blátt, gult, grænt og rautt, í
bókverzlun ísafoldarprentsmiðju.