Ísafold - 28.05.1910, Side 3
ISAFOLD
131
Nýir
hrossamarkaðir.
Látinn gullnemi.
Um Reyðarfjarðarfundinn.
Eins og kunnugt er af skýrslum
viðskiftaráðunautsins íslenzka eruNorð-
menn að hugsa um að lækka þar um
helming aðflutningstoll á hestum, til
þess að hlynna að innflutningi is-
lenzkra hesta þangað. Sumir Norð-
menn vilja jafnvel láta afnema hann
með öllu.
En nú eru Svíar komnir í spilið
það líka. Kveðst ráðunautur hafa fengið
margar málaleitanir þar að lútandi, og
er þar sömuleiðis verið að leita hóf-'
anna um afnám tollsins eða lækkun
á honum, með ráði landbúnaðarráð-
herrans sænska, sem kvað hafa tekið
málinu mikið vel.
Loks hefir ráðunautur fengið ný-
lega málaleitun sunnan frá ítalíu um
að fá þangað senda ioo íslenzka hesta
til reynslu. Það er danskur kaup-
maður í Genúa, V. Jensen að nafni,
sem stendur bak við þá málaleitun.
Úr sveitinni.
Barðastr.sýslu (sunnanverðri) 9. maí. Hér
er nú helzt talað um tíðarfarið og er það
eðlilegt, þvi að undir því er nú allra vel-
ferð komin, að það batni sem fyrst.
Hér má nú segja, að verið hafi i allan
vetur stöðug norðanátt með frosti og kaf-
aldi; snjóskaflarnir eru fram í sjó og hvergi
komin upp jörð, nema litið eitt fram til
nesja.
Bændur eru þvi alment að verða hey-
lausir fyrir skepnur sínar; flestir eiga eitt-
hvað fyrir kýr, en neyðast til að taka af
þvi fyrir kindur, og með hverjum degi verða
horfurnar iskyggilegri.
Stöku menn liafa getað hjálpað öðrum að
mun, t. d. Jón Þórðarson á Skálmarnes-
múla, sira Jón Þorvaldsson á Stað og
bændur i eyjunum.
Það hefir hjálpað mikið, að komnar eru
á mótorbátaferðir milli Tlateyjar og land-
sveitanna, og hafa bændur á landi fyrir það
getað náð til sin korni og heyi úr eyjun-
um; það hefði annars verið ókleift, eins og
veðráttan hefir verið; en bændur á landi
fáliðaðir og sjóleiðin löng.
Það má telja það mesta happ, að þessar
mótorbátaferðir voru nú komnar á, enda
hafa lika kaupmennirnir i Platey verið
fljótir og fúsir að lána almenningi matvöru
fyrir menn og skepnur, og það jafnt fátæk-
um sem efnuðum.
------1=3^1=^----—
Fundarályktanir
um
aðflutningsbannið.
Á fjölmennum fundi í ungm.fél. »Garð-
arshólmi« i Mýrdal, 28. nóv. 1909, var sam-
þykt svo hljóðaudi fundarályktun:
•Fundurinn lýsir ánægju sinni yfir störf-
um þings og stjórnar i bannlagamálinu og
telur algert aðflutningsbann áfengra drykkja
nauðsynlegt, til þess að útrýma sem fyrst
þjóðarmeininu mikla — áfenginu«.
Þorsteinn Friðrikss., Kristófer Grímsson,
formaður. ritari.
Á fundi ungm.fél. »&eisli« í Aðaldal i
Þingeyjarþingi, sem haldinn var i Klömbr-
um 17. apríl síðastl., var eftirfarandi til-
laga samþ. með öllum atkv, gegn einu:
»Fundurinn lýsir þvi yfir, að hann er
eindregið meðmæltur lögum þeim um að-
flutningsbann áfengis, sem samþ. var á sið-
asta þingi og lofar að vinna að heill þess
máls i framtíðinni«.
í stjórn félagsins
Konráð Vilhjálmsson. Jóh. Friðlctugsson.
Jón Jónsson.
Á fundi, sem var haldinn sunnudaginn
13. febr. 1910 i »Ungmennafélagi Ákraness«,
kom fram svo hlj. tillaga:
•Ungmennafélag Ákraness« er einhuga
fylgjandi aðflutningsbannslögum og vonast
eftir rækilegri framkvæmd þeirra hið allra
bráðasta.
Tillagan var samþykt með 52 samhljóða
atkvæðum.
Haraldur Böðvarss., Fetrea G. Sveínsd.,
forseti. p. t. ritari.
Leiðrétting:
Mér barst áðan i hendur »ísafold« frá
14. þ. m. og stendur þar meðal annars grein
frá Sig. Magnússyni á Patreksfirði.
í grein þessari standa meðal annars þessi
orð: »Það er áreiðanlegt, að þetta skjal
(þ. e. vantraustsyfirlýsingarundirskriftaskjal
stjórnarandstæðinga) var frá sýsluskrifstof-
unni sent og sýnt þeim, sem nokkrar likur
þóttu til, að mundu fást til að skrifa undir
það«. Af þvi að ummælum þessum er beint
til min finn eg ástæðu til að lýsa þvi hér
með yfir, að þau eru rakalaus ósannindi
frá upphafi til enda.
Ofanritaða leiðréttingu vildi eg biðja yð-
ur, hr. ritstjóri, sannleikans vegna að birta
sem fyrst i ísafoid.
Patreksfirði 18. maí 1910.
G. Björnsson.
Eins og raunalegt skáldsöguæfintýri
Svo má segja um æfi Yestur-lslend-
ings, er lózt hór í Landakotsspitala fyr-
ir fám dögum, 24. þ. mán.
Hann hót Á s g e i r og var F i n n-
b o g a s o n.
Hann var elztur þeirra Finnbogasona:
Guðm. meistara, Karls kennara og Jóns.
Þegar Ásgeir var fulltíða maður fór
hann til Ameríku; bonum fundust leiðir
hór heima ógreiðar og erfitt að gera
nokkuð v e r u 1 e g t. Hann kemur til
Winnipeg, er boðið þar óbrotið land, sór
að hann muni að líkindum með þraut-
seigju og iðni geta komist þar í álnir
— en heldur ekki meira. Það hugnaði
honum ekki. Hann hafði yfirgefið land-
ið í því skyni að koma aftur styrkvari
og færari til að láta gott af sór leiða.
Gullnámurnar í Alaska voru þá nýfundn-
ar. Um þær var kunuugt frá upphafi,
að þær voru jafn hættulegar heilsu og
Hfi manna eins og þær voru auðugar,
— að margir fundu þar gull, en fleiri
t/ndu þar heilsu og lífi. En þar var
einhverju fyrir að gangast og þangað
fór Ásgeir. Náttúran og mennirnir var
eins og verst gat verið. Landið hrjóstr-
ugt í- sjálfu sór, kuldi mikill, jörðin sí-
freðin og grimdarhríðar. í þessu landi
bjó samsafn manna úr mörgum löndum;
þeir voru, eigingjarnir og illir viðureign-
ar. Fátækir aðkomumenn urðu fyrst að
vinna hjá slíkum húsbændum nokkur ár,
fara alls á mis, spara og draga saman
kaupið þangað til hægt var að kaupa
landspildu og vinnuvólar, vélar til að
sprengja með freðinn svörðinn og bræða
svo stykkin yfir gufu, leita að gulli í
moldinni og ef ekkert fanst, þá að halda
af stað aftur út í 20—30° frost og hrið,
búnir í loðfeldi, leita enn af n/ju, ef
vera mætti, að einn lánsdagur bætti fyr-
ir þrautir margra eyddra ára. Þannig
líður æfin fyrir flestum þar; lítið finst
af gulli, en heilsan bilar, jafnvel hinn
hraustasti líkami lætur á sjá af slíkum
ókjörum,
Ettir 7—8 ár fær Ásgeir tæring.
Læknar segja, að bátavon só engin.
Heimþráin magnast enn meira. Yonin
ein um farsæla heimkomu hefir haldið
honum uppróttum öll þessi útlegðarár.
Hann heldur af stað til íslands, versnar
á leiðinni, fær þar að auki mislinga,
getur ekki komist til bræðra sinna á
Akureyri, er látinn fara í land í Reykja-
vík, einangraður í sóttvarnarhúsinu; fær
síðar að komast að í Landakoti. Finst
þrátt fyrir alt að hann hafa himin
höndum tekið, að vera kominn heim,
vera innan um íslendinga, heyra íslenzku,
mega hvíla í íslenzkri mold. Því öll
fjarvistarárin hefir hann hugsað um ís-
land eitt, um þarm mikla atburð a ð
koma heim þegar gullið væri
f u n d i ð, koma heim með bein í hendi,
vinna fyrir þá, sem bágstaddir eru þar,
og veikir.
Þá deyr hann ánægður, þvi höndlað
hefir hann þó hálfa hnossið eftirþreyða.
Gull kom hann ekki með heim, en hinzta
blundinum sofnaði hann heima.
_ /• /•
Um tap Landsbíinkans,
þessar 400,000 kr. minst, gefur
eitt reykvíska sannsöglistólið Hann-
esarhópsins (Lgr.) greinilega í skyn
í síðasta bl., að það muni vera tilbún-
ingur bæði hjá rannsóknarnefndinni
og bankastjórninni nýju, nema þessar
15,000 kr., sem fullreynt var um að
tapaðar voru í síðustu áramót. Lætur
sem þá muni tapið alt upp talið; það
séalt ogsumtl Hitt, 385 þús., segist það
ekki efast um, að nýja bankastjórnin
g e t i látið bnnkann tapa; gefur með
öðrum orðum í skyn, að hún muni
gera sér alt far um það, sjálfsagt til
þess að láta tapsáætlunina sannast I
Auðvitað fær málgagnið lögsókn
frá bankastjórunum fyrir þessa ósvífni.
Skipaferðir.
Botnia fór frá Leith þ. 25. þ. mán.
síðdogis. Væntanleg hingað í kvöld eða
í nótt.
Austra má búast við í dag eða svo.
Þ. 31. maí fer hann svo snöggva hring-
ferð á 6 dögum kringum landið,
samkv. áætlun.
Meira leikspil. (Leiðr.). Það er á einum
stað i greininni þeirri i síðasta bl. talað
um 4 hreppa af 10, en á að vera 8 af 14,
eins og segir þar siðar.
Járnbraut austur. Niðurlagið á hug-
vekju hr. Vigfusar Guðmundssonar um
járnbrautina, hefir dregist að birta vegna
þrengsla, en mun koma i 1—2 næstu bl.
í tveim síðustu blöðum ísafoldar hefir
hún minst á fulltrúafundinn í Reyðar
firði 12. þ. m., og hefir talað af furðu
miklum ókunnugleik.
Fundargerðin er ekki í mínum hönd-
um, en kemur með Austra nú um helg-
ina, og verður þá væntanlega prentuð í
blöðum. Nokkrar sk/ringar vil eg þó
gefa í bráð.
í Suður-Múlas/slu eru 14 hreppar,
ekki 10 að eins, svo sem ísafold telur
hvað eftir annað.1)
Til fulltrúakosninga var stofnað á
þann hátt, að eg bað einn málsmetandi
mann í hverjum hreppi (þar á meðal
var Sveinn Olafsson í Firði), að gangast
fyrir fulltrúakosningum. Eg mælti svo
fyrir, að einn fulltrúi skyldi kosinn fyrir
hverja 20 kjósendur, eða því sem næst,
svo að 2 væru kosnir fyrir fulla 30, 3
fyrir fulla 50 o. s. frv., og var þeirri
reglu fylgt.
Fulltrúar voru kosnir i 11 hreppum,
en í 3 ekki. Fórst hreppsfundur fyrir
í tveim þeirra, Berunesshreppi og Eiða-
þinghá, sökum óveðurs. En í Mjóafirði
mun ekki hafa verið reynt að boða til
kosningafundar, og er það þvi e i n i
hreppurinn, sem ekki sinti tilmæl-
um mínum um fulltrúakosning; en full-
trúafundinum sinti hann þó, því að
fundinum barst símskeyti frá Mjófirð-
ingum, þar sem mótmælt var aukaþingi
1 nafni 19 kjósenda; en kjósendur í
Mjóafirði munu vera tæpir 30 alls. Hinir
2 hreppar, er engan fulltrúa kusu, eru
víst heldur eigi mannfleiri en svo, að úr
hvorum þeirra mundi hafa átt að mæta
að eins einn fulltrúi.
I þeim 11 hreppum, þar sem kosn-
ing fór fram, voru kosnir alls 29 full-
trúar, og af þeim mættu svo á fundin-
um 21 úr 8 hreppum. Þeir fulltrúar,
sem heima sátu, voru 1 úr Breiðdal af
þrem kosnum, aldraður maður, sem ekki
treysti sér f ófærðinni, 1 úr Stöðvar-
firði, og var fundinum kunnugt um for-
föll hans og sömuleiðis, að þar eru nær
allir fylgjandi aukaþingskröfunni, 1 af
þrem úr Búðahreppi sökum sjúkleika, 1
úr Skriðdal sökum lasleika og ófærðar;
sendi hann bréf á fundinn og þar með
fundargerð hreppsfundar, með alleinarð-
legri aukaþingskröfu. Og svo vantaði
loks alla 4 fulltrúana, er kosnir höfðu
verið í Norðfirði. Voru þeir þó stað
ráðnir til fararinnar 2 dögum fyrir fund-
inn, enda heitið fararkaupi úr sveitar-
sjóði. Þeir voru allir kosnir til að mót
mæla aukaþingi, að hafa margir þar
eystra fyrir satt, að fyrirmæli frá æðri
stöðum hafi aftrað för þeirra. Fundar-
setning var frestað um nærri 2 stundir,
til þess að bíða Norðfirðinganua. —
Hinir 4, er heima sátu, voru kosnir til
að halda fram aukaþingskröfu.
Það sóst af þessu:
1. Að í ö 11 u m 14 hreppum kjör
dæmisins var tilmælum mínum um full-
trúafund sint. 2. Að kosnir voru 29
fulltrúar, en hefðu orðið alls 32, ef kos-
ið hefði verið í öllum hreppunum. 3.
Að af þessum 29 fulltrúum voru 25
kosnir til að halda fram aukaþingskröfu,
en 4 til að mótmæla henni, og 4. hefðu
fulltrúar verið kosnir í öllum hreppun-
um, þá hefðu þeir verið alls 32, 27
með aukaþingskröfu, en 5 á móti.
Með hlutfallskosning í einstökum
hreppum hefðu stjórnarliðar líkl. orðið
2 fleiri, þ. e. 7 á móti 25.
E n g i n n mun geta rengt þessa frá-
sögn með rökum.
Vill annars ekki ráðherrann rjúfa
þingið og efna til n/rra kosninga 1 Það
mundi taka af tvímælin í Suður-Múla-
s/slu sem annarstaðar.
Hinum unga ritstjóra ísafoldar vil eg
leyfa mór að segja:
1. Þegar ræða er um aukaþing eða
ekki aukaþing, þá skiftir það ekki máli,
hver atvinna mín er.
2. Það er trú mín, að störf mín, þótt
lítil hafi verið, sóu þarfari þjóðinni en
störf hans hingað til við blaðamenskuna.
3. Þau störf, sem eg hefi haft á hendi
til þessa, fyrir einstaka menn, fólög eða
þjóðfólagið, hefir mér auðnast að leysa
svo af hendi, að þeir, er fólu mór störf-
in, hafa unað allvel við. Eg óska hon-
um og ann sömu reynslu, þegar hann
kemst á minn aldur.
27. maí 1910.
Jón Jónsson Jrá Múla.
Hr. Jóni frá Múla var það mikið
áhugamál að koma þessum pistli sin-
um að í blaðið í dag og höfum vér
eigi viljað synja honum þess. En
pistillinn barst oss svo seint í hend-
ur, að ekki vinst timi til að gera veru-
legar athngasemdir við hann að þessu
sinni. Verður það þvi að biða næsta
blaðs.
En pess skal qetið pegar, að skýrsla
Isajoldar er höjð ejtir bréjum og skeyt-
um mjðg svo skilríkra manna par
eystra.
Svölunaryrðum hr. J. J. i »pylsu-
endanum* viljum vér fáu svara.
»Hverjum þykir sinn fugl fagur« —
h a n n er hrifinn af sjálfum sér. Verði
honum það að góðu. En dóma hans
um ritstjórn vora metum vér engis,
þvi að þar getur hann alls ekki verið
óvilhallur dómari.
Og úr því að hr. J. J. sjálfur er að
minnast á þarfastörf sin fyrir þjóðina,
er rétt að geta þess, að þeir eru æði
margir, er telja atvinnurekstur þann,
er hr. J. J. hefir starfað að sem verk-
*) Hér er um misprentun á tveim stöð-
nm i saf. að tefla; sbr. Leiðr. i bl. i dag.
En annarsstaðar i fundargreininni i síðasta
bl. eru hrepparnir taldir 14.
RitBtj.
Bkta Krónuöl.
Krónupilsener.
Bxport Dobbelt öl
Anker öl.
Vér mælum með Joessum öltegundum sem þeim FÍN-
USTU skattfriu öitegundum sem allir bindismenn
mega neyta.
]\T T~> Biðjið beinlinis um:
^ De forenede Bryggeriers öltegundir.
Strandbáturinn Austri
fer í hringferð um landið 31. maí kl. 9 árdegis. Kemur við á Seyðisfirði,
Akureyri og ísafirði. Kemur til Rvíkur aftur 6. júní.
færi i höndum mikla mannsins i New-
castle hafa verið síður en ekki til bless-
unar fyrir verzlunar-framfarir og verzl-
unarsjálfstæði þessa lands. — Orð hr.
J. J. um sjálfan sig gefa mikla ástæðu til
að gagnrýna opinbera framkomu hans
í stjórnmálum vorum hingað til, en það
verður að bíða betri tíma.
Ritstj.
Tlý fjúseign
á góðum stað í bænum
fæst keypt.
Neðri partur hússins er
stór og vönduð sölubúð.
Upplýsingar á afgr. ísafoldar.
Uppboð
Eftir beiðni eigenda frönsku skip-
anna, Martha og Perseverance frá
Dunkerque, sem nú liggja hér á höfn-
inni, verður uppboð haldið á nefnd-
um skipum mánudaginn 6. júní kl.
11 f. h. Uppboðið verður haldið í
franska konsúlatinu og verða skipin
seld í því ástandi er þau nú eru með
akkerum og keðjum.
Uppboðsskilmálar verða birtir í kon-
súlatinu áður en uppboðið byrjar.
Varakonsúll Frakka í Reykjavík.
i. P. Brillouin.
Ágætur
Hvalsporður
fæst f verzlun
Jóns Jónssonar
frá Vaðnesi.
Þeir sem vilja koma hestum sínum
til geymslu í Geldinganesi eru beðnir
að koma þeim í port Amunda Arna-
sonar kaupm., miðvikud. 1. júní nk.
kl. 12—2. Páll bóndi á Eiði, sem
hefir umsjón með nesinu og flutning
hestanna, verður þar til að taka á
móti þeim.
Hvernig hagað verður milliflutning
verður nánar auglýst siðar.
Grandinn milli nessins og lands er
afgirtur og læst hlið.
í nesinu er nóg vatn svo að hest-
um getur hvergi liðið betur.
Á næsta fundi
stúkunnar Verðandi nr. 9, 31. þ. m.
verður mjög þýðingarmikið mál tekið
til umræðu. Mjög áríðandi að templ-
arar sem í bænum eru fjölmenni.
Utanstúku félagar hafa lofað að taka
þátt í umræðunum.
Fjölmennið.
Islenzkt fræ. Fræsölu gegnir
eins og að undanförnu Ragnheiður
Jensdóttir Laufásveg 13.
Kvenmaöur sem er vanur allri
sveitavinnu óskast í vorvinnu nú þeg-
ar. Semjið við Jón Guðmundsson
kaupm. Laugaveg 24.
Unglingsstúlka óskast nú þeg-
ar á heimili hér í bænum til þess að
vera með börn. Ritstj. visar á.
Hurtigseiler Rap liggende
her paa havnen, modtager last til
Bergen for halv fragt i forhold til
Ruteskibene. Lasteklar 2. Juni. Edvin
Jakobsen, Lindargötu 9.
1 Jarðarfor Ásgeirs Finnbogasonar fer fram frá dómkirkjunni kl. 12 þriðjud. 31. þ. mán. - 1
Isl. smjör
er mjög ódýrt í verzlun
Jóns Jónssonar
frá Vaðnesi.
m Lifandi rósir m
nýkomnar: Fisher Holmes. Ulrich
Brunner fils. La France. Gloire de
Dijon. Caroline Tertout. Mosroser.
Einnig: Arelia Siebolde. Aracaria
excelsa. Blómlaukar og Blómsturfræ
fæst á Laugaveg 12.
SvantauQ Benidiktsdóttir.
SVEITAMENN og aðrir utan-
bæjarmenn, ekki síður en bæjar-
búar, ættu að snúa sér til undir-
ritaðs áður en þeir festa kaup
annarstaðar. Alls konar nauðsynja-
vörur eru ódýrastar — góð kaup ef
keypt er í stærri stíl. Ljáblöðin sem
bíta bezt, hvergi ódýrari. Brýni og
önnur heyvinnuáhöld, úr góðu efni.
Hóffjaðrir, pk. 1.40 og 2.55. Olíu-
fatnaður fyrir yngn og eldri, konur
og karla.
Munið eftir að koma til undirritaðs,
þá hafið þið hag af viðskiftunum.
Virðingarfylst
Jón Jónsson frá Vaönesi.