Ísafold - 20.02.1909, Page 1
Kemur út ýniist einu sinni eða tvisvar í
viku. Verð árg. (80 arkir minst) 1 kr., er-
lendis 6 kr. eða 1 ’/i dollar; borgist fyrir
miðjan júlí (erlendis fyrir fram).
ISAFOLD
Uppsögn (skrifleg) bnndin viö áramót, er
ógild nema komin sé til útgefanda fyrir
1. okt. og kaupandi skuldlaus viö blaöiö.
Afgreibsla: Austurstrœti 8.
XXXVI. árg.
Reykjavík laugardaginn 20. febr.
1909.
11. tölublað
l. O. O. F. 892I28V2-
Augnlækning ók. 1. og 3. þrd. kl. 2—8 i spítal
Forngripasafn opib á mvd. og ld. 11—12.
íslandsbanki opinn 10—2 V* og ö */a—7.
K. F. U. M. Lestrar- og skriístofa frá 8 árd. ti)
10 siöd. Alm, fundir fsd. og sd. 8 */* siód.
LandakotBkirkja. Gubsþi. 91/* og 6 á helgidögum
Landakot9spit.ali f. sjúkravitj. 101/*—12 og 4—5.
Landsbankinn 10 */*—21/*. R-r.kastjórn við 12—1.
Landsbókasafn 12—3 og l -6,
Landsskjalasafnid á þLaM fmd. og Id. *2—1.
Lækning ók. i læknask. þrd. og fsd. 11—12
NáttúrugnpaHafn (i landsb.safnsh.) á sd, l1/*— i.1/*
Tannlækning ók. i Fóst.húsHtr. 14. l.ogB.md. 11-
Umræður
um
Sambandslagafruinvarpið.
Um það stórmál var fyrsta umr. í'
gær í neðri deild. Fyrstur tók til
máls, eins og lög gera ráð fyrir,
Hnnnes Hafstein ráðgjafi: Það
þarf ekki að skýra frá því, hvernig
frv. er til orðið. Texti þess er hinn
sami eins og í frumvarpsuppkasti því,
sem sambandslaganefndin eða réttara
sagt 19/20 hlutar hennar urðu ásáttir
um, eftir að hinir dönsku netndar-
menn höfðu með mannúð og velvild
slakað til í öllum meginatriðum í ósk-
um og kröfum íslendinga, eftir þvíi
sem itrast var unt, ef konungssam-
bandið skyldi haldast.
Munurinn er að eins sá, að nú er
uppkastið orðið stjórnarfrumvarp, sem;
konungurinn lætur leggja fyrir alþjngi
og ríkisþingið samtímis, og málið er
nú endanlega komið úr höndnm sam-
bandslaganefndarinnar og hennar manna
til þinganna og þeirra nefnda, sem
þingin væntanlega setja til þess að
íhuga það.
Aðalbreyting frv. frá því sem nú
er, er i stuttu máli þessi:
í stað þess að stjórnarskipun lands
ins, sú sem nú er í gildi, er bygð á
ráðstöfun (delegation) af hálfu hins
danska ríkisvalds á löggjöf og stjórn
tiltekinna sérmála í óaðskiljanlegum
rikishluta, verður stjórnarskipunin, ef
þessi sambandslög verða samþykt, eftir-
leiðis bygð á ráðstöfun íslands sjálfs,
er það gerir sem sérstakt ríki um alla
hagi sina, þar á meðal emnig um
meðferð þeirra mála, sem í þessu
sambandslagafrumvarpi eru talin sam-
eiginleg og að meira eða minna leyti
falin umsjá sambandslandsins fyrir ís-
lands hönd. Það vald, sem dönsk
stjórnarvöld íá til meðferðar í þeim
málum, er léð þeim af íslandi. Þetta
kemur og skýrt fram í frumvarpi því
til nýrrar stjórnarskrár fyrir Island
sem ríki, sem fylgir sambandslaga-
frumvarpinu frá stjórnarinnar hendi.
Eg álít tilgangslaust fyrir mig að
fjölyrða um þetta mál að svo stöddu.
En áður en það fer til nefndar þeirrar,
sem væntanlega fær það til meðferðar,
vil eg nefna nokkur atriði, sem haía
orðið fyrir misskilningi í umræðunum
um málið á undan þingkosningunum
í haust, og skýra frá því, hvern skiln-
ing höfundar frumvarpsins leggja i
þau.
1. Fyrst eru orðin »er eigi verður
af hendi látið«, í i. gr. frv. Þau
hafa verið skilin svo, sem í þeim fel-
ist einhver óbein viðurkenning á rétti
Dana yfir landinu. Þessi orð eru
runnin frá Islendingum í nefndinni —
öllum —, en ekki sett þar eftir ósk
dönsku nefndarmannanna. Þau eru
tekin eftir sambandslögum Svía og
Norðmanna I814, 0g tilgangurinn með
þeim var að slá því föstu, að ísland
væri ríki, en ekki eign eða hjálenda,
sem Danmörk eða Dana konungur
sem slíkur gæti ráðstafað. Þetta var
sett og samþykt áður en við feng-
nm framgengt eða vissum, hvort við
mundum geta fengið framgengt ýms-
um öðrum ákvæðum, sem einnig slá
þessu föstu, og merkir að eins frekari
áherzlu á orðunum »frjálst og sjálf
stætt land«, sem á undan þeim eru.
2. Orðin »veldi Dana konungs«
og »det samlede Danske Rige« i
danska textanum áttu að vera nýnefni
um hið nýja samband milli Danmerk-
ur ogíslands. Tilgangurinn var, að tínna
annað heiti en hingað til hefir verið
notað um Danmörk og Island, annað
en »den danske Stat«, sem ísland eftir
stöðulögunum á að vera hluti af. Þetta
er heiti á hinu nýja rikjasambandi, en
táknar ekki og hefir aldrei átt að tákna
neins konar innlimun íslands í hið
danska ríki, heldur þvert á móti. Ef
til vill hefði orðið »Monarki« farið
betur, en surnir voru á móti því af
því, að í því heiti gæti verið sérstök
söguleg merking.
3. Orðin i3.gr. 2. lið: »er snertir
ísland sérstaklega* þýða hið sama
eins og þar stæði: »er snerta málefni
íslands, sem ekki er farið með sem
sameiginleg mál eftir lögum þessum« ;
undantekningin nær þannig til allra
ríkjasamninga, sem á einhvern hátt
koma við mál, sem ísland sjálít fram-
kvæmir hið æðsta vald yfir.
4. Orðið »samþykki« i sama lið
þýðir, að íslenzk stjórnarvöld hafi fult
synjunarvald að því er Island snertir
gagnvart öllum ákvæðum í rikissamn-
ingum, er koma við þessi nýnefndu;
mál. Það er að eins fyrir máltizku
sakir, að orðið »Medvirkning« er
notað í danska textanum í þessu sam-
bandi í staðinn fyrir »Samtykke«, en
þýðir sama. Þetta ákvæði takmarkar
svo mjög »delegationina« á meðferð
utanríkismálanna, að engan veginn er
hægt að segja, að þau séu algerlega
sameiginleg.
5. Þar sem stendur í 4. lið 3.
greinar, að aukning á strandvörnum
af Islands hálfu skuli vera »eftir sam-
komulagi við Danmörku*, þá á það
að eins við hið nánara fyrirkomulag
á eftirlitinu. Meðan Danir eftir sam-
bandslögum hafa strandvörzluna á
hendi, bera ábyrgð á henni gagnvart
öðrum löndum, er nauðsynlegt að
samræmi sé í þeim vörnum, er þeir
halda uppi fyrir vora hönd og þeim,
sem vér gerum út sjálfir. Þetta og
ekki annað merkja orðin.
6. Orðið »jafnrétti« í 5. gr. þýðir
sama og »sami réttur að öðru jöfnu«,
eins og tekið er fram í athugasemd-
um nefndarinnar við frv. Það merkir,
að þjóðernið út af fyrir sig skuli ekki
valda misrétti, en að bdðir verði að
öðru leyti jafnt að fullnægja öllum
skilyrðum landslaganna' fyrir því, að
verða réttindanna aðnjótandi.
7. Ákvæðin i 9. gr. um uppsögn
sameiginlegra mála, sem mér fyrir
mitt leyti virðast vera full-ljós, merkja,
að konungur kveður á um sambands-
slit í hinum sameiginlegu málum,
sem þar eru nefnd, alt samkvæmt
hinni framkomnu tillögu um það,
eða, ef bæði alþingi og ríkisþingið
gera tillögur um þetta efni, þá sam-
kvæmt þeirri tillögunni, sem lengra
fer.
Eftir samkomulagi milli Neergaards
forsætisráðherra og mín býst eg við
að þjóðþingið hafi sett nefnd í þetta
mál, og sé hér sett nefnd í dag, geta
nefndirnar upp frá þessu með ritsíma-
skeytum borið sig saman um það,
sem vafasamt kann að þykja, og
leitað samkomulags, ef svo ber undir.
Eg ætla því ekki að tala um málið
frekara að sinni; eg vona fastlega, að
það verði af öllum hlutaðeigendum
tekið til rólegrar og stillilegrar yfir-
vegunar, og alt sem að því lýtur at-
hugað með gætni og glöggu auga,
án ofurkapps og hleypidóma; vona
eg að hátív. meiri hluti muni, að
það er ekki að eins á hans v a 1 d i,
heldur og á hans á b y r g ð, hvort
landið á að verða aðnjótandi þeirrar
stórkostlegu réttarbótar, sem hér er
kostur á, eða fara á mis við hana
urú langan aldur eða að öllu leyti.
Skúli Thoroddsen kvað óþarft
að tala langt um þetta mál, svo marg-
rætt sem orðið væri. Þólti lands-
stjórnin eigi hafa sýnt sig jafnóhlut-
dræga sem vera átti, er hún hefði að
eins látið simrita til íslands álit
meiri hluta millilandanefnarinn-
ar og eins látið sér nægja að birta
þ a ð eitt í Lögbirtingablaðinu, i stað
þess að þjóðin hefði átt heimting á
að fá samtímis að heyra álit minni
hluta nefndarinnar.
íslenzku nefndarmenn meiri hlut-
ans hefðu látið mjög drýgindalega
yfir því, þegar Sk. Th. bar fram breyt-
ingartillögur sínar í nefndinni, að þær
mundu eiga litlum byr að fagna á
íslandi, og meðal annars hefði einn
þeirra kveðið svo að orði við dönsku
nefndarmennina: Seks trækker bedre
end én; þ. e. að sex dragi meira að
sér en einn. Sk. Th. kvað það gleðja
sig, að raunin hefði orðið önnur við
kosningar.
Hann kvað sér hafa gengið það
aðallega til, er hann kom fram með
breytingartillögur sínar, að i Uppkast-
inu fælist uppgjöf á þeim réttindum,
sem vér nú hefðum, og-teldum oss eiga:
tilkall til. T. d. gætu íslendingar nú,
eftir stöðulögum og stjórnarskrá, skip-
að fiskiveiðamálum og annari atvinnu-
löggjöf svo sem sýndist þeim, og
því heimilað íslendingum sérréttindi;
fram yfir Dani, ef þeim sýndist svo.
Sama væri og um það, að íslend-;
ingar gætu nú tekið sér hvaða verzl-
unarfána sem þeim sýndis, en öðru
máli gegndi, ef Uppkastið yrði sam-
þykt.
Þá veik hann orðum að, hver hætta
væri fólgin í jafnréttisákvæði Upp-
kastsins, ekki sizt þar sem frumvarpið
gerði ráð fyrir, að því yrði aldrei
haggað.
Það virðist nokkuð hjáleitt, að fela
Dönum hervarnir og utanríkismál vor
um aldur og æfi samtímis þvi, að
Danir ætluðu íslandi að verða
fullvalda riki, og færi svo, að sjálf-
stæði Danmerkur yrði hætt, t. d. af
ófriði i Evrópu, þá væru íslendingar
miklu ver farnir, ef frumvarpið yrði
samþykt, og viðbúið að ísland yrði
þá ekki talið vera annað en ríkishluti,
er að sjálfsögðu yrði að fylgja Dan-
mörku.
Þrátt fyrir það þó að nefndarmenn-
irnir dönsku hefði látið svo í veðri
vaka annað veifið, að íslandi væri
ætlað að vera sjálfstætt ríki, hefðu
þeir þó verið ófáanlegir til að taka
upp um það ljós ákvæði, og felt
breytingartillögu sína (Sk. Th.), þess
efnis, og ekki fengist til að nota orðið
Statsforbund (ríkjasamband) í 1.
gr. frumvarpsins, en kosið heldur
Statsforbindelse (rikiseining).
Það væri af sömu rótum runnið,
að ekki hefði mátt nefna á nafn í
frumvarpinu sérstakt, íslenzkt land-
helgissvæði, heldur notað orðið Sö-
territorium til þess að alt skyldi
benda sem bezt á það, að ríkið væri
eitt.
Það væri talinn aðalábatinn við
Uppkastið, að ísland fengi full ráð
sérmála sinna.
En þetta væri reyndar lítilla þakka
vert, er þess væri gætt, að Danir
hefðu trygt sér með Uppkastinu jafn-
rétti til fiskiveiða og atvinnureksturs
hér yfirleitt; en einmitt vegna atvinnu-
málanna hefðu þeir þózt þurfa til
þessa að hafa hönd í bagga með sér-
málalöggjöf vorri.
Um undirskrift undir skipun íslands-
ráðgjafa væri það naumast vafasamt,
að henni mundi nú hér eftir fást hag-
að svo sem íslendingar óskuðu sér,
og um afskifti Dana af sérmálalöggjöi'
vorri skifti það mestu, hversu á væri
haldið af íslendinga hálfu.
Aðal-ágreiningur milli stjórnar og
sjálfstæðismanna væri sá, að stjórnin
teldi ekki meira fáanlegt en það sem
í Uppkastinu stæði, og vildi jafnharð-
an taka því sem fáanlegt væri, þar sem
vér sjálfstæðismenn vildum á hinn
bóginn eigi loka neinum sund-
um, en hamra á og bíða betri tíma,
í þvi örugga trausti, að ekki væri ti
engis beðið, heldur hlytum vér íslend-
ingar að ná fullum réttindum vorum,
er stundir liðu.
Réttaróvissan sú, sem nú væri á um
ríkisréttarlega stöðu Islands (ólögleg
upptök stöðulaga og stjórnarskrár) væri
i slendingum til hagnaðar í baráttunni.
Skilningur Dana á málinu hlyti að
skýrast smám saman, þótt örðugt gengi
fyrstu, og þeim að leiðast þófið og
áta undan, svo að vér fengjum sið-
::erðislegan rétt vorn að lokum.
Ráðherra héldi því fast að þjóðinni,
að samþykkja Uppkastið, og vildi þar
með binda hendur eftirkomendanna.
En þessari stefnu hans hefði mikill
meiri hluti þjóðarinnar tjáð sig and-
vígan og kosningaósigur stjórnarinnar
10. sept. síðastl. sýndi ótvírætt, að
ráðgjafi hefði glatað trausti með þjóð-
inni; enda mundi framkoma hans i
sambandsmálinu ekki eiga hvað síztan
þátt í því.
í samræmi við þennan yfirlýsta þjóð-
arvilja kvað hann meiri hluta þings
hafa falið sér að lýsa yfir því, að vænt-
anlegar væri mjög bráðlega úr báðum
deildum þingsins þingsályktunartillög-
ur, er lýstu vantrausti meiri hluta þings
og þjóðar á núverandi ráðherra.
Jón Þorkelsson: Eg skal
ekki að svo komnu fara mikið út í
einstök atriði þessa máls, snúa mér
heldur að því, hvernig uppkast þetta
er orðið til og undir komið. Menn
hafa að minu áliti með atferli þessa
máls farið götuvilt.
Þegar ísland gekk undir Noregs-
konung, samdi það við konung e i n n,
en engan annan. Það gaf sig ekki
undir Norðmenn, heldur N o r ð-
m a n n a k o n u n g.
Þau réttindi sem landið tók með
sáttmálanum hinum forna, hefir það
aldrei afsalað sér til annarrar þ j ó ð a r.
Þegar landsmenn gengu undir ein-
veldið í Kópavogi 1662, fengu þeir
ekki Dönum í hendur réttindi sin til
meðferðar, heldur l é ð u þeir þau
k o n u n g i Dana og Norðmanna.
Landið hafði verið frá því er það
bygðist, og þjóðfélagsskipun komst
hér á, sjálfstætt og full-
valda ríki. Á þessu varð engin
breyting gerð með Gamla Sáttmála.
Landið var sjálfstætt ríki eftir sem
áður. Og þeim rétti hefir það aldrei
afsalað sér. Og ekki heldur í Kópa-
vcgi, heldur léði það konungi ein-
valdsstjórn mála sinna svo sem h i n
konungsríkin, Danmörk og Noregur.
Landið hefir aldrei fengið öðrum
en k o n u n g i neitt vald yfir sín-
um málum og á því að réttu lagi við
engan um heimting á ráðum yfir mál-
efnum sínum nema k o n u n g.
Þessu hefir og lengi verið haldið
fram af íslendingum. En aldrei hefir
það komið kröftuglegar fram en 1871,
þegar ríkisþingið danska gaf út með
ofríki lögin um stöðu Islands í ríkinu
án þess að íslendingar væru um spurð-
ir eða fengi nokkru um það ráðið.
Því að strax á alþingi um sumarið
lýstu íslendingar yfir því, að Danir
hefði ekkert átt með slikt löggjafar-
verk og mótmæltu lögum þessum.
En á síðasta áratug 19. aldar tók að
brydda á því, þegar seint þótti sæk-
jast lagfæring og endurbót á stjórnar-
skránni, að menn fóru að hreyfa því,
að nefnd væri skipuð af mönnum úr
báðum þessum þjóðlöndum, til þess,
að koma sér niður á sambandið milli
landanna.
Háværar raddir tóku síðar að heyr-
ast um þétta í stöku blaði, og í þing-
mannaförinni til Danmerkur 1906
gerðist það undirtal, að til slíkrar
nefndar skyldi stofnað verða, og varð
það að verki 1907.
A þenna hátt er frumvarp þetta
undir komið, og er nú lagt bæði fyr-
ir ríkisþing Dana og alþingi íslendinga.
íslendingar hafa hér hleypt sér út
á þá stigu, sem eru glapstigir og
villigötur. Islendingar hafa aldrei átt
við ríkisþing Dana neitt að semja um
samband landanna. Þ a ð e i n a í
æssu máli, sem gat verið samnings-
atriði við ríkisþingið, var um það, er
snerti fjárgreiðslur af Dana hendi.
En þó að Uppkast þetta sé nú fram
comið á þenna hátt, og máli þessu
comið í svo öfugt horf, sem nú hefi
eg talið, sé eg þó ekki að svo gervu,
að ekki megi setja nefnd í málið því
til athugunar.
Mál þetta hefir nú verið þaulrætt
hér á landi um hríð, og skal eg því
ekki fara mikið út í einstök atriði
æss, enda mun þess enn verða kost-
ur þótt síðar sé.
Þó vil eg geta þess, að eftir þessu
l'rumvarpi verður ekki séð að landinu
sé ætlað að vera ríki og því síður
fullvalda ríki. Orðið ríki kemur
hvergi fyrir í öllu Uppkastinu. Þar
er einungis sagt, að það skuli vera
»land«,sem að vísu getur þýtt í viss-
um samböndum nokkurn veginn sama
og ríki, en í þessu sambandi þarf
engin slik merking í því að liggja.
Hér lá einmitt á, að orðið r í k i stæði,
ef landinu var í raun og veru ætlað
að v e r a ríki.
Sá einn staður í athugasemdum við
frumvarpið, þar sem helzt kynni að
vera að því vikið, að riki væn nefnt
á nafn, er einnig svo lagaður, að á
honum er ekkert að byggja. Þar er
að eins sagt, að ísland verði eftir
þessu frumvarpi nokkurs konar s æ r-
1 i g S t a t.
Orðið S t a t getur að vísu þýtt
ríki. En það getur líka þýtt fylki í
öðru ríki, sem ekki hafi neitt sjálf-
stæði annað en stjórn nokkurra mála
sinna.
Orðið M e d v i r k n i n g í 2. Iið
3. greinar þarf að mínu viti öldungis
ekki að þýða samþykki, eins og ráð-
herra vill láta það þýða. Það þarf
blátt áfram ekki að þýða annað en
»meðverknað« eða tilstyrk. En til-
styrk verða menn stundum að veita
nauðugir og ósamþykkir, þar sem
við þann er að eiga, sem öflugri er.
Skipun gerðarmannanna í 8. gr.,
þar sem ætlast er til að oddamaður
sé dómsforseti hæstaréttar Dana, ber
óneitanlega einhvern keim af ákvæð-
um þeim, sem stóðu í hinu alræmda
frutnvarpi Danastjórnar til stjórnskipu-
laga fyrir ísland, sem lagt var fyrir
þjóðfundinn 1851.
Þar stóð klausan sú: ef alþingi og
ríkisþingið danska greindi á um það,
hver mál heyrði undir alþingi, þá
skyldi ríkisþing Dana úr skera.
Eg skal ekki leggja harðan dóm á
aðgerðir ísl. nefndarmannanna í milli-
rikjanefndinni. En sárt þykir mér að
sjá það, að ekki er annað að merkja
en að taflinu sé svo snúið við, að
þekkingin sé orðin Dana megin á
þessu máli, en vanþekkingin
íslendinga megin. Hvað hörðum
höndum íslendingar hafi unnið í
nefndinni, læt eg ósagt. En borist
hefir mér til eyrna sú saga, að dr.
Knud Berlin hafi skorað á einn af
ísl. nefndarmönnunum — og það
einn af þeim, sem ekki er hvað minst-
ur fyrir sér, að minsta kosti að hans
eigin áliti — að svara hinni síðari
ritgerð sinni, er fylgir gerðum nefnd-
arinnar. Hafi þá maður þessi afsakað
sig með því, að hann mætti ekki
vera að því af því, að hann væri boð-
inn í miðdegisverði á 26 stöðum
og þá mætti hann ekki undir höfuð
Ieggjast.
Ef þetta er satt, — eg sel það ekki
dýrara en eg hefi keypt —, þá gæli
verið umtalsmál, hvort það væri að
vinna trúlega í v i n-garði föðurlands-
ins.
Messur i dómkirkjunni 4 morgun: Á
hádegi: sira Skúli Skúlason i Odda. Síð-
degismessa kl. 5 sira Rnnólfur Runólfsson.
Föstugnðsþjónusta á miðvikud. kl. 6 siðd.
sira Bjarni Hjaltested.