Ísafold - 30.04.1910, Side 2

Ísafold - 30.04.1910, Side 2
102 I8AFOLD Markarflj óts-fyrirhleðsla. Einkar-þarflegt meiri háttar inannvirki. Markarfljót er afar-breytilegt vatns- fall, i sumum árum allmikil móða og illfær, en öðrum varla nema lítil spræna. Umskiftin þó að jafnaði ekki öðru vísi en á margra ára bili. Þegar fljótið er litið, liggur vatnið, sem þar heíir framrás ella, mest í Þverá, Aflalli og Álum. Nii hefir það mörg árin undanfarin legið mest í Þverá. En í vetur þvarr hún, en fylti Markarfljótsfarveginn. Þá stendur jafnan af því hætta bygðinni austan fljóts, Eyjafjöllum. Þá ryður áin sér aukafarveg austur með þeim, á einum stað eða fleirum. Svo var í vetur. Þá tók um hríð af póstleiðina aust- ur með Útfjöllunum og varð þá að fara annað. Þykir við búið, ef þvi heldur áfram og ekki er við gert í tíma, að uppgróið land þar verði sandorpið og leggist jafnvel alveg í auðn á skömmum tíma. Sömuleiðis póstvegurinn austur með Fjöllunum í mikilli hættu. Eyfellingar báru sig upp við og leituðu ásjár landsstjórnarinnár við þessu áfalli. Hún varð vel við, með ráði Landsbúnaðarfélagsstjórnarinnar, og gerði landsverkfræðinginn (J. Þ.) austur þangað að líta á, hvernig til hagaði og hverjar horfur væri á að fá einhverja bót á ráðna. Hr. Tón Þorláksson er heim kom- inn aftur úr þeirri ferð fyrir nokkrum dögum. Hann telur vel reynandi að hlaða fyrir fljótið, að það brjótist ekki aust- ur á bóginn. Til þess þurfi um 370 fðm. garð, frá Setbergi undir Selja- landsmúla suður og niður eftir þá vegarlengd. Þar, á þeirri leið, hefir áin brotist austur úr á tveim stöðum, upp undir múlanum og nær 1 röst neðar, á Markarfljótsaurunum. Þá ála báða þarf að hlaða fyrir og þar í milli. Meðalhæð garðsins verður um 4 fet, en vel djúpt grafið fyrir undir- stöðum. Hann á að flá mjög mikið á báðar hliðar, ólíkt þvi er tíðkast hefir hér áður um flóðgarða og þeim orðið að tjóni, verður vallgróinn að utan og ofan, en grjót vatnsmegin með torfi undir, með straumbrjótum á hverju 7—8 faðma bili. Fyrirhleðslu þessari verður byrjað á nú upp úr helginni. Því að nú ligg- ur fljótið ekki í hinum nýju farveg- um, með því að nú er vatn í því mjög litið; og þarf að sæta því færi áður það vex, er fram á vor líður og leysa fer að mun til fjalla. Fyrir verkum ræður við garðhleðslu þessa Árni Zakaríasson, hinn þjóð- kunni, fyrirtaks-vegavinnustjóri, eftir fyrirsögn og uppdrætti landsverk- fræðingsins. Hann lagði á stað austur í morgun við fjórða mann, vel vana vegamenn héðan, og hafa þeir með sér 4 flutningsvagna undir möl og grjót, ásamt öðrum landsvinnu- tólum. Að öðru leiti eru verkamenn teknir úr sjálfri sveitinni, ekki marg- ir fyrst í stað, til vertíðarloka, en fjölgað úr því, með þvi að þá, en ekki fyr, koma þeir heim úr Eyjum. Hr. Á. Z. nýtur ekki við lengur en nokkuð fram um miðjan maímán., með því að þá verður hann að fara norður í land til fyrirhugaðrar vega- gerðar; þar verður byrjað í vor á Reykjadalsbraut, upp frá Húsavík; nuk þess er honum ætlað leggja brúna á Sandá í Þistilfirði, hlaða stöpla undir hana. Þá er hugsað til að fá hr. Grím Thorarensen í Kirkjubæ til að taka að sér verkstjórn að Markarfljóts- fyrirhleðslunni. Landsverkfræðingur áætlar kostnað til garðsins 7,200 kr. Þar af tekur landsstjórn og Landsbúnaðarfélag að sér alt að helmingi, skiftir þeirri fjár- hæð jafnt milli sín, auk þess sem landsstjórnin stendur fyrir framkvæmd- inni. Af hinum helmingnum standa sveitarmenn (Útfjallamenn) straum, með nokkurum stuðning sýslunefndar (4—500 kr.); og er ætlast til að jarð- eigendur leggi til um 1000 kr., en hitt greiðist í dagsverkum, er sveitar- menn hafa þegar heitið fyrir fram eða skrifað sig fyrir, hinir betri bænd- ur alt að 20 dagsverkum hver og sumir þar yfir, en ekkert heimili minna en 5 dagsverk. Auk þess hefir ungmennafélag þar undir Fjöllunum, sem heitir Drífandi, tekið að sér 100 dagsverk; er það sérstaklegrar frásagn- ar vert til lofsamlegs eftirdæmis. Heit- in dagsverkatala alls 721. Bankaöreglan á Akureyri. Þegar fréttist um hið skyndilega hvarf Friðriks útibússtjóra Kiistjánsson- ar á Akureyri, einmitt um það leyti, er Sighv. bankastjóri Bjarnason var þar á endurskoðunarferð — grunaði margan manninn, að sjálfsagt stæði það eitthvað í sambandi við óreglu í stjórn útibúsins. Sá grunur staðfestist við það, að engin yfirlýsing kom frá íslandsbanka um, að alt væri með feldu um úti- búið. Eins og á stóð, virtist það sem sé sjálfsögð skylda bankans að hreinsa Friðrik. þegar í stað af öllum grun, eý alt hefði verið í reglu. Þögn bankastj órnarinnar var því af flestum skoðuð sem staðfesting á því, að um óreglu einhvera væri að tefla. Og eftir því, sem ísafold hefir nú frétt norðan af Akureyri er engum blöðum um það að fletta, a ð F r i ð- rik hefir gert sig sekan í fjárdrætti frá útibúinu, sem nemur rúmum 20000 kr. Ekki lendir þó alt þetta tap á bank- anum, heldur mun alt að helmingi tapsins lenda á einstökum mönnum. Þess er nú getið til fyrir norðan að Friðrik muni ekki hafa fyrirfarið sér, heldur forðað sér út í skip þar á höfninni og komist þann veg und- an. — Engin lögreglurannsókn hefir farið fram enn út af hvarfi hans — og má það furðulegt heita. Úr því að svona stóð á, virtist nokk- urnveginn sjálfsagt af lögreglustjór- anum á Akureyri að símatil þeirra staða, er skipin áttu að fara til, þau er á Akureyri voru, þegar hvarf Friðriks bar að, til þess að fullvissa sig um, að Friðrik hefði eigi horfið á braut þann veg. Dáin er hér í bænum aðfaranótt fimtu- dags, frú Karítas Markúsdóttir, ekkja síra ísleifs Gislasonar í Arnarbæli, en móðir Gísla sýslumanns á Blönduósi, og þeirra systkina. Hún hafði legið rúmföst mestallan veturinn; fékk heilablóðfall í haust og náði ,sér al- drei eftir það. Hún var 70 ára að aldri. Heyleysi og niðurskurður. Þær fréttir fékk ísafold af Akureyri í gær, að heybirgðir manna væru mjög á þrotum þar norðurfrá og mjög hætt við, að grípa yrði bráðlega til að skera niður gripina, ef þessum ósköpum heldur áfram. Eftirlitsmaður vitanna er settur fyrst um sinn frá i. apríl Þorvaldur Krabbe landsverkfræðingur. Frávikning gæzlnstjáranna. í ræðu síra A. Þ. í siðasta blaði stendnr i 4. línn a. 0., öðrum dálk ummœlum, á að vera nmræðum. — Síðari kafli ræðu hans bíður næsta blaðs vegna þrengsla. Lausar sýslanir. Aðstoðarkennarasýslan við Hvann- eyrarskóla, með 1000 kr. launum. Veitt frá 15. okt. Umsóknarfrestur til 1. júní. Umboðsmenska í Múlasýsluumboði. (Jmaóknarfrestur til 15. maí. Til Jóns Ólafssonar. Reykjavik, 24. april 1910. Herra minn! Sem svar gegn grein yðar í »Reykja- vík« 23. d. m. skal eg leyfa mér að gefa nokkrar skýringar; mér sýnist ekki vera vanþörf á því, til að bæta úr van- þekkingu yðar : 1. Eg sendi yður í þessu bréfi afrit af konsúls-útnefningarskjali mínu; það er gefið út af forseta lýðveldisins og hefir það fengið viðurkenningu Dana- konungs. Eg skal láta þess getið hér, að 1908 lagði eg fyrir hr. Hannes Haf- stein, sem þá var ráðherra, pergaments- frumrit af útnefningarskjali mínu, og er mér ánægja að tjá yður, að hr. Hannes Hafstein, sem var ráðherra og bar ábyrgð á gjörðum sínum, hafði ekkert að at- huga við orðalagið á útnefningarskjali þessu. 2. Þór munuð sjá, að útnefningar- skjal þetta, sem hefir fengið viðurkenn- ingu dönsku stjórnarinnar, ber það ein- mitt með sér, að eg hefi »jurdiction consulaire sur l’Islande«. 3. Mér sýnist þekking yðar á »diplo- matiskum« rétti vera þann veg vaxin, að yður mundi engin vanþörf vera á að auka hana til muna; eg er því fús á að veita yður ókeypis fræðslu í þeim grein- um, sem snerta starf mitt, er þór þyk- ist hafa vit á, en hafið þó enga hug- mynd um. 4. Eg vil þó ekki láta dragast að gefa yður það til kynna strax, að það »konsúlsdómsvald«, sem mór er falið, kemur að engu leyti í bága við íslenzkt dómsvald, og að það nær eingöngu til algerlega frakkneskra mála eða mála milli frakkneskra manna. Ákvæði þau, sem snerta dómsvald konsúla, eru til- tekin í samningum Frakklands við önn- ur ríki. Eg býst við, að þór hafið aldrei lesið »Martens«. 5. Mór er ánægja að, að bæta því við, að fyrirskipun sú, er eg gaf út 1. marz 1910 var sprottin af óskum að gera póststjórninni í Reykjavík hægra fyrir við útbýtingu á bréfum til frakk- neskra skipa, og að gera henni með þessu greiða, þar sem það er engum vafa bundið, að örðugast verk hennar er einmitt að sjá um brófin til frakk- neska konsúlatsins og frakkneskra skipa. Það mun nú ef til vill fá yður undrun- ar (því grein yðar sýnist benda á, að vanþekking yðar só geysimikil), er eg segi yður frá því, að konsúlatið hér veit- ir móttöku, raðar og útbýtir h. u. b. 15000 brófum á ári hór í Reykjavík og á öðrum stöðum í konsúlsumdæminu (juridiction consulaire), og að það ann- ast um sendingu á brófum til New- Foundlands, þar sem útbýtt er h. u. b. 30000 brófum til frakkneskra fiskimanna. Eg tel víst, að bréfaviðskifti blaðsins »Reykjavík« muni ekki vera talin í jafnháum tölum og þetta. 6. Eg verð ennfremur að segja yður frá því, að eg hefi gert þessar ráðstaf- anir í samráði við póstmeistarann í Reykjavík, og eg skal geta þess, að hann hefir skrifað mór og vottað mór mór mjög vinSamlegt þakklæti fyrir þá hjálp, er eg hefi veitt honum á þenna hátt. 7. Að endingu skal eg leyfa mér að vekja athygli yðar á síðasta liðnum í útnefningarskjali mínu, þar sem talað er um tálmanir eða hindranir, er mór kynnu að vera gerðar við rækslu starfs míns. Þór endið greinina með þeirri hlægilegu tillögu, að tekin só niður af pósthúsinu þessi fyrirskipun mín frá 1. marz; eg tel það ónauðsynlegt að eyða orðum að ábyrgð þeirri, er þór hafið tekist á hendur með þessu tiltæki eða afleiðingum þeim, er það kynni að hafa fyrir yður. Þór virðist vera svo vel að yður í alþjóða-rótti, að þór munuð ef til vill fara nærri um, hverju máli skift- ir um grein yðar. Eg vil biðja yður að hætta framvegis þessum árásum, sem blað yðar hefir tamið sér. Eg les það reyndar aldrei, þvi að eg ber enga virðingu fyrir þess- háttar ritsmíðum og hefi enga ánægju af þeim. En vinum mínum hefir gram- ist þetta og til að sefa gremju þeirra neyðist eg til að fara með yður eftir verðleikum við fyrsta tækifæri. (Sign.) Brillouin. (Eftir Fjallk.). Skipaferðir. Vesta kom til Steingrímsfjarðar í gær. Enginn ís orðið á leið hennar. Botnia fór frá Leith 27. þ. mán. síð- degis. Kemur væntanlega á morgun árdegis. Vestri kom til Akureyrar í morgun. Pervie fór vestur í Stykkishólm og Hvammsfjörð á fimtudaginn síðdegis. Með henni tók sór far Björn Þórðarson cand. jur. til Stykkishólms. Hann er settur dómari í þrætumáli út af hafskipa- bryggjunni þar. Hvernig á að gera vegi? Það eru milli 20 og 30 ár síðan farið var að leggja fó til vegagjörða hér á landi, að nokkrum mun, enda eru land- ferðir fljótfarnari en áður, víðast á land- inn. Fyrst voru fengnir útlendir verkfræð- ingar, til að rannsaka vegaleiðir hér. Kom það brátt í Ijós, að þeir voru ekki vaxnir því starfi, vegna ókunnugleika á mörgu, er sameinar ending og gagnsemi. Til þess að þessir kostir verði sam- einaðir, þarf að þekkja út f yztu æsar, óstöðvun veðráttunnar hér, hvernig snjóa leggur, hvað vatnsgangur spillir og eyði- leggur, hvernig landið er bygt og fleira. Vanti þessa þekkingu, er hætt við, að vegabæturnar verði gagnsminni og end- ingarverri, en vænta má, eftir fjárfram lagi því sem til þeirra er varið. En síðan íslenzkir verkfræðingar tóku við stjórn á vegagjörðum landsins hefir sannast, að bókleg þekking, samfara staðlegri þekkingu, er notadrýgri, en alútlend, og má til þess færa mörg dæmi, er eg læt ógetið í þetta sinn. Síðastliðinn áratug hefi eg stundað vegavinnu á sumrum, að undanteknu sumrinu 1906. Það sumar ferðaðist eg um flestar sýslur landsins, og mældi vegalengdir allra aðalþjóðvega, er um þær lágu, auk ólagðra og lagðra auka- vega, smb. skýrslu Jóns Þorlákssonar í Andvara 1907. Á þessu ferðalagi kynt- ist eg allmikið vegaköflum þeim, er lagðir hafa verið á liðnum árum. Þegar litið er á þessar vegagjörðir, legu þeirra og gerð, virðist mér þær benda á ofmikla sparnaðarhugsun, en minna á almenn og endingargóð not, til aksturs. Þó finst mór verðmæti veganna aðallega fólgið í því, að þeir verði alment notaðir sem akvegir. Á einum stað er vegaköflunum stefnt að mel eða melholti, er komast má af með að ryðja 1 svipinn. Á öðrum stað upp snarbratta hlfð, til þess að komast sém fyrst á gömlu götuna. Á þriðja staðnum er það brúarstæði á læk eða gili, sem ræður vegstefnunni, og eru þau brúarstæði misjafnlega ráðin. Man eg sérstaklega eftir tróbrú á Oddstaða- gili við Hrútafjörð, er brúað var kring- um árið 1900, neðan við tvö lækjamót, er brúaðir voru í einu lagi, en brekka var að neðan, sem olli framþunga á veginn, er sligaði brúna um veturinn. Árið eftir var annar eldri og æfðari verkstjóri sendur til að framlengja veg- inn og smíða af nýju brotnu brúna, en hann hafði hana á sama stað, þrátt fyrir marg endurtekið álit kunnugra manna um, að brúin hefði ekki burðar afl til að bera allan þann fannþunga, sem á hana legðist, auk þess, sem veg- urinn væri gagnslaus meiri hluta vetrar, meðfram brekkunni; og reyndist þetta álit rótt, því brúin kom sliguð undan fönninni um vorið. Sumarið 1903 var vegurinn fluttur, og gilið brúað í tvennu lagi þar sem hærra bar á, síðan hefi eg ekkert um þetta heyrt. Þannig getur reynslan kent, en dýr er þessi kensla, því síðasta aðgerðin kostaði um 400 kr., og hver hinna sjálfsagt líkt. Þannig mætti auglýsa fleiri dæmi, er sanna, að með því að spara eyrinn eyðist krónan, þá litið er á veginn með tilliti til afnota og viðhalds. Oft rekst maður á, að vegurinn er of lágur, vatnið sfast upp í yfirborð hans og bleytir það upp, þótt það renni ekki algerlega yfir veginn, því þegar svo er komið, leiðir undir eins af því íhlaup; annars myndast þessi fhlaup smámsam- an á lengra svæði, þegar vegurinn er vatnssýrður, án þess yfir hann renni. Oft hefir átt að bæta úr þessu með 2 til 3 feta djúpum skurðum, meðfram veginum, en sú dýpt er lítilsverð, því á haustin fyllast skurðir þessir af snjó og klaka, en vatnið rennur ofan á í leysingum, og bleytir veginn eins eftir sem áður, jafnóðum og klaki fer úr, er veldur fhlaupi, þar sem vegurinn er lausastur fyrir eða liggur lægst, því vegurinn þiðnar fyr en svellið í skurð- unum. Svo eru þessir djúpu skurðir til spillingar, og stafar það af því að jarðvegurinn er því lausari fyrir sem neðar kemur. Vinst vatninu því fljótar að grafa undir veginn í djúpum skurði en grunnum. Sóst þetta Ijósast, þar sem vegurinn liggur í halllendi, einkum f hliðarhalla. Víða er ofaníburðurinn ekki góður, og veldur hann slæmri endingu. Hann er stundum ósamheldinn, of laus og fýkur, of leirborinu og veðst upp í vætutfð og hleypur f holklaka á vetrum, of mikið af lausagrjóti í honum, er ekki nær að festast undir yfirborðinu, og fleira mætti telja athugavert. Koma þessir ókostir líklega oftast af því, að ekki er hægt að ná í betri jarðefni í slitlagið, nema með margfaldri fyrirhöfn, er yki drjúgum kostnaðinn. Þess vil eg geta, að ekki er hægt að fá það jarðefni i ofaníburð, er vatnið vinnur ekki á, nái það að ganga upp á yfirborð vegarins, nema tómt grjót só, er gerði vegina miklum mun dýrari, og leiðari reiðvegi. Vegna þess er oftast- nær vanhugsað, að gjöra við íhlaup í vegi með tómri ofaníburðar fyllingu, heldur verður endingarbetra að hlaða veginn svo háan úr grasrót, að vatnið nái alls ekki að ganga upp á yfirborð hans, halda svo yfirborðsvatninu frá veginum með breiðum, en grunnum skurðum, er dýpka þvf meir, er fjær dregur veginum, þar til vatninu er hleypt gegnum hann með þverrennu út í fráræsluskurð. Halli landinu mikið, verða þverrennur að vera þettar, svo vatnið renni ekki oflengi meðfram veginum. Því styttri leið sem straumurinn rennur eftir hlið- arskurðunum, því síður nær hann að grafa undir veginn með sfnu óþreytandi afli, heldur er víðast þörf á, að koma vatninu sem fyrst frá veginum gegnum þverrennuna, með þverstíflum í hliðar- skurði og fráræsluskurðum, því þó þessi þverrennu fjöldi auki byggingarkostnað- *nnj yr®* viðhaldið aftur þeim mun minna. Þegar landinu hallar lítið, felst hætt- an í því, að vatnið stendur kyrt og gengur yfir veginn hvað lítil stífla sem kemur í fráræsluskurðina; þess vegna þurfa þeir að vera margir og rúmgóðir, sam- fara haum og vel upphlöðnum vegi, svo hallinn, talinn frá efri vegbrún, verði alt af nægur, og vatnið komist aldrei hærra upp en á miðja veghæð, þó frá- ræsluskurðir stíflist að einhverju leyti. Þverrennur eða straumgöng, er leiða vatnið gegnum veginn, eru víðast hlaðn- ar upp úr grjóti, með 1 til 2 feta þykku grjótlagi í botninn, í stöku stað úr torfi og grjóti í neðstu lögin, er vatnið leikur um, með grjótfyllingu í botni, en óvíða eru þær hlaðnar úr tómu torfi án grjótfyllingar undir; renn- unum er svo lokað að ofan með timbur- hlera, og víðast borin möl ofan á. Þessi gerð er öll svo endingarlítil, að vegavið- haldið liggur víða mest í því að endur- bæta þessar þverrennur. Grjótbygging- in er í sjálfu sór góð og gæti verið end- ingargóð, ef grjótið væri lagt í cement og bundið þannig, en það er óvíða gert; grjót og torfhleðslan lakari, en tómt torf endingarlaus bygging í vatnsgöng. Timburpallarnir þurfa endurnýjun á 3 til 4 ára fresti að jafnaði. Væri því öll þörf á að hætta alveg við þá, en nota í þeirra stað annað h vort járn eða cementssteypu, en hvortteggja virðist gerlegt. Þó oft só vont og jafnvel ókleift að gera hér endingargóða vegi, einkum fjall- vegi, þar sem landið er mjög mishæðótt, og vatnsgangur mikill, rná samt hjá mörgu skerinu sneiða, ef þekking er góð, og hana þurfa þeir að hafa, er vega- gjörð stunda. Það er ekki nóg, að þeir sóu ráðvandir og duglegir menn. Þekk- ingin þarf að ná lengra, og vera sam- fara glöggri útsjón á, hvernig fannir geta lagt á veginn, hvaða breytingu jarðefni það, sem haft er í slitlagið (ofaníburðurinn) getur tekið við áhrif lofts og vatns, og ekki sízt hvernig framræslu vatnsins skal hagað, svo það geti ekki búið veginum tjón. Vanti ljósa þekkingu á þessu, er verkinu meiri hætta búin en ella. Ekki virðist fjárveitingarvaldið sórlega hyggið, þegar það er að hluta sundur vegaféð í smáfjárhæðir í marga staði. Kemur þessi hyggindaskortur líklega af vanþekkingu á, að sórstakir gjaldaliðir við vinnuna, verða líkir hvort heldur fjárhæðin, sem unnið er fyrir, er 5 eða 10 þúsund krónur t. d. verkstjórnar- kostnaður og flutningskostnaður á vist- nm verður vanalega kringum */„ af 5 þúsundum en ekki nema x/9 af 10 þús- undum. Þetta stafar af því, að jafnoft verður að sækja fæði í kaupstað, hvort sem vinnuflokkurinn er 20 manns eða 10, því ekki er hægt að geyma óskemt brauð og aðrar vistir um lengri tíma í tjöldum, en úr því ferðin er gerð, kost- ar hún líkt hvort matsveinn hefir 2 eða 4 hesta, likt er því varið um verk- stjórnarkostnaðinn. Það vinnuafl gengur í að sjá um verkið, hvort sem mennirn- ir, sem stjórna á, eru 10 eða 20. Einnig eru hrein vandræði að láta sama flokkinn ferðast mikið, er hlýtur þó að eiga sér stað, er vinna skal á fleiri stöðum, með löngu ferðalagi, sama sumartímann Það eykur flutnings- kostnaðinn svo gífurlega, en getur hvergi komið fram á verkinu sem vinna á. Líka er vont að þurfa að skifta um fólk við hverja færslu. Þó mögulegt væri að ráða það á þann hátt, þá yrði það alt af óvaut vinnunui með því lagi, og hlýtur það að koma tilfiunaulega niður á verkinu. Fyrir því tel eg 1Ö þúsund krónur

x

Ísafold

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.