Ísafold - 11.05.1910, Page 4
116
ISAFOLD
V
1
Fyrir sumarið:
Silkibönd, allar breiddir, allir litir.
Slifsborðar af mörgum gerðum.
Glans-leðurbelti handa börnum á 0,25.
Hvít, gylt og mislit kvenbelti frá 0,50.
Svartir og brúnir gisnir sumarsokkar á 0,55.
Svartir Sumarsokkar á 0,25, 0,30, 0,48.
Barna- x/2 og Sokkar, allar stærðir úr bómull og ull.
Sumarhanzkar og og Griftur frá 0,50.
Hvítir bómullarhanzkar handa börnum á 0,30.
Barnasvuntur af öllum stærðum, dökkar og ljósar.
Mjögskrautlegar Sumar-yfirtreyjur úr ull.
Hvítar Sumar-yfirtreyjur fyrir börn, allar stærðir, úr ull.
Hvítar og röndóttar stúlkna- og drengjapeysur.
Fleiri tylftir af barnahúfum og Stráhöttum.
Enskar Sumarblúsur.
Feiknaúrval af sundfötum fyrir fullorðna og börn.
Mjðg mikið úrval í Svuntur og Kjóla.
Th. Thorsteinsson,
Ingólfshvoli.
Stóra útsalan
hjá H. S. Hanson, Laugaveg 29,
heldur áfram enn um nokkurn tíma, vegna þess, að svo miklar vörubirgðir
eru komnar í verzlunina, aðjjhún hefir ekki húsrúm fyrir þær.
Allar vörurnar eru nú, eins og áður, niðursettar og þar af leiðandi miklu
ódýrari en annarsstaðar.
Komið og sannfærist um að þetta er satt!
Hvergi betri kaup fyrir hvítasunnuna.
r^ r^ r^ r^ r^ r^ r^ r^ r^ r^ r^ r^ r^ r^ r^ r-y r^ r^ r^\ 'r ^ ri ri rvri r ^ r^ r^
1 á. J ká ki k i ki k A k A ki k A k A k A k i k A k A k A k A k A k A ki ka k A k A k A 1
%
Björnsfjerne Björnson
eftír O. P. Monrad.
4 erindi flutt í Reykjavik sumarið 1904, islenzkuð af Birni Jónssyni.
Höfundur var persónulega nákunnugur hinu látna mikilmenni. A íslenzku
er ekki til betri bók um Björnson. Mynd af Björnsson er framan við hana,
Hún fæst í Bókverzlun ísafoidar og kostar aðeins 50 aura.
Bazar
I
Hjálpræðishersins
í Iðnaðarmannahúsinu
byrjar i kvöld kl. 8 og heldur
áfram fimtudag og föstudag.
Fjórraddaður söngur.
Vín-í Ölverzlun
Th. Thorsteinssons
Ingólfshvoli
6 duglegir hásetar
og 1 matsveinn geta fengið at-
vinnu á þilskipi á Austfjörðum í vor
og sumar.
Lysthafendur geri svo vel að tala
við mig, fimtudaginn 12. og föstudag-
inn 13. þ. m. á Hótel Island (kl. 4-6).
P. t. Reykjavík.
Aanen Stangeland.
Bninamálanefnd 1?
Reykjavíkur
brýnir það hér með fyrir bæjarbúum,
að allir verkfærir karlmenn á aldrin-
um 18—50 ára eru skyldir að koma
til bruna, ef eldsvoða ber að hönd-
um, og til almennra æfinga slökkvi-
liðsins og gera alt það, sem þeim
verður skipað þar af slökkviliðsstjór-
anúm eða aðstoðarmönnum hans.
Brot gegn þessu varða sektum.
Reykjavík, 7. maí 1910
f. h. brunamálanefndarinnar.
Páll Einarsson.
fást alls konar hátíðadrykkir bæði með og án áfengis, t. d. margar teg.
Rauðvín, Portvín, Sherry, Banco, Whísky, Cognac, Romm og Liquörer, Carls-
berg Lageröl, Tuborg-Pilsner og Porter, Mörk Carlsberg, Krone-Pilsner, Ex-
port Dobbeltöl, Sundhedsöl, Reform Maltekstrakt og Maltekstrakt trá Kongens
Bryghus, einnig Limonade, Citronvatn og Sódavatn o. fl. o. fl.
Lageröl og Doppel-Braunbier frá Bill-Braueri Hamborg.
Brunakallarar
í slökkviliði Beykjavíkur
eru þessir:
í vesturbænum: Bjarni Pétursson,
blikksmiður, Vestur-
götu 22.
Árni Árnason, Hans-
bæ, Bakkastíg 7.
í miðbænum: Guðmundur Magnús-
80n, Grjótagötu 14.
í Þingholtunum: Magnús Guðmunds-
son, Bergstaðastr. 6 a.
í Skuggahverfinu: Lúðvík Jakobsson,
bókbindari, Smiðju-
stíg 7.
Guðmundur Magnússon er á verði
í Hafnarstræti á nóttu hverri og þá
þar að hitta.
Brunamálanefndin.
árið 1910.
Til Seyðisfjarðar með »Botniac 11. júní
með 10 daga dvöl þar.
Til Akureyrar með »Egil« 23. júní
með 15 daga dvöl þar.
Til ísafjarðar með »Flora« 9. júlí
með 8 daga dvöl þar.
Kem til Reykjavíkur aftur 21. júlí.
Það er mjög áríðandi að sjúklingar
komi sem fyrst á hvern dvalarstað,
ef til skurðlækningar kæmi.
A. Fjeldsted.
Jarðarber i dósum,
Ananas,
Perur
fæst bezt og ódýrast í
verður haldið við Þjórsárbrú vikutima
snemma í janúar næsta vetur, ef nógu
margir nemendur, einkum bændur,
gefa sig fram við Sigurð búfræðing
Sigurðsson fyrir 15 okt.
Hannyrðir
verða sýndar i Kvennaskólanu 12. þ.
m. kl. 4—7 e. h. og þ. 13. kl. 11 —12
og 4—7. Allir velkomnir.
Ingibjörg H. Bjarnason.
Nýmjólk
af Seltjarnarnesi fæst keypt eftir há-
tið, í Þingholtsstræti 8 (niðri).
Liverpool.
Sfmi 43. Sínvi 43.
Islenzk EGG
á 7 aura,
Dönsk BGG-á 5 og 6 a.
T ólg
fæst í matarverzlun
Búnaðarfélag íslands vill verja alt
að iooo kr. til að styrkja sveitir eða
sýslur, sem vilja koma upp hjá sér
kornforðabúrum til skepnufóðurs.
Styrkurinn verður x/i2—x/s kostn-
aðinum við að gera skýli yfir kornið.
Þau héruð verða látin ganga fyrir,
þar sem ís getur tept hafnir.
Umsóknarfrestur er til nóvember-
loka næstu.
Tindlar
í '/4 kössum, mikið úrval, ný-
komið í
Tóbaksverzlun R. P. Leví,
mjög hentugir fyrir
if ÚT hvítasunnuna úr úr
Kex,
sætt og ósætt, stórt úrval,
lœgst verð
í
Liverpool.
Sími 43. Sími 43.
Bæjarsjóðsreikningur
Reykjavíkur 1909
liggur almenningi til sýnis á bæjar-
þingstofunni næstu 14 daga kl. 12
til 2 e. h.
Borgarstjóri Reykjavíkur, 7. maí To.
Páll Einarsson.
Tömasar Jónssonar,
Bankastræti 10. Sími 212.
Kennari,
er getur kent undir gagnfræðapróf,
óskast næsta vetur á gott heimili í
kaupstað. Nánara hjá síra Richard
Torfasyni.
Epli,
Appelsínur,
Laukur,
góðar, danskar Kartðflur
fæst í
Liverpool.
Sími 43. Sími 43.
í\IT£fPJÓÍ^I: ÓDABUI\ BJÖI\NSþON
ísaíoldarprÐntsmiðja.
130
rúmið sitt. það var nístiugskalt — og
norðansúgur blés utan af höfninui.
En máninn tók bæinn og landið ögn
fyrir ögn, skoðaði alt með kuldalegum
augum og tilfiuningalausum — í krók
og kring, og þegar hann var búinn
með eina ögnina, lagði hann skugga
yfir hana og byrjaði á hinni næstu.
Nú bar hann að fangelsinu, gægðist
Bkáhalt inn um grindagluggann — og
þar varð fyrir honum, Flóin; er látin lá á
legubekk upp við vegginn.
Barmnrinn var opinn, því að læknir-
inn hafði verið að gæta að hjartaslaginu
— og annar handleggurinn hékk nið-
ur á gólfið.
Munnurinn var hálfopinn, og blóðið
á vörum hennar var storknað og gerði
það hann svartan og stóran. Hún
var ljót ásýndum — hræðilega Ijót —
eins og hún var á sig komin þarna;
visin og voluð; og hið knldalega tungl-
skin, sem bar á hana bætti ekki um. —
Fegurð sína hafði hún mist og með
henni annað. Hún hafði eigi haft mik-
ils í að missa; og nú, er hún leið burt,
átti lifið ekki heldur mikils í að missa þar
sem hún var. Einhvernstaðar beið
135
búin að stinga sér bakvið steinblómin,
munu þau fijótlega hafa hrotið leiðina
sína út úr kirkjnnni. — Hann vék
gætilega til hliðar öllum samlíkingum,
er snertu sársauka og sjálfsafneitun og
hann, sem hékk á krossinum og var
píndur til dauða með því að reka nagla
gegnum hendur og fætur honum — hann
varð að hinu hugljúfasta barni — og
hann! — hann var lagður í hesthúsjötu!
Gæðablóðið síra Martens gat ekki
tára bundist, hann kjökraði; honum
fanst þetta svo óendanlega hjartnæmt.
Og enn þetta: að það, sem hér í heimi
er lítilsvirt og fyrirlitið — þ a ð felur í
sér tignina, hina sönnu hátign. — þetta
er svo dæmalaust blessunarríkt og hug-
fróin að því svo mikil. Enginn ætti
rétt á því að mögla vegna hlutskiftis
síns í lífinu, — og hver mundi það gera,
úr því að hinir lægstu reyndust hinir
hæstu — úr því að þeir sem eru lítils-
virtir og fyrirlitnir reynast hinir útvöldu I
— hvílík hugfró — hvllík hugfró! — að
vita þetta! ó, að við gætum öll með
barnslegu hugarfari snúið oss til barna-
ins í jötunni, í Betlehemsborg,
Síra Martens talaði af sannri anda-
134
Kirkjan var alveg troðfull, svo að
síra Martens varð að troða sér að
prédikunarstólnum.
Vetrarsólin lék sér í mesta máta við
margbrotnu litina, sem hún tók frá
glermálverkunum í kórglugganum stóra;
sendi svo skáhalla geisla fram með
altaristöflunni og rautt, grænt ogheið-
gult ljós fram eftir kórnum. Fagnað-
arbros lék um alla kirkjuna; jóladýrð
og blessunarríkt jólaskap hvíldi yfir
öllu.
Síra Martens lagði líka út af því.
Jólahátlðin væri ekki einungis fagn-
aðarhátíð, hátíð hjartnanna og barn-
anna; hún væri einnig — framar öllu
öðru, trúarhátíð; nú ætti hver gleði-
nautn dýpri rætur en ella. Og svo
sneri hann sór að textanum og mint-
ist einkum hinna indælu áhrifa jól-
anna á barnshjartað; og hann dró
upp fyrir augum safnaðarins hinar hug-
þekku myndir af barninu í jötunni,
hirðum og englum, fórnandi konungum
og orðin hnigu af vörum hansblfðlega
og innilega eins og frá fagnandi barni.
Hafi einhver hörð orð úr þrumuræð-
unum um helvíti og dómsdag verið
131
hennar auðvitað diskur af sviðnum
graut. En ella var ekkert það, er biði
hennar, hvorki staða né annað, svo að
hún gat vel farið leið sína án þess að
vekja nokkura truflun nokkursstaðar.
Alger kyrð hvíldi yfir hinu kalda
steinhýsi. Aðeins heyrðust við og við
hurðaskellir þegar leið á nóttina, og
lyklahringl, fótatak og orðastangl, er
dofnaði aftur. það var verið að demba
einum og einum af illþýðinu inn, eftir
því sem náðist í það. Svo mikil rögg-
semi var alt í einu þotiu í lögreglu-
stjórann, að hann ásetti sór að klófesta
allan hópinn, sem verið hafði svo langa
tíð, hinum dygðum prýdda bæ til stór-
hneysu.
En ekki höfðu þeir samt sem áður
hendur í hári þeirra, er þeim þótti
mest undir komið. Nasaþef einhvern
hafði lögregluliðið haft af smiðnum, en
nú var hann horfinn, alveg horfinn.
Og ekki var neinn vegur að taka
Púppelenu fasta; því að þegar komið
var til heunar kl. 7 um morguninn, lá
hún og svaf sakleysisins svefni i rúmi
sínu
Sveinn spurði um Elsu, þegar kom.
$