Ísafold - 20.04.1910, Síða 2
90
IS A F 0 L D
4*
« « « « « « « « « 25 hr. í boði fijrir íífið baticfarvih. Ráögert er að nýjar Ulenskar ttúdenta- húfar verði teknar upp. SendiO fyrir- myndir til undirritaðs fólags fyrir 14 mai n. k. Fyrir þá tyrirmynd, er gild verður tekin greiðast 25 kr. Styðjið þjóðlega viðleitni. „Tramtíðin,, Mentaskólanum. ► ► ► ► ► ► ► ► ► ► ► ► ► ► ► ► ► ► ► ►
■
frá landi og út að Örfirisey (700 stik-
ur á lengd). Hann á að kosta 257000
kr. Annar skjólgarður skal gerður
suðaustur af Örfirisey (480 stikur á
lengd). Hann á að kosta 650000 kr.
Þriðji skjólgarðurinn loks út frá Batt-
aríinu, austan við vörina fyrir austan
skansinn, í norðvestur, (265 stikur á
lengd) og kostar 315000 kr. — Þessir
skjólgarðar eiga að geta varið höfnina
fyrir öllum vindum að hans dómi.
Þegar búið er að reisa þessa skjól-
garða verður opið inn á höfnina 180
stikur.
Enn ætlast hann til, að reist verði haf-
skipabryggja úr timbri, vestanvert við
steinbryggjuna, sem 4 gufuskip geti
legið við í einu, 150 stikur á lengd,
15 á breidd og kostar 128,000 kr.
alls.
Þá ætlast hann til, að grafinn
verði áli inn að bryggjunni, frá hafn-
aropinu, sem verði hvergi grynnri en
5 stikur. Það áætlar hann, að muni
kosta rúm 200 þúsund kr., en í þeirri
fjárhæð er fólgið verðið á leðjuvél
(mudringsmaskine), sem bærinn fram-
vegis getur haft mikilsverð not af,
þegar hann vex og þarí að stækka
höfnina. Þessi vél er afardýr (140000
kr.), en Smith telur ekki umtalsmál,
að það borgi sig miklu betur fyrir
bæinn að kaupa hana en leigja.
Vestast í höfn þessari, í horninu
milli grandans og lands, ætlast hann
til, að gert verði báta- og þilskipalægi,
sem muni kosta 45,000 kr. — og enn-
fremur bryggja fyrir þilskip, 104 stik-
ur á lengd, en 3 á breidd, er kostar
alls 21,000 kr.
Kostnaðurinn við dýrari hafnargerð-
ina í heild sinni verður þá þessi:
Skjólgarður á grandanum kr. 257,000
do. út frá Örfirisey — 630,000
do.-------Battaríinu — 315,000
Dýpkunin út frá hafskipa-
bryggjunni .... — 206,000
Hafskipabryggja fyrir 4
gufuskip...............— 128,000
Báta- og þilskipalægi. ,. — 45,000
Þilskipabryggja .... — 21,000
Ails kr. 1602000
Eftir því sem þörf krefur á síðar
að vera hægt að hlaða upp skipaklöpp
fram með öllum grandagarðinum og
dýpka höfnina áfram eins og vill.
Hin áætlunin, sú ódýrari, gerir ráð
fyrir skjólgarði á grandanum eins og
að ofan greinir. En skjólgarðurinn
út frá Örfirisey, er ekki ætlast til að
verði nema 300 stikur og kosti ekki
nema 290000. — Skjólgarðinum út
frá Battaríinu er alveg slept í þessari
áætlun. Segir Smith, að það, sem
nú geri austanvinda hér á höfninni
svo illa sé það, að með aðfallinu mæti
þeim allmikill straumur, sem kemur
vestan yfir grandann og gerir ólgu
mikla á höfninni. En þegar skjól-
garðurinn er kominn á grandann stöðv-
ar hann strauminn, svo að ólgan
verður engin. Þessvegna telur Smith
ekki frágangssök að sleppa austur-
garðinum í svipinn, ef ráð séu lítil.
Dýpkunarkostnaðurinn verður hinn
sami og í dýrari áætluninni. Haf-
skipabryggjan ætlast hann til að verði
ekki nema 80 stikur á lengd og kosti
því ekki meir en 76000. — Þilskipa-
bryggjunni er slept. Bátalægið áætl-
að 23000.
Ódýrari áætlunin í heild sinni:
Grandagarðurinn. . . kr. 257,000
Örfiriseyjargarðurinn . — 290,000
Hafnardýpkun. ... — 206,000
Hafskipabryggja ... — 76,000
Bátalagi...................— 23,000
Alls kr. 852,000
Þessari ódýrari hafnargerð er þann
veg háttað, að við hana má ætið bæta,
eftir því sem eínin leyfa, unz hún er
orðin eins og dýrari áætlunin ber með
sér. —
Skjólgarðarnir eiga að vera 7 stikur
á hæð.
Aðrar áætlanir en þessar, hefir bæ-
jarstjórnin enn ekki fengið, en heyrt
höfnm vér getið um aðrar og væntum
þess, að geta skýrt lesendum ísafold-
ar frá þeim i næsta blaði eða svo.
Áætlanir Smiths líggja nú fyrir hafn
arnefndinni, en undir haustið býst
borgarstjórinn við, að málið verði lagt
fyrir bæjarstjórnina.
Fullnaðarúrslitum má þó eigi bú-
ast við, fyrr en alþingi hefir fjallað
um málið. Það þarf sem sé ný lög
um hafnargjöld, áður en hægt er að
ráðast i fyrirtækið — og sjálfsagt líka
styrk landssjóðs að einhverju leyti.
Borgarstjóri lætur sér mjög ant um
hafnargerð hér og væntanlega má líka
búast við því, að bæjarstjórnin í heild
sinnivinniaðþessu hafnarmálisvo kapp-
samlega og viturlega sem föng eru á.
Hafnarsjóður nemur nú nærri 80000
kr. og verður hann auðvitað notaður
upp i kostnaðinn, en hrekkur því mið-
ur skamt.
Leikhúsið.
ímyndunarveikin
eftir Moliére.
Því verður eigi neitað, að það er
að gerast framflug með oss íslend-
ingum á marga lund.
T. d. í leiklistinni.
Hvílíkur ódæmamunur á því, sem
sýnt var á leiksviði hér í bæ fyrir
svo sem 12—15 árum — og því,
sem nú eigum vér að venjast.
Þd var nærri eingöngu um smekk-
leysur og andleysur að tefla, — klædd-
ar í hörmuiegan skrípabúning.
Nú er ekki til neins að bjóða fóiki
annað en haldgóð leikrit og nokkurn-
veginn vandaðan leik.
Það er hvorttveggja, að smekkur
fólks hefir batnað og vandfýsni leik-
aranna aukist.
Vér eigum nú á að skipa samvizku-
sömum leikarahóp og vel æfðum,
sem auðsjáanlega ann list sinni og
leggur mikið á sig hennar vegna.
Það er varla hægt að búast við öllu
betur unnu verki af leikaranna hálfu,
meðan leikstarfið er hjáverkavinna,
illa borguð og aðbúnaður allur
eins nauðalélegur og hér gerist —
enn sem komið er.
Og sárt er það, ef leikfélagið trén-
ast upp á starfi sínu og leggur árar
í bát, svo sem heyrst hefir, að kom-
ið geti til mála, þegar þessu leikári
er lokið. — Ef þ e s s i stofn, sem
nú er fenginn, kyrkist og deyr —
þá er hætt við, að leiklist hér á landi
um langt skeið, falli í kaldakol.
Betur, að svo færi ei.
Leikfélagið hefir nú nokkur kvöld
sýnt hinn nafnkunna gamanleik snill-
ingsins Moliére: ímyndunarveikina.
ímyndunarveikin hefir verið leikin
hér einstöku sinnutn áður. — Þeir
menn, er pá sáu hana, ættu að fara
í leikhúsið nú, og bera síðan saman.
Munurinn er mikill.
Það sem maður fyrst rekur augun
í nú, er ramminn utan um leikinn,
hve góður hann er. Góð leiktjöld,
sæmileg stofugögn og — ekki sizt,
r é 11 i r búningar að mestu leyti.
Þegar ímyndunarveikin var sýnd hér
áður meir, báru persónurnar, ef eg
man rétt, búninga eftir nýjustu
Reykjavíkurtízku í stað 17.
aldar búninga — og þótt Rvíkurtízka
sé talsvert á eftir Parísartízkunni —
lætur þó varla nærri, að það muni
mörg hundruð árum!
Mikið er jafnan hlegið að ímynd-
unarveikinni. Svo mörg skringileg
smá-tilvik eru í henni. En »saltið<
í leikritinu fer í raun og veru fyrir
ofan garð og neðan hjá nútíðarmönn-
um. Hinar grimdarlegu árásir á lækn-
ana og vísindi þeirra; napuryrðin og
skopgerðin öll um lærðu mennina —
aðalefnið, sem leikritið er þrungið af,
á nú á tímum svo lítinn rétt á sér,
að þ a ð í sjálfu sér hrífur alls ekki
fólkið.
En sam'ræðulipurðin, hnyttiyrðin,
skoptilvikin á leiksviðinu munu jafn-
an þykja bezti og gómsætasti matur,
— og halda lífinu i þessu leikriti
fremur flestum öðrum.
Aðalhlutverkið, Argan ímyndunar-
veika, hefir hr. Arni L'iríksson. Mestu,
langmestu skiftir, hvernig það er af
hendi leyst. Og Á. E. gerir það að
mörgu leyti mjög vel. Gerfið gott
og framsagan í bezta lagi. Eg hefi
séð einhvern mesta skopleikara Dana,
Sophus Neumann, leika Argan. Hann
lagði áherzluna því nær eingöngu á
að vekja sífeldan hlátur áhorfenda —
fór langt út fyrir eðli hlutverksins
og ýkti afskaplega. En mér finst Á.
E. reyna að forðast það sker, og á
því vinnur leikur hans mikið. Það
er raunveruleg og sennileg mynd,
ímyndunarveiki maðurinn, eins og
Á. E. gengur frá honum.
Friðfinnur Guðjónsson leikur lær-
dómsafkárann á biðilsbuxunum, Kam-
feríus junior sérlega vel, og ef sam-
leikurinn væri betri í þeim kafla leiks-
ins, mundi ljómandi gaman að honum.
— En á því er nokkur brestur. —
Vinnukonan (Toinetta) er í hönd-
um ýrú Stejaníu. Hjá henni eru góð
tilþrif á köflum, en meiru hafði eg
þó búist við af h e n n i, leiksnjöllustu
konunni á árum áður. Það er eins
og hún þori ekki að sleppa sér.
Frekjudósina Toinettu, tekst
henni ekki alls kostar vel að sýna, h ú n
á heima innan um meiri pilsaþyt,
meiri ólæti, meiri strákskap, meiri
hrekkjabrögð, en frú St. G. lætur úti.
Það er of mikil deyfð yfir frúnni,
nema helzt þegar hún bregður sér í
læknishjúpinn.
Hin hlutverkin í leiknum eru lítil
og skifta ekki miklu máli. — Gaman
að sjá, hve snoturlega og skilningsvel
litla telpan Argans ímyndunarveika,
er leikin af Dagnýju Árnadóttur (Ei-
ríkssonar).
Enginn samleikur er á milii kven-
djöfulsins, konu Argans og Nótarsins.
Svo er þó jafnan álitið, að hann eigi
að vera friðill hennar, og ætti hann
að sýna það að einhverju leyti í
verkinu. —
Alt of litið verður einnig úr því
atriðinu, er bróðir Argans rekur lyf-
salann út. Það gerist nærri þegjandi
og hljóðalaust. En fjarri fer, að slík-
úr herra sem lyfsalinn láti visa sér á
dyr fyrr en í fulla hnefa, fyrr en
hann má búast við líkamlegu ofbeldi.
Fulltrúar ástarinnar i leiknum, heima-
sætan og mansöngvarinn, eru ósköp
leiðinlegar persónur frá höfundarins
hendi, einkum mansöngvarínn, og
varla við þvi að búast, að meira vinn-
ist úr þeim hlutverkum, en þau gera
Guðrún Indriðadóttir og Herb. Sig-
mundsson. —
ímyndunarveikin verður síðasti leik-
urinn, sem Leikfélagið sýnir á þessum
vetri. —
Það klykkir vel út!
Og vér skulum vona, að vér fáum
að sjá framan í sömu andlitin og önn-
ur ný og efnileg á næsta vetri.
Ego.
Mislingar(?)
Einn farþeganna á Vestu, Ásgeir
Finnbogason, var fluttur i sóttvarnar-
hús óðar en hann kom í land i morg-
un, með því að á honum voru útbrot
allmikil og grunur leikur á, að misl-
ingar muni vera.
Bæjarstjórnarkosning á Ak-
ureyri. í stað Friðriks heit. Krist-
jánssonar var kosinn bæjarfulltrúi á
Akureyri þ. 24. marz: Hallgr. Krist-
insson kaupfélagsstjóri með 236 atkv.
— Júl. Sigurðsson bankastjóri fekk
H3-
Látin
er 4. þ. mán. á ísafirði frú Jóhanna
Jónsdóttir, kona Torfa Magnússonar
bæjarfógetafulltrúa á ísafirði en móðir
Magnúsar bæjarfógeta, síra Richards
og þeirra systkina. Hún varð 70 ára.
— Mesta ágætiskona.
Sundnám.
»Syndir þú ekkii* er orðin alltíð
spurning meðal unga fólksins, og svo
er komið, að lakara þykir að geta ekki
svarað játandi. — Sennilega hefir ekki
þurft að spyrja svo til forna. Þá mun
sundkunnáttan hafa verið almenn, Fyr-
ir rúmum mannsaldri bar það víst ör-
sjaldan við, að maður sæist synda hér
við Flóann. En þessu fer fram. Nú
eru þeir margir, sem geta fleytt sér í
vatni hér í höfuðstaðnum, og nokkrir
eru þeir, sem furðanlega langt eru
komnir í sundíþróttinni, enda nokkrir
sem synda af og til allan ársins
hring.
Reykjavík stendur vel að vígi með
sundnám. Heitar laugar handa byrj-
öndum og til vetraræfinga, og sjórinn
handa þeim sem »á flot< eru komnir.
— En hversvegna eru hér þá ekki
sundmenn með afbrigðum? Af því
sennilega, að tilsögn hefir vantað, og
af þvi að sjórinn hefir ekki verið not-
aður sem skyldi. Menn lengst af far-
ið í laugar til að synda, en þar er
ekkert svigrúm til æfinga. — En nú
er sundskáli reistur við sjóinn, og
skyldi því mega ætla, að hér yrði breyt-
ing á.
Ungmennafélag Reykjavíkur stofnar
nú til framhaldsnáms fyrir »synda«
menn, karla, konur og unglinga, við
Sundskálann, í maí og júni n. k. —
ef 50 menn fást til námsins, (sbr. augl.
hér í blaðinu). _
'Þar verða kend nýjustu tök við
bringusund, baksund, hraðsund, björg-
un og marvað. — Gjaldið einar 3 kr.
fyrir hvern þátttakanda. Er gert ráð
fyrir, að kenslan fari fram síðari hluta
dags, á kvöldum og á sunnudögum,
svo að sem flestir geti notið hennar.
Björnleikfimiskennarijakobssonmun
vera annar bezt sundlærður maður á
landinu, en hann verður sundkennar-
inn.
Svo að hægar verði aðstöðu við
námið, mun sundskálabryggjan verða
lengd, flotbryggja gerð þannig, aðhægt
verði að steypa sér til sunds á djúpu
vatni úr mismunandi hæð; enn-
fremur verður bátur hafður, svo altaf
megi synda, hvernig sem á sjó stend-
ur.
Ólíklegt þykir oss að fimtíu karlar
og konur láti standa á sér til sund-
náms þessa — og þótt hundrað væru,
— og vonum vér, að árangurinn af
þessu fyrirtæki Ungmennafélags Reykja-
vikur verði sá, að bæjarbúum gefist
kostur á að sjá fjölbreytta sundleika
um það er lýkur náminu,
------>+<------
Islands banki.
Reikningur hans fyrir marzmánuð
er nýkominn.
Viðskiftavelta hans hefir verið alls
2,789,000 kr.
Víxlalánin numið rúmum 2 miljón-
um, sjálfskuldarábyrgðarlán og reikn-
ingslán nær 1266 þúsundum, fasteigna-
veðslán 882 þús., handveðslán nærri
200 þús., lán gegn ábyrgð sýslu- og
bæjarfélaga rúmum 160 þúsundum. —
í verðbréfum átti hann í mánaðarlok
rúm 630 þúsund. — Útibúin þrjú
höfðu til sinna umráða hátt upp í 2
miljónir.
Bankinn skuldaði 3 milj. í hlutafé,
rúm 1850 þúsund í innstæðu á dálk
og með innlánskjörum, erlendum bönk-
um og öðrum skuldheimtumönnum
rúm 1140 þús. — Bankavaxtabréfin
námu 980 þús. Seðlar í umferð voru
í mánaðarlokin c. 569 þús., varasjóð-
ur rétt að segja 140 þúsund.
Lögum samkvæmt á málmforðinn
til tryggingar seðlum þeim, sem í um-
ferð eru jafnan að nema 3/8 hlutum
af seðlaumferðinni. En bankinn hefir
nú fyrirliggjandi nærri 46 þúsund kr.
í málmforða fram yfir það, sem þarf.
Svo hann gerir miklu meira en að
framfylgja lagaákvæðunum.
Heldur mun viðskiftaveltan minni
en um sama leyti i fyrra.
Veturinn
er að kveðja í dag eftir tímareikn-
ingnum. Hvít jörð — og er það í
samræmi við það sem á undan hefir
gengið. Óvenjumikill snjóavetur og
harðinda hefir hann verið, þessi vetur
og er því lítt saknað af flestum.
WAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAp
j Sumargjöfln bezta|
2 eru skór eða stígvél frá
{ ít Lárusi G. Lúðíigssym U |
Þingholtsstræti 2. ►
Miklar birgðir af strigaskóm og
brúnum skófatnaði nýkomnar.
BfmTTmTyyyyfyyywfffi
Fólksþingið danska rofið.
Simfregn 19. april.
Símfregn barst ísafold í gærkveldi
frá Khöfn uni, að fólksþingið hafi verið
rofið í gær og eiga nýjar kosningar
að fara fram i Damnörku 20. mai
næstkomandi.
Dr. Knútur Berlin
er nýskipaður kennari (docent) í
íslenzkum rétti við Khafnarháskólann.
Fullyrt er, að enginn íslenzkur stúdent
muni ætla sér að sækja fyrirlestra hans.
Aflabrögð
dágóð vestur við Djúp segir Dag-
urinn. Eitthvað af síld hefir fengist
þar í lagnet.
Landar erlendis.
Þorvaldur Pálnson, Hornafjarðar-
læknir, er sem stendur skipslæknir milli
Evrópu og Ameríku á skipinu »S t.
J a n« frá Austurasíufólaginu danska.
Fer skip þetta til Vestur-Indíaeyjanna
og verður Þorvaldur mánaðartíma í
ferðinni.
Gluðinundur Bárðai'son jarðfræðing-
ur frá Kjörseyri, sem dvalið hefir í
Höfn í vetur, lagðist fyrir skömmu í
sjúkrahúsi Rovsings prófessors og lét
gera á sór holskurð fyrir gamalli mein-
semd, er hann hefir þjáðst af. Skurð-
urinn tókst vel og er nú Guðmundur
bóndi á beztii batavegi.
Skipaferðir.
Vesta kom frá útlöndum í morguti
— hefir tekið ferðir Lauru. Farþegar:
Sveinn Björnsson yfirr.málf.m., Michael
Lund lyfsali og frú hans, Jón Stefáns-
son ritstj. og 2 þýzkir vísindamenn.
Frá Ameríku: Ásgeir Finnbogason
(bróðir Guðm. mag. Finnb.). Frá Vest-
manneyjum: N. B. Nielsen fulltrúi
Brydes-verzlunar.
Ingolf kom hingað í gær um miðjan
dag, kringum land. Farþegar: Ragnar
Ólafsson kaupm. af Akureyri með frú
sinni, Páll Stefánsson verzlunarmaður,
Ludvig Möller verzl.m. o. fl. — Ingolf
fór aftur til útlanda í gærkveldi.
Kong Helge fór utan í gærkveldi.
Hans er von hingað aftur þ. 12. maí
frá Hamborg. Þegar búið að panta alt
farmrými skipsins fyrir vörur frá Ham-
borg. \
Sterling fór frá ísafirði kl. 2 í dag
og er væntanlegur hingað á föstudags-
morgun — en fer líklega hóðan til
Khafnar á föstudagskvöld eða laugar-
dagsmorgun.
Ceres fór hóðan áleiðis til útlanda í
gær.
Reykjavikur-annáll.
Aflabrögð. Ása (eign Dnus-verzlnnar) kom
inn i nótt með 15,000. Hún var búin að
fiska önnur 15,000 óðnr á þessari vertið. —
Skarphéðinn (P. I. Thorsteinsson & Co.)
kom inn i fyrradng með 10,000,
Guðsþjónusta. A morgun, sumardaginn
fyrsta, verður guðsþjónusta I dómkirkjunni
kl. fi siðdegis, en ekki kl. 12. — Sira Fr.
Fr. prédikar.
Jónas Guðlaugsson rithöfundur ásamt konu
sinni fór alfari héðan til Noregs með Ceres
í gær.
Rangvellingakvöld. Rangvellingar hér i
bæ stofna til móts með sér á sumardaginn
fyrsta á Hótel ísland, í likingu við Aust-
firðingakvöldin, sem hér eru jafnan haidin
á ári hverju.
Sumardagurinn fyrsti er á morgun. Fyrr-
um var hann hátiðisdagur mesti með oss
íslendingum. Þá voru gjafir gefnar, fólkið
fekk að hvilast þann daginn og var margt
gert til gamans. En nú er eittbvað annað
uppi á teningnum. Menn muna varla eftir
þessum degi — minBta kosti hér i Reykja-
vik. Enginn hátíðabragur á neinu.
Það er illa farið.