Ísafold - 02.06.1909, Síða 3
ISAFOLD
131
Amerísk blöð umlsland.
Skemtiferðir handan um haf?
Dönsku blaöi meiri háttar (Aalborg
Stiftstidende) segist svo frá 25. f. m. —:
Amerískum blöðum virðist ekki standa
á sama um sambandsmál Danmerkur og
íslands. Dagblaðið mikla T h e D e -
troit News, eitt af forvígisblöðum
sórveldiamanna í Norðurríkjunum, lysir
t. d. í síðustu viku ítarlega hinu nú-
verandi ástandi, og sn/st algerlega í lið
með andstæðingum Dana; segir að Dan-
mörk hafi ekki haldið heit sín við ís-
land, og einkum hafi hún steypt land
inu í fátækt á því, að einoka verzlun-
ina.
»Þótt ísland liggi raunar nokkuð af-
skeiðis venjulegri þjóðleið ferðamanna,
varðar það þó miklu Yesturheimsmenn
sakir fornsagnanna, sórkennilegrar nátt-
úru og fornrar andlegrar menningar, og
síðast en ekki sízt sakir þess, að frá ís
landi komu fyrstu Norðurálfumenn til
Ameríku, og þangað var það, er Kólum-
bus hólt fyrst til að leita sór vitneskju
um, hvað við tæki vestur á bógnum«.
Líkt hafa farist orð öðrum blöðum.
í síðasta tbl. af The Saturday
Evening Post — vikublaði með
myndum, sem selt or í meira en miljón
eintökum um þvera og endilanga Ame-
ríku — hefir Hamborgar-Ameríkulínan
(samgöngufélagið) birt stóra auglýsing
um það, að til hius fagra íslands og
Noregs fari nokkrum sinnum í sumar
nýtízku skemtiferða gufuskip, er hentugt
samband hafi frá Ameríku við skip fó-
lagsins frá New-York.
Fjársjóðir 1 féhirzlu pátans kvað vera
páfans. meira gull saman komið,
en alt það er gengur manna
á milli í allri Evrópu.
Eignir Abduls Abdul Hamid, fyrver-
Hamids. andi Tyrkjasoldán, er
talinn auðugastur allra
þjóðhöfðingja. Nýlega voru opnaðar
leynihirzlur hans i Yildiz-Kioskinum.
Þar fundust gimsteinar og gersemar,
15 mi!j. kr. virði. Ennfremur fund-
ust þar rikisskuldabréf, sem metin eru
á 950 miljónir kr.
Abdul Hamid þýðir »hinn heiðraði
þræll*. Hér er átt við þræl Allahs
(guðs). Annars ætti nafnið illa við
um »drottinn rétttrúaðra manna«.
Reykingar tneðal Mestur »reykháfur«
konunga og drot allra þjóðhöíðingja
ninga. í Evrópu, síðan Áb-
dul Hamid ieið, er
Franz Jósef, Austurríkiskeisari. Eliza-
bet, kona hans, reykti og mest allra
drotninga, meðan hún lifði. Nú er
það keisaraekkjan rússneska, Maria
Feodorowna, systir Eriðriks Danakon-
ungs. Hún svælir um 50—60 vind-
linga á dag.
Nýtt tróllskip. Eimskipafélagið »White
Star« hefir nýlega látið
smíða gufuskip eitt heljarstórt. Skipið
er 880 fet á lengd og 92 fet á breidd
og leikur sér að því að renna 5^/2
mílu á einum klukkutíma.
Spilabankinn I spilabankanum alræmda,
i Monaco. íMonteCarlo, eru margir
tignir gestir. Þar eru nú
staddir ekki færri en 20 prinsar, 10
prinsessur og 14 miljónaeigendur.
Saltgerð. Stærsta saltsmiðja heimsins
er Manistee. Þaðan flytjast
250,000 pd. salts út í heiminn á degi
hverjum.
Þjóðráð við í Zúrich í Sviss notuðu
hjónaskilnaði. menn fyrir eina tið all-
einkennilegt ráð til þess
að láta hjón hætta við að skilja. Ef
hjón komu og heimtuðu skilnað, voru
þau lokuð inni í turni einum og voru
þar hvert út af fyrir sig. Þau höfðu
lítið herbergi með mjóu rúmi, einu
borði og einum stól og matur var
þeim færður inn um gat á veggnum.
Þegar þau höfðu hafst við þarna 8
daga, var það venjan, að þau beiddu
um útgönguleyfi, og svo urðu þau
fegin að sleppa, að þau gengu að þv
að taka saman aftur. En ef einhver
sat i fangelsinu 14 daga án þess að
hætta við skilnaðarkröfuna, var álitið,
að honum ætti að veitast hjónaskiln-
aður. Menn trúðu lengi á þessa turn-
vist, hversu nauðsynleg og sáttvæn
leg hún væri og fullyrtu, að hjónum
dytti aldrei hjónaskilnaður i hug framar,
ef þau hefðu verið í turninum.
Erlend tíðindi.
--- Kh. 22/5-
Frá Tyrklandi.
Ungtyrklr taka vlð sljórn, Soldán
vinuur eið að stjórnarskránni.
í Tyrklandi má nú heita, að alt sé
fallið í ljúfa löð. Tewfik Pasja, sá er
áður hefir nefndur verið, afiurhalds-
stórvesír og stórgæðingur Abdúls
gamla, varð að hröklast úr tigninni
sem von var. Stórvesír er orðinn
aftur í hans stað Ungtyrkjaöldungur-
inn Hilmi Pasja, sá er varð að láta
af því embætti í byltingunni fyrir
afturhaldsgjörræði soldáns.
Þetta hefir gerst þar síðan er sein-
ast var ritað, og ennfremur hefir
Múhamed hinn 5., soldáninn nýi,
unnið eið að stjórnarskránni í viður-
vist þingmanna. Það gerði og Abdul
Hamid, en þess vænta menn, að þessir
eiðar verði tryggari en hans, enda er
nýi soldáninn sagður maður friðsamur
og deiggeðja, — veiklaður af lang-
vinnu fangelsi.
Enn er það, að þingið á Tyrklandi
hefir samþykt að fullu samning þann
við Búlgaríu, er Tewfik Pasja skrifaði
undir. Er því öll misklíð milli ríkja
þessara úr sögunni, að minsta kosti
í bráðina.
I»ýzkalan<l og Bretlancl.
Ófriðarurgur.
Nú um langan tíma hefir verið
allkalt á milli Bretlands og Þýzka-
lands. Segja menn, að fyr eða síðar
komi að því, að til ófriðar dragi milli
stórvelda þessara. Bæði ríkin auka
flota sinn og vigbúnað sem mest má
verða. Játvarður Englakonungur hefir
ferðast um flest þjóðlönd Norðurálf-
unnar og gert samninga við valdhafa
um vináttusamband og styrktar við
Bretland. En gengið hefir hann jafn-
an fram hjá Þýzkalandi og er engu
líkara en að leikur þessi sé til þess
gerður að einangra Þjóðverja til þess
að hægara verði að yfirstíga þá
ófriði. Þetta vita Þjóðverjar og er
þeim illur kurr. Hins vegar fara
sögur af því að flotabúnaður Englend-
inga sé ekki í góðu lagi sem stendur.
Þess vegna þykir ekki ósennilegt að
Þjóðverjar gangi á lagið og ráði á þá
þá og þegar. Báðir eru við öllu búnir
og hljóðskraf og hvíshngar láta hærra
og hærra í eyrum.
Loftskipagerð er hjá Þjóðverjum á
háu stigi. Á ríkið að sögn fjölda
slíkra skipa. Þetta þykir Bretum var-
hugavert í meira lagi. Vita þeir eigi
nema skipin séu vígbúin og geri að
þeim stórskotahríð ofan úr loftinu.
Núna undanfarið hafa margir Eng-
lendingar séð loftskip hátt uppi
loftinu, sem vindla í lögun, svífa ti
og frá yfir landinu. Ætla margir, að
hér séu Þjóðverjar komnir og fari
njósnandi. Ennfremur drótta Bretar
því að Þjóðverjum, að þýzka stjórnin
geri út árlega snuðrara, svo að þús-
undum skifti, til Bretlands. Er þetta
hvorttveggja notað mjög til æsinga
meðal brezkra kjósenda og unnið að
eflingu flotans hnúum og hnefum.
Um loftskip þessi segja aftur aðrir,
að það séu alinnlendar vélar, sem
verið sé að reyna.
En hvað sem því líður, verður eigi
annað séð en að kuldinn vaxi óðum
milli ríkjanna. Frostbrestirnir láta
hátt báðum megin.
Verklöll a Frakklaudi.
Þar hefir ekki gengið á öðru en
verkföllum núna undanfarið. Einkum
eru það póstmenn og símþjónar, sem
hafa gert hvert verkfallið á fætur öðru.
Ekkert hafa þeir þó á unnið, því að
stjórnin hefir tekið á þeim ómjúkum
höndum, rekið verkfallsmenn með
öllu úr vistinni og tekið nýja í stað-
inn. Eru verkföllin hætt um sinn;
Clemenceau forsætisráðgjafi hrósar sigri
og hefir enn einu sinni hlotið trausts-
yfirlýsingu þingsins.
Reikningspraut. Embættismaður einn
í ríkisbankanum þýzka
refir nýlega fundið upp einkennilega
og handhæga aðferð til þess að borga
út peninga. Hann hefir reiknað út,
að ef 1000 markpeningum er skift
niður í tíu poka, er hægt að borga
út af þeim hverja fjárhæð, sem vera
skal, frá 1 og upp í 1000 mörk (1
mark = 90 aurar), án þess að opna
nokkurn pokanna. Tölurnar í hver-
jum poka eru þessar: i--j—2—}—4—J—8—}—
16-}- 32-4-64—)-128-}—2 56-4-489 mark-
peningar = 1000 mörk. Ef t. d. á
að borga út 777 mörk er ekki annað
en þrífa til þriggja poka, þeirra, er
hafa að geyma 489, 256 og 52 mörk.
Búist er við, að þessi aðferð verði
notuð framvegis i bönkum við smá-
útborganir.
Nefskattur á Þingið í Búlgariu hefir
piparsveinum. samþykt að leggja 10
kr. skatt árlega á alla
ókvænta menn 30 ára og þaðan af
eldri. Sams konar skattur er og á
piparsveinum í ríkinu Maine í Norður-
Ameríku. Þó er þeim hlíft við skatt-
inum, ef þeir geta sannað, að þeir
hafi verið hryggbrotnir 3 sinnum.
Flestir kjósa heldur að greiða skattinn.
Mómýrar. Ef þurkaðar væri upp all-
ar mómýrar á Þýzkalandi,
mundi meðalhiti landsins vaxa um
S—6 stig.
Stjórnarskrá. Einu sinni flyktust þegn-
ar Ferdinands II. kon-
ungs í Neapel utan um höll hans og
heimtuðu stjórnarskrá. Konungur
brosti vingjarnlega til þeirra af hallar-
svölunum og spurði:
»Hvað viljið þið, börnin mín?«
»Við viljum hafa stjórnarskrá !c
»Er það alt og su nt. Ekki tekur
að láta svona þess vegna. Eg skal
gefa ykkur hana og þó að þið viljið
tvær eða svo margar sem ykkur lang-
ar til.
Og þegnarnir fyltust aðdáun og
hrópuðu: »Lifi kongurinn, lifi stjórnar-
skráin!« Og lýðurinn hélt burt sigri
hrósandi. En Carbonari sat eftir með
sárt ennið. Hann hafði æst upp þjóð-
ina, en hún vissi bara ekkert hvað
stjórnarskrá var og skildi því ekki
háð konungs.
'Ánamaðkar geta orðið um 3 álnir
'Astralíu á lengd. Þeir eru not-
aðir til manneldis og
þykja dýrindisfæða.
Dýrar í London voru seld nýlega
myndir. á uppboði gömul listaverk
fyrir afarverð. Dýrust var
kvenmynd ein eftir Raeburn. Hún
fór á 140.900 kr. Landslagsmynd
eftir Gainsborough fór á 120.500 kr.
Sama mynd hafði verið seld árið 1857
á 9000 kr. Ennfremur var á þessu
uppboði seld mynd eftir Jan Steen
fyrir 34.000 kr. og önnur eftir O-
stade á 27.500 kr.
í París voru seldar nýlega tvær
myndir eftir Rubens, önnur á 60.000
kr. en hin á 38.000 kr. Ennfremur
mynd eftir J. Ruysdael fyrir 27.000
kr., eftir Tocqué á 28.500 kr. og
mynd eftir Wouwermann á 25.000 kr.
Ibúatalan í er orðin um 4% miljón.
New-York Hefir hún vaxið um hálfa
miljón á fjórum árum.
Þar er misjafn sauður í mörgu fé,
menn aí öllum þjóðum. Þjóðverjar
og þeirra börn eru um 1.800.000,
írar 1.200.000, nærri x/2 milj. ítala
og 750,000 Gyðingar.
Blaðið »Daily Expressc getur þess
og, að einnig séu til Ameríkumenn
New-York.
Mannalát. Hinn 4. maí siðastliðinn
andaðist i Landakotsspítalannm i Reykja-
vik trésmiður Jóhannes Böðvarsson, ætt-
aður úr Þver&rhlið i Mýrasýslu. Foreldr*
ar hans vorn Böðvar Jónsson og Ingibjörg
Pétursdóttir, systir Hjálms Péturssonar, er
um eitt skeið var alþingismaður Mýra-
manna.
Ingibjörg var góð kona, greind og merk,
misti maDn sinn frá barnahóp óuppkomnum
og bjó sem ekkja i Örnólfsdal við þröngan
efnahag. Þar ólst Jóhannes upp, unz hann
réðst trésmiðanemi til Magnúsar trésmiðs
Ólafssonar í Reykjavik. Að loknu námi
stundaði hann húsasmiði, nálega eingöngu
til sveita. Hann var prýðilega fær i iðn
sinni. Að kirkjusmíði vann hann að Mæli-
felli i Skagafirði, Útskálum, Hjarðarholti i
Dölum og viðar. íbúðarhús smiðaði hann
allmörg á prestssetrum og meiri háttar
bændabýlum.
Að upplagi var hann atgervismaður til
likama og sálar; hraustur og vaskur, skýr-
leiksmaður mikill og stálminnugur; gaman-
samur var hann, fyndinn nokkuð, og fáir
kunnu framar honum skritlur, né sögðu þær
betur en hann. Grandvar maður var hann
að innræti, lundhreinn og trygglyndur; dýra-
vin var hann mikill, einkum hesta ; engum
manni hygg eg hann hafa verið meinsam-
an, nema sjálfum sér. Hjátrú hans á gagn-
semi áfengisins varð meinvilla hans, og
varð drykkfeldnin að sorglegum giftuspilli
miklum atgervis- og drengskaparmanni þar
sem Jóhannes var. —
J. P.
J^AREÐ borið hefir verið um bæ-
inn að andlitssjúkdómur sá er
eg hef, sé berklaveiki, og þareð eg nú
er tekin við útsölu Viðeyjarmjólkur
lér í bæ, þykir mér ástæða tilað birta
eftirfarandi vottorð frá Guðm. lækni
Magnússyni þessu viðvíkjandi:
Reynið
Boxcalf-svertuna Sun; þér brúkið
ekki aðra skósvertu úr því.
Hvarvetna á íslandi hjá kaupmðnn-
um.
Buchs litarverksmiðja,
Kaupmannahöfn.
MARTIN JENSEN
KJÖBKNHAVN
garanterede ægte Vine og Frugtsafter
anbefales.
Hotei Dannevirke
i Grundtvigs Hus
Studiestræde 88 yed Raadhuspladsen, Kðben-
havn. — 80 herbergi meb 180 rúmum á 1 kr. BO
a. t41 2 kr. íyrir rúmib meb ljóai og hita. Lyfti-
vél, raf magnslýsing, miðstöðvarhitun, bab, góður
matur. Talaimi H 900. Yirbingarfýlat
Það vottast hérmeð, að hörunds-
tvilli sá, sem Rebekka Hjörtþórsdóttir
íefir í andliti, á að mínu viti ekkert
skylt við berklaveiki.
Rvík i.—6.—'09.
G. Mag'nusson,
læknir.
Peter PeHer.
Vegtr
if ðtt—1 stæeðwn of geeðeMB, fyrii
ðnað, verzlun og lancfeéaai.
Verðskrár ákeypfs.
Andersmi & Jensens
Vægtfabrik.
Kjöbenhavn.
Siðastliðinn vetur kom fyrir lamb
út í Grafningi með mínu marki: tví-
stýft aftan biti fr. hægra og tvær stand-
fjaðrir aftan vinstra. Lamb þetta á eg
ekki. Réttur eigandi getur því gefið
sig fram, sem fyrst, og fengið. and-
virði lambsins, að öllum kostnaði frá
dregnum; ennfremur samið við mig
um markið.
Kolsholti 25. maí 1909.
Vigfús Ingv. Sigurðsson.
Skipstjúíafl
íshúsið á Sandi (steinsnar fyrir
innan Öndverðanes) selur freðna síld
og ís, og kaupir nýja síld.
THE
NORTH BRITISH ROPEWORK Co.
K i r k c a 1 d y
Contractors to. H. M. Govemment
búa til
rússneskar og italskar
figkilínur og færi,
alt úr bezta efni og sérlega vandað.
Fæst hjá kaupmönnum. Biðjið því
ætíð um Kirkcaldy fiskilinur og
færi, hji kaupmanni þeim er þér
verzlið, þvi þá fáið þér það sem bezt er.
Blekbyttur
fást í bókverzlun Isafoldar.
líONlMGL. HIRB-VEBKSMIhJA.
BræSnrnir Cloetta
mæla með sinum viðurkendu Sjókólaðe-teg unduL.1 sem eingöngu
eru búnar til úr
Jinasta cffiafiaó, Syfiri og ^Janiíla.
Ennfremur áakaópúlver af beztu teguud. Ágætir vjtnis-
burðir frá efnafræðisrannsóknarstofum.
Peninga-umslðg afarsterk fást í bókverzlun Isafoldar.
= Cigar- og Tobaksfabriken D A N M A R K =
Niels Hemmingsensaade 20, Köbenhnvn K.
Telf. 5621. — Grnndlagt 1888 — Telf. 5621.
■7* 8törste Fabrik i Landet for direkte Salg til Forbrugerne. -Igjf
Yed Köb af Tohak givea 32 % Rabat og pr. 9 Pd. franco Bane. over 10
Pí. ekstra 6 °/0 uden gratis franco. Toldforhöjelse 18 Öre netto pr. Pd.
Forlang Fabrikens Prtskurant med Anbefalinger.
C//. »
Kegleform, V» Brasil. 3 Kr. 50 Öre pr. 100 Stk.
16 Kr. 62 öre pr. 500 Stk. 31 Kr. 50 öre pr. 1000 Stk.
Toldforhöjelse 25 öre netto pr. 100 Stk.
.injog miKiar nnrgöir at alls konar
efni, smíðatólum og tölvélum
fyrir smiðavérkstæði, vélaverkstæði og vél
verksmiðjur. Alls konar vélar fyrir tr
smíðaiðnað, t. d. bandsagir, stillarar o. fl.
Biðjið um verðskrár vorar mtð myndum.
Nienstædt & Co.
Vestre Boulevard 20. Köbenhavn I